Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 1
72 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 120. tbl. 75. árg.__________________________________LAUGARDAGUR 30. MAI 1987_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Fífldjarfur flugmaður lenti á Rauða torginu: Komst óséður frá Helsinki til Moskvu -Æfði langflug til íslands Moskvu, Helsinki, Hamborg, Reuter. NÍTJÁN ára gamall Vestur-Þjóðverji, Mathias Rust, flaug á fimmtudag frá Helsinki til Moskvu og lenti á Rauða torginu. Rust var ekki stöðvaður á leiðinni og komst óséður fram hjá loftvamarkerfi og ratsjám Sovétmanna. Viku áður en Rust hélt til Kremlar kom hann hingað til lands og komst þá I kast við yfirvöld vegna grunsemda um að þar færi fálkaþjófur. Fólk á Rauða torginu vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar Rust lenti vél sinni, sem er af gerð- inni Reims-Cessna 172 Skyhawk, og héldu ýmsir að verið væri að gera kvikmynd. Rust veifaði til fólksins og fengu nokkrir viðstaddir hjá honum eiginhandaráritun áður en lögregla handsamaði hann. Lögregluþjónamir vissu greini- lega ekki heldur hvað var á seyði því þeir fylltust kátínu þegar bresk- ur ferðamaður vatt sér að þeim og mundaði myndavél sína. Yfirvöld tóku þó við sér og skömmu síðar var Rauða torgið lok- að af. Rust er nú í yfirheyrslu hjá sov- éska hemum, að því talið er, og miða þær að því að finna út hvern- ig hann komst óséður alla leið til Moskvu og gat hnitað hringi yfir Kreml, æðsta valdasetri Sovétrílq'- anna, áður en hann lenti. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, kvaðst telja líklegt að maðurinn væri í gæsluvarðhaldi: „Eg veit ekki hvar Rust er niðurkominn, en hann rauf sovéska lofthelgi og hlýt- ur að þurfa að skýra ferðir sínar.“ Vestrænir sérfræðingar em gátt- aðir á því hvemig manninum tókst að fljúga yfir Sovétríkin án þess að eftir væri tekið. Vélin, sem hann flaug, er fjögurra sæta og eins hreyfils. Ekki er vitað hvers vegna Rust flaug til Sovétríkjanna, en hann kvaðst vera á leið til Svíþjóðar þeg- ar hann lagði af stað frá Helsinki. Móðir hans segir að hann hafi ekki farið þangað af pólitískum sökum. Sjónarvottar í Moskvu sögðu að kona nokkur hefði verið með honum við lendinguna og sögðu ráðamenn í flugvélaklúbbnum í Hamborg, sem Rust er félagi í, að ef til vill ætti hún upptökin að þessari háskalegu för. Konan kom ekki með honum hingað til lands og hefur því slegist í för með honum síðar. Rust lagði af stað frá Hamborg í upphafi maímánaðar, flaug til Hjaltlandseyja og þaðan til Fær- eyja. Frá Færeyjum flaug hann til íslands og komst í tæri við hérlend yfirvöld vegna gmnsemda um að hann ætlaði að stela fálkaeggjum. Héðan flaug Rust 23. maí og lá leiðin til Noregs. Þaðan fór hann til Finnlands og lenti á litlum her- flugvelli í grennd við Helsinki, sem einnig er notaður fyrir einkaflugvél- Reuter Óvæntur gestur á Rauða torginu. Sovéskir hermenn standa hér vörð um Cessna-vélina, sem ungur Vestur-Þjóðveiji, Mathias Rust, lenti á Rauða torginu á fimmtudag. í baksýn eru Kremlarmúrar. Bandaríkin: Háttsettur Kúbani f lýr land Washington, Havana, Reuter. HÁTTSETTUR kúbanskur embættismaður flúði til Bandaríkjanna i fyrrakvöld með fjölskyldu sinni og er hann æðst setti Kúbaninn er flúið hefur land eftir að Fidel Kastro komst til valda. Rafael Del Pino Diaz var næst æðsti maður í kúbanska vamarmálaráðuneytinu og er talið að hann hafí haldgóða vitn- eskju um hernaðaraðgerðir Kúbana í Mið-Ameríku og ann- ars staðar. Hann á að baki langan frægðarferil í kúbanska hemum, en yfirvöld í Havana, höfuðborg Kúbu, lýstu því yfir í gær að hann hefði átt við and- leg vandamál að stríða um skeið. Diaz, kona hans og 3 böm flugu í lítilli 2 hreyfla vél til Key West, í Flórída og hefur þeim verið veitt hæli í Bandaríkjunum. Eftir yfirheyrslur vom þau flutt frá Flórída, en af öryggisá- stæðum hefur ekki verið greint frá því hvar þau dveljast. Persaflói: Bandaríkm munu halda siglingaleiðum opnum Washington, Reuter. RONALD Reagan, Bandaríkja- forseti, sagði í sjónvarpsræðu í gær að Bandaríkin