Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 13
KEX
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
stendur nú yfir allsérstæð uppákoma
ættuð frá Noregi.
Framkvæmdin er liður í skiptisýn-
ingum ungra listamanna í þrem
löndum, íslandi, Noregi og Svíþjóð,
sem hafa það að meginmarkmiði að
kynna það sem ungviðið er að fást
við á hverjum stað fyrir sig. Sýning-
akeðjan hefur hlotið nafnið „Kex“
og hefur þegar troðið upp á virtum
stöðum sem eru Kulturhuset í Stokk-
holmi og UKS í Osló. Eftir skoðun
sýningarinnar dettur þeim er hér rit-
ar helst í hug að hún sé af líkum
meiði og hin stóra sýning í vöru-
skemmu Eimskips við Sigtún fyrir
tæpum tveim árum, sem nokkra at-
hygli vakti og þá helst furðulega
framkvæmd, þar sem sjálf sýningin
var nánast aukaatriði. Það virðist
vera svipað upp á teningnum með
þessa sýningu, sem allt eins hefði
getað fengið nafnið „Drasl".
Á sýningunni ægir öllu saman, á
skipulagslausan hátt og er það nokk-
ur ábyrgðarhlutur, að kynna slíka
framkvæmd, sem einkennandi fyrir
það sem metnaðargjamt og fram-
sækið ungt fólk sé að gera í þessum
löndum. Allir veggir Nýlistasafnsins
eru m.a. útkrotaðir og málaðir á
mjög skipulagslausan hátt svo að
jafnvel klósettgraffíti er á köflum
hátíð í samanburði við þetta.
Ég hef margt séð á sýningum um
dagana en fátt jafn andlaust og
kæruleysislegt í framkvæmd.
Jafnvel þó að þetta væri meining-
in, og listin í sjálfu sér, þá vantar
allan brodd í framkvæmdina til að
gera hana áhugaverða. Sjálfur á ég
auðvelt með að skynja fegurðina f
fátæklegum hlutum „moyens pauvr-
es“ svo sem menn nefna þá á fagmáli
og listastefnuna, sem tengist slíkum
athöfnum. Hér er og hvergi finnan-
legur yndisþokki tilviljana, svo sem
iðulega fylgir slíkum athöfnum. En
þetta er afskaplega gott dæmi um
andleysi og tilfinningasljóleika ásamt
skorti á listrænum metnaði.
Ef til vill er það eina sem máli
skiptir á bak við framkvæmdina, að
unga fólkið fær tækifæri til að hitta
hvert annað og sletta ærlega úr
klaufunum og skiptast á skoðunum.
Slíkt eitt hefur í sjálfu sér mikinn
tilgang, en spursmálið er hvort allt
þetta rusl þurfi að fylgja í kjölfarið.
Á borði sá ég í litlum svörtum
ramma setninguna „heimsóknir
óæskilegar" á norsku. Þetta má allt
eins telja Iqororð sýningarinnar og
er full ástæða til að taka tillit til
þess, því að eiginlega er framkvæmd-
in öll ekkert annað en fornar og
úreltar lummur í framsækinni list.
stórbrotnari viðfangsefni þó vel
mætti heyra í stöku tóntiltektum
hjá Karólínu, að Signý á af nógu
að taka og er músíkölsk og vel
kunnandi.
Næstelsta verkið á tónleikun-
um var svo Smátríó fyrir flautu,
selló og píanó eftir Leif Þórarins-
son. Þarna eru tólf ár liðin og
þetta ágæta verk heldur fersk-
leika sínum, sem einnig má þakka
ágætum flutningi. Það er engu
líkara en að tíminn hafí staðið í
stað, því það er aðeins blæmunur
á þessum verkum og þeim sem
nú er verið að semja og liggur sá
munur aðallega í þynnri tónvefn-
aði yngri mannanna. Síðasta
verkið var Sex söngvar, við ljóð
eftir Stefán Hörð Grímsson. Áður
en lögin voru flutt las Stefán ljóð-
in og mætti vel hugsa sér þá venju
viðhafða þegar um frumflutning
söngverka er að ræða. Þrátt fyrir
að tónvefnaðurinn hjá Hjálmari
sé oft ekki ýkja flókinn tekst hon-
um að ná fram sterkum tilfinn-
ingasveiflum og leikrænum
tilþrifum. Kristinn Sigmundsson
bariton flutti þessi lög ásamt nýja
músíkhópnum og var var flutning-
urinn vel útfærður og Kristinn á
köflum aldeildis ágætur. í heild
voru þetta skemmtilegir tónleikar
og vel undirbúnir af hálfu flytj-
enda.
T«er 'IAM OS HUOAdHAOTTAJ .ÍTTHAJHWTOHOM SI
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 13
DAI H ATSU
CHARADE
ÞRIÐJA KYWISLÓÐIIM
BÍLASÝNING
í DAG
MILLIKL. 130G 18
Við sýnum allar gerðir af hinum glæsilega,
nýja DAIHATSU CHARADE, sem er að slá
öll okkarfyrri sölumet.
Nýjarsendingareru á leiðinni.
DAIHATSU CHARADE, frumherji smábíla-
byltingarinnar, hefur nú þróast í rennilegan
og glæsilegan bíl sem vart á sér hliðstæðu.
Nýi DAIHATSU CHARADE opnar dyrnar að
nýju tímabili framtíðaraksturs í þægindum
°9 öryggi á grunni minni bíla hönnunar.
Komið og sjáið til að sannfærast.
Verd aðeins f rá
kr. 329.700.-
DAIHATSU CHARADE,
fremstur í gæðum og endursölu.
DAIHATSUUMBOÐIÐ, Ármúla 23, s. 685870 - 681733.