Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
19
Fjórðungsmótið á Melgerðismelum:
Framfaramót á
flestum sviðum
Hestar
Valdimar Kristinsson
Þá er um garð gengið enn eitt
stórmót hestamanna og að öllum
líkindum með betri mótum sem
undirritaður hefur fylgst með.
Til að vel takist til með slik mót
þurfa margir ólíkir hlutir að
ganga upp og má þar nefna undir-
búning fyrir mót, framkvæmd
meðan á því stendur og litið væri
í mótin varið ef hestakostur væri
ekki í góðu Iagi og síðast en ekki
síst er það veðrið sem skiptir
mestu máli. Segja má að í stórum
dráttum hafi þetta allt gengið vel
upp á fjórðungsmótinu á Melgerð-
ismelum.
Gæðingakeppni mótsins var æsi-
spennandi á köflum. Af rúmlega 30
hrossum í hvorum flokki komust
átta í úrslit og var ekkert gefið eftir
í baráttunni um þau sæti. I B-flokki
náði Aron frá Litlu-Gröf snemma
afgerandi forystu og hélt hann henni
til loka. Búist var við að Jörfi frá
Akureyri myndi veita honum harða
keppni og jafnvel fara yfir hann sem
ekki varð. Knapi á Aroni var Birgir
Arnason og var hann einnig með
hest í öðru sæti, Byl frá Bringu.
Tveir hestar, þeir Dagfari frá Skaga-
strönd og Háfeti frá Borgarhóli,
voru jafnir í 8. og 9. sæti og voru
þeir endurdæmdir og hafði Háfeti
0,01 einum betur í þeirri viðureign.
Að sögn eiganda Snarfara, Jóns
Pálssonar, var einkunn beggja hes-
tannna reiknuð með fimm aukastöf-
um og voru þeir alltaf jafnir. Sagði
Jón að þeim hefði ekki verið boðinn
annar kostur en að láta dæma hest-
ana hvom í sínu lagi á nýjan leik.
Taldi Jón að samkvæmt reglunum
ættu knapamir að koma sér saman
um á hvem hátt væri skorið úr um
hvor skyldi standa ofar. Annars má
geta þess að þegar Snarfari hefur
tekið þátt í stórmótum hefur óheppn-
in elt hann á röndum. Á síðasta
flórðungsmóti '83 varð hann níundi,
á síðasta landsmóti varð hann tólfti
(tíu hestar í úrslitum) og nú varð
hann aftur níundi.
í úrslitum urðu ekki miklar breyt-
ingar á röð samkvæmt niðurstöðu
dómaranna, en margir brekkudóm-
aranna svokölluðu vom ósáttir við
að Jörfi skyldi ekki hækka sig um
að minnsta kosti eitt sæti og vildu
sumir ganga svo langt að setja hann
í efsta sætið. Að lokinni röðun vom
tvö hross jöfn í 5. og 6. sæti og tvö
jöfn í 7. og 8. sæti. Þýddi þetta að
heyja varð tvisvar einvígi og vakn-
aði þá sú spuming hvort ekki væri
eðlilegra að einkunnir úr forkeppni
réðu röð þar sem hrossin em í flest-
um tilvikum búin að fá nóg eftir
sjálfa úrslitakeppnina og ekki er
fegurðarauki að sjá þreyttum hross-
um riðið meira en nauðsyn ber til.
Baráttan milli Neista
og Seifs í A-flokki
Á svipaðan hátt og í B-flokki tók
Neisti frá Gröf afgerandi forystu
frá Keldudal og reið Eiríkur Guð-
mundsson honum af miklu öryggi í
8,44 og upp fyrir Neista þótt litlu
munaði. I úrslitunum breyttist röðin
töluvert því öll hrossin skiptu um
Hópreið norðlenskra hestamanna fór um svæðið á sunnudeginum með Þorstein Jónsson, hinn kunna
hestamann i broddi fylkingar.
Sigurvegari í A-flokki gæðinga og 150 metra skeiði, Seifur frá
Keldudal, knapi er Eiríkur Guðmundsson.
Mikill áhugi á
kappreiðunum
Mönnum lék nokkur forvitni á að
sjá hvemig undirtektir yrðu við
kappreiðum fjórðungsmótsins. Eins
og flestir vita, sem fylgjast með,
hafa kappreiðar sumarsins verið í
daufara lagi. Tímasetning kappreið-
anna vakti einnig talsverða athygli,
en undanrásir vom fyrir hádegi á
laugardag og úrslit og seinni sprett-
ir í skeiði og brokki fyrir hádegi á
sunnudag. Var þetta mjög athyglis-
verð tilraun sem gaf góða raun.
Fjöldi manns fylgdist með kappreið-
unum báða daga, tímar voru góðir
og töluverð spenna.
Bróðurparturinn af verðlaunafénu
fór að Skarði í Landsveit, en hestar
frá þeim feðgum, Guðna og Kristni,
vora í fyrstu sætum í öllum hlaupa-
greinum. Virðast Skarðshestamir
vera einráðir í hlaupagreinunum
þessa dagana. Hestar frá Keldudal
sigraðu í báðum skeiðgreinunum,
þeir bræður Leistur og Seifur, sem
báðir era undan heiðursverðlauna-
hryssunni Nös 3794 frá Stokkhólma.
Eftir spennandi keppni hafnaði Neisti frá Gröf í öðru sæti
A-flokks-gæðingag knapinn, Herdís Einarsdóttir, hlaut aftur knapa-
verðlaun Félags tamningamanna.
með 8,43 snemma í keppni
A-flokks-gæðinga og var hann tal-
inn sigurstranglegur eftir góða
frammistöðu á síðasta landsmóti.
