Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987
fclk í
fréttum
Ungfrú Chile sigurvegari
í Singapore
að var Cecilia Bolocco, 22 ára
gamall tískuhönnuður frá Chile,
sem var kjörin Ungfrú alheimur í
keppninni í Singapore, sl. miðviku-
dagskvöld. Þykja þessi úrslit styrlqa
stöðu rómönsku Ameríku í fegurðar-
bransanum.
Ungfrú Bolocco var kjörin úr skara
68 fegurðardísa og fór lokakeppnin
fram í Laugardalshöll þeirra Singa-
pore-manna, en þar mun einmitt
algengara að sjá svitastorkna
fþróttamenn eða hátæknibúnað á
sýningu. I öðru sæti keppninnar var
ungfrú Ítalía, Roberta Capua, 18 ára
tískusýningarstúlka.
Ungfrú Bandaríkin, sem þótt hafði
líkleg til sigurs, lenti í þriðja sæti;
Ungfrú Venezuela, Ines Maria Cal-
ero, varð í fjórða sæti og ungfrú
Puerto Rico, Lauri Tamara Simpson,
rak lestina í fímmta sæti. Þau þjóð-
lönd sem einnig áttu fulltrúa í tíu
efstu sætunum voru Filippseyjar,
Perú, Singapore, Svíþjóð, Turks og
Caicos.
Helstu fegurðarstjórarnir þar
austur frá sögðu nú reyndar að að
öllu jöfnu hefði Ungfrú Venezúela
átt að ná lengra, en hún hafði þann
kross að bera að aldrei fyrr hafa
fulltrúar sama lands unnið tvö ár í
röð. Fráfarandi Ungfrú alheimur,
Barbara Palacios Teyde, er frá
Venezúela.
Það að hún skyldi þó ná jafnlangt
og raun bar vitni er samt talið sýna
það glögglega að suður-amerískar
blómarósir eiga æ meir upp á pall-
borð heimsins. Frá árinu 1979 hafa
skutiur frá Venuzúela borið sigur úr
býtum í alþjóðlegri fegurðarsam-
keppni ails nítján sinnum, þar á
meðal þrisvar í þessari keppni, þrisv-
ar í keppninni um titilinn Ungfrú
heimur, sem Hófí bar sællar minn-
ingar, og fimm sinnum hefur fuiltrúi
þeirra verið krýndur Ungfrú Suður-
Ameríka. Árið 1981 varð Venezúela
fyrsta landið til þess að sigra bæði
keppnina um Ungfrú alheim og
Ungfrú heim.
Hin nýja Ungfrú alheimur, Cecilia
Bolocco, sem er skolhærð með græn
augu, vonast til þess að verða vin-
sæll fatahönnuður með eigið tísku-
hús á bak við sig. Hún fæddist í
Santiago hinn 19. maí 1965 og er
1,71 m á hæð. Helstu áhugamál
hennar eru klassískur ballett og
nútímadans (fjölbreytti). Hún er
fyrsti Chile-búinn til þess að ná þess-
um áfanga, en áður hafa stúlkur frá
Perú, Kolumbíu, Argentínu, Brazilíu
og Venezúela gert garðinn frægan.
öðru sæti varð Ungfrú Ítalía, Roberta Capua, sem hér sést sam-
fagna sigurvegaranum.
Reuter
Nýkjörin Ungfrú alheimur veifar kjósendum sínum í Singapore.
Það var fráfarandi Ungfrú alheimur, Barbara Palacios Teyde frá
Venezúela, sem krýndi Ceciliu Bollocco.
T
Vörumarkaðurinn hf.
NÝJABÆ-EIÐISTORGI SÍMI 622-200
IGNIS heimilistæki
IS Góð greiðslukjör. QE]
Opið mánudaga til fimmtudaga .... kl. 9-19
Föstudaga .... kl. 9-20
Laugardaga kl .10-16
Sunnudaga .... kl. 13-17
H. 85, br. 45, d.
60, 140 lítra,
m/fryitihólfi.
H. 85, br. 55, d. 60,
160 litra,
H.85, br.55, d.60, 160 án fryatihólfs,
litra, m /frymtihólfí. sjálfvirk afþiðing.
H. 104, br. 47, d.
60, 180 litra,
m/frystihólfi.
H. 113, br. 55, d. 60,
220 litra,
m/fryatihólfi.
H. 133, br. 55, d.
270 litra,
m/fryatihólfi.
60,
H. 144, br. 60. d. 60,
340 litra,
m/fryatihóifi.
H. 53, br. 52,d.60, 90
litra, m/iabakka.
ACF 357, kr. 24.225,-
4 hellur, grill, tima-
stilling, 50 cm, í
hvitu.
I
I
I
ARF904,kr. 18.990,- ARF840, kr. 16.739,-ARF889, kr. 20.197,- ARF888, kr. 19.256,- ARF 905, kr. 22.776,-ARF 906. kr. 24,690,- ARF907, kr. 28.015,- ARF 842, kr. 30.536,-