Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 36

Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágústlngi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö. Annarri lotu lauk án árangurs Annarri lotu í hinum form- legu stjórnarmyndunarvið- ræðum er lokið. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, skýrði Vigdísi Finn- bogadóttur, forseta Islands, frá því í gærmorgun, að hann teldi frekari tilraunir af sinni hálfu til að mynda meirihlutastjórn til- gangslausar eins og málum er nú háttað. Nú eru tvær vikur síðan Þorsteinn Pálsson tók að sér að hafa forystu í hinum form- legu viðræðum flokkanna. Eftir að hafa notað fyrri vikuna til að ræða við forystumenn allra flokka ákvað hann að bjóða full- trúum Kvennalista og Alþýðu- flokks bréflega til viðræðna um myndun þriggja flokka stjórnar. Á miðvikudagskvöld kom í ljós, að þær myndu ekki bera árang- ur. Eftir að hafa kannað viðhorf Steingríms Hermannssonar, for- manns Framsóknarflokksins, og í samráði við þingflokk sjálfstæð- ismanna ákvað Þorsteinn Páls- son að láta af frekari tilraunum. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins hefur lagt höfuðkapp á að þoka viðræðunum í þá átt, að ágreiningsefni á milli flokka lægju skýr fyrir. Þegar sjálf- stæðismenn, kvennalistakonur og alþýðuflokksmenn skildu, lá annars vegar fyrir, að allir voru sammála um að bæta hag hinna lægst launuðu, og hins vegar að deilt var um leiðir að markmið- inu. Kvennalistakonur vilja, að gripið sé til lagasetningar í því skyni að bæta hag hinna lægst launuðu. Sjálfstæðismenn vilja, að laun séu ákveðin í frjálsum kjarasamningum en ríkið taki ákveðna forystu í því efni að bæta hag þeirra verst settu á þeim vettvangi. Nokkuð kvað við annan tón hjá talsmönnum Al- þýðuflokksins; þeir sögðu, að slitnað hefði upp úr viðræðunum vegna þess að ekki tókst „sam- komulag um fyrstu aðgerðir“, eins og það var orðað. Þegar fráfarandi ríkisstjórn hóf störf í maí 1983 og greip til þess ráðs til að vinna bug á 130% verðbólgu að setja lög um kjara- samninga, var því harðlega mótmælt innan þings og utan. Jafnt launþegar sem vinnuveit- endur hafa hvað eftir annað lýst andstöðu sinni við lögbindingu launa. Fijáls samningsréttur um kaup og kjör hefur verið talinn meðal homsteina þess stjóm- skipulags, sem hér ríkir. Að sjálfsögðu getur nauðsyn brotið lög í þeim efnum eins og öðrum. Það er samdóma álit þeirra manna, sem þekkja best til hinna flóknu innviða í launakerfum landsmanna, að grípi löggjafinn inn í það starf, sem nú er unnið til að veija nýlega breytingu á launahlutföllum hinum lægst launuðu í hag, gæti þessu starfi beinlínis verið stefnt í hættu. Ágreiningurinn um það, hvort bæta eigi hag hinna lægst laun- uðu með því að beita löggjafar- valdinu eða semja um það í frjálsum samningum, snýst um leiðir en ekki markmið. I frásögn- um af hugmyndum Kvennalist- ans kemur hvorki fram hve mikla hækkun konurnar vilja lögfesta né til hverra hún á að ná. Kvennalistinn hefur verið dulur um stefnu sína frá kjördegi. Þor- steini Pálssyni tókst að fá kvennalistakonur til að sýna nokkur af þeim spilum, sem þær hafa á hendinni. Málgagn Al- þýðuflokksins sagði í forystu- grein á fimmtudaginn, að kröfur Kvennalistans hafi verið „óhagg- anlegri en við hafði verið búist“. í sömu forystugrein Alþýðu- blaðsins andar ekki beinlínis hlýju til Sjálfstæðisflokksins. Þar er rætt um „duglitla afstöðu" Sjálfstæðisflokksins til ríkisfjár- mála; „viðkvæma stöðu“ Þor- steins Pálssonar sem „verk- stjóra“ í viðræðunum og „áhugaleysi þingflokks" sjálf- stæðismanna. Þá segir Alþýðu- blaðið að „lítill vilji“ virðist hjá Sjálfstæðisflokknum til að takast á við „brýnan vanda“ í efnahags- málum og telur flokkinn sýna „viljalausa pólitík". Á forsíðu Álþýðublaðsins er skýrt frá því, að „þvergirðing Sjálfstæðis- flokksins" setji strik í reikning stjórnarmyndunarviðræðna. Ef þessi málflutningur Alþýðublaðs- ins er endurómur