Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 34

Morgunblaðið - 30.05.1987, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 Finnland: Stjómarsamstarfið truflar samskipti borgaraflokkanna Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. TVEIR stærstu borgaraflokkar í Finnlandi, Hægri flokkurinn, Kokoomus, og Miðflokkuirnn hafa undanfarnar vikur deilt vegna stjórnarmyndunar hægri manna með jafnaðarmönnum. Miðflokksmenn hafa gagnrýnt Ilkka Suominen, iðnaðarráð- herra og formann Hægri flokks- ins, fyrir að hafa svikið hugmyndina um borgaralega meirihlutastjórn. Suominen hélt á miðvikudaginn harkalega ræðu þar sem hann skammaði Miðflokkinn fyrir ábyrgðarlausa stjómarandstöðu, sem samkvæmt honum getur haft í för með sér að flokkurinn kæmist ekki í stjóm í bráð. Dagblöð miðflokksmanna hafa undanfarnar vikur ásakað Suomin- en um að hafa svikið samkomulag flokkanna um að mynda borgara- lega stjóm eftir kosningasigur borgaralegu flokkanna í mars. Telja miðflokksmenn, að hægri menn hafi nú tapað öllu valdi í hendur jafnaðarmanna. Suominen tók þátt í viðræðum þar sem formenn borgaraflokkanna könnuðu möguleika á stjómar- myndun án þátttöku jafnaðar- manna. Þegar Harri Holkeri, seðlabankastjóra og fyrrum form- anni hægri flokksins, var falið að mynda samsteypustjóm hægri manna og jafnaðarmanna var talið að Suominen væri meðal þeirra fáu hægri manna, sem vildu frekar borgaralega stjóm en samstarf við jafnaðarmenn. Paavo Váyrynen, formaður og forsetaefni Miðflokksins, tilkynnti fyrir viku að hann ætlaði að draga sig út úr daglegum stjómmálastörf- um til þess að geta einbeitt sér að forsetakosningunum. Váyrynen lýsti yfir því að forsetaefni eigi ekki að standa í því að framkvæma þá hörðu stjómarandstöðustefnu, sem Miðflokkurinn fylgir. Er Seppo Kááriáinen flokksritari tekinn við sem foringi stjómarandstöðunnar á meðan forsetakosningabaráttan fer fram. Fyrsta verkefni Kááriáinens var að endurbæta samskipti flokks- ins við Mauno Koivisto forseta. Um leið og miðflokksblöðin hafa gagn- rýnt stjómarsamsteypuna hafa þau einnig gagnrýnt forsetann, en það þykir ekki prúðmannlegt í finnskum stjómmálum. Danska sendiráðið íMexikó á valdi smábænda Fjórir bændur settust að í danska sendiráðinu í Mexikóborg á þriðjudag og neituðu að fara. Eru þeir enn í sendiráðinu. Bændumir krefjast aukinna réttinda til hendur sveitafólks og mexikanskra indí- ána og hafa þeir hótað að kveikja í sér og sendiráð- inu. A myndinni sést hvar þrír fíngur láta miða út um bréfalúgu sendiráðsins með yfírlýsingu um að bændumir séu Torben Frost, sendiherra Dana, sagði að starfsfólk sitt væri ekki í hættu. Hann reynir nú að leysa málið með friðsamlegum hætti. Reuter- fréttastofan ræddi við Frost í síma og sagði hann að starfslið væri ekki í gíslingu og menn gætu far- ið út og inn um bakdyr að vild. Bændumir eru að því er virðist óvopnaðir. Þeir kveðast vera félagar Austur-mexikönsku lýðræðisfylgkingarinnar, sem einnig er kennd við Emiliano Zapata. Hann var byltingarhetja, sem barðist fyrir réttindum sveita- fólks. Andstæðingar Zapata tóku hann af lífí í mexikönsku byltingunni árið 1919. Bresku