Morgunblaðið - 31.01.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANUAR 1987
ÚTVARP/SJÓNVARP
Akkilesar-
hællinn
Nú virðist nýja sjónvarpsstöðin
okkar, Stöð 2, vera í sókn ef
marka má hlustenda- og glápenda-
könnun SKÁIS. Niðurstöður skoðana-
könnunarinnar hafa þegar verið
tíundaðar í blöðum og óþarfí að endur-
taka þann pistil en er ekki við hæfí
að bera svolítið saman dagskrá stöðv-
anna svona almennt. Vissulega er ég
stöðugt að bera saman hér í pistli ein-
stök dagskráratriði en nú vil ég freista
þess að rýna dagskrárstefnuna og
einkum þó ákveðna meginþræði er ég
felli mig ekki við í dagskrá íslensku
sjónvarpsstöðvanna.
Ríkissjónvarpið
Undirritaður hefír löngum stutt
menningarviðleitni ríkissjónvarpsins
og hvatt til þess að til dæmis yrði
aukin kynning á myndlist. En slíkum
menningarþáttum verður að blanda
hæfílega saman við léttmetið er hvíla
skal hugann að afloknum löngum og
ströngum vinnudegi. Lítum til dæmis
á dagskrá rikissjónvarpsins síðastlið-
inn mánudag: 20:35 Besti vinur ljóðs-
ins. Sex skáld lesa úr verkum sínum.
21:00 Jarðhitadeild Orkustofnunar. Ný
íslensk fræðslumynd um jarðhita á
íslandi, nýtingu hans og starfsemi
Jarðhitadeildar Orkustofnunar. 21:30
Eins konar Alaska. Leikrit eftir Harold
Pinter. Kona, sem hefur legið í dái í
næstum þijátíu ár af völdum svefn-
sýki, vaknar aftur til lífsins. 22:30
Kvöídstund á abstraktsýningu. Þáttur
um yfirlitssýningu um íslenska ab-
straktlist á Kjarvalsstöðum.
Er hægt að ætlast til þess að áhorf-
endur innbyrði svo þunga dagskrá í
einum bita? Sex ung ljóðskáld þylja í
hálftíma ljóð svo er all flókin fræðslu-
mynd í hálftíma, þá sitja áhorfendur
i klukkutíma við sjúkrabeð konu er
hefir vaknað úr dauðadái og að lokum
er hlýtt á skýringar listfræðinga og
listamanna á abstraktlist. Dagskrár-
stjórar ríkissjónvarpsins mega vara sig
á því að ofbjóða ekki áhorfendum með
grafalvarlegri menningar- og fræðslu-
dagskrá og svo má ekki gleyma því
að ekki á allt innlent efni erindi í sjón-
varp. En mér virðist markmið sumra
dagskrárstjóra ríkissjónvarpsins vera
að fylla dagskrána af innlendu efni
hvað sem það kostar.
Stöö 2
Akkilesarhæll Stöðvar 2 er hin
þunga áhersla er dagskrárstjórar
leggja á misvandaða bandaríska
spennuþætti svo sem Miami Vice,
Magnum P.I., að ekki sé talað um
bullþætti á borð við Þrumufuglinn þar
sem hetjumar þvælast um í yfimátt-
úrulegri þyrlu og svo má ekki gleyma
uppgjafadómaranum og fylgisveini
hans. Þessir þættir eru afurð hinnar
steingeldu Kalifomíufabrikku og enda
flestir á skothríð og sprengjubardaga
enda treysta handritshöfundamir sér
ekki til að vinna frekar úr söguþræðin-
um. Ég er persónulega mjög ósáttur
við slík efnistök, einkum leiklausnina.
Hef ég áður vikið að því hversu alvar-
leg áhrif slik ofbeldisbylgja getur haft
á sálarlíf bama- og unglinga er ég
veit að liggja yfír þáttunum í tíma og
ótíma enda sýningartíminn mjög við
hæfi yngri kynslóðarinnar.
