Morgunblaðið - 30.05.1987, Síða 72
VJterkurog
k3 hagkvæmur
auglýsingamiðill!
'^L-
Viðlaga
þjónusta
LAUGARDAGUR 30. MAI 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Endurnýjun flugvéla Flugleiða:
Allt bendir til
að Boeing-737
400 verði valin
ENN LIGGUR ekki fyrir endan-
leg ákvörðun stjórnar Flugleiða
Búvöruverð hækkar
4,1 - 4,9%
hækkun til
jneytenda
BÚVÖRUVERÐ hækkar um 3,4%
til bænda og frá 4,1 til 4,9% til
neytenda frá og með 1. júní næst-
komandi.
Dilkakjöt í heilum skrokkum
hækkar um 4% til neytenda, mjólkin
hækkar um 4,6% og rjómi um 4,2%,
smjör hækkar um 4,9% og ostur um
4,3%. Eftir þessa hækkun kostar einn
lítri af mjólk 42,80 í lítraumbúðum.
Sexmannanefnd ákvað búvöru-
verðhækkun til framleiðenda en
fimm manna nefnd með verðlags-
stjóra sem oddamann ákvað hækkun-
ina til neytenda.
Skipverjar á Eyr-
arfossi játa smygl
SKIPVERJAR á Eyrarfossi hafa
játað smygl á um 3000 flöskum
af áfengi og um 300 lengjum af
vindlingum á síðasta ári.
Rannsóknarlögregla ríkisins og
tollgæslan hafa í sameiningu unnið
að rannsókn málsins. Upphaf þess
var að starfsmenn tollgæslunnar
grunaði að áfengi væri smyglað með
iyrarfossi. Þeir fengu upplýsingar
frá starfsbræðrum sínum erlendis
um áfengiskaup áhafnarinnar, sem
og áfengiskaup skipveija á Álafossi,
sem fyrir skömmu játuðu smygl á
14-1500 flöskum af áfengi. Þegar
Eyrarfoss kom til landsins síðastlið-
inn mánudag voru skipveijar boðaðir
til yfírheyrslu hjá rannsóknarlög-
reglunni. Rannsókn málsins er nú
lokið og verður það sent ríkissak-
sóknara á næstunni.
hf. hvaða flugvélategund verður
fyrir valinu þegar ákveðið verð-
ur hvaða tvær vélar leysi af
hólmi Boeing-727 þotur Flug-
leiða í Evrópuflugi félagsins, en
allt bendir nú til þess, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, að
það verði Boeing-737 400 véíarn-
ar. Stjórn félagsins fundaði um
málið í gær, en endanleg ákvörð-
un verður tekin á hátíðafundi
félagsins á Akureyri þann 3. júní
nk. þegar 50 ár eru liðin frá því
atvinnuflug hófst hér á landi.
Valið að undanfömu hefur eink-
um staðið á milli Boeing-737
þotanna, sem taka 158 farþega, og
Airbus Á 320 sem taka 162 far-
þega. Væntanlega mun það ráða
nokkru um endanlega afgreiðslu
málsins að Boeing-verksmiðjumar
treysta sér til þess að afhenda vél-
amar tvær 1989, en Airbus mun
ekki sjá sér fært að afhenda vélam-
ar fyrr en árið 1992.
Hér er um mikla flárfestingu að
ræða, því áætlað er að hvor vél
kosti um 1,2 milljarða.
ILAUSU LOFTI ?
Morgunblaðið/Helena
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokks:
Vill sljóm með Fram-
sókn og Alþýðuflokki
Útilokar samstarf við Borgaraf lokk
ÞORSTEINN Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins skilaði af
sér umboði til stjórnarmyndunar
til forseta Islands í gær. Ekki er
vitað hverjum forsetinn felur
umboðið næst, en líklegt er talið
að hún bíði einhverja daga og
gefi þannig á nýjan leik svigrúm
til óformlegra viðræðna syóra-
málaflokkanna.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu eru framsóknarmenn
ekki ginnkeyptir fyrir samstarfí við
Alþýðuflokk, en þó mun niðurstaða
skoðanakönnunar sem gerð var á
þingflokksfundi þeirra í gær hafa
verið sú að annað hvort beri að
reyna samstjóm Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðu-
flokks, eða tveggja fyrrgreindu
flokkanna með Borgaraflokki. Mun
skiptingin vera nokkuð jöfn í
flokknum hvom kostinn beri að
reyna. Morgunblaðið hefur heimild-
ir fyrir því úr forystusveit Fram-
sóknarflokksins, að verði fyrra
stjórnarmynstrið reynt, sé það háð
því skilyrði af hálfu framsóknar-
manna að Steingrímur Hermanns-
son verði forsætisráðherra, þótt
hann fullyrði annað opinberlega.
