Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
íslandsmótið í knattspyrnu innanhúss:
Keppnin
hefst á
laugardaginn
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
innanhúss hefst á lagurdaginn
með keppni f 2., 3. og tveimur
riðlum f 4. deild karla. Um aðra
helgi verður síðan leikið f 1. deild
karla og kvenna og 4 deild karla.
Mótið fer fram í Laugardalshöll
og hefst kl. 09.00 á laugardag og
lýkur á sunnudagskvöld. Dregið
hefur verið í riðla og eru þeir sem
hér segir:
2. deild
A-riðill:
Leiftur, ÍBK, Stjarnan og
Þróttur Neskaupstað.
B-riðill:
Ármann, KA, Austri, og Einherji.
C-riðill:
Reynir Sandgerði,
Valur Rf., UBK og ÍBV.
D-riðill:
‘if'Jeisti, Skallagrímur,
Njarðvík og Víðir.
3. deild
A-rlðill:
Árvakur, Völsungur,
Léttir og Víkverji.
B-riðill:
Bolungarvík, Hrafnkell Freysgoði,
Skotfélag Reykjavíkur og Höttur.
C-riðill:
Reynir Á., Víkingur Ólafsvík,
Leiknir F. og Grindavík.
.D-riðill:
Vorboðinn, ísafjörður, Sindri
og Leiknir R.
4. deild
C-riðill:
Svarfdæla, Þórsmörk, Ösp,
Höfrungur, HSS og Tindastóll.
D-riðiil:
UMF. Fram, Augnablik, Reynir H.,
Árroðinn, Hvöt og Eyfellingur.
Efsta liðið í hverjum riðli kemst
upp í næstu deild fyrir ofan.
Neðsta lið hvers riðils fellur, þ.e.a.
s ef þau eru ekki í 4. deild.
Um aðra helgi verður síðan
keppt í 1. deild karla og kvenna og
í A- og B-riðli 4. deildar. Dregið
hefur verið í riðla.
1. deild karla
A-riðili:
Fram, Selfoss, Grótta og ÍK.
B-riðill:
ÍR, HSÞ-b, Valur og Haukar.
C-riðill:
KR, Víkingur, FH og KS.
D-riðill:
ÍA, Fylkir, Þór Ak. og Þróttur R.
Maradona
stóðst
skoðun
ÞAÐ amar ekkert að knattspyrnu-
stjörnunni Diego Maradona. í
gær var ökli hans skoðaður en
talið var að þar hefðu skrúfur,
sem settar voru f hann fyrir
nokkrum árum, losnað. Svo- var
ekki.
Maradona brotnaði á vinstri
ökla á Spáni 1983 og var þá negld-
úr saman. Síðan fékk hann spark
í öklan á sunnudaginn gegn
Ascoli og héldu menn að meiðslin
hefðu tekið sig upp. Sem betur fer
var það ekki og reiknar Maradona
með því að vera í liði Napoli á
sunnudaginn.
1. deild kvenna
A-riðill:
Grindavík, KR, Hveragerði
og Breiðablik.
B-riðill:
Þór Ak., Grundafjörður,
Stjarnan og Valur.
C-riðill:
ÍA, ÍBK, ÍBÍ og Afturelding.
D-riðill:
KA, KS, Fram, FH og Skallagrímur.
í 1. deild karla komast tvö efstu
liðin í undanúrslit en neðstu liðin
í hverjum riðli falla niður í 2. deild.
Sigurvegai hvers riðils í kvenna-
flokki keppa til úrslita um íslands-
meistaratitlinn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson fara akandi til Rostock, en í sitt hvorum bflnum. Hér sækir Sig-
urður að marki Dusseldorf og Páll reynir að stöðva hann.
Handboltalandsliðið:
Bíltúr um Evrópu
ISLENSKA landsliðið íhandknatt-
leik heldur f fyrramálið til Austur-
Þýskalsnds þar sem það tekur
þátt í Eystrasaltskeppninni í sem
hefst á miðvikudaginn í Rostock.
Þeir leikmenn sem leika í Vest-
ur-Þýskalandi gætu hugsanlega
lennt í einhverjum ævintýrum því
veðrið hefur sett sitt mark á færð-
ina í Evrópu undanfarnar vikur.
Páll Ólafsson, Bjarni Guðmunds-
son, Sigurður Sveinsson og Alfreð
Gíslason ætluðu allir að fljúga til
Rostock en nú hefur verið horfið
frá því þar sem flug hefur mjög
riðlast undanfarna daga og óvíst
hvort hægt veröur að fljúga til
Rostock.
Ekki er öruggara að fara með:
lest því þær eru marga klukkutíma
á eftir áætlun og komast ekki allt-
af leiðar sinnar. Þá var ekki um
ahnað að gera en láta þá taka bíla-
leigubil og hefur nú verð ákveðið
að Páll og Bjarni komi á einum
slíkum og Sigurður og Alfreð á
öðrum. Til að vera öruggir um að
komast ætla þeir félagar að taka
fjórhjóladrifsbíl og nú er bara að
vona að allt gangi vel hjá þeim.
