Morgunblaðið - 31.01.1987, Side 15

Morgunblaðið - 31.01.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987 15 voru upp í bréfí til hans dagsettu 9. janúar. Þeim mætti skipta í femt. í fýrsta lagi tveir fundir Sturlu með starfsmönnum menntamálaráðu- neytis í október 1986 og janúar 1987, þar sem farið var jrfir stöðu mála og Sturlu gefínn kostur á að færa fram sjónarmið sín eins og það var orðað. Þar sem ekki væri tilgreint í bréfinu hvað hefði komið fram á fundunum væri ekki hægt að sjá hvað Sturla hefði brotið af sér þar. í öðru lagi væri Sturla talinn hafa sniðgengið fyrirmæli mennta- málaráðuneytisins varðandi fj'ár- málalega umsýslu í fræðsluum- dæminu. Sverrir sagði að þessi ásökun hefði verið hrakin af öðrum, meðal annars fræðsluráði Norður- lands eystra 19. janúar 1987. í þriðja lagi var tekið fram áminningarbréf menntamálaráð- herra til Sturlu dagsett 23.8. 1986 þar sem sterklega er að því fundið að Sturla hefði skýrt frá trúnaðar- málum á blaðamannafundi. Sverrir sagði að vikustundafjöldi skólanna gæti tæpast verið leyndarmál tveimur vikum fyrir upphaf kennsl- utímans. Að auki hefði verið boðað til þessa fundar af báðum fræðslu- umdæmum Norðurlands að frum- kvæði fræðslustjóra Norðurlands vestra. í fjórða lagi var talið ítrekað brot á trúnaðarskyldu, þar á meðal að hafa gert opinbera greinargerð um málefni fræðsluumdæmisins dagsettri í nóvember, áður en ráðu- neytinu hafði verið veitt tækifæri til að kynna sér efni hennar og koma á framfæri athugasemdum og leiðréttingum. Sagði Sverrir að þessi greinargerð hefði verið samin af 5 manna nefnd sem kjörin var til þess á sameiginlegum fundi skólastjómenda, formanna skóla- nefnda og fræðsluráðsmanna á fundi í Glerárskóla 21. nóvember 1986. Að lokinni skýrslugerðinni gekk nefndin á fund þingmanna kjördæmisins og birti þeim greinar- gerðina í trúnaði. Einstakir nefnd- armenn hefðu ekki birt þessa skýrslu fyrr en hún var notuð sem sakarefni gegn einum nefndar- mannanna. Það hefði verið mennta- málaráðherra sjálfur sem las kafla úr henni í útvarp skömmu fyrir áramót. Sverrir sagði að þau sem sátu Glerárskólafundinn hefðu öll átt hlut að því að greinargerðin var samin, sendinefndin kosin og send, og því hafi þau öll borið þá þungu ábyrgð sem þau fínni sárt til nú þegar einn þeirra hefði verið sviftur atvinnunni fyrir að tala þeirra máli að þeirra beiðni. Sverrir sagði að til væru sögur af grimmum konung- um sem gerðu aðkomna sendimenn höfðinu styttri ef þeir fluttu óþægi- leg tíðindi. Sá siður væri þó víðast hvar aflagður fyrir löngu. Ógnarstjórn menntamála Sverrir sagði að fólki hefði þótt nokkuð á vanta á að ástæður fyrir brottvikningu Sturlu væru nógu sannfærandi og afdráttarlausar. Þá hafí verið latið í það skína að margt væri ótalið enn og jafnframt hefði menntamálaráðhera látið þess getið í útvarpsviðtali að ef einhvetjir dirfðust að verja hinn brottvikna fræðslustjóra skyldu þeir hafa verra af. „Þessi ummæli leyfí ég mér að kalla ógnarstjom menntamála á íslandi, þegar haft er í hótunum við menn sem em á annari skoðun en menntamálaráðherra og dirfast að halda henni fram. Engum skal þó takast að hræða okkur til þagn- ar,“ sagði Sverrir. Sverrir sagði síðan að lestur menntamálaráðherra á Alþingi úr bréfum frá Sturlu hefði ekki verið sannfærandi sönnun fyrir sekt Sturlu og vísaði síðan á bug þeim ásökunum menntamálaráðherra á Alþingi að mál Sturlu hefði verið notað af skólamönnum á Norður- landi til að koma höggi á sig Sverrir Pálsson Trausti Þorsteinsson. Rósa Eggertsdóttir. Benedikt Sigurðarson. Kristján H. Theódórsson. Árni Steinar Jóhannsson. Garðar Karlsson. pólítískt. Sverrir sagði að sá stóri hópur skólastjómenda á Norður- landi eystra hagi ekki orðum sínum og athöfnum í máli þessu eftir nein- um flokkslínum því baráttumál hópsins séu langt fyrir utan allt flokkapot. Sverrir sagði að sér virt- ist menntamálaráðherra vilja gera þau öll að alþýðubandalagsmönn- um. „Hver veit nema honum takist það ef hann verður nógu lengi við völd,“ sagði Sverrir síðan. Ósanngjörn nöfn Sverrir minntist síðan á það að þeim hefðu verið gefín nöfn sem ekki væm af geðslegasta tagi og sagðist verða að játa að það væri miðlungi drengilegt af þingmanni og ráðherra í umrðum á Alþingi að hafa uppi lastmæli um fjarstatt fólk sem hefði það eitt til saka unnið Stefán Gunnlaugsson. að vera á annari skoðun en ráð- herra. Ráðherra hefði kosið að kalla skólastjómendur á Akureyri „hyski" og „kóna“, ogtekið sérstak- lega fram að hann notaði hyski í merkinunni ómerkilegt fólk. Sverrir sagði að orðabækur gæfu upp sam- heiti hyskis sem illþýði, og