Ekki gekk þetta þó þrautalaust fyr-
ir sig hjá Neista og Herdísi sem sat
hann. Klárinn var mjög spenntur og
átti Herdís í erfiðleikum með að
hemja hann, en þó slapp þetta fyrir
horn. Fannst raunar mörgum hof-
mannlega gefið fyrir sýninguna og
þá sérstaklega fyrir brokkið. Það fór
raunar ekki milli mála að þama fór
mikill gæðingur sem verðskuldaði
að vera ofarlega á blaði. Lengi vel
komst enginn hestur nálægt Neista
í einkunn, þeir hæstu vora með 8,28.
Þegar fór að líða á seinni hluta for-
keppninnar kom í hringinn Seifur
sæti að undanskildum Neista og
Seifi. Freisting frá Bárðartjörn úr
8. sæti í 4., Stjama frá Flekkudal
hrapaði úr þriðja sæti í sjöunda,
Kveikur frá Keldudal lyfti sér úr 4.
í 3. sæti og Eðall og Orri höfðu
skipti á 5. og 6. sæti þannig að
Orri hafði betur. Áttunda sæti hlaut
svo Tappi. Aðeins munaði einum á
Seifi og Neista í röðuninni. Munaði
þar mestu um röðun dómara númer
tvö, en hann vildi setja Neista í 4.
sæti sem að mati flestra brekkudóm-
ara var hreinasta firra því þessir
tveir skára sig svo áberandi úr.
Ekki má þó skilja þetta svo að það
sé endilega skoðun undirritaðs að
Neista hafi borið sigurinn því segja
má að báðir þessir gæðingar væra
vel að sigri komnir svo góðir sem
þeir báðir voru.
Misræmi áberandi
Nokkuð vora dómararnir til um-
ræðu meðal mótsgesta og fannst
mörgum of mikið misræmi milli
þeirra og þá sérstaklega hjá þeim
er dæmdu A-flokkinn. Það væri
ósanngjamt að halda því fram að
dómararnir væru allir sem einn yfir
höfuð lélegir, en því er ekki að leyna
að of oft sló illilega út í fyrir sumum
þeirra. Ekki skal dregið í efa að
þeir hafi reynt að sinna sínu hlut-
verki eins samviskusamlega og þeim
var unnt. Sú spurning stendur eftir
hvort dómarar, sem fengnir eru til
að dæma á svo mikilvægum mótum,
þurfi ekki að undirbúa sig betur en
gert er og þá þannig að þeir hittist
nokkram sinnum fyrir mótið og reyni
að samræma skoðanir og túlkun
þannig að keppendur og mótsgestir
þurfi ekki að horfa upp á mun sem
nemur tveimur eða þremur heilum
eins og nú sást.
Úrslitakeppni
hjá unglingunum
Nú í fyrsta sinn á fjórðungsmóti
fengu unglingamir að spreyta sig á
úrslitakeppni eins og þeir fullorðnu.
Voru átta unglingar í úrslitum, sem
fóra fram á laugardaginn, og var
ekkert annað á dagskrá á meðan.
Fengu krakkamir óskipta athygli
mótsgesta og var ekki annað að sjá
en fólk hefði af þessu góða skemmt-
un. Eiga mótshaldararnir lof skilið
fyrir að haga þessu á þennan hátt
og ungdómurinn vel að því kominn.
Gott mót á góðum stað
Vafalaust ber flestum, sem á
mótinu vora, saman um að þetta
mót væri í flesta staði vel heppnað.
Dagskráin var létt bæði fyrir áhorf-
endur og keppendur. Engan heyrði
maður kvarta undan því að ekki
væri töltkeppni eða eitthvað annað
hafi vantað í dagskrána. Reyndar
var talað um það á fúndum fram-
kvæmdanefndarinnar á sínum tíma
að hafa tölt og gæðingaskeið á dag-
skránni sem aukagreinar en horfið
var frá því og sú viturlega ákvörðun
tekin að ofhlaða ekki dagskrána.
Er vonandi að þetta mót verði
stefnumarkandi hvað þetta varðar.
Melgerðismelar era góður staður
fyrir stórmót og kom staðurinn vel
út nú eins og áður. Þess má geta
að innan fárra daga verður valinn
staður fyrir næsta landsmót. Stend-
ur valið milli tveggja staða, Melgerð-
is- og Vindheimamela, en það er
stjóm LH sem tekur þessa ákvörðun.
Að endingu er rétt að leiðrétta
villu í grein um mótið í Morgun-
blaðinu frá 30. júní, þar sem röð á
stóðhestum 6 vetra og eldri hafði
misraðast í upptalningu þannig að
Sólfaxi 1009 frá Reykjarhóli var
talinn upp á undan Seifi 1026 frá
Sauðárkróki, reyndar vora rétt núm-
er framan við nöfn hestanna. Einnig
hafði misritast aðaleinkunn Sólfaxa
sem er 7,94 en ekki 7,84
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Verðlaunahestar í B-flokki gæðinga frá vinstri: Sigurvegarinn Aron og Birgir, Bylur
og Sigurbjörn, Jörfi og Gunnar, Björn og Krapi, Spök og Helgi, Tvistur og Einar,
Sylgja og Jóhann og Háfeti og Skúlí.
Að lokinni verðlaunaafhendingu unglinga í eldri flokki, frá vinstri talið: Sigurvegar-
inn Heiðdís Smáradóttir á Drottningu, Órn Ólason á Klúbbi, María Höskuldsdottir á
Drífu, Eiður Matthíasson á Hrímni, Halldór Þorvaldsson á Sleipni, Jón Sigmarsson á
Randver, Sigurjón Skúlason á Þyt og María Jespersen á Hálegg.