Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
Mótmælir reglum um
skráningu torfærutækja
STJÓRN Landverndar hefur far-
ið þess á leit við dómsmálaráðu-
neytið að það taki reg-lur um
skráningu torfærutækja til end-
urskoðunar tafarlaust, þar sem
þær séu meingallaðar og samrým-
ist ekki lögum um náttúruvernd.
{ frétt frá Landvernd er bent á að
í lögum um náttúruvemd og í reglu-
gerð sem þeim fylgi sé Náttúru-
vemdarráði skylt að banna allan
óþarfa akstur utan vega og merktra
slóða, þar sem náttúmspjöll geta af
hlotist. Nauðsynlegum akstri á
slíkum slóðum skuli jafnan haga
svo, að engin óþörf spjöll eða lýti á
landi hljótist af honum. Landvemd
segir ljóst, að „fjórhjólin" svokölluðu
séu nær eingöngu notuð sem leik-
tæki og hljóti sem slík að falla undir
ákvæði í náttúruvemdalögum um
óþarfan akstur utan vega.
Ólafur Walter Stefánsson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu,
sagði að bréf frá Landvernd hefði
borist ráðuneytinu fyrr í vikunni.
„Notkun fjórhjólanna hefur verið
áhyggjuefni ýmissa, sérstaklega
vegna notkunar á svæðum þar sem
hætta er á spjöllum á gróðri,“ sagði
Ólafur Walter. „í gær var haldinn
fundur með fulltrúum dómsmála-
ráðuneytis, Náttúmverndarráðs,
stéttarsambands bænda, Bifreiða-
eftirlits ríkisins og fleimm. Þar var
fjallað um þetta frá ýmsum sjónar-
homum og nú verður unnið úr því
sem þar kom fram. Hvenær niður-
staða liggur fyrir veit ég ekki, en
vonandi verður það bráðlega."
Tónlistarsjóður Ármanns Reynissonar:
Morgunblaðið/Börkur
Stúlkurnar fjórar sem hlutu hæsta einkunn á stúdentsprófi Verzl-
unarskólans, Halldóra Tómasdóttir, Áslaug Magnúsdóttir, Guðrún
Margrét Hannesdóttir og Katrín Axelsdóttir.
VERSLUNARSKÓLI íslands
brautskráði í gær 136 nýstúd-
enta, sem er nokkru færra en
í fyrra. Árangur nemenda var
hins vegar nokkuð betri.
Verslunarskólanum var form-
lega slitið í gær við hátíðlega
athöfn. 136 nemendur vom að
þessu sinni útskrifaðir frá skólan-
um. Úr máladeild útskrifuðust 25
stúdentar, 73 úr hagfræðideild,
13 úr stærðfræðideild og 25 úr
verslunarmenntadeild. Einn nem-
andi útskrifaðist með ágætisein-
kunn og var það Halldóra
Tómasdóttir, sem fékk 9.28 í ein-
kunn. 50 nemendur vom með I.
einkunn; tveir þeirra vom „semi
dúxar", með 8.96 í lokaeinkunn,
þær Áslaug Magnúsdóttir og Guð-
rún Margrét Hannesdóttir. Katrín
Axelsdóttir fékk 8,93.
í skýrslu skólanefndar skólans,
sem skólameistari flutti kemur
m. a. fram, að unnt reyndist að
einsetja skólann í vetur, en ára-
tugir em liðnir síðan skólinn var
síðast einsetinn. Uppsteypu
íþróttahúss skólans er nú lokið
og þak að komast á. Leikfimi-
kennsla mun hefjast í húsinu
næsta haust. í skýrslu skóla-
nefndar kemur einnig fram, að
ákveðið hefur verið að stofna
tölvuskóla, sem bjóði eins og hálfs
vetrar nám í tölvufræðum á há-
skólastigi. Málaleitan þessi er nú
til meðferðar hjá ráðuneytinu.
Að lokinni skýrslu skólanefndar
flutti Þorvarður Elísson ræðu, þar
sem hann óskaði stúdentum vel-
famaðar í námi og starfi. „Lífíð
er barátta, barátta, sem þið mu-
nið vonandi oftast vinna sigur í,
en vafalaust þess á milli bíða ósig-
ur. En það er með þá ósigra eins
og aðra. Þeir em einungis til að
læra af með hvaða hætti eigi að
vinna næstu orustu." Að lokinni
ræðu sinni afhenti Þorvarður ný-
stúdentum skírteini sín.
Gunnar Hanson stjórnarmaður
í Verslunarráði íslands tók því
næst til máls og afhenti verðlaun
ráðsins; Halldór Lámsson forseti
N.F.V.Í. afhenti viðurkenningar
fyrir störf í þágu félagslífs. Magn-
ús E. Guðjónsson flutti ræðu fyrir
hönd 40 ára stúdenta og Garðar
Ingvarsson fyrir hönd 30 ára stúd-
enta. Skólameistari sleit síðan
skólanum formlega og var skóla-
söngurinn sunginn í lokin.
„Lögfræði eða hag-
fræði“
„Annað hvort fer ég í lögfræði
í H.I. eða hagfræði í Danmörku",
sagði Halldóra Tómasdóttir dúx
frá V.I. Halldóra hlaut einkunnina
9.28 og var eini stúdentinn með
I. einkunn. „Mig langar meirar í
hagfræðina í Danmörku og færi
þá annað hvort í skóla í Kaup-
mannahöfn eða Árósum, en það
nám samsvarar B.A.-prófí frá við-
skiptadeild H.í.