þingkosningarnar: Sott að Verkamanna- flokknum í vamarmálum London, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ALLA þessa viku hafa vamar- málin verið efst á baugi í kosn- ingabaráttunni hér í Bretlandi. Virðist þessi áhersla á vamar- málin hafa komið sér illa fyrir Verkamannaflokkinn, sem hefur lagt ofurkapp. á áætlanir um margvíslegar umbætur í innan- landsmálum. íhaldsflokkurinn og Bandalag fíjálslyndra og jafnaðarmanna þykjast hafa fundið veikan blett á Verkamannaflokknum. Er hann sakaður um ábyrgðarlausa og stór- hættulega stefnu í vamarmálum. Eru það einkum áform flokksins um að gera Bretland kjamorku- vopnalaust sem orðið hafa tilefni óvæginnar gagnrýni. Hafa bæði íhaldsmenn og bandalagsmenn sagt að yrði stefnu Verkamannaflokks- ins hrundið í framkvæmd væri höggvið stórt skarð í vamir bresku þjóðarinnar, sem standa mundi ber- skjölduð gagnvart þrýstingi og árásum óvinveittra ríkja, sem sjálf byggju yfir kjamorkuvopnum. Ekki fer á milli mála að forystu- mönnum Verkamannaflokksins þykir miður hversu mjög kosninga- baráttan hefur tekið að snúast um vamarmálin. Höfðu þeir haft í hyggju að beina athygli kjósenda að innanlandsmálum og margvís- legum áætlunum Verkamanna- flokksins um umbætur á ýmsum sviðum þjóðlífsins — baráttu gegn atvinnuleysi, úrbótum í félagsmál- um og fleiru af því tagi. Áhersla á slíka málaflokka virtist skila Verka- mannaflokknum góðum árangri í fyrstu viku kosningabaráttunnar og flokkurinn vildi halda áfram á sömu braut. Úrslit síðustu skoðanakann- ana gefa til kynna að bilið sé aftur tekið að breikka milli íhaldsflokks- ins og Verkamannaflokksins eftir að töluvert hafði dregið saman með flokkunum tveimur í upphafí kosn- ingabaráttunnar. Gagnrýni á blöðin Talsmenn Verkamannaflokksins hafa sakað bresk dagblöð, sem flest fylgja íhaldsfíokknum að málum, um að rangfæra og mistúlka stefnu flokksins í vamarmálum. Markmið- ið sé að læða því inn hjá kjósendum að Verkamannaflokkurinn sé alls ófær um að taka á hendur stjóm landsins vegna stefnu sinnar í ut- anríkismálum. Hefur baráttan við bresku dagblöðin raunar einkennt kosningabaráttu Verkamanna- flokksins fram að þessu. Forystu- menn flokksins halda því fram að reynsla fyrri ára hafi fært þeim sanninn um að þorri blaða sé fjand- samlegur Verkamannaflokknum þegar á hólminn er komið í kosn- ingabaráttu. Hefur flokkurinn því lagt megináherslu á það nú að koma boðskap sínum til skila í sjónvarpi. Bresku sjónvarpsstöðvamar veija meiri tíma í frásagnir af kosninga- baráttunni og kynningar á stefnu flokkanna en nokkm sinni fyrr. Þessi aðferð virðist hafa skilað Verkamannaflokknum nokkmm ár- angri, en flokkurinn hefur fyrir vikið sætt gagniýni fyrir að snið- ganga blöðin. Bandaríkin: Alnæmi barst í líffæraþega Atlanta, Reuter. TVEIR menn, sem fengu líffæri úr látnum manni, smit- uðum af alnæmi, hafa nú báðir mælzt með sjúkdóminn. Frá þessu var sagt í skýrslu banda- ríska sjúkdóma- og sóttvarna- eftirlitsins. í skýrslunni er tekið fram, að þetta sé í fyrsta skipti, sem vitað sé til, að alnæmi berist með líffær- um, sem vom flutt úr dánum manni. Áður hafði það komið einu sinni