Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 23 Verðbréfamarkaðurinn íPeking Á verðbréfamarkaðnum i Peking hefur hingað til ekki mikið verið talað um svindl og brask. Þar hefur enginn heyrt talað um Boesky og að menn, sem gerst viti, hlunnfari sauðsvartan aimúgann með því að nýta sér illa fengna þekkingu sína. Þessi glaðhlakkalegi starfsmaður verðbréfamarkaðarins í Peking heldur hér á hlutabréfum i vörumarkaði i Peking. Bréfin eru seld á 15 yuan óg er boðið upp á um helmingi hærri arð en vextir nema í Kína. Vopnasölumálið: í áætlun Norths var Khomeini bolað frá Washington, AP. OLIVER North, ofursti og fyrr- um starfsmaður þjóðaröryggis- ráðsins, gerði áætlun þar sem gert var ráð fyrir að allir banda- rískir gíslar yrðu látnir lausir í skiptum fyrir bandarísk vopn og að endi yrði bundinn á valdafer- il Ayatollahs Ruhollah Khomeini í Iran, að því er greint var frá í dagblaðinu Washington Post í gaer. Sagði einnig að þar hefði Jóhannesi Páli páfa II verið blandað inn í málið. í frétt í blaðinu Los Ángeles Ti- mes sagði að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hefði sjálfur fyr- irskipað Robert MacFarlane, fyrr- um öryggismálaráðgjafa, að fara til írans og látið hann hafa skjal, þar sem byltingarstjórnin í íran var viðurkennd „sem staðreynd“. í The Washington Post sagði að fundist hefði skjal í upplýsingasafni um North í Hvíta húsinu og þar hefði áætlun hans verið rakin í þaula. Áætlunin er dagsett 24. jan- úar 1986, viku eftir að Reagan gaf leyfi til vopnaflutninganna. North var rekinn úr starfi sínu í þjóðarör- yggisráðinu í nóvember. Cyrus Vance, fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði á miðvikudag að ákvörðun Banda- ríkjastjómar um að selja írönum vopn á laun væri slík handvömm að hún gæti rúið Bandaríkjamenn trausti bandamanna þeirra. Vance sagði þetta er hann bar vitni fyrir nefnd' Bandaríkjaþings, sem hefur utanríkismál á sinni könnu. Á dollarinn enn eftir að lækka? New York, Reuter, AP. ÞRATT fyrir yfirlýsingar Bandaríkjastjórnar um, að hún stefni ekki að því að lækka gengi dollarans, þá halda sérfræðingar því fram, að stjórnin sé í raun- inni að bjóða frekari lækkun heim með því að hindra ekki enn frekari lækkun hans t. d. með sérstökum aðgerðum á gjaldeyr- is- og peningamörkuðum i heiminum. Sérfræðingar álíta ennfremur, að mikill ágreiningur hafi komið fram á ný milli stjómarinnar og banda- ríska seðlabankans. Þá fari líkur nú vaxandi á því, að vextir verði hækkaðir í Bandaríkjunum, ef doll- arinn lækkar enn meira. Jafnframt séu nú horfur á því, að senn verði efnt til fundar fimm helztu iðnríkja heims um efnahagsmál, ef fall doll- arans heldur áfram, þar sem einkum sé nauðsynlegt, að endur- skoða samkomulag Bandaríkja- manna og Japana um ráðstafanir til þess að treysta gjaldmiðla þeirra og um vexti. I fyrradag sögðu bæði talsmenn Hvíta hússins og bandaríska fjár- málaráðuneytisins, að dollarnum hefði ekki verið ákveðið neitt lág- marksgengi, sem hann nætti ekki fara niður fyrir. En talsmaður Pauls Volcker, forseta bandariska seðla- bankans, ítrekaði hins vegar þá skoðun Volckers, að gengi dollarans hefði þegar lækkað meira en nóg. I Evrópu var það haft eftir Edou- ard Palladur, fjármálaráðherra Frakklands og Gerhard Stolten- berg, fjármálaráðherra Vestur- Þýzkalands, að nú væri svo komið, að dollarinn væri of lágt metinn. Nefndin rannsakar hvort heil brú hafi verið í þeim markmiðum, sem ná átti fram með vopnasölunni. Vance sagði að sú ástæða, sem gefin hefði verið fyrir vopnasölunni væri meingölluð. Sagt hefur verið að tilgangurinn hafi verið að ná samskiptum við hófsöm öfl í Iran til að draga úr hættu á því að Sovét- menn gætu aukið ítök sín í þessu olíuríki við Persaflóa. í blaðinu The New York Times sagði í gær að fjöldi þingmanna repúblikana, sem rannsaka vopna- sölumálið, séu þeirrar hyggju að forsetinn eigi að axla alla ábyrgð af gerðum stjórnar sinnar. Tveir þeirra, Henry Hyde og Orrin Hatch, kváðust hafa lagt það til við forse- tann að hann notaði tækifærið til að gera það þegar hann héldi stefnuræðu sína 27. janúar. V estur-Þýskaland: Líbanskur flugræningi tekinn með sprengiefni í fórum sínum Nakasone hvetur til leiðtogafundar YASHUIRO Nakasone, forsætis- ráðherra