Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 30.05.1987, Qupperneq 55
55 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987 Sigrún Þorkels- dóttir—Minning Fædd 20. maí 1892 Dáin 24. maí 1987 I dag, laugardaginn 30. maí, verður jarðsett frá Prestbakka- kirkju á Síðu kær vinkona mín og fjölskyldu minnar, Sigrún Þorkels- dóttir. Sigrún var fædd 20. maí 1892 og var því rétt rúmlega 95 ára er hún lést í Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund hinn 24. þessa mánaðar. Foreldrar hennar, Þorkell Einars- son og Guðlaug Einarsdóttir, bjuggu á Steinsmýri í Meðallandi en fluttu síðan að Asgarði í Land- broti þar sem Sigrún fæddist. Sigrún var þriðja í röð fjögurra systkina. Eitt barn misstu þau Þor- kell og Guðlaug en þijú systkinanna náðu fullorðinsaldri, þau Sigrún, Guðlaug og Eyþór. Sigrún kynntist Bjarna Bjarna- syni, móðurbróður mínum, og giftu þau sig 15. júní 1923 og hófu bú- skap á Ytra-Hrauni í Landbroti þar sem foreldrar mínir voru líka bú- settir. Um það bil tveim árum síðar hófu foreldrar mínir búskap á ný- býlinu Eystra-Hrauni sem er skammt frá. Sigrún og Bjarni eignuðust fjög- ur böm. Tvö þeirra dóu ung. Valgerður þriggja vikna úr barna- veiki og Bjami 9 mánaða úr lungnabólgu. Tvær dætur komust upp, Pálína, gift Einari Guðmunds- syni, bifvélavirkja, og eiga þau eina dóttur, Sigrúnu; og Laufey, gift Jóhanni Eyrbekk Sigurðssyni, raf- virkjameistara. Eiga þau tvö börn, Sigurð Bjarna og Bám. Mann sinn, Bjama, missti Sigrún 1937. Drukknaði hann við veiðar í Skaftárósi. Vom þá dætumar, Pálína og Laufey 9 og 11 ára. Tveim ámm síðar eða 1939 brá Sigrún búi og fluttist með dæturnar í Dalbæ í Landbroti og réð sig þar sem ráðskonu hjá bróður sínum Eyþóri. Þar var einnig búsett móðir þeirra, Guðlaug, Eyþór og Guðlaug létust á þeim tíma sem Sigrún var í Dalbæ og hjúkraði Sigrún þeim báðum í banalegunni. Árið 1950 fluttist Sigrún til Reykjavíkur og settist að hjá yngri dótturinni, Laufeyju, og var þar alla tíð þar til heilsan bilaði fyrir um það bil tveimur ámm. Fékk hún þá athvarf á Elli- og hjúkmnar- heimilinu Gmnd og dvaldist þar í eitt og hálft ár þar til ævidagar hennar voru taldir. Eins og sjá má af ofanrituðu var lífíð enginn dans á rósum hjá Sig- rúnu. En það var henni til láns að hún var einstaklega heilsugóð til gamals aldurs og hélt sínum and- legu kröftum til hins síðasta. Aldrei lét hún bugast á hveiju sem gekk heldur hélt sinni sálarró. Styrk sinn sótti hún í trúna, en hún var mjög trúuð kona og sótti kirkju reglu- lega. Ekki var hún samt ofstækis- full né reyndi að þvinga sínum skoðunum upp á aðra, heldur lýsti trú hennar sér í vönduðu og fögm lífemi. Ekki get ég tínt upp allt hér sem á daga Sigrúnar hefur drifið. Ævi hennar varð svo löng að slíkt væri efni í heila bók, heldur reyni ég að stikla á því helsta. Sigrún tók mikinn þátt í safnað- arstarfi, einnig var hún í kvenfélög- um og átti sæg vina og kunningja sem von var, því hún bjó yfir mikl- um persónutöfmm, var stórglæsileg kona, skemmtileg, hlýleg og vel gefin. Félagslyndari manneskju hef ég ekki kynnst. Sem dæmi um vin- sældir hennar má nefna að á níræðisafmæiinu heimsóttu hana um það bil 80 manns. Var tekið á móti folkinu með höfðingsbrag á heimili dóttur hennar, Laufeyjar. Lék Sigrún þar á als oddi og var mjög ánægð að hitta svo marga vini sína og kunningja og var ótrú- lega hress þrátt fyrir aldurinn. En skömmu síðar