Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 9

Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 9
h r?q VTA T OV 9 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 Morgunblaðið/Sverrir Dagmæður halda kveðjusamsæti ÞAÐ var mikið um dýrðir í Laugarneshverfinu í gær en þá héidu dagmömmur í hverfinu bömunum sameiginlegt kveðjusamsæti áður en þær fóm í sumarfrí. Samsætið fór fram á gæsluvelli við Klepps- veg og þar gæddu böm og foreldrar sér á dýrindis kökum og fóra siðan í leiki. Kökurnar vom svo góðar að sumir gáfu sér ekki einu sinni tíma til að horfa í myndavélina þegar ljósmyndari Morgun- blaðsins leit við í hófinu en flestir vora þó til í stilla sér upp eins og sést á meðfylgjandi myndum. Afbókanír ættu ekki að koma á óvart -seg-ir Kjartan Lárusson formaður Ferðamálaráðs „ÞAÐ gerist á hverju ári að mikið er um afpantanir á tímabilinu frá 20. maí til 10. júní. Afbókanirnar núna ættu því ekki að koma neinum á óvart sem starfar við ferðaþjónustu,“ sagði Kjartan Láras- son formaður Ferðamálaráðs í samtali við Morgunblaðið, er hann var spurður að því hvort óvenju mikið væri um afbókanir í ár. Kjartan sagði að erfitt væri að segja til um það á þessu stigi máls- ins hversu mikill ferðamanna- straumurinn yrði hingað til lands í sumar, en hann var mikill í fyrra- sumar og engin ástæða væri til að ætla annað en að svo yrði einnig í sumar. „Við íslendingar erum alltaf svolí- tið gjamir á að ofmeta sjálfa okkur og allt sem okkur tengist. Leið- togafundurinn hefur ekki mikil áhrif á sumarvertíðina 1987, nema ef vera skyldi að hann hafi beint sjónum ferðamann um heim allan til íslands,“ sagði hann. Ástæðuna fyrir því taldi Kjartan vera þá að þegar fundurinn var haldinn hafði þegar verið gengið frá íjróðurpart- inum á öllum kaupum og sölum í ferðaþjónustunni. „Fjárveitingar til Ferðamálaráðs fyrir árið 1987 voru skornar niður um tæp 60%. Vegna þessarar erfiðu stöðu var óskað eftir 4 milljón króna aukafjárveitingu fyrir nokkrum mánuðum síðan. Fyrir skömmu hafnaði Ijármálaráðuneytið þessari aukafjárveitingu sem farið var fram á til að fylgja eftir hinni miklu land- kynningu sem leiðtogafimdurinn var. Beðið var um aukafjárveiting- una vegna yfírlýsinga stjómvalda um að nauðsynlegt væri að nýta á einhvem hátt þessa uppákomu. Þessu var vísað til okkar og við vildum ekki bregðast þar sem þetta var einstakur atburður. Við héldum að ef beiðni okkar kæmi ekki til greina yrði henni neitað strax. En við biðum eftir svari frá fjármála- ráðuneytinu mánuðum saman. Þetta voru nú hin döpm viðbrögð fjármálaráðuneytisins óg þar af leiðandi er kannski minni ástæða til að ætla að leiðtogafundurinn hafí skilað okkur stómm vinningi". Kjartan sagði að ferðamanna- straumurinn til landsins hefði aukist verulega fyrstu fímm mánuð- ir ársins miðað við árið á undan. Það væri af hinu góða, þvi þetta hafi yfirleitt verið dauður tími. Hann sagðist ekki telja að þessi aukning væri leiðtogafundinum að þakka, heldur aukinni sölustarfsemi flugfélaga og ferðaskrifstofa. „Þessi sýndarmennska yfírvalda gagnvart ferðamálum er orðinn al- gjör brandari, því bak við tjöldin er alltaf skorðið niður allt fé til ferðamála, eða tekið til baka,“ sagði Kjartan að lokum. Stuðningnr við NATO og varnarliðið jSamtök herstöðvaandstæðinga: Keflavíkurganga verður 6. júní Keflavíkurganga á ný Samtök herstöðvaandstæðinga hafa tilkynnt, að þau hyggist efna til göngu frá Keflavík til Reykjavíkur 6. júní næstkomandi til að mótmæla dvöl bandaríska varnarliðsins á íslandi og aðildinni að Atlantshafsbandalaginu. Þetta verður í tíunda sinn, sem þessi ganga er farin í þessu augnamiði. Athygli vekur að engir kunnir menn úr vinstri flokkunum leggja nafn sitt við gönguna í ár og hún hefur enn sem komið er fengið litla umfjöllun í Þjóðviljanum. í Stak- steinum í dag er talið, að þetta sé tímanna tákn. Fullyrða má að stuðn- ingur við dvöl banda- riska varnarliðsins á íslandi og aðild tslands að Atlantshafsbandalag- inu hafi sjaldan verið meiri hér á landi en á síðustu árum. Skoðana- kannanir — og kosninga- úrslit — benda til þess að mikill meirihluti landsmanna sé ánægður með núverandi varnar- samstarf við Bandaríkin og vilji að hér séu öflug- ar varnir gegn hugsan- legri árás erlendra ríkja eða hryðjuverkamanna. Sama er að segja um afstöðuna til NATO. All- ur þorri þjóðarinnar virðist telja að í öryggis- málum eigum við samleið með þeim lýðræðisþjóð- um á Vesturlöndum, sem mynda Atlantshafs- bandalagið. Það sér hver maður i hendi sér, að