Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Fennika
Fennika, sígóð. 24. júní 1984 skrifaði ég um þessa plöntu og nefndi sígóð, en það
var það heiti sem henni hafði verið gefið. í Garðyrkjuskólanum í Hveragerði fékk
ég þær upplýsingar að þetta væri íslenska heitið á þessu grænmeti, sem þeir í
Hveragerði höfðu hafíð ræktun á árinu áður. í Matjurtabók Garðyrkjufélags ís-
lands frá 1971 var þetta nafn notað. Þar er ferxnika höfð innan sviga. í Ensk-íslenskri
orðabók Arnar og Örlygs frá 1984 er þetta nefnt fennikka en sígóð höfð innan sviga. Hvort
skrifa á þetta með einu eða tveimur k-um, skal ósagt látið. En ég held að engum detti í hug
að kalla þetta sígóð, til þess er nafnið alltof furðulegt, en fennika er ágætt nafn og það er
hægt að laga að íslenskri beygingu, enda hlýtur það nafn að verða ofan á. Fennika hefur
sérstakt bragð, og minnir talsvert á anís. Hún vex villt við Miðjarðarhafið og jafnvel í
klettasvæðum Suður-Englands og Wales. Grænmetið, eða peran sjálf, er að sjálfsögðu öll
borðuð, en fjaðurmynduðu blöðin eru talsvert notuð sem kryddjurt. Grænmetið er ýmist
borðað ferskt eða soðið og oft þurrkað. Þannig hentar það mjög til að krydda glóðarsteikt-
mat eða mat steiktan á
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
an
útigrilli, t.d. físk. Ef við setj-
um það saman við viðarkolin,
kemur skemmtilegt bragð af
matnum, en þurrka þarf
grænmetið áður, annars er
of mikil væta í því. Einnig
er mjög gott að setja það
undir grindina í reykgrilli,
t.d. þegar þið eruð í veiðiferð
og hafíð nýveiddan silung eða
lax, en eins og áður segir
þarf að þurrka það áður,
annars myndast of mikil gufa
í reykgrillinu. Hægt er að
þurrka það með því að fletta
blöðunum sundur, setja á
grind og hafa við velgju, jafn-
vel getur verið gott að þræða
spotta í gegnum það, og láta
kippuna hanga uppi á vegg
þar sem trekkur og hiti leikur
um.
En ýmislegt var áður gert
við fenniku annað en borða
hana. Hún var t.d. notuð við
augnbólgu og til að draga
eiturefni úr blóði, svo var hún
gefín bijóstamæðrum til að
auka mjólkina.
Fennikubakstur með
skinku og osti
4 fennikur, u.þ.b. 1 kg,
1 lítil sítróna,
saltvatn,
400 g skinka,
40 g smjör eða jurtasmjörlíki,
40 g hveiti,
Vzlítri mjólk,
2 eggjarauður,
2 eggjahvítur,
200 g rifinn maríbo- eða óðals-
ostur,
‘Atsk. salt,
Vstsk. pipar,
Vstsk. múskat.
1. Þvoið fennikuna, takið
fjaðrimar af henni og geymið.
Skerið hana síðan í þunnar sneið-
ar. Skerið sítrónuna í sneiðar.
2. Sjóðið fenniku- og sítrónu-
sneiðamar í litlu saltvatni í 10
mínútur.
3. Bræðið smjörið í potti, hræ-
rið út í það hveiti, þynnið með
mjólkinni og búið til uppbakaðan
jafning. Setjið salt, pipar og mú-
skat út í jafninginn. Kælið hann
örlítið.
4. Hrærið eggjarauðumar út í.
5. Þeytið hvítumar stífar,
blandið síðan varlega út í.
6. Skerið skinkuna í litia bita.
7. Setjið fennikusneiðamar
(fleygið sítrónusneiðunum) og
skinkubitana í smurða eldfasta
skál.
8. Blandið 3Ahlutum ostsins út
í sósuna og hellið yfir.
9. Klippið fjaðrimar af fennik-
unni smátt og setjið saman við
það sem eftir er af ostinum. Strá-
ið yfir.
10. Hitið bakaraofn í 200°C,
blástursofn í 180°C. Setjið fatið
í miðjan ofninn og bakið í 30—40
mínútur. Minnkið hitann ef þetta
brúnast of mikið að ofan.
Glóðarsteiktur silung-
ur með fenniku
(notið útigrill)
4 silungar, u.þ.b. 300—400 g
hver,
'Adl matarolía,
safi úr 2 sítrónum,
V2msk. salt,
V2tsk. pipar,
2 stórar fennikur, u.þ.b. 350 g
hvor,
30 g smjör,
1 sítróna í smjörið,
nokkrar steinseljugreinar.
1. Slægið fiskinn, hreinsið
blóðið úr honum. Klippið af honum
ugga, takið tálknin úr hausnum.
