Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 6
6 MORÖUNBIAÐIÐ, LÁUGARDAGUR 3Ö. MAÍ 1987
ÚTVARP/SJÓNYARP
Sumarkveld
Vorkvöld í Reykjavík nefndist
skemmtiþáttur í umsjón Ragn-
ars Bjamasonar er varpað var til
landsins bama í nafni ríkissjónvarps-
ins síðastliðið miðvikudagskveld. I
þætti þessum söng Ragnar ljúf vorlög
og naut þar dyggrar aðstoðar ágætr-
ar hljómsveitar og hins raddsterka
Eiríks Haukssonar. Þá náði Sif Ragn-
hildardóttir að syngja nokkra tóna
en annars var hún að mestu bundinn
við kúst nokkum í óskiljanlegu vaggi.
Ég naut mjög hins ljúfa söngs er
hvílir langþreytt eyrun frá rafmagns-
tónlistinni, en ferðasögur Ómars
flugu nú framhjá hlustunum. Ferða-
sögumar skyggðu samt ekki á hinn
ágæta söng Ragnars Bjamasonar og
félaga, sem vom máski að hita upp
fyrir „Sumargleðina" í sjónvarpi allra
landsmanna? En ánægjubros mitt
breyttist í grettu þegar þeir Magnús
Ólafsson og Bessi Bjamason stigu
fram á sviðið og fluttu þjóðinni þann
ömurlegasta „grínþátt" er sést hefur
á skerminum. Það er fyrir neðan
mína virðingu að eyða frekar orðum
á þennan „grínþátt", en ég hlýt að
spyrja yfírmenn sjónvarpsins þeirrar
spumingar hvort hin innlenda dag-
skrá sé að verða stjómlaust rekaíd.
Hinn ömurlegi „grínþáttur “ þeirra
Magnúsar og Bessa er slíkur blettur
á íslenska ríkissjónvarpinu að ekki
verður við unað.
Vinjar
Þegar höll sumarlandsins hvelfist
yfir þjóðina þrengist eðlilega hin inn-
lenda dagskrá ljósvakamiðlanna því
þá er hætt við að áhorfendur hafi
síður áhuga á þungmeltara efni en
yfír vetrar- og haustmánuðina. Ljúfur
söngur og hljómlist á vel við á björtu
sumarkveldi og hvað um garðyrkju-
og útilífsþætti? Mætti ekki hverfa í
ríkara mæli en að vetri útá víðan
völl þar sem fólk skrýðir móður nátt-
úru? Þá mættu sjónvarpsmenn beina
augunum enn frekar að nánasta
umhverfi iðnaðar- og verksmiðjuhús-
næðis landsins er kemur oft heldur
ókræsilegt undan vetri. Hér koma í
hugann ummæli eins af landslags-
arkitektum Reykjavíkurborgar er
sagði mér nýlega frá því, að honum
virtist að borgaryfirvöld legðu orðið
æ ríkari áherslu á að ganga fagmann-
lega frá hinum óbyggðu landspildum
borgarinnar, en hér áður fyrr hefðu
slíkar spildur gjaman gleymst til
dæmis í hinum nýrri hverfum. Greindi
landslagsarkitektinn frá því að hér
væru ekki bara í húfí hagsmunir fbúa
viðkomandi hverfa heldur skipti
miklu máli fyrir útsvarsgreiðendur
að borgarlandið væri hannað með það
í huga að viðhald svo sem sláttur
grasspildna og umhirða gróðurs —
yrði ekki baggi á borgarbúum.
Sjónvarpið er kjörinn vettvangur
til kynningar á hugmyndum lands-
lagsarkitektanna er geta, ef rétt
verður að málum staðið, umbreytt
ekki bara borgarlandinu heldur öllu
voru umhverfí þannig að hér verði í
framtíðinni fagrar og gróðursælar
vinjar mitt í uppfokinu. Þórður Ben
listmálari og hugmyndasmiður
skrapp hingað heim fyrir nokkru með
athyglisverðar hugmyndir að eins-
konar gierhvolfaparadís. Þessar
hugmyndir fengu prýðilega umfjöllun
í ljósvakamiðlunum, en ég held að
okkur sé nær að líía raunsærri augum
á mannvistarumhverfíð, á það skjól
sem landslagshönnunin getur veitt
okkur hér á skerinu. Persónulega lít
ég á hið ytra umhverfí byggðarinnar,
sem beint framhald hins „innra lands-
lags“ er býr að baki steinmúrunum,
og ekki fínnst mér fráleitt þegar
byggingarreglugerðir verða lögfestar
í framtíðinni að sett verði strangari
ákvæði um lóðafrágang. Þannig
fyndist mér eðlilegt að teikningum
að iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
fylgdu lóðarteikningar landslagsarki-
tekta er þyrftu líka sinn stimpil og
síðan yrðu sett ströng tfmamörk um
frágang lóða. Mætti ekki skoða þessi
mál í sumri og sól á skjánum?
