Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 25
f'fcor ííh rr nnm'irrn/.r. un,vmw(M
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
ÁJ*
25
Alþjóðlegt skák-
mót á Austurlandi
ALÞJÓÐLEGT opið skákmót
hefst í Valaskjálf á Egilsstöðum
næstkomandi mánudag og gang-
ast sveitarfélög á Austurlandi
fyrir mótinu. Hafa þegar um 50
manns skráð sig formlega til
keppni frá mörgum þjóðlöndum,
þar á meðal nokkrir af sterkustu
skákmönnum íslendinga, en
búist er við að endanlegur þátt-
takendafjöldi verði um 100
manns.
Há verðlaun eru í boði til 6 efstu
manna í hveijum styrkleikaflokki
en keppendur eru ekki styrktir að
öðru leyti. Keppendur frá Banda-
ríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð,
Noregi, Danmörku, Finnlandi og
Ungveijalandi hafa þegar skráð sig
og af íslenskum keppendum má
nefna Hannes Hlífar Stefánsson
nýbakaðan heimsmeistara sveina,
Sævar Bjamason, Dan Hanson,
Elvar Guðmundsson og Þröst Áma-
son.
Ráðstefna um verkefna-
stjórnun haldin á íslandi
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um
verkefnastjómun verður haldin
dagana 31. ágúst til 3. september
á Hótel Loftleiðum. Það er félag-
ið V erkefnasljómun sem stendur
fyrir ráðstefnunni en hún er
skipulögð í samvinnu við alþjóða-
samtökin Nordnet, Intemet og
PMI.
Ráðstefnan NORDNET-INTER-
NET-PMI ’87 var kynnt nýlega á
blaðamannafundi. Þar kom fram
að með verkefnastjómun er átt við
stjómun ákveðinna verkefna. Menn
úr ýmsum starfsgreinum vinna
saman að verkefninu en hverfa
síðan aftur til fyrri starfa þegar því
er lokið. Sem dæmi var tekin bygg-
ing flugstöðvarinnar í Keflavík, en
virkjanaframkvæmdir, kvikmynda-
gerð, uppsetning leikrita, endur-
skipulagning á rekstri stofnana og
fyrirtækja og markaðskannanir em
einnig dæmigerð verkefni.
Ifyrirlestrar á ráðstefnunni verða
tæplega 50 talsins og em 6 fyrirles-
aranna íslenskir. Auk þess flytja
forsetar alþjóðasamtakanna Inter-
net og PMl og fulltrúi Norðurlanda-
samtakanna Nordnet erindi um það
sem er einkennandi fyrir verkefna-
stjómun vestan hafs og austan og
á Norðurlöndum. Þá verða fjórir
vinnuhópar starfandi á ráðstefn-
unni. Vemdari ráðstefnunnar
verður forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir.
Vinnuferð í
Krísuvík
Sjálfboðalíðasamtök um nátt-
úruverad efna til vinnuferðar í
Krísuvík í dag, laugardaginn 30.
maí.
í þessari ferð verður unnið að
göngustígagerð ofl. Lagt verður af
stað kl. 9.30. með rútu frá Um-
ferðarmiðstöðinni, vestanmegin,
þátttakendum að kostnaðarlausu
og komið til baka um ki. 18.00.
Þátttakendur hafí með sér nesti.
ABUMATIC 975
Línuhhngurúr súráli - fimm
sinnum harðari cn títan,
mun ekki merja línuna.
Tckur af slakann um leið og
þú byrjar að draga inn.
flBP
Wjjjr SamstilJtur hemill. Þegar
Y tU baka stillir
hemillinn sig niður um 50%
- virkar sem öryggisútbún-
aður þegar þú ert að fá’ann.
Sterkbyggt geirskoríð gírdrif
svo að enginn titringur
myndast þcgar dregið er
inn. Skiptingin er úr ná-
kvæmlega renndu messing,
gírinn úr ryðfríu stáli.
ABUMATIC 975 VEIÐIHJÓL ER BESTA
VALIÐ FYRIR ÞÁ SEM VIUA EITTHVAÐ
EINFALT. Ef þú ert að leita að látlausu
veiðihjóli sem bilar ekki, fæst ekkert betra
en lokað veiðihjól. ABU framleiðir fjórar
mismunandi gerðir í ýmsum verðflokkum.
Það geta allir veitt með þeim, án nokkurrar
hættu á flækju. Því getum við lofað.
Lágmúla 5, sími 681555
Gtobusp
Að sjálfsögðu er opið í sýningar-
salnum í Lágmúla.
Opið laugardag frá kl. 13-17.
KOMDU OG SJÁÐU CITROÉN
- ÞÚ HÆTTIR EKKI FYRR!
CfTROÉN Á AKUREYRI
Nú um helgina gefst Akureyringum
kostur á að sannreyna gæði nýju
Citroén bílanna.
Citroén AX, skemmtilegasti smábíll-
inn á markaðnum og riddari götunnar,
Citroén BX verða á bifreiðaverkstæði
Gunnars Jóhannssonar, Óseyri 6.
Opið laugardag frá kl. 10-18 og
sunnudag frá kl.10-18.