Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAI 1987
59
Willem Dafoe:
Nýjasta stjarna Hollywood
Hér á landi eru nú að hefjast
sýningar á myndinni „Plat-
oon“, sem flallar um unga menn
í Víetnam-stríðinu. Myndin hefur
vakið athygli fyrir margra hluta
sakir og er skemmst að minnast
allra þeirra Óskarsverðlauna er
hún var útnefnd til — og hlaut.
Meðal þeirra leikara, sem voru
tilnefndir til verðlauna fyrir best-
an leik í aukahlutverki var Willem
Dafoe; en hann þurfti einnig að
keppa við samleikara sinnm Tom
Berenger. Aður hafði hann m.a.
leikið í myndinni „The
Hunger“ og e.t.v. muna
einhvetjir eftir honum
sem illmenninu Hrafni
(Raven) í myndinni
„Streets of Fire“.
I „Platoon" leikur hann
sérkennilegan karakter,
Elias liðsforingja. Sá fer
í gegn um hildina með
undarlegri ró og allt að
því blíðleika, en á til að
koma sér allt í einu að
efninu á óvæginn máta.
Þegar hetja myndarinn-
ar, sem Charlie Sheen
leikur (sonur Martins),
lendir í fyrsta skipti í
átökum spyr Dafoe kæru-
leysislega: „Fyrsta
skipti?“ Þegar hann fær
jákvætt svar lítur hann
með djöfullegri hægð í
linsuna og svarar að
bragði: „Þar snerist
gæfuhjólið þér í óhag
lasm.“ Ekki orð um það
meir, en þrátt fyrir að
hann hafi sig yfirleitt
hægan er hægt að of-
bjóða honum og þar
kemur að að hann rotar
eitt helsta illmenni myndarinnar
fyrir hönd áhorfenda allra.
Gagnrýnendur hafa sagt að
einn helsti kostur Dafoes sé sá
að hann sé svo ákafur í hveiju
því hlutverki sem hann taki sér
fyrir hendur. Dafoe er þessu
reyndar ekki allskostar sammála:
„Eg þarf ekkert að leika af illsku
til þess að leika vondan mann.
Eins og í öllum öðrum leik þarf
maður að setja sig í spor viðkom-
andi persónu — hvort sem hún
er sönn eða skálduð — og gera
sér grein fyrir sjónarmiðum og
réttlætingum hennar. Það er eng-
inn svo illur að hann hafi ekki
ástæðu fyrir því á reiðum höndum.
Enn auðveldara er málið náttúru-
lega þegar einhver horfír framan
í þig og segir: „Gerðu þetta eða
ég drep þig.“ — Þá er mjög auð-
velt að horfa kaldur tilbaka og
segja: „Ókei, en fyrst drep ég
þig.“ Þá er maður bara að svara
fyrir sig og slíkar tilfínningar eru
allar innbyggðar hvort sem er.“
Leikstjóri „Platoon", Oliver
Stone, er a.m.k. ánægður með
Dafoe. „Það er manni sönn án-
ægja að vinna með leikara, sem
ekki er þvingaður af einhveiju
rugli. Willy gerir bara það sem
hann er beðinn um — stekkur
ofan í slöngugryfju, skríður í
gegnum hrísgijónaakur, fær á sig
blóðsugur, fer í vont skap og blót-
ar, allt án þess að það þurfi að
vera eitthvað mál því samfara.
Því meiri vandræði, því betra. Það
stöðvar manninn ekkert.“
Fyrir myndina þurftu leikar-
amir að ganga í gegnum her-
mennskuþjálfun og sáu fyrrver-
andi landgönguliðar um þann
starfa. Hermt er að Dafoe hafí
staðið sig allra manna best í þjálf-
un þessari, en þegar hann er
spurður um hana svarar hann:
„Það er satt ég er hreykinn af
því sem ég gerði í þjálfuninni, en
það er ekki fyrir neinn annan til
þess að dást að. Þessi þjálfun var
að sjálfsögðu barnaleikur miðað
við það sem alvöruhermenn ganga
í gegnum. Ég hef talað við marga
fyrrverandi hermenn og þeir geta
sagt þér ótrúlegar sögur af her-
mennsku sinni og hafa ör — bæði
á ytra og innra byrði — til þess
að sanna sögu sína. Sumir hafa
jafnvel skrifað mér eftir að þeir
sáu myndina og segja: „Ég þekkti
Elias" eða „Ég vildi vera eins og
Elias" og jafnvel „Ég er Elias.“
Dafoe hóf leikferil sinn á því
að hætta í menntaskóla og reyna
fyrir sér í ferðaleikhúsi, sem kall-
aðist „Theater X“. Það gekk
reyndar ekki alltof vel, en nú
þakkar hann foreldrum sínum fyr-
ir að sýna sér og áhugamáli sínu
skilning, þó svo að það
virtist nú ekki gæfulegt.
Þá lék hann í nokkrum
leiksýningum í New
York, en komst aldrei á
Broadway. Þá gekk hann
til liðs við en eitt framúr-
stefnuleikhúsið,
„Wooster’s Group“, og
þar kynntist hann m.a.
konu sinni, Elizabeth
LaCompte.
Það var af hreinni til-
viljun að hann fékk
hlutverkið í Platoon.
Hann hafði sótt um og
Stone leikstjóri var á því
að hann skyldi fá eitt-
hvert hlutverk þar sem
hann hefði svo gott kvik-
myndaandlit. Hitt var
verra að hann passaði
ekki í neitt hlutverkanna.
Því fór svo að honum var
hafnað. Hins vegar gekk
erfíðlega að ráða í annað
hlutverk, en þar skorti
indíána. Eftir að Stone
hafði mikið hugsað um
það hvem skyldi fá í það,
hugkvæmdist honum að
láta Dafoe fá hlutverkið
með þeim afleiðingum, sem ekki
þarf að rekja hér.
Nú þegar er Willem Dafoe byij-
aður að leika í myndinni „Saigon",
en þar verða hann og Gregory
Hines í aðalhlutverkum sem tveir
rannsóknarlögreglumenn á veg-
um hersins — að sjálfsögðu á
síðustu dögum Víetnam-stríðsins.
Dafoe segist ekki óttast það að
hann festist í Víetnam-myndum.
„Þegar ég hafði leikið í „Platoon“
fannst mér ég hafa lokið ein-
hvetju af og að önnur Víetnam-
mynd kæmi ekki til greina. Eftir
að hafa lesið handritið að „Saig-
on“ skipti ég hins vegar um
skoðun. Það er feikigott; myndin
verður spennandi og kraftmikil,
en umfram allt öðruvísi, eins og
sjónarsviðið býður sjálfkrafa upp
á.
Willem Dafoe.
Gufubað eða eimbað?
Nú getur þú valið hvort heldur sem er gamla góða
gufubaðið (þurr hiti) eða eimbað (rakur hiti).
Lftið við hjá okkur í Ármúla 21 og sjáið hvort
tveggja.
OPIÐ TIL KL 16.00 LAUGARDAG.
VATNSVIRKINN/J
ARMÚU 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVlK
SlMAR VERSIUN 686455. SKR1FSTOFA 685966
Öll verð miðuð við staðgreiðslu. H. 165, br. 55, d. eo.
plnr^iwtT®
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
AR F 926, kr. 44.631,-