fór heilsunni að hraka og gat hún ekki lengur verið ein á daginn. Fékk hún þá dagvist- arpláss á Múlabæ, húsi Rauða krossins fyrir aldraða. Var Sigrún þar á daginn meðan heilsan leyfði og tók þátt í félagsstarfi gamla fólksins. Þegar heilsunni hrakaði enn meir fór hún á Gmnd, eins og að framan greinir. Aldrei kvartaði Sigrún þótt hún hefði auðvitað helst viljað vera heima. Hún sætti sig við orðinn hlut og var ákaflega þakklát fólkinu sem annaðist hana, bæði á Múlabæ og Gmnd. En hún átti góða að. Dæturnar og fjölskyldur þeirra heimsóttu hana daglega og sýndu henni umhyggju svo að til fyrirmyndar var og skorti hana hvorki gott atlæti né annað það er þær máttu veita. Tóku þær hana alltaf heim til sín um helgar og hátíðisdaga þegar hún treysti sér til heilsunnar vegna. Em þær mjög þakklátar starfsfólki Gmndar fyrir góða hjúkmn og aðhlynningu. Eg hef þekkt Sigrúnu frá því ég man fyrst eftir mér og varð strax ákaflega hænd að henni. Þegar ég fór að tala gaf ég henni gælunafn- ið „Sigga mamma“ til aðgreiningar frá móður minni. Þóttist ég vera mjög heppin að eiga tvær mömmur og báðar góðar. Á þessum tímum var ungbarna- dauði tíður. Ekki vom þá til bóluefni við algengustu barnasjúkdómum eins og nú er og læknishjálp af skornum skammti. Enda missti Sig- rún tvö barna sinna er þau vom smábörn. Ég fékk slæman kíghósta er ég var sex mánaða gömul og var ekki hugað líf, en rétti samt við aftur. Var ég frekar veikbyggð fram eftir aldri og leitaði oft til Sigrúnar. Kannske er þetta skýring á ástfóstri því er við Sigrún fengum hvor á annarri. Var alltaf kært milli Sigrunar og dætra hennar og fjölskyldu minnar. Við systkinin dvöldumst í Dalbæ þegar við vomm í barnaskóla, alltaf á hálfs mánaðar fresti, þar sem skólavistin skiptist þannig að tvær vikur vom bömin í skólanum og tvær vikur lásu þau heima. Dalbær var miklu nær Þykkvabæ og Kirkju- bæjarklaustri þar sem skólinn var, heldur en Eystra-Hraun og var það ástæðan fyrir dvöl okkar í Dalbæ. Sigrún sá mjög vel um okkur. Gott atlæti og maturinn alltaf tilbúinn á borðinu þegar við komum úr skólan- um. Einnig sá hún um að við læsum lexíur okkar. Vestur-Skaftafellssýsla var harð- býl á búskaparárum Sigrúnar þar. Fátt var um landgæði. Kannske aðallega silungs- og sjóbirtings- veiði. Var það dijúgt búsílag og holl og góð viðbót við hið fábreytta sveitafæði. Var það einmitt við veiðiskap að maður Sigrúnar, Bjami móðurbróðir minn, dmkkn- aði. Má nærri geta þvílíkt áfall það hefur verið. Sigrún var ákaflega iðjusöm. Alltaf var hún að pijóna. Bæði var hún hraðvirk og vandvirk. Sem dæmi um hvemig hún nýtti tímann má taka að á yngri ámm þegar hún fór gangandi milli bæja í Landbroti pijónaði hún á leiðinni. Sagði hún mér þetta sjálf. Hélt hún þessari iðju sinni, pijónaskapnum, fram til æviloka. Þegar ég heimsótti hana skömmu fyrir andlátið sýndi hún Kveðja: Ég bjó á vetmm hjá Ragnheiði O. Bjömsson, föðursystur minni, á menntaskólaámm mínum á Akur- eyri. Við systkinin kölluðum hana Oddu frænku, og sem slík er hún í mínum huga. Það lætur að líkum að þessir sex vetur skildu meira eftir en venjuleg frændsemisbönd, enda var hún aldrei „venjuleg" í neinum skilningi. Til þess var hún of örlát og sérstæð. Alúð, elskusemi og glaðværð, ásamt einstakri rækt við vináttu og frændsemi og ábyrgðartilfinningu gagnvart heilsu og öðmm Guðs gjöfum, vom þeir þættir sem ríktu öðm fremur á hennar fallega menningarheimili. Við