Morgunblaðið - 30.05.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Wj$m
■ ■
>■, '■■■*
Morgunblaðið/Halldór
Páll Magnússon með þrUembda gemlingnum.
Óvenjuleg frjósemi
Holti.
SÁ FÁHEYRÐI viðburður varð í Hvassafelli undir Eyjafjöllum
hjá Páli Magnússyni bónda að gemlingur bar þremur fallegum
lömbum.
Aðspurður um þessa óvenjulegu ftjósemi, sagði Páll, að gemlingur-
inn væri undan á, sem einnig hefði verið þrílembd, en amma gemlings-
ins, Tign, hefði verið tvílembd gemlingur, en síðan þrílembd árlega frá
1981. Ut af Tign væri nú kominn mjög fijósamur fjárstofn. Páll sagð-
ist ekki hafa notað fijósemislyf, en bætt sitt fé með sæðingum. Gemsinn
væri t.d. undan Skúm frá Smyrlabjörgum í Suðursveit, þannig að ekki
væri að undra þótt þetta hafí orðið.
Páll kvað sauðburð hafa gengið vel, vorið hefði verið gott, en þó
fremur kalt. Fréttaritari
Innflutningsleyfi fyr-
ir grænmeti og blóm
verði numin úr gildi
„VIÐ töldum okkur hafa náð verulegum árangri þegar einokun Græn-
metisverslunar ríkisins var afnumin en því miður virðist sem svo sé
ekki,“ sagði Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna.
Samtökin hafa sent Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra áskorun
vegna nýrra starfsreglna vegna innflutnings á blómum, nýju græn-
meti, sveppum og kartöflum.
Skorað er á ríkisstjómina að nema
reglumar þegar úr gildi, auk þess
skora Neytendasamtökin á samtök
íslenskra framleiðenda að virða að
vettugi umræddar reglur á meðan
unnið er að því að nema þær úr gildi.
Jóhannes Gunnarsson og Jónas
Bjamason formaður landbúnaðar-
nefndar Neytendasamtakanna sögðu
að nefndin sem landbúnaðarráðherra
skipaði og starfsreglumar gilda fyr-
ir, túlki mat framleiðenda sem skipa
meirihluta í nefndinni. í greinargerð
sem fylgir áskomninni er átalið að
nefnd undir foiystu landbúnaðarráð-
herra skilgreini og ákveði eftirspum
á áðumefndum vömm.
„Slík nefnd er með öllu óhæf til
þess hlutverks og er með þessu fyrir-
komulagi horfið til baka til Græn-
metisverslunar landbúnaðarins og
þess einokunarástands sem þá ríkti."
Þá segir að reglumar tryggi
íslenskri framleiðslu forgang á mark-
aðinum eftir geðþótta nefndarinnar.
„Þetta er algjörlega forkastanlegt
og er í raun furðulegt, að ábyrgur
ráðherra telji slíkt við hæfi.“
Samkvæmt reglunum er nefndinni
skylt að taka tillit til þess, ef ein
tegund innflutts grænmetis hamlar
sölu á annarri tegund, sem ræktuð
er á Islandi.
„I raun þýðir þetta, að unnt er
að banna innflutning á kínakáli eða
íssalati, ef sala þeirra tegunda hefur
áhrif á sölu innlends hvítkáls, svo
dæmi séu nefnd. Þetta em sjónarmið
frá tíma selstöðukaupmanna, sem
ekki á að vera þörf á að rökræða
undir lok tuttugustu aldar. Það er
auk þess dregið í efa, að heimildir
séu í lögum fyrir að þrengja neyt-
endarétt með þessum hætti."
Bent er á að verið sé að byggja
upp kvótakerfí fyrir innflutning á
grænmeti og garðávöxtum og binda
kvótann við þá sem dreifa innlendri
framleiðslu. Með því er sjónarmiðum
neytenda hafnað þegar samtök fram-
leiðenda reyna að hækka tekjur sínar
þegar framboð af íslenskri fram-
leiðslu er takmarkað.
„Neytendasamtökunum er ekki
kunnugt um að slíkt fyrirkomulag
tíðkist neins staðar í heiminum."
VEÐURHORFUR í DAG, 30.05.87:
YFIRLIT á hádegi f gær: Um 1100 km suðvestur af landinu er
hægfara 988 millibara djúp lægð. Yfir hafinu á milli Jan Mayen og
Svalbarða er kyrrstætt hæðarsvæði.
