Morgunblaðið - 31.01.1987, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987
Háskólinn XII:
Rannsóknastofnanir
við heimspekideild
eftir Þórð
Kristinsson
Svo sem frá var greint í síðasta
pistli eru fimm rannsóknastofnan-
ir við heimspekideiid, Bókmennta-
fræðistofnun, Málvísindastofnun
og Sagnfræðistofnun eru elstar
og hafa allar aðsetur í Áma-
garði; Heimspekistofnun og
Rannsóknastofnun í erlendum
tungumálum eru yngri og hefur
sú fyrmefnda aðsetur til bráða-
birgða í aðalbyggingu, en hin
síðamefnda engan fastan sama-
stað. Starfsmenn stofnananna eru
fastir kennarar viðkomandi
greina, rannsóknarfólk sem vinn-
ur að tímabundnum verkefnum
eftir því sem fé fæst til og stúdent-
ar; en kennarar vinna einnig að
sínum rannsóknum utan stofnan-
anna.
Töluverð vinna að útgáfu fræði-
rita, sem gefin eru út hjá ýmsum
forlögum, er á vegum allra þess-
ara stofnana og yrði löng þula ef
allt væri talið. Látum því nægja
fáein dæmi til að gefa nokkra
hugmynd um starfið.
Bókmenntafræðistofnun gefur
út þrjár ritaraðir: íslensk rit, en
í þeirri röð er t.d. Upplýsing og
saga. Sýnisbók sagnaritunar ís-
lendinga á upplýsingaröld (1982);
ársritið Studia Islandica er önnur
ritaröð, en þar hefur birst fyöldi
merkra rannsóknaritgerða allar
götur frá 1937 er Studia kom
fyrst út; og loks er ritaröðin
Fræðirit, en í henni hafa komið
út sex bækur, þar á meðal
fræðsluritin Bragur og ljóðstfll,
Eðlisþættir skáldsögunnar, leikrit
á bók og fræðiorðabókin Hugtök
og heiti í bókmenntafræði. Mesta
verkefnið sem nú er unnið að er
íslensk bókmenntaskrá sem er
tölvuunnin eftir kerfí sem verður
á skráningum Landsbókasafns og
Þjóðarbókhlöðu.
Við Málvísindastofnun hafa
verið stundaðar máliýskurann-
sóknir í sex ár, þ.e. rannsóknir á
íslensku nútímamáli, einkum
framburði, og hafa ritgerðir um
þessar rannsóknir birst í ýmsum
tímaritum, auk þess sem allmarg-
ir stúdentar hafa ritað námsrit-
gerðir í tengslum við þær.
Rannsóknir á bamamáli eða mál-
töku bama hafa einnig verið í
gangi síðan 1980 og hafa greinar
um einstaka þætti rannsóknanna
víða birst og námsritgerðir verið
skrifaðar í tengslum við þær. Þá
tekur stofnunin þátt í samnor-
rænu verkefni í setningafræði, en
þar er fengist við fræðilegan sam-
anburð norrænna mála og
áformað að nýta niðurstöður við
gerð kennsluefnis.
Sagnfræðistofnun hefur staðið
fyrir tveimur stórum rannsóknar-
verkefhum sem nú er lokið.
Niðurstaða annarrar er Vestur-
faraskrá 1870—1914, sem er skrá
jrfír fólk sem flutti frá íslandi til
Ameríku á þessu tímabili. Hitt
verkefnið var unnið í samvinnu
við jarðvísindamenn í háskólanum
og er árangurinn birtur í ritinu
Skaftáreldar 1783, en þar er um
að ræða rannsókn á Skaftáreldum
„Við Málvísindastofn-
un hafa verið stundað-
ar mállýskurannsókn-
ir í sex ár, þ.e.
rannsóknir á íslensku
nútímamáli, einkum
framburði, og hafa
ritgerðir um þessar
rannsóknir birst í ýms-
um tímaritum, auk
þess sem allmargir
stúdentar hafa ritað
námsritgerðir í tengsl-
um við þær.“
og móðuharðindum. Nú er unnið
að ritaskrá íslenskrar sögu. Þá
eru tvær ritaraðir á vegum stofn-
unarinnar og í samvinnu við aðra;
önnur er Sagnfræðirannsóknir, en
í þeim flokki, sem ætlaður er til
sölu á markaði, hafa komið út sjö
vönduð bindi síðan 1972; hin er
Ritasafn Sagnfræðistofnunar,
sem eru smærri rit, oft upphaflega
BA-ritgerðir.
Við Heimspekistofnun er m.a.
unnið að kennslubók í nútímarök-
fræði, þýðingu á Ríki Platóns, sem
birt verður á þessu ári og að út-
gáfu íslenskra miðaldarita um
heimspeki, sem að nokkru er unn-
ið með fulltingi Ámastofnunar. í
deiglu eru rannsóknir á heim-
spekiritum Brynjólfs biskups
Sveinssonar og endurskoðuð út-
gáfa á Sögu mannsandans eftir
Agúst H. Bjamason.