af sjónarmiðum forystumanna Alþýðuflokksins og viðhorfum þeirra í garð Sjálf- stæðisflokksins, þarf engum að koma á óvart, að stirt sé á milli flokkanna í viðræðum um stjóm- arsamstarf. Önnur lota í tilraununum til að mynda nýja stjórn bar ekki þann árangur, sem að var stefnt. Á hinn bóginn er nú ljósara en áður, hvaða kostir eru vænlegir. Þeir sem vilja lögfestingarleið í launamálum snúa sér væntan- lega til Kvennalistans. Þeir sem við Kvennalistann ræða verða einnig að vera undir það búnir að ræða um breytingar á stefn- unni í vamar- og öryggismálum. Óþolinmæði og áreitni í garð við- mælenda einkennir málflutning Alþýðuflokksins og engu er líkara en talsmenn hans séu enn í kosningaskapi. Sjálfstæðis- menn stíga varlega hvert skref og vilja ekki taka þátt í viðræð- um, þar sem krafist er fráhvarfs frá grundvallarstefnu þeirra. Svar við gagnrý Nixons og Kissii eftir George P. Shultz ÞEIR Richard Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseti, og Henry Kiss- inger, fyrrum utanríkisráðherra, hafa gagnrýnt þau drög að af- vopnunarsáttmála sem sendimenn stórveldanna hafa lagt fram í Genf. í grein sem birtist i The Los Angeles Times leggja þeir til að afvopnunarsamkomulag taki til allra meðaldrægra flauga og verði þvi ekki einskorðað við Evrópu. Varnarmálaráðherrar Atlants- hafsbandalagsins settu fram sömu kröfu að afloknum fundi þeirra i Stavanger á dögunum. Auk þessa teija þeir Nixon og Kissinger að samkomulag um upprætingu með- aldrægra og skammdrægra kjarn- orkuflauga verði einnig að taka til fækkunar i hinum hefðbundna herafla Sovétmanna. Grein þessa ritaði George P. Shultz, utanrikis- ráðherra Bandarikjanna, fyrir vikuritið Time og er hún svar við gagnrýni þeirra Kissingers og Nix- ons. Svo virðist sem stórveldin séu nærri því að komast að samkomulagi um upprætingu meðaldrægra kjarn- orkuflauga í Evrópu. Enn er ekki tryggt að samkomulag verði undirrit- að - samningamenn okkar eiga enn mikið starf fyrir höndum. En ef samningar nást verður það í fyrsta skipti í 25 ára sögu afvopnunarvið- ræðna sem samkomulag er gert um verulega fækkun árásarvopna og eft- irlit með því að ákvæði þess verði virt. Nú heyrast þær raddir að vafa- Richard Nixon, fyrrum Banda- ríkjaforseti. samt sé hvort slíkt samkomulag þjóni öryggishagsmunum okkar. Mat stjórnarinnar er að svo sé. * Ognin að austan Um miðjan áttunda áratuginn hófu Sovétmenn að setja upp SS-20 kjarnorkueldflaugar. Flaugar þess- ar, sem búnar eru þremur kjarna- oddum, eru mjög nákvæmar og nefna má að þær ná til Lundúna á aðeins 12 mínútum. Tíu árum áður höfðu Bandaríkjamenn fjarlægt all- ar meðaldrægar kjarnorkuflaugar sínar í Evrópu. Árið 1979 urðum við og bandamenn okkar innan Atlantshafsbandalagsins í Evrópu sammála um að takmark okkar væri það að fá Sovétmenn til að fjarlægja SS-20 flaugamar. Tækist það ekki myndum við á hinn bóginn koma okkur upp vopnum til mót- Henry Kissinger, fyrrum ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna. vægis við sovésku flaugarnar. Árið 1981 þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti kynnti fyrst „núll-lausina“ svonefndu um upp- rætinu meðaldrægra kjarnorku- flauga í Evrópu, höfðum við enn ekki hafið uppsetningu flauganna. Sovétmenn vildu ekki setjast að samningaborðinu. Árið 1983 kynnt- um við málamiðlunartillögu. Samkvæmt henni var gert ráð fyrir að stórveldin réðu yfir sama fjölda kjarnorkuvopna um heim allan. Eina skilyrðið var að fjöldi þeirra yrði innan þeirra marka sem Atl- antshafsbandalagsríkin höfðu ákveðið að koma sér upp þ.e.a.s. innan við 572 kjamaoddar. Enn vildu Sovétmenn ekki semja. í októ- ber á síðasta ári höfðum við lokið við að setja upp allnokkurn hluta Evrópuflauganna. Afvopnunarviðræður rísaveldanna: Söguleg stefnubreyt- ing Bandar í kj aslj ór nar eftir Henry Brandon Viðræður samninganefnda stórveldanna i Genf um hugsanlega uppr- ætingu meðal- og skammdrægra kjarnorkuflauga í