kveðjum Öddu frænku með söknuði, minnug alls sem hún miðl- aði okkur af sinni gæsku og örlæti, og biðjum henni Guðs blessunar. Oddur Björnsson mér ljómandi vel pijónaðan bama- sokk sem hún var að ljúka við. Sem dæmi um það hversu hún hélt sínum andlegu kröftum og lífsgleði alla tíð má geta að hennar heitasta ósk var að geta átt sam- komustund með öldmðum í Langholtskirkju og spila við gamla fólkið, vini sína, á 95 ára afmælis- daginn. Varð henni að þeirri ósk sinni. Hún var síung í anda og dettur mér í hug vísuparturinn: „Fögur sál er ávallt ung undir silfurhærum.“ Sigrún varð aldrei rík af jarðn- eskum auðæfum en þeim mun meir af hinum andlegu. Þrátt fyrir and- streymi var hún í raun gæfukona. Hélt lengst af góðri heilsu og hafði barnalán. Bamabörn hennar em þijú og barnabamabömin em sjö talsins. Allt myndarfólk. Sigrún fékk hægt andlát og vom hénnar nánustu viðstaddir er dauð- inn kvaddi dyra. Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir samfylgdina. Fari hún í guðs friði. Ættingjum hennar votta ég samúð mína. Guðlaug Helgadóttir Ragnheiður O. Björnsson Sigríður Olafs- dóttir - Minning Fædd 6. maí 1904 Dáin 22. maí 1987 „Komið til mín allir þér sem erf- iði og þunga em hlaðnir og ég mun veita yður hvíld." Þessi orð komu upp í huga minn, þegar síminn hringdi og Siguijón, tengdafaðir minn, tilkynnti mér að að Sigríður, tengdamóðir mín, væri látin. Nú er lokið langri ævi og baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég var svo lánsamur að eignast þessi elskulegu hjón fyrir tengdaforeldra fyrir þijátíu og fimm ámm síðan, og hefur alla tíð verið mjög kært á milli okkar. Þeim hjónum á ég mik- ið að þakka i gegnum tíðina og af þeim hefi ég mikið lært. Sigríður var einhver sú elskulegasta mann- eskja sem ég hefi kynnst um dagana. Höfðingsskapur, heiðar- leiki og hjartahlýja vom hennar aðalsmerki. Einkar gott var að dvelja á heimili þeirra eftir að við fluttum til Akureyrar og lengra varð á milli. Frásagnargleði áttu þau bæði í ríkum mæli og oft sagð- ar sögur frá gömlu góðu dögunum og þá var hlustað með athygli. Oft var hún að minnast á og hlæja að fyrstu máltíðinni sem hún gaf mér er ég kom í óvænta heim- sókn á matmálstíma fyrir rúmum þijátíu og fimm ámm, en það var skata og mjólkurgrautur. Skötu hafði ég aldrei borðað og aldrei síðan, þangað til ég heimsótti hana í síðasta sinn fyrir þremur vikum og ég borðaði síðustu máltíðina á heimili hennar, skötu og mjólkur- graut. Þá vissi ég að þetta var síðasta máltíðin hjá henni. Gestrisni þeirra hjóna var einstök. Frá þeim fór enginn án þess að þiggja góð- gerðir. Eftir að þau hjón fluttu frá Hell- issandi til Ákraness vom áætlunar- ferðir milli þessara staða með stómm rútum, en engin afgreiðsla fyrir slíka flutninga á Akranesi. Því þótti það sjálfsagt að stoppað væri hjá Sigríði og Siguijóni á Heiðar- brautinni. Aldrei hafði ég heyrt áður að seld hafi verið húsgögn til að fá meira gólfpláss svo að fleiri gestir gætu sofið þar nótt og nótt og munu gestirnir oft hafa skipt tugum. Aldrei var neinum úthýst þó ókunnir væm og engan þekktu. Þaðan fóm allir saddir og glaðir. Ófáir em hásetar Sigurjóns, sem á heimili þeirra komu og Sigríður hefir gefíð margan góðan bitann og kaffisopann og þeir minnast hennar nú með virðingu og þökk. Gullbrúðkaupsdegi þeirra hjóna var ekki varið til veisluhalda, heldur gengu þau hönd í hönd og heim- sóttu sjúkrahús