SPÁ: Útlit er fyrir austanátt á landinu, kaldi eða stinningskaldi (5-6
vindstig) syðst á landinu og á annesjum norðanlands en hægari
annars staðar. Um sunnanvert landiö verður skýjað og lítilsháttar
súld en þurrt og bjart í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 7 til 15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Suðaustan- og austanátt, gola
eða kaldi (3-5 vindstig), og þokuúði eða súld um austan- og sunnan-
vert landiö en þurrt og bjart annars staðar. Hiti á bilinu 6 til 12 stig.
•j o Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
== Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
V Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * /
■* •# *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM'HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
Akureyri hiti 12 veður láttskýjað
Reykjavík 8 skýjað
Bergen 10 alskýjað
Helsinki 7 alskýjað
Jan Mayen 3 alskýjað
Kaupmannah. 9 skýjað
Narssarssuaq 14 léttskýjað
Nuuk 2 hélfskýjað
Osló 13 skýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Atgarve 23 heiðskírt
Amsterdam 13 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Barcelona 22 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Chicago 22 léttskýjað
Feneyjar 24 skruggur
Frankfurt 13 skúr
Hamborg 13 skúr
Las Palmas 23 hálfskýjað
London 18 skýjað
LosAngeles 13 heiðsklrt
Lúxemborg 13 skúr
Madríd 24 heiðskfrt
Malaga 22 mlstur
Mallorca 22 léttskýjað
Miaml 26 léttskýjað
Montreal 20 alskýjað
NewYork 23 mistur
París 17 léttskýjað
Róm 18 alskýjað
Vín 18 hélfskýjað
Washington 21 þoka
Winnipeg 14 skýjað
Morgunblaðið/KGA
Frá aðalfundi Rauða krossins, frá vinstri Ragnhildur Helgadóttir
heilbrigðisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Guðjón
Magnússon formaður RKÍ og eiginkona hans Sigrún Gísladóttir.
Nýjar aðalstöðvar
RKÍ formlega opnaðar
AÐALFUNDUR Rauða kross ís-
lands var settur í fundarsal
félagsins að Rauðarárstíg 18 í
gærkvöldi. Við setninguna lýsti
forseti íslands, Vigdís Finnboga-
dóttir, yfir formlegri opnun
aðalstöðva RKÍ að Rauðarárstíg
18, þar sem áður var Hótel Hof.
Guðjón Magnússon formaður fé-
lagsins setti aðalfundinn í gær-
kvöldi og að lokinnni athugun
kjörbréfa, kosningu fundarstjóra og
fundarritara sagði Pálína Ásgeirs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, frá
störfum sínum sem sendifulltrúi.
Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri
RKÍ gerði grein fyrir störfum deilda
og Guðjón Magnússon formaður
flutti erindi sem hann kallaði „Rauði
krossinn á tímamótum". Haukur
Bjömsson formaður bygginga-
nefndar lýsti húsakynnum aðal-
stöðvanna og Davíð Oddsson
borgarstjóri flutti ávarp. Því næst
lýsti forseti íslands yfír formlegri
opnun aðalstöðvanna og að því lo-
knu var húsið skoðað.
Aðalfundi RKÍ verður fram hald-
ið í dag og lýkur með kvöldverði
sem hefst klukkan 19.30. Fundinn
sitja um 100 fulltrúar frá flestum
deildum félagsins, sem eru 48 tals-
ins.
Jarðskjálftarnir á Suðurlandi:
Meiri kröfur gerð-
ar til burðarþols
húsa á áhættusvæðum
MEIRI kröfur eru gerðar til
burðarþols húsa á þeim svæðum
á landinu þar sem jarðskjálfta-
virkni hefur mælst mest. Suður-
landsundirlendið er á því svæði
þar sem mestar kröfur eru gerð-
ar, að því er Hákon Ólafsson,
yfirverkfræðingur hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins sagði í samtali við
Morgunblaðið.
Hákon sagði að landinu væri
skipt í þijú áhættusvæði miðað við
jarðskjálftaálag og auknar kröfur
gerðar til bygginga á þeim svæðum
þar sem áhættan væri talin mest.
Suðurlandsundirlendið væri í
áhættusvæði þijú, þar sem mestar
kröfur em gerðar, og ættu allar
byggingar þar að vera hannaðar
samkvæmt ákveðnum staðli. Sem
dæmi mætti nefna að á áhættu-
svæðunum væm ekki leyfðar ýmsar
byggingaraðferðir, sem leyfðar
væm annars staðar á landinu, svo
sem með hlaðin hús og bendingu á
þeim. Byggingafulltrúar á hveijum
stað eiga að annast eftirlit með því
að þessum kröfum sé fullnægt.
Reykjavík er í áhættusvæði tvö
og em skilin frá áhættusvæði þijú
skammt fyrir utan borgina. Þeir
landshlutar, sem síst er talin hætta
búin í jarðskjálftum, em Vestfirðir
og Austurland.