Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
148. tbl. 75. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovétríkin:
Andófsmenn gefa
út tímarit fyrir
opnum tjöldum
Láta reyna á umburðarlyndi nýju stjómarstefnunnar
Moskvu, Reuter.
HÓPUR sovézkra andófsmanna sem fyrir skömmu var látinn laus
úr fangelsi, hóf í gær útgáfu á nýju óháðu timariti, sem ber heitið
„Glasnost". Er ætlunin með því að láta reyna á, hvort alvara sé að
baki hinnar nýju stefnu Mikhails Gorbachevs Sovétleiðtoga um fijáls-
ari upplýsingamiðlun í sovézku samfélagi, enda ber tímaritið sama
heiti og stefnu Gorbachevs hefur verið gefið.
„Þetta er ekki neðanjarðarblað
(samizdat)," var haft eftir Sergei
Grigoryants, ritstjóra tímaritisins í
gær. Hann varð á sínum tíma að
afplána 3 1/2 ár af 5 ára fangelsis-
dómi, sem hann hlaut fyrir skrif sín
um ástand mannréttindamála í Sov-
étríkjunum. „Ég vona, að ég verði
ekki fyrir slíkum óþægindum aft-
ur,“ sagði Grigoryants, er hann
gerði vestrænum fréttamönnum
grein fyrir hinu nýja tímariti í gær.
Var það gert í íbúð hans í Moskvu.
Genrikh Altunyan, gamall and-
ófsmaður og samherji Andreis
Sakharov, sagði hins vegar, að
„Glasnost“-stefnunni væru enn tak-
mörk sett. Umræðuefni sem snertu
vandamál einstakra þjóðemisminni-
hluta og starfsemi leynilögreglunn-
ar (KGB), væru enn bönnuð.
Vestrænir blaðamenn, sem komu
til fréttamannafundarins í gær, sáu
marga óeinkennisklædda menn á
vappi nærri innganginum að íbúð
Grigoryants og engir þeirra sovézku
blaðamanna, sem boðið hafði verið
til fundarins, létu sjá sig.
Nauðlentu ísjónum
London, Reuter.
BREZKA milljónamæringnum Richard Branson og félaga hans,
Svíanum Per Lindstrand, tókst ekki að komast yfir Atlantshafið
i heitaloftsbelg. Urðu þeir að kasta sér út, er loftbelgur þeirra
féll í hafið milli írlands og Skotlands. Myndin sýnir loftbelginn,
þegar hann lenti í sjónum.
Sjá: Ætluðu yfir Atlantshafið á bls. 24.
Lögreglumenn umkringja brynvarinn lögreglubíl, sem flutti
Klaus Barbie til réttarhaldaima í gær. Barbie fékk á sinum
tíma viðumefnið „Slátrarinn frá Lyon“ fyrir að fyrirskipa nauð-
ungarflutninga á gyðingum frá Lyon í dauðabúðir nazista.
Barbie dæmdur í ævilangt fangelsi:
Sekur um glæpi
gegn mannkyni
Lyon, Reuter.
Klaus Barbie, fyrrum Gestapo-
foringi i Lyon í Frakklandi, var
í gær fundinn sekur um glæpi
gegn mannkyninu og dæmdur í
ævilangt fangelsi. Höfðu réttar-
höldin yfir honum, sem fram
fóru í Lyon, þá staðið yfir í tvo
mánuði. Dóminn kváðu upp þrir
dómarar og kviðdómur, sem
skipaður var fjórum konum og
fimm körlum.
Barbie, sem er 73 ára gamall,
hunzaði réttarhöldin algerlega
nema rétt í byijun. Hann var flutt-
ur handjámaður í réttarsalinn í
gær. Var honum ekið þangað í
brynvörðum bíl í öflugri lögreglu-
fylgd. í réttarsalnum var honum
síðan skipað til sætis í sakbomings-
stúku, sem umlukt var skotheldu
gleri.
Akæruatriðin á hendur Barbie
voru margvísleg og í 341 lið. Aðalá-
kæran var á þá leið, að hann hefði
framið glæpi gagnvart mannkyninu
með því að fyrirskipa nauðungar-
flutninga á 842 mönnum til
Auschwitz og annarra dauðabúða
nazista á meðan hann var yfirmað-
ur pestapo í Lyon 1942 til 1944.