Halldóra kvað Verslunarskól-
ann vera góðan skóla, „kennslan
er góð og andinn góður og er það
ekki síst bekkjakerfinu að þakka.“
Halldóra vildi síðan koma á fram-
færi þökkum til kennaranna og
þá sérstaklega Alexíu Gunnars-
dóttur íslenskukennara.
Hagstæður vömskiptajöfnuður
Betri árangrir en
færri nýstúdentar
Elín Ósk Óskarsdótt-
ír sópransöngkona
hlaut viðurkenningu
ELÍN Ósk Óskarsdóttir, sópran-
söngkona, hlaut viðurkenningu úr
Tónlistarsjóði Ármanns Reynis-
sonar fyrir þetta ár; að fjárhæð
175 þúsund krónur. Úthlutunin er
veitt Elínu Ósk til frekari náms
og undirbúnings hjá söngkennara
í London næsta vetur, þar sem hún
ætlar að undirbúa tónleika, sem
haldnir verða í Reykjavík og á
landsbyggðinni á næsta ári.
Elín Osk sagði í samtali við Morg-
unblaðið að styrkurinn gerði sér
kleift komast í samband við góða
kennara í London og undirbúa, undir
þeirra handleiðslu, fyrirhugaðra tón-
leika hér á landi. Þá gæfíst henni
um leið tækifæri til að koma sér á
framfæri erlendis og afla sér meiri
þekkingar í sönglistinni.
Úthlutun viðurkenningarinnar fór
fram í gær, föstudag, og sagði Ár-
mann Reynisson við það tækifæri
að margar umsóknir og snjallar hug-
myndir um listræna sköpun hefðu
borist sjóðnum að þessu sinni. Með
þessari viðurkenningu til Elínar vildi
úthlutunarnefndin leggja áherslu á
stuðning við unga og upprennandi
listamenn og hina gróskumiklu söng-
menningu okkar. Væri það ósk
sjóðsstjórnar að úthlutun þessi verði
Elínu Osk Óskarsdóttur hvatning til
dáða í framtíðinni.
í stjóm sjóðsins fyrir árið 1988
Morgunblaðið/Börkur
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran-
söngkona tekur við viðurkenn-
ingunni úr hendi Ármanns
Reynissonar.
eru Sigríður Pálmadóttir, Elín Ósk
Óskarsdóttir, Páll P. Pálsson, Runólf-
ur Þórðarson og Ármann Reynisson.
fyrstu fjóra mánuði þessa árs en
á sama tíma í fyrra, reiknað á
föstu gengi.
Verðmæti vöruinnflutnings
fyrstu fjóra mánuði ársins var 20%
meira en á sama tíma í fyrra. Inn-
flutningur til álverksmiðjjunnar var
30% meiri en á sama tíma í fyrra,
en hins vegar var olíuinnflutning-
ur, sem kemur á skýrslur fyrstu
fjóra mánuði ársins, mun minni
en í fyrra. Innflutningur til stór-
iðju og olíuinnflutningur ásamt
innflutningi skipa og flugvéla er
jafnan breytilegur frá einu tíma-
bili til annars. Séu þessir liðir
frátaldir reynist annar innflutn-
ingur, 87% af heildinni, hafa orðið
um 30% meiri en í fyrra, reiknað
á föstu gengi.
Nýstúdentar frá Verzlunarskólanum setja upp hvítu kollana í gær.
Verslunarskóli íslands:
hagstæður um 2,2 milljarða, en
var í ápríl í fyrra hagstæður
um 1,4 á sama gengi.
Fyrstu Qóra mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 15,5
milljarðar, en inn fyrir 14,6. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var á þessum
tíma hagstæður um 0,9 milljarða,
en á sama tíma í fyrra var hann
hagstæður um 1,8 milljarða.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutningsins
11% meira á föstu gengi en á sama
tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru
um 77% alls útflutnings og voru
14% meiri að verðmæti en á sama
tíma í fyrra. Útflutningur á áli var
23% meiri, en útflutningur kísil-
jáms var svipaður og á sama tím
aí fyrra. Útflutningsverðmæti
annarrar vöru var 11% minna
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
hélt í gær í tónleikaferð um Aust-
urland. Einleikarí með hljómsveit-
inni er Erling Blöndal Bengtson
knéfiðluleikari og hljómsveitar-
stjórí er Páll P. Pálsson.
Hljómsveitin hélt flugleiðis til Eg-
ilsstaða í gær og voru fyrstu tónleik-
amir þar í gærkvöldi. í dag,
laugardag, leikur hljómsveitin á Vop-
nafirði klukkan 17.00. Á morgun
verða tónleikar á Neskaupsstað
klukkan 15.30 og á Eskifírði klukkan
21.00. Á mánudag verða tónleikar á
Seyðisfírði klukkan 21.00 og á
þriðjudag á Fáskrúðsfirði klukkan
21.00. A miðvikudag verður flogið
til Hafnar í Homafírði og lýkur ferð-
inni með tónleikum þar klukkan
21.00.
Þáttakendur í tónleikaferðinni eru
tæplega 50 talsins. Auk þess söng
Karlakórinn Jökull frá Höfn í Homa-
fírði með hljómsveitinni á tónleikun-
um á Egilsstöðum í gær og mun
hann koma fram með hljómsveitinni
á tónleikunum á Neskaupstað og á
Höfn.
gær.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Tónleikahald á Austurlandi
Morgunblaðið/KGA
Sinfóníuhljómsveit íslands við brottförina á Reykjavíkurflugvelli í
í APRÍLMÁNUÐI voru fluttar
út vörur fyrir 5,8 milljarða
króna, en inn fyrir 3,6. Vöru-
skiptajöfnuðurinn í apríl var því