Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 52
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
XJöföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
JMMftgiifttMftfrffr
FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Morgunblaðið/Einar Falur
Stardalshnúkur. Slysið varð er piltamir
Fræðsluskrifstofan á Akureyri:
Djúpstæður
ágreimngur
umstjómina
Sjálf stæðisyfirlýsingar Norðlendinga
„út í hött“, segir Sverrir Hermannsson
KENNSLA liggur viðast hvar
ípiiðri í grunnskólum Norður-
landskjördæmis eystra í dag.
Með þeirri ráðstöfun vilja kenn-
arar og skólastjórar mótmæla
uppsögn Sturlu Kristjánssonar
úr starfi fræðslustjóra umdæmis-
ins.
Trausti Þorsteinsson, skólastjóri
á Dalvík, sat í gær í stóli fræðslu-
stjóra fyrir hönd fræðsluráðs.
Fræðsluráðið telur að Menntamála-
Sigríður Ella
Magnúsdóttir:
Samningur
við Covent
Garden
SIGRÍÐUR Ella Magnúsdótt-
ir, söngkona, hefur fengið
samning við Covent Garden-
óperuna í Lundúnum sem
tekur gildi á vori komanda.
Mun Sigríður Ella syngja
hlutverk Charlotte í óperunni
Werther eftir Massenet, en
það er aðalkvenhlutverkið í
þeirri óperu.
„Ég er yfír mig ánægð með
þennan samning," sagði Sigríð-
ur Ella í samtali við Morgun-
blaðið, „sérstaklega vegna þess
að margar söngkonur voru í
boði fyrir þetta hlutverk. Þetta
er stórkostlegt hlutverk og mig
hefur mikið langað til að ræða
það. Það hefur verið mikil
spenna yfír þessu lengi, því
þetta kom til greina strax eftir
ferð mína til Austurlanda í
fyrra.“
I Werther kvaðst Sigríður
syngja á móti þeim Agnesi
Baltsa og tenórnum José Carrer-
as, sem fer með hlutverk
Werthers.
Farmannadeilan:
Búist við
fundi í dag
EKKI varð af fundi í kjaradeilu
undirmanna á farskipum og
kaupskipaútgerðarinnar í gær,
en búist er við að fundur verði
boðaður í dag.
Verkfall undirmanna á farskip-
um hefur staðið frá því á miðnætti
janúar.
ráðuneytið geti ekki mælt fyrir um
stjóm skrifstofunnar án atbeina
þess.
Sverrir Hermannsson, mennta-
málaráðherra, mótmælir harðlega
þessari afstöðu fræðsluráðs Norð-
urlands eystra. „Ég er orðlaus yfír
slíku óráðshjali," segir ráðherrann.
„Lög eru í gildi um þessi mál. Þeir
tala bara um „sunnanmenn" og
þykjast ekki vita að Menntamála-
ráðuneytið sé til og sé yfir þessum
málum. . . Þessar sjálfstæðisyfir-
lýsingar þeirra eru út í hött,“ segir
Sverrir í viðtali við Morgunblaðið.
í dag verður haldinn fundur
Fjórðungsstjómar Norðurlands.
Fyrir þeim fundi liggja drög að
ályktun þar sem „gerræði ráðherr-
ans“ er vítt harkalega. í drögunum
koma fram eindregnar stuðnings-
yfírlýsingar við þá ákvörðun
fræðsluráðs að taka yfir stjóm
fræðsluskrifstofunnar og álítur
stjómin „þann málatilbúnað
Menntamálaráðuneytisins, að
skólaskrifstofu þess skuli falið úr-
skurðarvald um málefni fræðslu-
ráða á meðan ekki er kominn
fræðslustjóri til starfa á ný, ganga
þvert á ákvæði reglugerða og
grunnskólalaga. “
Sjá samtöl og frásagnir
bls. 28, 29 og 31.
efst til vinstri í fjallinu.
Við Borgarspítalann.
Morgunblaðið/Júllus
Banaslys í Stardalshnúki
SAUTJÁN ára piltur úr
Reykjavík lést í gærkvöldi af
völdum áverka sem hann hlaut
er hann hrapaði í Stardals-
hnúki í Mosfellssveit. Þegar
slysið varð, var pilturinn að æfa
klifur í klettum ásamt öðrum
yngri og lagði sá sig í hættu
til að komast úr klettunum og
sækja hjálp. Ekki er hægt að
skýra frá nöfnum að svo
stöddu.
