Morgunblaðið - 30.05.1987, Side 21
2T
Hagsmunasamtök
skreiðarframleiðenda:
Tillaga um
skreiðar-
sölusamtök felld
SAMKOMULAG náðist ekki um
það á fundi hagsmunasamtaka
skreiðarframleiðenda, að stofna
sölusamtök allra skreiðarfram-
leiðenda. Hins vegar var kosin
nefnd til að vinna að stofnun slikra
samtaka. Ólafur Björnsson, form-
aður stjómar Skreiðarsamlagsins,
lagði stofnun þess til, en tillaga
hans var felld.
Nefndinni, sem kosin var á fundin-
um, var falið að gæta hagsmuna
framleiðenda og reyna að fá lagfærð
kjör á lánum, sem hvíla á framleiðslu
ársins 1984. Björgvin Jónsson, form-
aður hagsmunasamtaka skreiðar-
framleiðenda, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að nefndinni væri enn-
fremur falið að ganga endanlega úr
skugga um það, hvort ríkissjóður
ætlaði sér að leggja til þær 250 millj-
ónir króna, sem lagaheimildir væru
til, til að létta á vandkvæðum fram-
leiðenda frá árinu 1984.
Björgvin sagði, að nefndin væri
eingöngu skipuð ungum mönnum og
vonuðust menn til að starf hennar
yrði árangursríkt.
SUMARSráwe
HJAINGVARIHELGASYNIHF.
laugardag og sunnudag kl. 14.00.- 17.00.
Vorum að fá sendingu af NISSAIM bílum.
Flestar gerðir til afgreiðslu strax.
SÝNUM UM HELGINA:
Kotasælukökur
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Kotasælukaka
með rúsínum
3 egg
Ví dl sykur
3 dl kotasæla
V» dl hveiti
1 dl mjólk
V* dl rúsínur
V2 dl brytjaðar möndlur (má sleppa)
Egg og sykur þeytt vel saman,
öllu hinu hrært saman við og deig-
inu hellt í smurt ofnfast mót og
bakað í u.þ.b. 45 mín við 180°C.
Góður ábætir, kakan borin fram
nýbökuð með sultu og þeyttum
ijóma.
Kotasælukaka
með eplum
8 lítil epli, (800 g)
300 g kotasæla
V2 dl sykur
5 matsk. hveiti
1—1 lh tsk. kardemommur eða
kanill
3 egg
2 dl mjólk
Eplin afhýdd og skorin í báta og
lögð í botninn á ofnfostu formi.
Saman við kotasæluna er hrært
sykri og kryddi. Eggin eru þeytt
og blandað saman við mjólkina,
þeirri blöndu ásamt hveiti hrært
saman við kotasæluna. Deiginu er
síðan hellt yfir eplabátana, bakað
við 200°C í ca. 45 mín. Borin fram
með þeyttum ijóma.
NI55AIM SUNNY 4WD STATION WAGON
kr. 533.000.-
NI5SAN SUNNY 4WD SEDAN kr. 516.000.-
NI5SAN MICRA kr. 321.000.-
1957-1987 V/
X&J
nissan PATR0L. Verð frá kr. 850.000.-
Staðgreiðsluafsláttur 3% af gefnu verði.
Verðum einnig með fleiri bfla til sýnis.
Leyfið okkur að koma ykkur á óvart.
Verið velkomin. — Alltaf heitt á könnunni.