fyrir, að lifandi nýmagjafí smitaði þann sem nýrað fékk. Alnæmissjúklingurinn, sem líffærin vom tekin úr, hafði farizt í bílslysi. Manninum var gefíð heilbrigt blóð til að reyna að bjarga lífí hans. Kona sú sem fékk síðan nýra úr manninum og karl- maður sem læknar græddu lifrina í, hafa bæði mælzt jákvæð við alnæmismælingar, eftir aðgerð- ina. í fyrstu var ekki vitað, að hinn látni var sýktur, en við ná- kvæmari rannsókn á blóðsýnum, kom það í ljós. Ættingjar hans höfðu gefið samþykki fyrir því að líffæri úr honum væm grædd í aðra. Þegar upplýstist að alnæmi- sveiran fannst í blóði mannsins, var umsvifalaust haft samband við sjúkrahúsin, sem höfðu fengið líffærin. En þá vom líffæraflutn- ingamir um garð gengnir. Kona sem fékk hjarta úr mmanninum lifði ekki af aðgerðina. Mikil áherzla er lögð á í skýrsl- unni, að óyggjandi rannsókn fari fram áður en líffæraflutningur er framkvæmdur. Óhug hefur slegið á menn vegna þessa máls. Ekki hefur verið frá því skýrt á hvaða stigi alnæmis líffæraþegamir tveir mældust. Neil Kinnock Margaret Thatcher Minnkandi vöruskipta- halli í Bandaríkjunum Washington, Reuter. HELDUR dró úr vöruskiptahalla Bandaríkjanna á fyrsta fjórð- ungi þessa árs, að því er fram kemur í nýrri skýrslu bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Segir þar að vöruskiptajöfnuður hafi verið neikvæður um 38,3 milljarða dollara á þessum tíma saman- borið við 38,6 milljarða á sama tíma í fyrra. Vömskiptajöfnuður segir til um hlutfall inn- og útflutnings og telja menn að upplýsingar þessar kunni að gefa til kynna að gífurlegur við- skiptahalli Bandaríkjanna fari minnkandi. Síðustu tvö ár hefur gengi dollarans farið lækkandi og hefur það orðið til þess að treysta Whistler samkeppnishæfni bandarísks iðn- vamings. Þannig hefur gengi dollarans gagnvart jeni og vestur- þýsku marki fallið um 40 prósent og hefur því verð á vamingi frá þessum löndum farið hækkandi í Bandaríkjunum. Samkvæmt skýrslu viðskipta- ráðuneytisins jókst innflutningur um eitt prósent á fyrsta fjórðungi þessa árs samanborið við árið 1986. Útflutningur jókst hins vegar um tvö prósent. Lækkun á gengi dollar- ans leiðir til þess að innflutningu dregst saman en útflutningur eykst og glæðir þessi staðreynd vonir manna um að viðskiptahallinn fari minnkandi. málverk á 80 milljómr New York, Reuter. LANDSLAGSMÁLVERK eftir Ja- mes McNeill Whistler var selt á uppboði í New York um helgina fyrir rösklega tvær milljónir doll- ara, jafnvirði um 80 milljóna íslenzkra króna. Þetta er hæsta verð, sem greitt hefur verið fyrir Whistler-málverk. Áður hafði hæsta verð fyrir verk eftir hann verið selt á um þijú hundruð þús- und krónur. Málverkið er frá árinu 1871 og er útsýni yfír Thames-fljót frá Batt- ersea. Það hefur verið nefnt „Variati- ons in Violet and Green.“Kaupandi var bandariskur listaverkasafnari. Nafns hans var ekki getið. Frægasta verk Thistlers er „Arrangement in Grey and Black,“ og er af móður listamannsins. Á þessu sama uppboði var mynd af James Wright, máluð af Thomas Eakins 1890. Hún seldist á ögn lægri uppbæð en mynd Whistlers.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.