Á vegum kennara í erlendum
tungumálum er unnið að margvís-
legum rannsóknaverkefiium og
eru sum þeirra í tengslum við
Rannsóknastofnun í erlendum
tungumálum. Verkefnin sem m.a.
er unnið að em ensk-íslensk há-
skólaorðabók, íslensk-þýsk orða-
bók, rannsókn á áhrifum
fomnorrænna bókmennta á
skoska rithöfunda á 19. og 20.
öld, rannsókn á ferðabókum
enskumælandi manna sem ferð-
uðust um ísland á 18. og 19. öld
og vísindaleg textaskýring og
íslensk þýðing á verkinu Specimen
Islandiæ non-Barbaræ sive Liter-
atæ et Cultioris, eftir Jón Þorkels-
son, Skálholtsrektor
(1697—1759), svo dæmi séu tekin
af handahófí.
Til viðbótar þeim verkefnum
sem unnið er að á vegum stofnan-
anna sem að framan greinir, em
rannsóknir einstakra kennara, í
sumum tilvikum í samvinnu við
stofnanimar, aðra innlenda aðilja
og fræðimenn eða erlenda há-
skóla. Kennir þar margra jgrasa,
s.s. ýmsar rannsóknir á Islend-
ingasögunum og íslenskum og
erlendum bókmenntum, málfræði,
menningu, sögu og hugmyndum
að fomu og nýju. En verkefnin
sem kennarar heimspekideildar
vinna að em nálægt sextíu talsins
og sum þess eðlis að vinna við
þau hefur staðið ámm saman.
Höfundur er prófstjóri viðHá-
skóla íslands.
Búðardalur:
Tónleikar Tónlistarskólans
HAUSTÖNN Tónlistarskóla
Dalasýslu lauk með tónleikum í
Dalabúð helgina 24. og 25. jan-
úar.
Nemendur á haustönn vom rúm-
lega 50. Við skólann kenna, auk
skólastjórans Kjartans Eggertsson-
ar, Ingibjörg Sigurðardóttir og
Halldór Þórðarson.
Vorönn hefst nú og er einhver
nemendaflölgun. Kennt er að Laug-
arskóla í Hvammssveit og í Búðard-
al.
Þröngt er um Tónlistarskólann
og háir það starfseminni, en þetta
stendur til bóta því pláss það sem
hreppsskrifstofan hefiir haft til nota
verður sennilega leigt Tónlistar-
skólanum en hreppsskrifstofan
hefur flutt í nýtt húsnæði.
- Kristjana
— Ljósm. E.H.
Pokafoss í Laxá í Kjós.
Eignarmat á
laxaauðlindinni
eftir Einar Hannesson
Það er fróðlegt að yfirfara hvem-
ig meta skuli laxaauðlindina, bæði
hvað varðar laxinn og ána sem
heild og hlutdeild einstakra landar-
eigna í heildarverðmætinu. Höfuð-
reglan er sú, að veiðiréttur fylgir
landi. Ýmsir munu vafalaust telja
sig vera með þetta á hreinu, eins
og sagt er.
í þessu efni er helst þekkt sú
aðferð, sem tíðkast hefur lengst af
við fasteignamat hér á landi og
Fasteignamat ríkisins mun hafa
viðhaft við fyrrgreint mat fyrir lax-
veiðijarðir, þ.e. byggja á afrakstri
hlunninda ákveðið árabil eða nota
arðskrá veiðifélags til að fá hlut-
deild hverrar jarðar úr heildarverð-
mæti veiðinnar í viðkomandi laxá.
Svipað mun hafa verið gert í sam-
bandi við greiðslur vegna innlausn-
ar á veiðirétti, sem skilinn hafði
verið frá landareign, og fyrir upp-
töku laxalagna í sjó fyrr á árum.
Niðurstaða í arðskrá gefur vissu-
lega fyllri mynd af hlutdeild hverrar
jarðar í verðmætinu heldur en veiði-
tölur einar geta gefíð.
„Fullyrða má, að verð-
mæti laxveiðiár felist í
hrygningar- og uppeld-
issvæðum lax eða
annars göngnf isks og
laxinum sem er í ánni
og í sjónum.“
félagssvæði. í frumgerð laganna
1933 og endurskoðun þeirra 1942
var gert ráð fyrir að jafna veiði eða
arði af henni niður eftir veiði-
magni eða áætluðu veiðimagni
jarðanna og skyldi skráin gerð með
hliðsjón af veiðiskýrslum undanfar-
inna 10 ára, eins og segir í lögunum
1933, en 30 ára er aftur á móti í
löggjöfínni frá 1942, ef til væru.
Hins vegar komu ný atriði í ákvæð-
ið um gerð arðskrár þegar lögin
voru endurskoðuð 1957 og þau voru
ítrekuð við þriðju endurskoðun
þeirra frá upphafí sem eru lög nr.
76/1970 um lax- og silungsveiði.