við þessar aðstæður eiga þeir, sem aðhyllast öndverð sjónar- mið í öryggismálum íslendinga, erfitt upp- dráttar. Alþýðubanda- lagið, sem verið hefur höfuðflokkur svo- nefndra „herstöðvaand- stæðinga", hefur orðið að kyngja þvi að ríkis- stjómir, sem flokkurinn hefur átt aðild að, hafa ekki haft brottför vam- arliðsins á stefnuskrá sinni. Innan flokksins virðist þeirri skoðun vera að vaxa fylgi, að varaar- málin þurfi hreinlega að leggja til hliðar og sætta sig við ríkjandi stefnu og viðhorf. Samtök her- stöðvaandstæðinga, sem hópur vinstri róttækl- inga hefur rekið, hafa líka áttað sig á hinum breyttu aðstæðum. Á síðustu árum hafa þau sett almenna friðarbar- áttu og baráttu gegn kjamorkuvopnum á odd- inn. Innan samtakanna hefur þó alltaf verið hóp- ur fólks sem óánægður hefur verið með þessa „útþynningu" stefnumál- anna. Akvörðunin um að efna til Keflavíkurgöngu á ný, eftir nokkurt hlé, bendir til þess að þessi hópur megi sín meir inn- an samtakanna en áður. Tímaskekkja Keflavikurgangan er hins vegar timaskekkja eins og rakið var hér að framan og áreiðanlega umdeild meðal þeirra sem telja sig „herstöðva- andstæðinga." í fréttatil- kynningu um gönguna, sem birt var hér í Morg- unblaðinu á sunnudag- inn, em aðeins nefndir tveir ræðumenn: Jóna Þorsteinsdóttir frá Þórs- höfn og Ingibjörg Har- aldsdóttir rithöfundur. Enginn kunnur stjóm- málamaður eða „menn- ingarviti" úr vinstri flokkunum er nefndur. Talað er um að leikarar komi fram en engin nöfn nefnd. Þetta bendir til þess að það gangi erfið- lega að fá menn til þátttöku. Forystumenn í vinstri flokkunum átta sig líka á þvi að tíminn er að þessu sinni óvenju óheppilegur, þar sem stjómarmyndun verður væntanlega ekki lokið. Líklegt er til dæmis að foringjar Alþýðubanda- lagsins treysti sér ekki i Keflavíkurgönguna að þessu sinni; þeir gætu þá staðið frammi fyrir óþægilegum spumingum göngufélaga. Gorbachev ritskoðaður Athyglisvert var að lesa það hér í blaðinu á fimmtudaginn, að fréttir af Rúmeníuför Mikhails Gorbachevs, leiðtoga Sovétríkjanna, hafi verið ritskoðaðar f Austur- Þýskalandi, sem var næsti viðkomustaður hans á ferð um Austur- Evrópu. Gorbachev hafði í ræðu hvatt stjómvöld í Rúmeníu til að fylgja for- dæmi Sovétstjómarinnar varðandi fijálsari miðlun upplýsinga og efnahags- legar umbætur. „Um þetta fengu lesendur Neues Deutschland, mál- gagns austur-þýska kommúnistaflokksins, ekki að lesa en blaðið lagði áherslu á tillögu Sovétstjómarinnar varð- andi fækkun kjamorku- vopna," sagði í fréttinni. „Dagblöð í Austur- Þýskalandi hafa áður bmgðið á það ráð að sleppa köflum úr ræðum Sovétleiðtogans, þar sem hann minnist á „glasn- ost-stefnuna“, en vitað er að austur-þýskir kom- múnistar hræðast afleið- ingar hennar," sagði þar ennfremur. Það hefðu einhvem tímann þótt tíðindi að valdhafar í Kreml væm orðnir fijálslyndari en leppar þeirra í Austur-Evrópu. En við skulum þó minnast þess að „fijáls- lyndi“ Gorbachevs em mikil takmörk sett. Ekk- ert lát er á ógnarhemaði Sovétmanna í Afganistan og Andrei Sakharov hélt þvi fram í Moskvu á dög- unum að svo virtist sem stjómvöld þar væm fall- in frá áformum sinum um að láta fleiri pólitíska fanga lausa. Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði afhentur leigutökum. Morgunblaðið/EinarFalur Fiskmarkaðurinn hf hefur starfsemi sína Mun efla atvinnulíf Hafnarfjarðar, segir bæjarstjórinn FYRSTI fiskmarkaðurinn á ís- landi var í gær afhentur til starfrækslu og mun væntanlega hefja móttöku og uppboð á fiski í næstu viku. Fiskmarkaðurinn er í Hafnarfirði, byggður af bæj- aryfirvöldum og leigður hlutafé- laginu Fiskmarkaðurinn hf til 10 ára. Markaðurinn var afhentur við hátíðlega athöfn. Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra, ávarpaði gesti og Hrafnkell Ásgeirsson, formaður hafnarstjómar rakti sögu og þróun málsins, en bygging húss- ins, sem er 4.000 fermetrar hófst fyrir um 6 mánuðum. Þá afhenti GuðmundurÁmi Stefánsson, bæjar- stjóri, Haraldi Jónssyni, formanni stjómar Fiskamrkaðsins, lykla að húsnæðinu. Kostnaður við upp- byggingu húsnæðis og athafna- svæðis er á sjötta tug milljóna og aðstaðan leigð af bæjaryfírvöldum til hlutafélagsins, sem skipað er um 90 aðiljum í fískverkun og útgerð á suðvestur homi landsins. Guðmund- ur Árni Stefánsson, bæjarstjóri, sagði að trú manna væri sú, að físk- markaðurinn myndi efla atvinnulíf í Hafnarfirði enda yrðu menn varir við sívaxandi áhuga fískseljenda og kaupenda á markaðnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.