Þorsteinn Pálsson var spurður
Hagfræðingar ASÍ o g VSÍ:
-Lögbinding lægstu launa
takmarkar samningsrétt
Hinn frjálsi markaður fyndi sínar eigin leiðir með launaskriði segir formaður Iðju
LÖGBINDING lágmarkslauna og
jafnframt veruleg hækkun
þeirra, sem var skilyrði Kvenna-
listans í stjóraarmyndunarvið-
ræðum við Sjálfstæðisflokk og
"^Alþýðuflokk, myndi á skömmum
tíma hafa áhrif á allan launastig-
ann. Ef koma ætti í veg fyrir
slíkt gæti það kallað á víðtæka
takmörkun á samningsrétti ef
lögbinding er ekki niðurstaða af
samningum. Þetta eru meðal
annars niðurstöður sem Björn
^J^jömsson hagfræðingur Al-
þýðusambands Islands og Vil-
hjálmur Egilsson fyrrverandi
hagfræðingur Vinnuveitenda-
sambands íslands komast að í
álitsgerð til Þorsteins Pálssonar
formanns Sjálfstæðisflokksins.
Morgunblaðið spurði Guðmund
Þ. Jónsson formann Iðju, félags
verksmiðjufólks, álits á þessari nið-
urstöðu hagfræðinganna. Guð-
mundur sagðist sammála því að
lögbinding lægstu launa væri hæpin
því taka þyrfti tillit til mjög margra
þátta. „I desembersamningunum
voru starfsaldurshækkanir afnumd-
ar en núna er verið að taka þær inn
aftur í fastlaunasamningum því fólk
á vinnustöðunum var ekkert ánægt
með að þessum hækkunum var
kippt út. Það liggur einnig í augum
uppi að hækkun lágmarkslauna
myndi fara upp eftir launastiganum
að einhveiju leyti, hinn fijálsi mark-
aður fyndi sínar eigin leiðir með
launaskriði þótt ríkið reyndi að
spoma gegn því,“ sagði Guðmund-
ur.
„Ég deili ekki við Kvennalista-
konur eða nokkurn annan um að
hækka þarf lægstu launin. Það ligg-
ur í augum uppi. En ef banna á
samningsréttinn jafnhliða með því
að lögbinda lægstu laun og koma
í veg fyrir að hækkunin færi upp
eftir launastiganum erum við komn-
ir í hring því kvennalistakonur
börðust ásamt öðrum gegn lögun-
um frá 1983 þegar samningsréttur-
inn var nánast afnuminn," sagði
Guðmundur Þ. Jónsson.
Sjá greinargerð hagfræðing-
anna í heild bls. 10-11.
álits á vangaveltum framsóknar-
manna um samstarf við Borgara-
flokk: „Eg sé bara einn kost til að
mynda nægjanlega sterka ríkis-
stjóm og það er samstjórn Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks. Ástæðan fyrir því að
ég lét ekki á það reyna er að ég
fann að hugur framsóknarmanna
var við annað. Ég tel þennan kost
sem Framsóknarflokkurinn er að
stinga upp á núna vera of veikan
kost og ég minni á að það er
skammt síðan það varð klofningur
í Sjálfstæðisflokknum. Við viljum
láta þau sár gróa og þau verða að
gróa. Ég á ekki von á því að tillaga
af þessu tagi fengist samþykkt í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins,
eins og sakir standa.“
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir því að Steingrímur Hermanns-
son hafi boðið Þorsteini Pálssyni
forsætisráðuneytið á fundi þeirra í
fyrradag, ef þeir mynduðu minni-
hlutastjórn með stuðningi Stefáns
Valgeirssonar. Þorsteinn mun hafa
tekið þeirri hugmynd fálega.
Jón Baldvin Hannibalsson og
Steingrímur Hermannsson ræddust
við í forsætisráðuneytinu í gær-
morgun kl. 11. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins greindi
Steingrímur Jóni Baldvin frá fáleik-
um framsóknarmanna í garð
Alþýðuflokks og að útilokað mætti
teljast að þeir vildu mynda ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokki og
Alþýðuflokki, nema undir forsæti
Steingríms.
Sjá fréttir á bls. 39.
I