Ólafur M.
Jóhannesson
Stöð 2:
Dans á rósum
■■■■ Dans á rósum, ný áströlsk
nn50 sjónvarpsmynd, er á dagskrá
"t/ Stöðvar 2 í kvöld. Myndin
greinir frá þremur kynslóðum Wilde §öl-
skyldunnar, sem hefur þap að atvinnu
að skemmta almenningi.A §ölskyldan
fjölleikhús, skemmtigarða og leikhús. En
framtíðardraumar fjölskyldumeðlimana
eiga ekki samleið og ýmislegt kemur
uppá. Leiksjóri er Charles Tingwell en
með aðalhlutverk fara Kit Taylor, June
Salter og Martin Vaughan.
Ástralska kvikmyndin Dans á rósum er
á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld.
Ríkissjónvarpið:
Grein 22
Grein 22, bandarísk bfómynd frá 1970 gerð
0040 eft'r samnefndri metsölubók Joseph Hellers,
““ er á dagskrá sjónvarps í kvöld. Myndin gerist
á ítaifu í heimsstyrjöldinni síðari og lýsir lífi bandarískra
flugliða í árásarferðum og tómstundum. Leikstjóri er
Mike Nichols en með aðalhlutverk fara Alan Arkin, Mart-
in Balsam, Richard Perkins, Orson Welles o. fl. Atriði í
myndinni eru ekki við barna hæfí.
UTVARP
©
LAUGARDAGUR
30. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur." Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesiö úr forustu-
greinum dagblaðanna en
síöan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin. Fréttir á
ensku sagöar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.15 ( garöinum með Haf-
steini Hafliðasyni. (Endur-
tekinn þáttur frá miðviku-
degi.)
9.30 í morgunmund. Þáttur
fyrir börn í tali og tónum.
Umsjón: Heiðdis Norðfjörð.
(Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir. Tilkynningar.
11.00 Vísindaþátturinn.
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá.
Stiklað á stóru í dagskrá
útvarps um helgina og
næstu viku. Umsjón: Trausti
Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú.
Fréttir og fréttaþáttur i viku-
lokin í umsjá fréttamanna
útvarps.
12.46 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna.
Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill.
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líöandi stund.
Umsjón: Magnús Einarsson
og Olafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Bamaútvarpið.
17.00 Síðdegistónleikar:
a. „Semiramide", forleikur
eftir Gioacchino Rossini.
Sinfóníuhljómsveit Lundúna
leikur: Claudio Abbado
stjórnar.
b. Píanókonsert nr. 3 í
d-moll op. 30 eftir Sergej
Rakhmaninoff. Lazar Ber-
man og Sinfóníuhljómsveit
Lundúna leika; Claudio
Abbado stjórnar.
18.00 (slenskt mál. Ásgeir
• Blöndal Magnússon flytur
þáttinn.
18.45 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
30. maí
16.55 íslandsmótið i knatt-
spyrnu
Akranes — Fram. Bein út-
sending.
18.00 Garðrækt
5. Kartöflugarðurinn.
Norskur myndaflokkur í tíu
þáttum. Þýðandi Jón 0.
Edwald. (Nordvision —
Norska sjónvarpið).
18.30 Leyndardómur gull-
borganna
(Mysterious Cities of Gold).
Þriðji þáttur. Teikinmynda-
flokkur um þrjú börn og
félaga þeirra í leit að gull-
borg í Suöur-Ameriku á
fimum Tandvinninga Spán-
verja þar í álfu. Þýðandi
Sigurgeir Steingrímsson.
19.00 Ævintýri frá ýmsum
löndum
Undralæknirinn (34).
(Storybook International).
Sögumaður Helga Jóns-
dóttir. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Stóra stundin okkar
Umsjónarmaður Elísabet
Brekkan.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Lottó
20.40 Fyrirmyndafaðir
(The Cosby Show) 19. þátt-
ur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur með Bill
Cosby í titilhlutverki. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.10 Sjúkraliði að engu liöi
(The Disorderly Orderly).