Það er dálítið undarlegt til þess að
hugsa að á sama tíma og Stöð 2 sker
upp herör gegn kynferðislegu ofbeldi
gegn bömum og unglingum er of-
beldisþáttum dengt yfír krakkana. I
hinum bandarísku sakamálaþáttum
eru málin oftastnær leyst með vopna-
valdi og þannig hlýtur sú hugsun að
skjóta rótum í sálarlífi ungmennanna
að það sé næsta eðlilegt að leysa
ágreiningsmál með byssum eða barefl-
um. Við sjáum hvert þessi áróður hefir
leitt bandarísku þjóðina, nánast á barm
glötunar. Eða geta menn ímyndað sér
ástandið þegar leitað er að vopnum í
gagnfræðaskólum? Viljum við slíkt fár
hér? Hreinræktaðir og hressir ofbeldis-
þættir á borð við Miami Vice eiga
heima í dagskrá sjónvarpsstöðvar en
þá aðeins á sýningartíma er hæfir full-
þroska fólki.
Ólafur M.
Jóhannesson
Bylgjan:
Asgeir Tómasson í banastuði
■■■■ Útvarpsmaður-
-| rjQQ inn Ásgeir
A • — Tómasson gekk
fyrir skömmu til liðs við
Bylgjuna og er nú með
flóra þætti í viku. Hann er
með þætti frá kl. 21.00-
23.00 á mánu-, þriðju- og
miðvikudagskvöldum. Þá
lætur hann alls konar rokk-
tónlist ganga fyrir og tekur
viðtöl við gesti og gangandi
eins og ástæða er til hvetju
sinni.
Nú um eftirmiðdaginn
hyggst Ásgeir hins vegar
hita menn upp fyrir helg-
ina. Hann kvaðst ætla að
leika allra handa rokk-
músík — frá 6. áratugnum
og fram á þennan dag —
að því tilskildu að hún
væri nægilega fjörug. Ás-
geir sagði til þess að öruggt
væri að aldrei væri dauður
punktur í þættinum hefði
hann valið lögin með tilliti
til þess að þau væru ekki
lengri en þijár mínútur.
Kæmi hins vegar í ljós að
svo væri, yrðu þau hin
sömu lög rifin af fóninum
samstundis!
UTVARP
LAUGARDAGUR
31. janúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn
7.00 Fréttir
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur". Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veöurfregnir
sagöar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesið úr forustu-
greinum dagblaðanna.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 í morgunmund
Þáttur fyrir börn í tali og tón-
um. Umsjón: Heiðdís
Norðfjörð. (Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.25 Morguntónleikar
Hornkonsert í E-dúr eftir
Carl Stamitz. Hermann Bau-
mann og Ungverska filharm-
onfusveitin leika; Yav Talmi
stjórnar.
b. Konsert í c moll fyrir fiðlu,
óbó og hljómsveit eftir Jo-
hann Sebastian Bach.
Gidon Kremer og Hinz Holl-
iger leika með St. Martin-in-
the-Fields-hljómsveitinni;
Heinz Holliger stjórnar.
11.00 Vísindaþátturinn
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá
Stiklaö á stóru í dagskrá
útvarps um helgina og
næstu viku. Umsjón: Trausti
Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú
Fréttir og fréttaþáttur í viku-
lokin f umsjá fréttamanna
útvarps.
12.45 Veöurfregnir
12.48 Hér og nú, framhald
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna
Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líðandi stund.
Umsjón: Magnús Einarsson
og Olafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.15 Veðurfregnir
16.20 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Skeiðvöllur-
inn" eftir Patriciu Wrightson
í leikgerð Edith Ranum.
Lokaþáttur: Hérinn vinnur.
Þýðandi: Hulda Valtýsdóttir.
Leikstjóri: Þórhallur Sig-
urösson. Leikendur: Árni
Benediktsson, Einar Bene-
diktsson, Stefán Jónsson,
Þórður Þóröarson, Erlingur
Gíslason, Árni Tryggvason,
Flosi Ólafsson, Sigurður
Skúlason, Sigmundur Örn
Arngrímsson, Jón Gunnars-
son, Guðrún Alfreösdóttir,
Valdimar Helgason og
Benedikt Árnason.
(Áður útvarpað 1976.)
17.00 Að hlusta á tónlist
Sautjándi þáttur: Hvað er
sinfónía?
Umsjón: Atli Heimir Sveins-
son.
SJÓNVARP
áJí.
Tf
LAUGARDAGUR
31.janúar
14.55 Enska knattspyrnan —
Bein útsending
Tottenham — Crystal
Palace eða Manchester
United — Coventry í fjórðu
umferð bikarkeppninnar.
16.45 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.05 Spænskukennsla: Habl-
amos Espanol
Ánnar þáttur.
Spænskunámskeið í þrett-
án þáttum ætlaö byrjendum
og Spánarförum.
Islenskar skýringar: Guðrún
Halla Tulinius.
