Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 19
5a*i«-
V80T ÍAM .08 HUOACI5IAOUAJ .CIIOLA.taMUOHOM ' 81
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 19
Tölvur í skólum
eftir Örnólf
Thorlacius
Herra ritstjóri!
í forystugrein í blaði yðar mið-
vikudaginn 27. maí er fjallað um
„skólana og tölvubyltinguna". Má
af greininni ráða að ríkisskólamir
hafi látið þessa byltingu fara hjá
garði: „Skólar ríkisins starfa nán-
ast eins og tölvur hafi ekki verið
fundnar upp. Þetta sýnir okkur
brotalömina í öllum ríkisrekstri;
þar eiga nýjungar erfítt uppdrátt-
ar.“
Þessi ályktun — og aðrar svip-
aðar — er dregin af grein eftir
Ellert Ólafsson, sem birtist degi
fyrr í Morgunblaðinu. Raunar sýn-
ist mér að gagnrýni greinarhöf-
undar beinist einkum að
grunnskólum landsins, en leiðara-
höfundur yfirfærir þessa gagnrýni
á ríkisskóla almennt, og raunar á
allan ríkisrekstur.
Ég læt fulltrúum grunnskólans
„Margl má eflaust
finna að opinberum
framhaldsskólum á Is-
landi en tómlæti um
tölvumál verður vart
með sanngirni borið á
skipuleggj endur
þeirra.“
eftir að svara þeirri gagnsýni sem
að þeim er beint. Margt má eflaust
fínna að opinberum framhalds-
skólum á íslandi en tómlæti um
tölvumál verður vart með sann-
girni borið á skipuleggjendur
þeirra.
Þegar upp var tekið áfanga-
kerfi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð haustið 1972 voru í
boði tveir valáfangar í stærðfræði
um tölvunotkun og forritun. Þar
sem þessir áfangar kröfðust nok-
kurrar undirbúningsþjálfunar í
stærðfræði hygg ég ekki að þeir
hafi verið kenndir fyrr en 1974,
en allt frá þeim tíma hefur tölvu-
fræði verið á stundaskrá skólans.
Fyrstu árin urðum við að leita út
fyrir skólann til að komast í tölv-
ur, en fljótlega eignaðist skólinn
tölvu og síðan fleiri. Árið 1983
voru keyptar að skólanum BBC-
tölvur í eina kennslustofu (18
tölvur) og síðan hefur tölvufræði
verið skyldunámsgrein á öllum
námsbrautum skólans. Nú höfum
við bætt við okkur 15 PC-tölvum
til kennslu og getum því á næstu
önn verulega aukið umsvifin í
tölvufræðslunni. Við höfum um
allmörg ár notað tölvutækni við
stundatöflugerð og í nemendabók-
haldi og tölvur eru notaðar í
vaxandi mæli á öðrum sviðum á
skrifstofu skólans.
Svipað má segja um aðra fram-
haldsskóla. í Menntaskólanum í
Reykjavík hefur tölvufræði verið
í boði sem valgrein í mörg ár og
nú eru þar 25 tölvur til kennslu
Örnólfur Thorlacius
og tölvufræði skyldunámsgrein
fyrir alla nemendur. í Menntaskól-
anum við Sund eru 24 kennslut-
ölvur og tölvufræði hefur verið
skyldunámsgrein í ein þijú ár, auk
þess sem frekari þjálfun er í vali.
I Kvennaskólanum eru 12 kennsl-
utölvur og öllum nemendum er
gert að læra á tölvu frá upphafí
nýliðins skólaárs, en tölvufræðsla
hefur verið þar í vali í fimm ár.
í fjölbrautaskólum borgarinnar,
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
og Ármúlaskóla, er tölvufræði nú
skyldunámsgrein á öllum lengri
námsbrautum og hefur verið
kennd sem valgrein og skyldunám
á ákveðnum brautum í nokkur ár.
í FB eru 46 tölvur til kennslu, þar
af 12 einungis til ritvinnslu,- og í
Armúla eru 16 tölvur ætlaðar
nemendum.
Ég hef ekki leitað upplýsinga
í skólum utan Reykjavíkur en þar
er staða víða svipuð og hér hefur
verið rakin. Að lokum skal þess
getið að í námsskrá handa fram-
haldsskólum, sem menntamála-
ráðuneytið hefur gefið út og taka
mun gildi næsta haust, er tölvu-
fræði skyldunámsgrein á öllum
fjögurra ára námsbrautum, og
raunar einnig á mörgum styttri
brautum.
Með þökk fyrir birtinguna.
Höfundur er rektor Menntaskól-
ans við Hamrahlíð.
Flauelsblóm i Pott' qq .
35% atsláttur -T5Ör 3 5
-Takmarkaðar birgðir
Allt í gBVÖirvi á eínuni staö
Sumarblómin eru komin
og garðplöntusalan i
fullum gangi.
Komið í Blómaval, veljið
fallegar garðplöntur
við nýjar og betri aðstæður.
Mikið úrval af sumarblomum,
aarðrósum, fjölærum
plöntum, trjám og runnum.
Blómum
JSSLnt iðaveroW
.. --, , verkíæri. Eigum öii verw*. ■
IS5ÖKES&.*—- „
Mikið ún/at al allskona. útipottum-ur P*®5*1’telr 0-fl'
FaglegÞekking.-fagleSÞi0™5^
3^:31^36770-686340