kóna sem þorpari og óþokki. Þama talaði menntamálaráðherra um undir- menn sína og því bæri að taka fullt mark á orðum hans. Sverri sagði að þetta særði starfsheiður þeirra sem hefðu reynt af fremsta megni og bestu samvisku að gegna störf- um sínum af kostgefni. Mennta- málaráðherra gæti tæpast varið það fyrir nemendum skóla og foreldrum þeirra að hafa fólk sem hann lýsir svo í starfí við skólana og veitir þeim jafnvel forstöðu. Sverrir sagð- ist ekki geta séð betur en ráðherra yrði annaðhvort að víkja öllum úr fyrirvararlaust- úr starfí. Hann sagði síðan, að spyija mætti, hvort skólaumdæmið hefði sérstaka skólastefnu og bætti við: Að vissu leyti má segja að svo sé. Stefnan er í því fólgin að grunnskólalögin nái fram að ganga hér og við njótum þeirrar þjónustu sem þar er kveðið á um, en nokkuð hefur á vantað um.“ Hann sagðist síðan telja, að um þetta hefði myndast samstaða meðal sveitarstjómar- og skóla- manna en að ötulasti baráttumaður- inn í þessum málum hefði verið Sturla Kristjánsson. Því hefði mönnum brugðið við, þegar hann hefði verið brott rekinn á þeim for- sendum, sem þeir hefðu barist hvað harðast fyrir að fá staðfest úr gmnnskólalögum. Trausti las síðan upp úr 14. gr. grunnskólalaga um embætti fræðslustjóra, meginverkefni hans og starfsskyldur. Hann sagði verk- svið hans bundið lögum en ekki háð duttlungum stjómmálamanna hverju sinni. Hann vitnaði í ræðu Þorsteins Pálssonar formanns Sjálf- stæðisflokksins þar sem hann hefði sagt, að það væri ekki hlutverk ríkisvaldsins að draga úr fmm- kvæði og forræði fólksins, heldur að jafna aðstöðumun þess hvað varðaði búsetu. Þetta kvað Trausti vera eitt meginverkefni fræðslu- skrifstofa að sínu mati. Hann ræddi síðan nokkuð verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga og hlutverk fræðslustjóra og skrifstofu hans. Þá deildi hann á menntamála- ráðherra fyrir skilningsleysi á þörfum landsbyggðarinnar og sagði m.a., að miðstýringarvaldið, starfs- menn ráðuneytis, hefðu viljað nota fræðsluskrifstofur sem póststöðvar. Þá hefði menntamálaráðuneytið unnið gegn fræðsluskrifstofunum í baráttunni við Hagsýslustofnun varðandi fjárveitingar og spurði síðan: „Hvers vegna er ekki farið ofan í málin, áður en í óefni er komið?" Ræðumaður ræddi ennfremur stöðu fræðslumála í kjördæminu eftir brottvikningu Sturlu og sagði, að starfsemi fræðsluskrifstofunnar hefði lamast: Hann sagði að lokum: „Heiðurs okkar vegna verðum við að fá leiðréttingu á málum fræðslu- stjöra. Páð 6r náUðsýniegt að fara í saumana á þessu máli. Brottvísun eins manns hefur engan vanda leyst, heldur skapað annan, - meiri og dýpri gjá. Ég bið ráðherra, að hann hlutist til um að tilnefna menn í nefnd til að fara í saumana á þessum samskiptamálum og setja fram tillögur um það, hvernig þeim verði best háttað í framtíðinni." Tómas Ingi Olrich. starfji samstundis vegna vanhæfni eða taka orð sín aftur opinberlega. Skoraði Sverrir á ráðherra að gera það og einnig að rétta hlut Sturlu Kristjánssonar og setja hann aftur í embætti fræðslustjóra, eða að minnsta kosti að tryggja hinum hlutlausa rannsókn á samskiptum menntamálaráðuneytisins og fræðsluyfírvalda á Norðurlandi eystra. Skapað meiri og dýpri gjá Trausti Þorsteinsson skóla- stjóri á Dalvík og fulltrúi í fræðsluráði tók næstur til máls. Hann hóf mál sitt á því að segja,' að fræðsluumdæmið hafí svo til log- að síðustu daga vegna þeirrar ákvörðunar menntamálaráðherra að vísa fræðslustjóra umdæmisins Ráðherra haldi áfram tiltektum Bárður Halldórsson mennta- skólakennari á Akureyri sagði ánægjulegt, þrátt fyrir að þessi fundur gengi út á brottvikningu Sturlu, að verða vitni að þessum mikla áhuga á skólamálum í kjör- dæminu sem hann taldi að fælist í íjölda fundarmanna.. Varðandi upp- sögnina sem slíka sagði hann: „Hafi ráðherra álitið að fræðslustjórinn, sem var undirmaður hans í em- bætti, og honum bar því að fylgja lögum og reglugerðum í umboði ráðherra, - hafí hann brotið af sér, þá bar ráðherra að víkja honum úr embætti." Hann sagði síðan að deila mætti um með hvaða hætti ráðherra hefði átt að víkja Sturlu frá störfum. Það væru tvær leiðir til þess. í fyrsta lagi að víkja mönnum tímabundið frá og láta fara fram könnun á embættisfærslu hans. Sú leið krefð- ist væntanlega þess að einhveijir þeir fyndust, sem til þess væru hæfír, þ.e. að annast þá könnun. Hann sagði síðan: „Nú eru ásakan- ir ráðherra tvíþættar. Annars vegar hefur hann sakað fræðslustjóra um að hlíta ekki fjáriögum og óhlýðn- Sjá bls. 33. Bárður Halldórsson. Kristín Sigfúsdóttir. Bjarni Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.