18.30 Ævintýri frá ýmsum
löndum
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
Sögumaöur Helga Jóns-
dóttir.
18.55 Gamla skranbúðin
(The Old Curiosity Shop) 9.
þáttur.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I tiu þáttum, gerður
eftir samnefndri sögu Charl-
es Dickens.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.20 Fréttaágrip á táknmáli
19.25 Stóra stundin okkar
Umsjón: Elísabet Brekkan
og Erla Rafnsdóttir.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Lottó
20.35 Nýtt líf — Seinni hluti
Islensk gamanmynd um tvo
æringja á vertíð í Eyjum.
Leikstjóri Þráinn Bertelsson.
Aðalhlutverk Karl Ágúst
Úlfsson og Eggert Þorleifs-
son.
21.25 Fyrirmyndarfaðir
(The Cosby Show) — 6.
þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur með Bill Cosby I
titilhlutverki.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
21.50 Nadia
Bandarisk bíómynd frá árinu
1984.
Leikstjóri Alan Cooke.
Aðalhlutverk Talla Balsam
og Jonathan Banks.
Saga rúmensku fimleika-
stúlkunnar Nadiu Comaneci
sem varð heimsfræg þegar
hún vann þrenn gullverð-
laun á Ólympíuleikunum i
Montreal áriö 1976 aðeins
fjórtán ára að aldri.
Þýðandi Gauti Kristmanns-
son.
23.25 Hótel New Hampshire
Bandarísk bíómynd frá árinu
1984, gerð eftir samnefndri
metsölubók John Irvings.
Leikstjóri Tony Richardson.
Aðalhlutverk: Jodie Foster,
Beau Bridges, Rob Lowe
og Nastassja Kinski.
Piltur og stúlka kynnast á
hótelinu New Hampshire
þar sem ýmsir furðufuglar
búa, þará meðal austurrísk-
ur gyöingur sem á tamið
bjarndýr. Börnin þreytast
seint á sögum föður síns frá
þessu sumri en kynnast
síðar meir sjálf furðulegu
mannlifi og ýmsu misjöfnu
þegarfjölskyldunni býðst að
taka að sér hótelrekstur I
Vinarborg.
Atriði i myndinni eru ekki við
hæfi barna.
Þýðandi Jón O. Edwald.
01.15 Dagskrárlok.
0
STÖÐ2
LAUGARDAGUR
31. janúar
§ 9.00 Lukkukrúttin. Teikni-
mynd.
§ 9.30 Högni hrekkvísi.
Teiknimynd.
§ 10.00 Penelópa puntudrós.
Teiknimynd.
§ 10.30 HerraT. Teiknimynd.
§ 11.00 Vængfákurinn
(The Winged Colt).
Unglingamynd. Frændi
Charles, sem er ungur
strákur, var staögengill í
kúrekamyndum. Charles
heimsækir frænda sinn og
hyggst læra af honum list-
ina. Öllum til mikillar und-
runar reynist eitt folaldið á
bænum geta flogiö.
12.00 Hlé.
16.00 Hitchcock. Réttlæti
(l'll be Judge Jury).
Nýgift hjón á brúðkaups-
feröalagi í Mexíkó eru myrt.
Lögreglunni mistekst að
sanna sekt morðingjans svo
að ættingjar fórnarlamb-
anna taka til sinna ráða.
§ 17.00 Hinir öldruðu
(The Last Of The Great
Survivors). Bandarísk kvik-
mynd frá 1984 með Pam
Dawber, James Naughton,
Thom Bray, Michael Callan
o.fl. í aðalhlutverkum.
Aldrað fólk sem býr I ófull-
nægjandi húsnæði á í
útistöðum við yfirvöld sem
vilja dæma húsnæðið
óíbúðarhæft. Þau fá til liðs
við sig mann sem ber hag
þeirra fyrir brjósti. Leikstjóri
er Jerry Jameson.
§ 18.30 Myndrokk.
19.00 Teiknimynd. Gúmmí-
birnirnir (Gummi Bears).
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami
(Miami Vice). Bandariskur
framhaldsmyndaflokkur.
§ 20.45 Stjarna (Star).
Bandarísk bíómynd meö
Julie Andrews, Richard
Crenna, Michael Craig og
Daniel Massey í aðalhlut-
verkum. Myndin fjallar um
lif og frama söngstjörnunnar
Gertrude Lawrence (Julie
Andrews). Fylgst er með
sigrum hennar í sviösljósinu
og hvernig hún fetar met-
orðastigann i Englandi
meðan hún er í ástarsam-
bandi við breskan aðals-
mann.