Þar er gert ráð fyrir að við niður-
jöfnun veiði eða arðs af henni skuli
m.a. taka tillit til aðstöðu við neta-
veiði og stangarveiði, landlengdar
Fiskvegurinn hjá Kattarfossi í Hítará.
Að meta veiðiarðinn
Flestir munu telja fyrrgreinda
skipan við fasteignamatsgjörð og
innlausn eða upptöku netalagna í
sjó góða og gilda, þ.e. að taka leigu-
tekjur af á eða veiðitölur, metnar
til verðs, og segja að það sé verð-
mæti árinnar eða hlutdeild einstakr-
ar jarðar, ef um það er að ræða.
Svo einfalt er þetta ekki, því hér
er einungis verið að meta veiðiarð-
inn, einskonar rekstur árinnar.
Eftir stendur sem áður að meta
eignarverðmæti laxveiðiárinnar.
Gagnvart gjaldi fyrir netaupp-
töku sjávarlagna er þessi tilhögun
sjálfsagt sú eina, sem til greina
kemur. Laxveiðihlunnindi jarðar við
sjó taka aðeins til þess þáttar er
snýr að veiðiaðstöðu, þ.e. netaveiði
og engu öðru. Liggi þannig fyrir
vitneskja um fjölda veiddra laxa um
ákveðið árabil er í hendi höfuðstóll
laxveiði viðkomandi veiðijarðar.
Hann er ársverðmæti veiði með
hliðsjón af vöxtum er gætu verið
tæplega 7% og þá fimmtánfalt eða
vaxtatalan x 15 ár. Hið sama gild-
ir gagnvart laxveiðiá.
Verð ræðst af fram-
boði og eftirspurn
Sé litið frekar til verðmætis veið-
innar sjálfrar má segja að það felist
í þeim tilboðum, sem berast í stang-
veiðiámar, þegar þær eru boðnar
út til leigu. Þá er einnig að geta
verðs stangveiðileyfa og markaðs-
verðs á sláturlaxi á hveijum tíma,
en verðið ræðst oftast af framboði
og eftirspum. Verðmætið er því
breytilegt eftir því hvert mat til-
boðsaðila er í hverju tilviki og
söluverð lax á markaði. En ítrekað
skal að hér er um verðmæti veið-
innar að ræða en ekki fasteignamat
laxveiðiár, ef svo má taka til orða.
Fjölþætt eign
Fullyrða má, að verðmæti lax-
veiðiár felist í hrygningar- og
uppeldissvæðum lax eða annars
göngufísks og laxinum sem er I
ánni og í sjónum. Þama gæti því
verið um að ræða, ef slíkt mat
færi fram að haustinu: laxahrogn
í mölinni, þrír til fjórir árgangar
seiða, eftir þéttleika þeirra, auk
laxveiðinnar sl. sumar. Þá kemur
til viðbótar lax úr viðkomandi á,
sem dvelur í sjó, sem fyrr greinir,
en þar gæti verið fískur sem fór í
sjó 1986, 1985 og 1984. Þá er ótal-
ið fiskræktarmannvirki eða
umbætur, sem gerðar hafa verið í
fískræktarskyni í viðkomandi
vatnakerfí. Laxastigi eða fískvegur
er þannig einn hluti verðmætamats-
ins, sem ber að taka tillit til.
Arðskrárgerð
í lögum um lax- og silungsveiði
er mælt fyrir um arðskrá í veiðifé-
lagi: Arðskrá sýnir hlut þann af
veiði eða arði af henni, sem koma á
í hlut hverrar jarðar eða jarðar-
hluta, er veiðiréttur fylgir í vatni á
að veiðivatni, til hrygningarskil-
yrða og uppeldisskilyrða fisks.
Vert að minna á að hér er um mat
að ræða, en slíka framkvæmd er
auðvelt að gagnrýna fyrir þann,
sem hefur beinna hagsmuna að
gæta.
í fyrirmælum laga um arðskrá
eru því komin sum þau atriði, sem
fyrr var vikið að, og varða verð-
mæti laxárinnar.
Víst er að þar sem arðskrár,
gerðar fyrir 1957, voru byggðar á
veiðimagni og endurspegla þær,
þrátt fyrir endurskoðun síðar, ríku-
lega veiði jarða fyrr á árum. Þá er
breytileiki arðskránna mikill hvað
varðar hlutfall hvers atriðis, sem
lagt er til grundvallar gerð hennar
enda ekki tilgreint í lögunum, hver
hundraðshlutur hvers framan-
greinds atriðis skuli vera.
Flókið verkefni
Af framangreindu er ljóst, að það
getur verið flókið mál að meta laxa-
stofn og straumvatn, hliðstætt og
gert við fasteignir hér á landi. A
hinn bóginn má ætla þegar slík
matsgjörð liggur fyrir, sé tiltölulega
auðvelt að skipta verðmætinu niður
á jarðir og jarðarhluta við ána. í
því efni er oft unnt að styðjast að
verulegu leyti við arðskrá, þar sem
í henni er að fínna þau atriði, sem
máli skipta við matið, sem fyrr
greinir.