Morgunblaðið - 31.01.1987, Qupperneq 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. JANÚAR 1987
Ski-WM '87
ERIKA HESS frá Sviss vann
tfiyrstu gullverðlaunin á heims-
meistaramnótinu í alpagreinum
sem nú fer fram í Crans-Montana
í Sviss. Hún varð sigurvegari í
alpatvíkeppni kvenna (svig og
Brun) og vann þar með sinn
fimmtu gullverðlaun á heims-
meistaramóti. Sylvia Eder frá
Austurríki varð önnur og banda-
ríska stúlkan, Tamara McKin-
ney, í þriðja sæti.
Keppt var í tvíkeppnisbruninu í
gær og varð Erika Hess þar í þriðja
sæti, aðeins 0,54 sekúndum á eftir
ólympfumeistaranum, Michelu Fig-
Símamynd/Rauter
Verðlaunahafar í alpatvíkeppni kvenna á heimsmeistaramótinu í Crans-Montana. Frá vinstri: Sylvia Eder, Austurríki, sem varð
önnur, Erika Hess, Sviss, sem sigraði og Tamara McKinney frá Bandaríkjunum sem varð þriðja.
Erika Hess vann fyrstu gull-
verðlaunin í Crans-Montana
ini, sem náði besta tímanum. Sylvia
Eder, Austurríki, náði næst besta
tímanum og hafnaði í þriðja sæti í
tvíkeppninni. Hún varð í fimmta
sæti í sviginu. Hún er yngsti kepp-
andinn sem unnið hefur brunmót í
heimsbikamum, það gerði fyrir
fimm árum þegar hún var aðeins
16 ára.
„ÞETTA eru mín fimmtu gull-
verðlaun á HM og ég er að sjálf-
sögðu ánægð með þau öll.
Gullverðlaunin í dag hafa losað
mikið á spennunni. Árangur minn
í bruninu sýnir að ég er í toppæf-
ingu núna. Ég væri ekki að segja
satt ef ég segði að mig langaði
ekki til að keppa í bruninu á sunnu-
daginn. Mér fannst þessi braut mjög
skemmtileg og vildi gjaman fá að
vera með á sunnudaginn. Ég þarf
að ræða það við þjálfara minn,“
sagði Erika Hess. Hennar sterkustu
greinar hafa verið svig og stórsvig.
Hver þjóð má aðeins senda fjóra
keppendur í hveija grein og í sviss-
neska liðinu eru margar góðar
brunkonur og því ekki vísta að
Hess komist í brunliðið.
Þetta voru fimmtu gullverðlaun
Eriku Hess á ferlinum í heimsmeist-
arakeppni. 1982 vann hún til
gullverðlauna í svigi, stórsvigi og
alpatvíkeppni og í Bormio 1985
sigraði hún í alpatvíkeppni.
Tamara McKinney sagði eftir
brunið að hún vissi að möguleikam-
ir á gullverðlaununum voru litlir.
„Ég hefði þurft að æfa brunið í
minnst tvo til þrjá mánuði til að
eiga möguleika. Svigið er mín sér-
grein," sagði Mckinney og var
ánægð með bronsverðlaunin.
Karlamir æfðu í brunbrautinni í
gær og naði Franz Heinzer, Sviss,
þá besta tímanum. Landi hans,
Peter Muller, varð annar. Pirmin
Zurbriggen, sem flestir spá sigri,
átti í erfiðleikum og náði aðeins 14.
besta tímanum. „Þetta gekk ekki
vel hjá mér í dag, en það sem skipt-
ir máli er að standa sig á morgun,"
sagði Zurbriggen. Marc Giradelli
frá Luxemborg varð í áttunda sæti,
þrátt fyrir að hafa átt í meiðslum
á öxl.
í dag fer fram keppni í bruni
karla og á morgun, sunnudag, verð-
ur keppt í bruni kvenna og
tvíkeppnisbruni karla. Risastórsvig
karla verður síðan á mánudag og
ristastórsvig kevnna á þriðjudag.
Eini íslenski keppandinn á mótinu,
Daníel Hilarmsson, keppir í stór-
svigi á miðvikudaginn.