Piltamir vom að æfa sig í
40—50 metra háum þverhníptum
klettum efst í Stardalshnúki. Voru
þeir komnir um það bil 15 metra
upp klettana þegar þeir töldu
ókleift upp og ákváðu að síga nið-
ur aftur. Er þeir voru að ganga
frá festingum sigbúnaðarins gaf
sig festing og féll annar pilturinn
niður í stórgrýtta urð. Hann var
nokkuð vanur íjallgöngumaður og
var að leiðbeina hinum.
Sigbúnaðurinn féll niður með
piltinum, þannig að félagi hans
varð að að fikra sig upp á kletta-
brúnina og tókst honum það á
löngum tíma, líklega 2—3 klukku-
stundum. Eftir að hann hafði
hugað að félaga sínum hljóp hann
að bænum Stardal sem er um 2
km suðaustur af slysstaðnum.
Þangað var hann kominn um kl.
19.15 og eftir að búið var að gera
lögreglu og björgunarsveit viðvart
fór pilturinn með bóndanum á
staðinn. Félagar úr björgunar-
sveitinni Kyndli í Mosfellssveit
komu fljótlega á staðinn ásamt
lögreglumönnum úr Hafnarfirði
og lækni. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SIF, var fengin til að
sækja manninn en hann var látinn
áður en komið var með hann á
Borgarspítalann, klukkan rúm-
lega 21.
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur að rannsókn slyssins.
Atkvæði um sjómannasamningana talin í dag:
Launahækkun sj ó-
manna talin 9-13%
Kostnaður útgerðar vegna samninganna 250-300 milljónir
SAMKOMULAG tókst í gær í félaga sjómanna og greiddu þeir
kjaradeilu sjómanna á fiskiskip- atkvæði um það í gærkvöldi og í
um og útgerðarmanna og voru morgun. Verkfalli verður ekki af-
samningar undirritaðir á fjórða
timanum. Helztu atriði sam-
komulagsins eru þau, að 75%
afla við heimalöndun koma til
skipta í stað 70% áður og 76%
frá og með 1. júní næstkomandi.
Hlutfall afla til skipta mun í
framtíðinni taka mið af olíuverði
í birgðum hér á landi. Ennfremur
hefur náðst samkornulag um
skipti afla við sölu hans úr gám-
um erlendis og tekur það gildi
1. júní. Talið er að samkomulag
þetta færi sjómönnum 9 til 13%
launahækkun miðað við tiltekið
aflamagn og kosti útgerðina allt
að 300 milljónir króna.
Samkomulagið er háð samþykki
lýst fyrr en samkomulagið hefur
verið staðfest og búizt er við því,
að niðurstaða liggi fyrir í dag, en
atkvæði verða talin í heild hjá hvor-
um samtakanna fyrir sig, svo og
hjá Vestfjarðafélögunum. Stjóm
Landssambands íslenskra útvegs-
manna hefur þegar samþykkt
samninginn.
Forystumenn Sjómannasam-
bands íslands og Farmanna- og
fískimannasambands íslands lýstu
ánægju sinni með samkomulagið í
gær og töldu líklegt að það yrði
samþykkt. Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, lýsti yfir ánægju
sinni með að samningar hefðu
tekizt. Forystumenn skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Bylgjunnar og
Alþýðusambands Vestfjarða eru
ekki ánægðir með samningana, en
töldu þá skásta kostinn við þessar
aðstæður.
Vitað er um nokkra andstöðu
sjómanna vegna tengingar olíu-
verðs og skiptahlutfalls, en for-
svarsmenn útvegsmanna og
sjómanna leggja áherzlu á að með
tengingu olíuverðs og skiptahlut-
falls firri þeir sig hugsanlegum
afskiptum stjórnvalda. Samkomu-
lagið við yfirmenn gildir til tveggja
ára en við undirmenn í eitt ár. Jafn-
framt hefur náðst samkomulag um
það, að fyrri ágreiningsmál um
meint verkfallsbrot verði látin niður
falla og einnig er í samningunum
ákvæði um að skip sigli jafnskjótt
til hafnar og verkfall er skollið á,
en geti landað hvar sem er, enda
skuli verkfall boðað með 21 dags
fyrirvara.
Forystumenn stjómarflokkanna
lýstu báðir yfír ánægju sinni með
að samningar skuli hafa tekizt og
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra, segir að niðurstaðan sýni að
það hafi verið rétt mat að láta reyna
á samningaleiðina. Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra,
segist sannfærður um að ríkis-
stjómin hafi haldið rétt á málinu.
Forystumenn stjórnarandstöðunnar
segja að það hversu stuttan tíma
tók að ná samningum sýni að af-
skipti ríkisstjómarinnar hafi verið
frumhlaup.
Sjá frásagnir og viðtöl á bls.
4—5, 20—21 og 30 og 31.