Kristján Arason losnar við að
ferðast á þennan hátt því hann
kemur til Rostock með landsliði
Vestur-Þýskalands og þarf því ekki
að hafa áhyggjur af því að aka um
Evrópu í því veðri sem ríkt hefur
þar.
Þorbjörn mætir
Þorbjörn Jensson, fyrrverandi
fyrirliði landsliðsins, ætlar að koma
til Rostock til að fylgjast með
mótinu en hann leikur eins og
kunnugt er í Svíþjóð.
Þorbjörn mun koma til Rostock
föstudaginn 23. janúar og sjá þrjá
síðustu leiki íslands. Hann kemur
passlega til að veita strákunum
upplýsingar um Svíana því ísland
Frjálsar íþróttir:
Johnson, Bubka og
Protsenko settu
heimsmet í gær
ÞRJÚ heimsmet voru sett á al-
þjóðlegu frjálsíþróttamóti innan-
húss í Japan í gær. Spretthlaupar-
inn, Ben Johnson frá Kanada,
setti nýtt met í 60 metra hlaupi,
Sovétmaðurinn, Sergei Bubka,
bætti eigið með í stangarstökki
og landi hans, Oleg Protsenko,
setti met í þrístökki.
Það voru 10 þúsund áhorfendur
sem fylgdust með þessu stórmóti
í íþróttahöllinni í Osaka. Ben
Johnson hljóp 60 metrana á 6,44
sekúndum og bætti eigið heims-
met, sem hann setti á sama móti
í fyrra, um 0,06 sekúndur. „Ég er
Handknattleikur:
Piltalandsliðið
fær mörg verkefni
ÍSLENSKA landsliðið í handknatt-
leik, skipað leikmönnum 18 ára
og yngri, mun leika þrjá iands-
leiki við jafnaldra sína frá Vestur-
Þýskalandi helgina 13,—15.
febrúar næst komandi
Þetta er í fyrsta sinn sem lands-
leikir eru í þessum aldursflokki hér
heima ef Norðurlandamótið er
undanskilið.
Norðurlandamót í þessum ald-
ursflokki verður síðan haldið hér á
landi í apríl og nú munu í fyrsta
sinn allar Norðurlandaþjóðirnar
vera með. Island, Danmörk,
Svíðþjóð, Noregur, Finnland, Fær-
eyjar og Grænland munu öll keppa
á þessu stærsta Norurlandamóti
18 ára leikmanna.
í betri æfingu núna en nokkru sinni
áður á þessum tíma árs. Ég stefni
á að setja nýtt heimsmet í 100 m
hlaupi í sumar," sagði Ben Johnson
ánægður eftir hlaupið.
Sergei Bubka bætti eigið heims-
met í stangarstökki, sem hann
setti í New York í febrúar í fyrra,
um einn sentimetra, stökk 5,96
metra.
Þriðja heimsmetið á mótinu
setti svo Sovétmaðurinn, Oleg
Protsenko. Hann stökk 17,67
metra í þrístökki og bætti eldra
metið, sem Maris Bruziks setti í
febrúar ífyrra, um 13 sentimetra.
Góður árangur náðist einnig í
öðru greinum á mótinu. Igor Pakl-
in, Sovétríkjunum, sem á heims-
metið í hástökki innanhúss 2,41
m, sigraði í þeirri grein, stökk 2,30
metra. Robert Emmijan frá Sov-
étríkjunum sigraði í langstökki,
stökk 8,24 metra. Merline Ottey
frá Jamaica sigraði bæði í 60 og
200 m hlaupi kvenna. 60 metrana
hljóp hún á 7,19 sek. og 200 m á
24,80 sek.
leikur við þá í síðasta leik mótsins
sunnudaginn 25. janúar.
Myndband frá Spáni
Þeir félagar Sigurður Gunnars-
son og Einar Þorvarðarson munu
mæta til Rostock með myndbönd
af leik Sovétmanna og Spánverja
sem fram fór fyrir skömmu á
Spáni. Vonandi að leikmenn okkar
geti lært eitthvað af þeim upplýs-
ingum og leggji Sovétmenn að
velli.
• Magnús Bergs þjálfar Ármann
Magnús
Bergstil
Ármanns
MAGNÚS Bergs hefur verið ráð-
inn þjálfari hjá Ármenningum
fyrir komandi knattspyrnutímabil.
Magnús er gamalreyndur í
knattspyrnunni. Hann lék með Val
og síðan með Dortmund og
Braunschweig í Vestur-Þýska-
landi, Tongeren í Belgíu og Racing
Santander á Spáni. Magnús hefur
auk þess leikið 16 landsleiki og er
ekki að efa að hann getur miðlað
Ármenningum einhverju af reynslu
sinni.