SKI gerir samning
við VISA ÍSLAND
Fyrsta bikarmót vetrarins á Isafirði um næstu helgi
Morgunblaðið/Bjarni
• Steinar Birgisson hefur verið besti maður Kristiansands í vetur
og er nú næst markahæsti leikmaðurinn f norska handboltanum með
120 mörk.
Noregur:
Steinar er
„hetja suðursins“
Frá Bjarna Jóhannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Noregi.
SKÍÐASAMBANDIÐ hefur gert
auglýsingasamning við VISA
ÍSLAND sem hljóðar upp á 250
þéund krónur. Auk þess mun
VISA styrkja bikarmót SKÍ sér-
staklega og mun keppnin nú heita
„VISA bikarkeppni SKf.“
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur
auglýsingasamningur er gerður á
vegum Skíðasambands fslands.
Fyrsta bikarmót vetrarins verður
Þorramótið á ísafirði um næstu
helgi. Þar verður keppt í alpagrein-
um fullorðinna og í öllum flokkum
í göngu. Sömu helgi verður keppt
í unglingaflokki 15-16 ára í alpa-
greinum í Reykjavík, en upphaflega
átti mótið að fara fram á Dalvík
en vegna snjóleysis varð að flytja
það suður.
Bikarkeppninni lýkur með Skíða-
móti íslands á ísafirði um páskana.
Núverandi bikarmeistarar SKÍ í
alpagreinum eru Anna María
Malmquist, Akureyri og Daníel
Hilmarsson frá Dalvík og í göngu
Haukur Eiríksson frá Akureyri.
VISA bikarmeistari SKi í alpa-
greinum er þannig reiknaður: Fyrir
1. sæti reiknast 25 stig, 2. sæti
20 stig, 3. sæti 15 stig, 4. sæti
11 stig, 5. sæti 8 stig, 6. sæti 6
stig, 7. sæti 4 stig, 8. sæti 3 stig,
9. sæti 2 stig og 10. sæti eitt stig.
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
um fþróttum fer fram dagana
7.-8. febrúar f Baldurshaga og
Laugardalshöll og verður keppt f
lögboðnum meistaramótsgrein-
um.
Umsjón með framkvæmdinni
Sex bestu mót hvers keppanda úr
þeim mótum vetrarins sem gefa
stig koma til útreinkings úrslita.
Ef keppendur eru jafnir að stigum
á sex mótum verða sjö bestu mót
talin ráða úrslitum þeirra á milli
og átta mót o.s.frv.
hefur frjálsíþróttadeild ÍR. Þátttök-
utilkynningar skulu berast í síðasta
lagi á miðvikudaginn til Sigurðar
Erlingssonar eða á skrifstofu
Frjálsíþróttasambands íslands
ásamt þátttökugjaldi, sem er 300
krónur fyrir hverja grein.
„Hetja suður8Íns“ segir norska
Dagblaðið um Steinar Birgisson
eftir 24:22 sigurleik Kristiansand
gegn Urædd á miðvikudagskvöld-
ið og eru það orð að sönnu. Liðlð
er frá Suður-Noregi og Steinar
var hreint óstöðvandi f leiknum
og skoraði 12 mörk.
Mikiö er fjallað um leikinn í
norsku blöðunum og fær Steinar
mjög góða dóma. Hann hefur nú
skorað 120 mörk í deildinni, en
Dag Vidar Hanstad er enn marka-
hæstur með 121 mark. Kristian-
sand er í 7. sæti með 19 stig.
Á sama tíma vann Stavanger
Skiens Ballklub 27:25 og þarf Staf-
anger aðeins eitt stig úr síðustu
fimm leikjum til að tryggja sér
meistaratitilinn, en liðið er með 33
stig að 17 leikjum loknum. Urædd
er í 2. sæti með 23 stig. FSB/SKI
gerði 17:17 jafntefli við Rapp og
er í 4. sæti með 20. stig. Erlingur
Kristjánsson skoraði þrjú mörk í
leiknum. Þá vann Stabæk Fjell-
hammer 24:23 og er það fyrsti
sigur liðsins í vetur.
Nú verður gert sex vikna hlé á
deildarkeppninni vegna B-keppn-
innar á Italíu, en Noregur tekur
þar þátt.
Frjálsar íþróttir:
Meistaramótið
um næstu helgi