væru staðráð- Grænland: Motzfeldt sætir gagnrýni vinstri arms f lokks síns Kaupmannahöfn, frá Niels Jörgen Bruun, AÐALSTJÓRN í Siumut-flokkn- um á Grænlandi ræddi í gær- kvöldi tillögu um að svipta formann flokksins, Jonathan Motzfeldt, formannsembættinu. Var við því búist, að hún yrði samþykkt og þar með hyrfi Motz- feldt einnig úr formennsku í grænlensku landstjórninni. Líklegasti eftirmaður hans í flokksformennskunni er Lars Emil Johannsen, fyrrum sjávar- útvegsráðheiTa. Kosið var til grænlenska lands- þingsins á þriðjudag. Fyrir kosning- arnar hreyfði Jonathan Motzfeldt þeirri skoðun, að Siumut-flokkur- inn, sem er vinstri flokkur, tæki upp samstarf við stóra borgara- fréttaritara Morgunblaðsins. flokkinn, Atassut. Lá hann þá undir ámæli fyrir þetta viðhorf hjá vinstri armi flokksbræðra sinna. Kosning- arnar urðu ekki til þess að Motzfeldt skipti um skoðun í þessu efni og ákváðu vinstrisinnar þá að láta til skarar skríða gegn honum og svipta hann flokksformennskunni. Lars Emil Johannsen var í for- ystu þeirra, sem börðust fyrir því að Grænlendingar sögðu sig úr Evrópubandalaginu. Hann sat á landsþinginu á síðasta kjörtímabili og var sjávarútvegsráðherra, þar til hann sagði af sér og varð skóla- stjóri. Á meðan hann var ráðherra heimsótti hann bæði Sovétríkin og Kúbu og sætti gagnrýni fyrir þær ferðir. in í að tryggja öryggi skipa á Persaflóa, sérstaklega þeirra er sigldu undir bandarískum fána. Verða á næstunni 11 oliuskip frá Kuwait skráð í Bandaríkjunum í þessum tiigangi. „Við viljum gæta hagsmuna hins f rjálsa heims og munum ekki láta Irani og Sovétmenn loka fyrir okkur þessum siglingaleiðum," sagði forsetinn. Hann sagðist hafa samþykkt sér- staka áætlun um hvernig standa bæri að þessum málum, en tjáði sig ekki um hana efnislega. Reagan minnti á hið erfiða efnahagsástand er skapast hefði í heiminum upp úr 1970, er olíuútflutningsríkin settu á bann við útflutningi á olíu og sagði að slíkt mætti ekki gerast aftur. Mestur hluti þeirrar olíu er vestræn ríki nota koma frá ríkjum við Persaflóa. Marlin Fitzwater, talsmaður for- setans, sagði eftir fund í Hvíta húsinu í gærmorgun að bandaríski herinn gæti varið sig og veitt skip- um örugga vemd á Persaflóa. Sagði hann að forsetinn myndi ráðgast við ríkin í Atlantshafsbandalaginu um aðgerðir og einnig yrðu þessi mál rædd á fundi 7 helstu iðnríkja er haldinn verður í Feneyjum 8-10 júní nk. ítalir, Bretar, Hollendingar og Japanir hafa lýst yfir vilja til að ræða leiðir til að tryggja öryggi skipa á Persaflóa. Bandaríkjaforseti ítrekaði í gær að stjóm sín vildi að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna beitti sér fyrir aðgerðum til að stöðva stríð írana og íraka er staðið hefur í rúm 6 ár, t.d. að bannað verði að selja þeim aðila vopn er neitaði að taka þátt í friðarviðræðum. írakar hafa marglýst þvi yfír að þeir vilji semja um frið. George Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði við fréttamenn í fyrrakvöld að nokkuð hefði miðað í rétta átt á vettvangi SÞ varðandi þetta mál, en sakaði Sovétmenn um að standa í veginum fýrir því að Öryggisráðið léti að sér kveða. Shultz sagði í gær að verið væri að athuga hvort nauðsynlegt væri að bandarískar flugvélar hefðu að- stöðu á landi, en ekki aðeins um borð í flugmóðurskipum á Persa- flóa. Ekki hefði verið farið fram á það að gerðir yrðu flugvellir fyrir vélamar, en til þess gæti komið. Færeyjar: 3 vikna verkfalli lokið Þórshöfn. Frá fréttaritara Morgunbladsins VERKFALLI því er staðið hef- ur í Færeyjum undanfarnar 3 vikur lauk í gær er sett voru lög á verkfallsmenn. Vinnuveitendur eru mjög óánægðir með lagasetninguna og segja að hún skapi fleiri vanda- mál en hún leysi. Ekki er þó tryggður friður á vinnumarkaðin- í Færeyjum, Hilmari Jan Hansen. um því eftir er að semja við 8 stéttarfélög sem em með lausa samninga. Talið er að launþegar hafi tap- að 70 milljónum færeyskra króna þær vikur sem verkfallið hefur staðið og munu verkfallssjóðir ekki duga til að bæta þeim þann skaða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.