í réttarhöldunum í gær neitaði
Barbie allri sök en sagði: „Þetta
var stríð og stríðið er búið.“
Danir vilja treysta tilkall
sitt til Rockall-svæðisins
Senda rannsóknaskip á svæðið síðar í sumar í samvinnu við íslendinga og Færeyinga
Kaupmannahöfn, frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DANIR munu á þessu sumri
senda rannsóknaskip á hafsvæð-
ið vestur af írlandi, til suðurhluta
færeyska landgrunnsins, og
verður leitað þar að olíu og gasi
með skjálftamælingum. Bretar
gera einnig tilkall til þessa svæð-
is en Svend Erik Hovmand,
orkumálaráðherra, segir, að ekki
fari á milli mála, að svæðið sé
danskt.
Nokkuð langt er um liðið síðan
Danir gerðu kröfu til yfírráða yfír
færeyska landgrunninu allt suður á
móts við írland og vísa þeir í því
efni til 76. greinar í hafréttarsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna. Svæða-
skiptingin á þessum slóðum hefur
þó aldrei verið ákveðin en íslending-
ar hafa oft skorað á Dani og
Færeyinga að standa fast gegn
kröfum Breta.
í danska blaðinu Jyllahdsposten
sagði sl. föstudag, að vegna óá-
kveðni og hiks danskra stjómvalda
væni nú einnig Íslendingar famir
að gera sínar kröfur til svæðisins,
sem væri þó færeyskt samkvæmt
hafréttarsáttmála SÞ og þar með
danskt. Þá hefðu Bretar og írar
stundað óheftar fiskveiðar á þessu
umdeilda svæði.
Poul Nielson úr flokki jafnaðar-
manna og fyrrum orkumálaráð-
herra sagði á föstudag í viðtali við
Jyllandsposten og danska ríkisút-
varpið, að Danir mættu ekki láta
undir höfuð leggjast að treysta til-
kall sitt til svæðisins með rann-
sóknastarfsemi og tilraunaborunum
við Færeyjar. Samdægurs skýrði
Hovmand svo frá, að rannsóknimar
myndu hefjast síðar í sumar í sam-
vinnu við Islendinga og Færeyinga.
Kom það fram hjá honum, að Bret-
ar öniuðust við þessum rannsóknum
en írar hefðu sýnt þeim skilning.
Svend E. Hovmand, orkumála-
ráðherra, sagði enga ástæðu til að
óttast „lítið Falklandseyjastríð"
vegna ágreiningsins við Breta. „Við
búumst við, að Bretar fallist á þess-
ar rannsóknir enda hafa þeir ekki
minni hag af þeim en við,“ sagði
Hovmand og bætti því við, að ekki
yrði ljóst fyrr en eftir hálft annað
eða tvö ár hvort olíu eða gas væri
að finna á svæðinu.
Júgóslavía:
Verðbólgan
yfir 100%
Belgrad, Reuter.
VERÐBÓLGAN komst yfir
100% í Júgóslavíu í júní miðað
við eins árs tímabil og hefur
hún aldrei verið meiri í sögu
landsins. Er verðbólgan talin
endurspegla rækilega efna-
hagsörðugleika landsmanna,
en f júnímánuði einum nam
hún 9,4% og komst upp i
100,6% nú um mánaðamótin.
Verðbólga í Júgóslavíu er nú
ein sú mesta í heiminum. í
síðustu viku tók þó steininn úr.
Þá hækkuðu sígarettur um ein
50%, póstþjónusta um 30%,
bensín um 20% og ýmsar nauð-
synjavörur um álíka mikið.
Efnahagsástandið hefur farið
hríðversnandi að undanfömu. Á
þriðjudag skýrði þjóðbanki
Júgóslavíu frá því, að ekki yrði
unnt að greiða 240 millj. dollara
í afborganir og vexti af erlend-
um lánum, sem gjaldfalla tvær
fyrstu vikur júlímánaðar.