Bandarísk gamanmynd frá
1964. Leikstjori Frank Tas-
hlin. Aðalhlutverk Jerry
Lewis og Glenda Farrell.
Myndin er um klaufskan en
góðhjartaðan sjúkraliða og
axarsköft hans í leik og
starfi. Þýðandi Baldur Hólm-
geirsson.
22.40 Grein 22
(Catch 22).
Bandarisk bíómynd frá
1970 gerö eftir samnefndri
metsölubók Joseph Hellers.
Leikstjóri Mike Nichols.
Leikendur: Alan Arkin, Mart-
in Balsam, Richard Benjam-
in, Art Garfunkel, Jack
Gilford, Anthony Perkins,
Orson Welles o.fl.
Myndin gerist á ftalíu í
heimsstyrjöldinni síðari og
lýsir lífi bandarískra flugliöa
i árásarferðum og tóm-
stundum. Atriði i myndinni
eru ekki við barna hæfi.
Þýðandi Reynir Harðarson.
00.35 Dagskrárlok.
&
0
STOÐ2
LAUGARDAGUR
30. maí
§ 09.00 Kum, Kum. Teikni-
mynd.
§ 09.25 Jógi björn. Teikni-
mynd.
§ 09.60 Ógnvaldurinn Lúsí
(Lucie). Leikin barnamynd.
§ 10.15 Garparnir. Teikni-
mynd.
§ 10.15 Þrumufuglarnir.
Teiknimynd.
§ 11.00 Furöubúarnir. Teikni-
mynd.
§ 11.30 Fimmtán ára
(Fifteen). I þessum þáttum
fara unglingar með öll hlut-
verk.
§ 12.00 Hlé.
§ 16.00 Ættarveldið (Dyn-
asty). Krystle hugleiðir
ástarsamband utan hjóna-
bands.
§ 16.45 Myndrokk.
§ 17.00 Bíladella (Automan-
ia). Bresk þáttaröð í léttum
dúr sem greinir frá sögu
bílsins. Hönnun og útlit bíía,
fyrr og nú, er viðfangsefni
þessa þáttar.
§ 17.30 NBA — körfuboltinn.
Umsjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.05 Koalabjörninn Snari.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Undirheimar Miami
(Miami Vice). Bandariskur
spennuþáttur með Don Jo-
hnson og Michael Thomp-
son i aðalhlutverkum.
Tubbs og Crockett komast
í návígi við klám og vændi
í þessum þætti.
20.50 Dans á rósum.
(Wilde’s Domin). Nýáströlsk
sjónvarpsmynd. Myndin
greinir frá þremur kynslóð-
um Wilde-fjölskyldunnar,
sem hefur það að atvinnu
að skemmta almenningi.
Fjölskyldan á og rekur fjöl-
leikahús, skemmtigarða og
leikhús. I myndinni rekur
hver atburöurinn annan:
óskaplegur eldsvoði, Ijón
sleppur úr búri sinu og fylgst
er með hvernig framtíðar-
draumar fjölskyldumeðlim-
anna stangast á. Aöalhlut-
verk: Kit Taylor, June Salter
og Martin Vaughan. Leik-
stjóri er Charles Tingwell.
§ 22.05 Bráðum kemur betri
tíð (We'll meet again).
Breskur framhaldsmynda-
flokkur með Susannah York
og Michael J. Shannon í
aðalhlutverkum.
§ 22.55 Buffalo Bill. Banda-
riskur skammtiþáttur með
Dabney Coleman og Joanna
Cassidy í aðalhlutverkum.
Bill fær hjálp áhorfenda til
þess að kría út símanúmer
hjá leikstjóra nokkrum og
leggur hann allt i sölurnar
til að fá hlutverk í framhalds-
þætti.
§ 23.20 Píslarblómiö (Passi-
on Flower). Ný bandarisk
kvikmynd með Barbara
Hersey, Bruce Boxleitner,
Nicole Williamson og John
Walters í aöalhlutverkum.
Leikstjóri er Joseph Sarg-
ent. Myndin gerist i Singap-
ore og fjallar um ungan
mann sem er að hefja feril
sinn i viðskiptalífinu. Hann
kynntist giftri konu, dóttur
vellauöugs Breta sem hagn-
ast hefur a smygli og öðrum
vafasömum viðskiptahátt-
um. Fyrr en varir er ungi
maðurinn flæktur ( mun al-
varlegri mál en hann hefur
áður kynnst.