og stofnanir án þess að nokkur vissi og létu eitt- hvað af hendi rakna til þeirra sem áttu við veikindi að stríða eða um sárt að binda. Enginn verður fátæk- ur af því að gefa, sögðu þau oft. Svona vom þau. Nú sjáum við á bak þessari elskulegu konu sem allt vildi fyrir alla gera og öllum hjálpa án þess að spyija hver laun- in yrðu. Ég vil þakka henni af heilum hug allt sem hún var mér og bömunum, sem sakna nú ömmu. Mestur er þó missirinn og söknuður- inn hjá eiginmanninum, sem sér nú á bak sínum elskulega og trygga lífsfömnaut eftir samfylgdina gegnum heila mannsævi. Nú hefur hún lokið sínum langa og umhyggjusama starfsdegi með miklum sóma og hvíldin kærkomin þreyttri sál og sjúkum líkama. Élsku tengdafaðir, við biðjum þess að almáttugur Guð styrki þig og leiði um ókomin ár. I hugum okkar lifir minningin um elskulega konu, sem ekkert fær skyggt á. Benedikt Hermannsson Föstudaginn 29. maí var elskuleg tengdamóðir mín, Sigríður Ólafs- dóttir, kvödd í hinsta sinn. Ég ætla að sleppa því að tíunda hennar lífshlaup, ég veit að því verða gerð góð skil á öðmm stað. Við höfum oft rætt það okkar á milli, að sú sem lifði hina mundi skrifa eftir- mæli og ég jafnframt minnt á það af henni að það kæmi í minn hlut með þessu spakmæli: „Ungur má en gamall skal.“ Henni var tamt að tjá sig með hendingum úr ljóðum og hverskon- ar spakmælum enda ljóðelsk með afbrigðum. Þvílík kynstur sem hún kunni. Ógleymanlegar verða mér þær stundir er við sátum saman, ég sem áheyrandi, já, uppnuminn áheyrandi að snilldarmeðferð henn- ar á heilu ljóðabálkunum, allt utanbókar, sögur úr mannlífinu, fullar af tilfinningum, og ég skynj- aði hluttekningu hennar með þeim sem trega, nokkuð sem flestum fínnst menn verðskulda. Af öllum hennar kostum þótti mér vænst um þennan. Nú eru liðin tæp 30 ár frá því að ég kynntist tengdaforeldrum mínum fyrst. Þau bjuggu þá á Akranesi, ég í Reykjavík og er mér sérstaklega minnisstæð fyrsta ferð- in með Akraborg á þeirra fund. Benedikt, svili minn, var með sömu ferð og ég komst fljótt að því að ég var að tengjast einstöku öðlings fólki. Tveim árum seinna fluttu þau til Reykjavíkur og þá urðu sam- skipti okkar miklu nánari. Þar undi tengdamóðir mín hag sínum vel, hún elskaði Reykjavík og vildi hvergi annars staðar vera. Tíminn leið, þessi makalausi tími, sem ger- ir gamalt gott, læknar sár, vekur eftirvæntingu og samferða verða ættmenni sem þrýtur kraft, böm sem vaxa og læra að elska ömmu sína og afa, gangur lífsins. Tími kveðjustundar er kominn. Um páskana var Sigríður komin á spítala og gat því ekki verið við fermingu næstyngsta bamabams síns. Nær alltaf minntist hún á það er ég heimsótti hana hversu hún samgleddist okkur og mér að vera búin að standa í því amstri sem því óneitanlega fylgir. Hennar eigin þjáningar viku fyrir umhyggju hennar og samhygð með öðrum. Sigríður Ölafsdóttir var perla, ég held ég skilji núna hvað átt er við í biblíusögunum að vera hjarta- hreinn, ég hef kynnst einni slíkri. Minningin um hana kallar fram svo margt, meðal annars það er við ræddum æviminningar og ég gat heyrt hana segja „ekki þessa mærð“, en ég vitna í eitt af okkar uppáhalds kvæðum „Er synd að játa sannleikann er synd að elska nokkum mann.“ Ég bið guð að styrkja tengdaföð- ur minn í hans sára söknuði og þakka honum þá hlutdeild sem ég átti í tengdamóður minni. Helga Kristjánsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.