Morgunblaðið - 12.04.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1987
43
Átök á Norð-
ur-Irlandi
Belfast, Reuter.
LÖGREGLAN í Belfast lenti í
götubardögum við stuðnings-
menn hins ólöglega írska lýð-
veldishers (IRA) á fimmtudags-
kvöld, fjórða daginn í röð.
Að sögn lögreglu er ekki vitað
til þess að nokkur hafi slasazt í
átökunum, en þá vörpuðu stuðn-
ingsmenn IRA a.m.k. 70 benzín-
sprengjum og heimasmíðuðum
handsprengjum að lögreglunni.
Skaut þotu
félaga
síns niður
Stokkhólmi, Reuter.
ÞOTA sænska flughersins lask-
aðist mikið þegar flugmaður á
Draken-orrustuþotu skaut eld-
flaug á hana þegar þær voru að
æfingum á föstudag.
Við æfíngamar átti flugmaður
Draken-þotunnar að hæfa skot-
mark, sem dregið var aftan í þotu
af gerðinni J-32 Lansen. Skotmark-
ið var dregið með fimm kflómetra
langri taug til að fyrirbyggja að
skotið yrði á Lansen-þotuna. Ekki
tókst betur til en svo að ratsjár-
stýrð eldflaug stefndi rakleitt á
hana og sprakk rétt undir henni.
Skemmdist hún mikið en flugmann-
inum tókst að nauðlenda á herflug-
velli í norðurhluta landsins og
sakaði engan.
Ingvar Helgason
Sýningarsaiurinn/Rauðagerði, sími 33560.
í dag er opið á öllum
hæðum í Nýjabæ frá ki.
1-5. Þú ættir að nota
tækifærið, drífa þig í
páskainnkaupin
(páskaeggin okkar eru á
frábæru verði), því síðustu
dagana fyrir páska verður
sennilega allt vitl...
Lengri
opnunartími
í tilefni Páskanna komum
við til móts við þarfir
viðskiptavina okkar og
lengjum opnunartí ^a
Nýjabæjar. Á
miðvikudaginn verður
opið til kl. 10 og á
laugardaginn verður opið
frá 10-4. Nýibær óskar
landsmönnum öllum
gleðilegra Páska.
WER
VÖRUHÚSIÐ EIÐ/STORG/