§ 00.50 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Káta ekkjan" eftir Franz
Lehar. HertaTalman, Sand-
or Konya, Willy Hofman og
Franz Fehringer syngja lög
úr óperettunni með kór og
hljómsveit undir stjórn
Franz Marszaleks.
20.00 Harmonikuþáttur. Um-
sjón: Bjarni Marteinsson.
20.30 Úr heimi þjóðsagnanna.
Þriðji þáttur: Nafri, tafri, bol,
bol, bol. Umsjón: Anna Ein-
arsdóttir og Sólveig Hall-
dórsdóttir. Lesari með
þeim: Arnar Jónsson. Knút-
ur R. Magnússon og Sigurð-
ur Einarsson völdu tónlist-
ina. (Áður útvarpað i
október 1985.)
21.00 íslenskir einsöngvarar.
Sigurður Björnsson syngur
lög eftir Gylfa Þ. Gislason
og Árna Björnsson. Agnes
Löve leikur með á píanó.
21.20 Á réttri hillu. Umsjón:
Örn Ingi. (Frá Akureyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar. Um-
sjón: lón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
LAUGARDAGUR
30. maí
1.00 Næturútvarp. Hreinn
Valdimarsson stendur vakt-
ina.
6.00 [ bítiö. Rósa Guðný Þór-
isdóttir kynnir notalega
tónlist í morgunsárið.
9.03 Tíu dropar. NN kynnir
lög af ýmsu tagi og upp úr
kl. 10.00 drekka gestir hans
morgunkaffiö hlustendum til
samlætis.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni
Dagur Jónsson sér um þátt-
inn.
12.45 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt þriðjudags kl.
2.00.)
14.00 Poppgátan. Gunnlaug-
ur Ingvi Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra
spurningaþætti um dægur-
tónlist. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. þriðjudags-
kvöld kl. 21.00.)
15.00 Við rásmarkiö. Þáttur
um tónlist, íþróttir og sitt-
hvað fleira í umsjá Siguröar
Sverrissonar og íþrótta-
fréttamannanna Ingólfs
Hannessonar og Samúels
Arnar Erlingssonar.
17.00 Savanna, Rió og hin
tríóin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka í
tali og tónum.
18.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Siguröardóttur.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt miðvikudags
kl. 2.00.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Með sínu lagi. Umsjón:
Guðrún Gunnarsdóttir.
20.00 Rokkbomsan. Þorsteinn
G. Gunnarsson.
21.00 Á mörkunum. — Jóhann
Ólafur Ingvason. (Frá Akur-
eyri.)
22.05 Snúningur. Vignir
Sveinsson kynnir gömul og
ný dægurlög.
00.05 Næturútvarp. Georg
Magnússon stendurvaktina
til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 12.00, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera. Þáttur fyrir
unglinga og skólafólk.
LAUGARDAGUR
30. maí
8.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdis leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum. Fréttir kl.
12.00—12.10 Fréttir.
12.10— 16.00 Ásgeir Tómas-
son á léttum laugardegi.
Öll uppáhaldslögin á sínum
stað. Fréttir kl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
leikur 40 vinsælustu lög vik-
unnar. Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Laugardags-
popp á Bylgjunni með
Þorsteini Ásgeirssyni. Frétt-
ir kl. 18.
19.00—21.00 Rósa Guö
bjartsdóttir lítur á atburði
siðustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti. Fréttir
kl. 19.00.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir í laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir helg-
ina.
23.00—4.00 Þorsteinn Ás-
geirsson nátthrafn Bylgj-
unnar heldur uppi helgar-
stuðinu.
4.00— 8.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gisla-
son með tónlist fyrir þá sem
fara seint í háttinn og hina
sem fara snemma á fætur.
ALFA
IftNikl ttn»pnni.
FM 102,9
LAUGARDAGUR
30. maí
13.00 Skref i rétta átt.
Stjórnendur: Magnús Jóns-
son, Þorvaldur Daníelsson
og Ragnar Schram.
14.30 Tónlistarþáttur i umsjón
Hákonar Muller.
16.00 Á beinni braut. Ungl-
ingaþáttur.
Stjórnendur: Gunnar Ragn
arsson og Sæmundur
Bjarklind.
17.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til lífsins:
Tónlistarþáttur með lestri
úr Ritningunni.
24.00 Dagskráriok.