Evrópu, hafa fyllt stjórnir aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins skelfingu. En eftir að hafa kynnt mér viðhorf bandarískra þingmanna og embættismanna stjómar Reagans Bandaríkjaforseta er ég þess fullviss að stjórnir aðild- arríkjanna eigi ekki annars úrskosti en að faliast á slíkt samkomulag, náist það á annað borð. NATO-ríkin munu aukinheldur ekki geta vísað á bug tilboði Mikhails Gorbachev Sovétleiðtoga um að fjarlæga skamm- drægar eldflaugar í Evrópu eftir að samið hefur verið um upprætingu hinna meðaldrægu. Stjómir þeirra geta í besta falli gert sér vonir um að stórveldin fallist á málamiðlun og samið verði um að bæði ríkin megi halda takmörkuðum fjölda skammdrægra vígvallarvopna. Evrópuríkin standa ekki einungis frammi fyrir óvæntum afvopnunartil- lögum Gorbachevs og vilja hans til að ná slíku samkomulagi heldur einn- ig sögulegri umbyltingu á stefnu Bandaríkjastjómar varðandi kjam- orkuvigbúnað. Það er kaldhæðnisleg staðreynd að þessi furðulega atburða- rás er til komin vegna tillögu Bandaríkjastjómar frá árinu 1981 um upprætingu meðaldrægra kjam- orkuflauga. Tillaga þessi hefur verið nefnd „núlllausnin". Hún átti uppr- una sinn í vamarmálaráðuneytinu og síðar lýstu embættismenn í utanríkis- ráðuneytinu yfir stuðningi við hana. Tilgangurinn var sá að hafa áhrif á almenningsálitið með því að boða kjarnorkuvopnalausa Evrópu. Banda- rísku embættismennimir vom nefni- lega sannfærðir um að Sovétstjómin myndi aldrei fallast á svo afgerandi tiliögu. Á Reykjavíkurfundi leiðtoganna tóku málin hins vegar heldur óvænta stefnu. Gorbachev sneri vöm í sókn og þröngvaði Reagan forseta til við- ræðna um þessar vafasömu tillögur, sem Bandaríkjamenn höfðu sjálfir lagt fram. í hjarta sínu er Ronald Reagan sammála Caspar Weinberger vamarmálaráðherra, sem telur af- vopnunarmál hættulegan málaflokk sökum þess að þar með yrðu yfirburð- ir Sovétmanna á sviði hefðbundins vígbúnaðar tryggðir. Weinberger tel- ur einnig að siíkt samkomulag myndi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir fæl- ingarkenninguna, sem er einn homsteinn vamaráætlana Atlants- hafsbandalagsins, auk þess sem honum myndi reynast erfiðara en ella að fá þingmenn til að samþykkja útgjöld til varnarmála. En skynsemin segir Reagan forseta að George Shultz utanríkisráðherra hafi einnig sitthvað til sins máls. Shultz er hlynntur því að samið verði við Sov- étríkin og hann virðist nánast hugfanginn af þeirri framtíðarsýn að unnt verði að skapa heim án kjam- orkuvopna. Það sama má raunar segja um Reagan forseta. Auk þessa hefur Gorbachev hagað málum þann- ig að það er nánast ógerlegt fyrir Reagan að hafna nýjustu tillögum hans, svo framarlega sem hugur fylg- ir máli og Sovétstjómin er í raun reiðubúin til að fallast á víðtækar kröfur Baridaríkjamanna um eftirlit. Afstaða NATO-ríkja Eftir Moskvuför sína fyrir skömmu hélt Shultz utanríkisráð- herra til Bmssel þar sem hann skýrði fulltrúum aðildarríkja Atl- antshafsbandalagsins frá viðræðum sínum við sovéska ráðamenn. Þrátt fyrir að Shultz notaði hefðbundið orðalag stjórnmálamanna gaf hann í skyn að Bandaríkjastjóm ætlaðist til þess að stjómir NATO-ríkjanna féllust á helstu þætti afvopnunar- sáttmála. Þar sem Reagan forseti vill knýja fram samkomulag og andstæðingar hans í Demókrata- flokknum, sem hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, hafa lýst viðræðunum sem „sögu- legu tækifæri" virðist teningnum vera kastað. Fjölmargir hægri sinn- aðir þingmenn og afvopnunarsér- fræðingar svo sem Robert Mcnamara og McGeorge Bundy telja að Evrópuríkin hafi ekki lagt sitt af rnörkum til eigin vama. Þess vegna eru þeir því fyígjandi að sam- ið verði við Sovétstjómina. Henry Kissinger og Brent Scowcroft, ör- yggisráðgjafi Fords fyrrum forseta, hafa hins vegar lagst gegn sam- komulagi og telja óráðlegt að breyta hinni hefðbundnu stefnu stjórnar-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.