Skerið örlítið upp í fiskinn, þannig
að lögurinn sem þið leggið hann
í, snerti hann vel. Skafið roðið
lauslega.
2. Setjið matarolíu, sítrónus-
afa, salt og pipar í skál. Þeytið
saman. Hellið þessu síðan inn í
fiskinn eins vel og þið getið. Setj-
ið löginn inn í allar rifur. Látið
liggja þannig meðan þið hitið út-
igrillið.
3. Skerið fennikuna í þykkar
sneiðar. Sjóðið síðan í örlitlu salt-
vatni í 10 mínútur. Þerrið þá vel
með eldhúspappír.
4. Setjið smjör í pott.
5. Afhýðið sítrónuna með hníf
og gætið þess að öll hvít húð fari
af henni. Skerið síðan upp úr rif-
unum með hníf. Setjið út í smjörið
ásamt klipptri steinselju. Setjið
fennikusneiðamar út í og sjóðið
við hægan hita í 15—20 mínútur.
6. Þerrið fiskinn lauslega, steikið
síðan á útigrillinu í 8—10 mínútur.
7. Setjið fiskinn á fat, hellið
fennikumaukinu yfir og berið
fram ásamt brauði.
Fenniku/eplasalat
(heitt)
2 stórar fennikur, u.þ.b. 700 g,
2 dökkgræn epli,
IV2 dl kjúklingasoð eða gott
físksoð (saltað),
safi úr V2SÍtrónu,
5 svört piparkom,
1 msk. xjómaostur án bragð-
efna,
steinseljugrein.
1. Setjið kjúklinga- eða fisksoð
í pott ásamt piparkornum. Látið
sjóða við hægan hita í 5 mínútur.
Setjið sítrónusafa út í.
2. Þvoið fennikuna, skerið
hvora í 4 parta langsum. Setjið í
eldfasta skál.
3. Afhýðið eplin, stingið úr
þeim kjamann og skerið í báta.
Setjið eplin með í skálina.
4. Hellið soðinu jrfír það sem
er í skálinni. Setjið lok eða ál-
pappír yfir skálina.
5. Hitið bakaraofn í 190°C,
blástursofr. í 170°. Setjið skálina
í ofninn og bakið þetta í 30—40
mínútur.
6. Takið skálina úr ofninum,
hellið soðinu í pott. Hrærið ijóma-
ost út í.
7. Klippið steinseljuna og setjið
saman við.
8. Hellið sósunni yfir það sem
er í skálinni.
Athugið: Þetta er mjög gott
meðlæti með fiski.
Fenniku-hrásalat
4 fennikur, u.þ.b. 700—800 g,
2 hvítlauksgeirar,
1 stórt sterkgrænt epli,
1 stór appelsína,
>/2dl matarolía,
safi úr 1 sítrónu,
1 tsk. milt franskt sinnep,
125 g rækjur, nota má hvaða
tegund af fiski sem er.
1. Þvoið fennikuna og skerið i
þunnar sneiðar.
2. Afhýðið eplin, stingið úr
þeim kjamann og skerið eplin
síðan í litla bita. Afhýðið appelsín-
una og skerið í litla bita. Setjið
saman við fennikusneiðamar.
3. Setjið matarolíu, sítrónus-
afa, franskt sinnep og marinn
hvítlauksgeira í skál. Þeytið vel
saman. Hellið síðan yfír græn-
metið í skálinni. Blandið vel
saman. Setjið plastfilmu yfir ská-
lina og látið þetta standa í
kæliskáp í 1—2 klst.
4. Setjið rækjur eða annan fisk
í smábitum út í um leið og þetta
er borið fram.
Meðlæti: Snittubrauð eða ann-
að brauð.
Ef þið ætlið þennan rétt sem
sjálfstæða máltíð, má setja meira
af fiski út í.
Köld fennikusúpa
með jógúrt
3 dósir jógúrt án bragðefna,
1 stór fennika, u.þ.b. 300—350
g,
3 meðalstórir tómatar,
salt milli fmgurgómanna,
nýmalaður pipar,
2 egg,
nokkrar rækjur.
1. Skerið fennikuna mjög
smátt eða setjið í kvöm (mixara).
2. Setjið tómatana í sjóðandi
vatn í 2 mínútur. Takið þá af
þeim húðina. Mexjið síðan með
gaffli eða setjið með fennikunni í
kvömina.
3. Setjið jógúrt í skál, þeytið
fennikuna og tómatana út í.
4. Setjið salt og nýmalaðan
pipar út í.
5. Harðsjóðið eggin. Skerið
síðan smátt og stráið yfir súpu-
diskana.
6. Stráið nokkrum rækjum yfir
hvem disk.
Athugið: Þetta er mjög hress-
andi súpa á heitum sumardegi og
mjög hentug í sumarbústaðnum.