Japans, hvatti í gær stórveldin til að boða til leið- togafundar svo fljótt sem því yrði við komið. Nakasone lét þessi orð falla er hann hélt ræðu í háskólanum { Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu, þar sem hann var staddur í opinberri heimsókn. Á fréttamannafundi í gær sagði Nakasone að Gorbachev Sovétleiðtogi væri ævinlega vel- kominn til Japans en fullyrt hefur verið að Gorbachev hafi hafnað heimboði japönsku stjórnarinnar í fyrra. Þá sagði Nakasone að Banda- ríkjamenn ættu lof skilið fyrir að hafa verið í fylkingabrjósti lýðræð- isríkja og tryggt frið og velmegun á Vesturlöndum. Nakasone kvað horfur í afvopn- unarmálum ekki bjartar þar sem „skortur á trausti" skyggði á sam- skipti risaveldanna. Sagði hann nauðsynlegt að leiðtogar stórveld- anna héldu áfram viðræðum á grundvelli Reykjavíkurfundarins og hvatti til þess að boðað yrði til fund- ar þeirra hið fyrsta. Nakasone kom til Júgóslavíu á miðvikudag og átti í gær fund með Sinan Hasani, forseta landsins, Hasani sagði að koma Nakasones myndi vafalaust verða til þess að styrkja samband ríkjanna tveggja. Nakasone hélt í gærkvöldi frá Júgó- slavíu og mun næst sækja pólska ráðamenn heim. Grikkland: Skæruverkfall vegna stefnu sdórnarinnar Aþenu, AP. RÚMLEGA milljón Grikkjar, þ. á sagði Dimitris Costopoulos, forseti m. verksmiðjustarfsmenn og opin- berir starfsmenn, fóru í sólar- hrings verkfall í gær til að mótmæla aðhaldsaðgerðum stjórn- arinnar, sem hófust fyrir 15 mánuðum. Mörg þúsund verkamenn söfnuð- ust saman fyrir utan þingið í Aþenu og héldu á kröfuspjöldum. Á þau stóð letrað: „Niður með aðhaldsaðgerðirn- ar“ og „Hæðist ekki lengur að launamálum“. „Staðreyndirnar tala sínu máli. Stjómin verður að gera sér grein fyrir því að þorri fólks er andvígur aðhaldsaðgerðum hennar og mun halda áfram að berjast gegn þeim,“ samtaka stéttarfélaga í Aþenu, við mannfjöldann. Stjórn Andreas Papandreou, for- sætisráðherra Grikklands, ákvað fyrr í þessum mánuði að hækka laun verkamanna um 4,1 prósent. Verð- bólga í Grikklandi er 19 prósent. Samningar um kaup og kjör hafa verið bannaðir til ársloka. Stjórnin kveðst vera staðráðin í að halda að- haldsaðgerðum sínum áfram út þetta ár. Stefnt er að því að koma verð- bólgu niður í 10 prósent í desember. Verkamenn vilja að aftur verði snúið til þess að laun fylgi verðbólgu eins og var fyrstu fjögur árin, sem sósíalistar voru við völd. Frankfurt, AP. MAÐUR, sem grunaður er um að hafa rænt farþegaþotu banda- ríska flugfélagsins TWA árið 1985, hefur verið handtekinn í Vestur-Þýskalandi, að því er haft var eftir Jochen Schroers, tals- manni saksóknara í Frankfurt. Embættismenn í Bonn hafa greint frá því að maðurinn sé Líbani og heiti Mohammad Ali Hamadei. Þeir segja að hann hafi verið hand- tekinn á flugvellinum í Frankfurt er hann steig frá borði farþegaþotu líbanska flugfélagsins Middle East Airlines, sem kom frá Beirút. Sögðu embættismennirnir að Hamadei hefði verið handtekinn þegar tollverðir komust að því að þijár vínflöskur, sem hann hafði meðferðis, voru fullar af metýlnítr- ati. Sá vökvi er svipaður nítróglýs- eríni og er stundum notaður til að búa til sprengjur. Hamadei er einn þriggja manna, sem Bandaríkjamenn ákærðu fyrir flugrán og morð eftir að TWA- þotunni var rænt. Farþegaþotunni var haldið á flugvellinum í Beirút í 17 daga. Einn Bandaríkjamaður var myrtur. Skömmu eftir flugránið setti stjóm Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta 250.000 dollara til höfuðs flugræningjunum. Vestur-þýska sjónvarpsstöðin ZDF greindi frá því í fréttatíma í gær að embættismenn rannsökuðu nú hvort Hamadei hafi einnig átt aðild að sprengingu á flugvellinum í Frankfurt í júní árið 1985. Þá sprakk sprengja í flugafgreiðslunni með þeim afleiðingum að þrír monn létu lífið og 42 særðust. Talsmaður bandaríska sendiráðs- ins í Bonn, Robert Heath, vildi ekkert segja um handtöku Líbanans í Frankfurt. Hann er fyrsti maður- inn sem handtekinn hefur verið vegna flugránsins. Fyrirliggjandi í birgðastöð VÉ|A- STAL Stál 37 - 1 K DIN 17100/1652 Fjölbreyttar stæröir og þykktir • ■ ■ ■___________ sívalt ferkantað flatt SINDRAi .STÁLHF Ðorgartúni 31 sími 27222

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.