§ 23.40 Orrustuflugmaðurinn
(Blue Max). Bandarisk bíó-
mynd frá 1966 með George
Peppard, James Mason og
Ursulu Andress í aöalhlut-
verkum. Metnaðargjörnum
ungum manni í þýska land-
hernum í heimsstyrjöldinni
fyrri gefst tækifæri til að
gerast orrustuflugmaður.
Þrátt fyrir ruddaskap og
óvinsældir vinnur hann til
æðstu heiðursmerkja fyrir
frábæra framgöngu..
Leikstjóri er John Guillermin.
§ 02.10 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
18.00 Islenskt mál
Jón Aðalsteinn Jónsson flyt-
ur þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar
19.35 Skriöiö til skara
Þáttur i umsjá Halls Helga-
sonar og Davíös Þórs
Jónssonar.
20.00 Harmoníkuþáttur
Umsjón: Sigurður Alfons-
son.
20.30 Herkonungur og
menntafrömuður. Séra Sig-
urjón Guöjónsson flytur
frásöguþátt, þýddan og
endursagðan.
21.00 Islensk einsöngslög
Kristján Jóhannsson syngur
lög eftir Sigvalda Kaldalóns,
Markús Kristjánsson, Þórar-
inn Guðmundsson og Emil
Thoroddsen. Konunglega
fílharmoníusveitin leikur
með; Karsten Andersen
stjórnar.
21.20 Á réttri hillu
Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur-
eyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir
22.20 Mannamót
Leikið á grammófón og litið
inn á samkomu. Kynnir:
Leifur Hauksson.
24.00 Fréttir
00.05 Miðnæturtónleikar
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok
Næturútvarp á rás 2 til kl.
. 03.00.
LAUGARDAGUR
31. janúar
9.00 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Morgunþáttur i umsjá
Ástu R. Jóhannesdóttur.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
15.00 Við rásmarkið. Þáttur
um tónlist, íþróttir og sitt-
hvað fleira. Umsjón: Sigurö-
ur Sverrisson ásamt
iþróttafréttamönnunum Ing-
ólfi Hannessyni og Samúel
Erni Erlingssyni.
17.00 Savanna, Ríó og hin
trióin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka i
tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin. Gunnlaug-
ur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt með
Andreu Guðmundsdóttur.
03.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera
Þáttur fyrir unglinga og
skólafólk um hvaöeina sem
ungt fólk hefur gaman af.
Umsjón: Finnur Magnús
Gunnlaugsson.
989
BYLGJAN
LAUGARDAGUR
31. janúar
08.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á þaö
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 08.00 og 10.00.
12.00—12.30 í fréttum var
þetta ekki helst. Randver
Þorláksson, Júlíus Brjáns-
son, Guðrún Þóröardóttirog
Saga Jónsdóttir bregða á
leik.
12.30-15.00 Jón Axel á Ijúf-
um laugardegi. Jón Axel í
góðu stuði enda með öll
uppáhaldslögin ykkar. Aldr-
ei dauður punktur.
Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Óskarsson leikur 40 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Ásgeir Tómas-
son á laugardegi. Léttur
laugardagur með Ásgeiri,
öll gömlu uppáhaldslögin á
sinum stað.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir litur á atburöi
siðustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir í laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir kvöld-
ið með tónlist sem engan
ætti að svikja.
23.00—04.00 Jón Gústafsson,
nátthrafn Bylgjunnar, heldur
uppi stanslausu fjöri.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gisla
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
ALFA
Kristileg UnrpntM.
FM 102,9
LAUGARDAGUR
31. janúar
13.00 Skref I rétta átt. Stjórn-
endur: Magnús Jónsson,
Þorvaldur Daníelsson og
Ragnar Schram.
14.30 Tónlistarþáttur.
16.00 Hlé.
18.00 Á rólegu nótunum með
Eiríki Sigurbjörnssyni.
20.00 „Vegurinn til Paradis-
ar". Þáttur i umsjónÓla Jóns
Ásgeirssonar. Óli leikur fyrir
okkur kristilega tónlist og
segir okkur frá þeirri stóru
gjöf sem Jesús Kristur er
fyrir alla þá sem við honum
taka.
22.00 Litið í ritninguna. Kvöld-
stund með ýmsu efni.
24.00 Dagskrárlok.