Morgunblaðið - 04.07.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
Danska kaffivélin sem skilar hlutverki sýnu með prýði, þótt hún kosti aðeins 100 þúsund krónur.
Ríkisútvarpið:
Ný kaffivél spar-
aði hálfa milljón
Kaffivél sem kostaði 625 þúsund þótti of dýr
„ÞEGAR okkur varð ljóst verð
kaffivélarinnar kom aldrei til
greina að Ríkisútvarpið keypti
hana og henni hefur því verið
skilað,“ sagði Hörður Vil-
hjálmsson, formaður bygging-
arnefndar nýja útvarpshússins
þegar Morgunblaðið leitaði
staðfestingar á að þangað hefði
verið keypt kaffivél fyrir 624
þúsund krónur.
„Það sáu að vísu margir eftir
könnunni sem var búin að vera
hér í viku. En þetta leyfum við
okkur ekki hér. Svo einfalt er
það. Við höfum nú fengið aðra
sem kostaði 80 þúsund krónur,"
sagði Hörður.
Umrædd kaffívél er svissnesk
að gerð, tölvustýrð og malar kaffi
í hvem bolla fyrir sig. Vélar af
þessu tagi eru á nokkrum veit-
ingahúsum. En vélin sem Ríkisút-
Morgunblaðið/Sverrir
Svissneska tölvustýrða kaffivélin, sem forráðamönnum Ríkisút-
varpsins þótti of dýr.
varpið keypti í staðinn er að sögn hlutverki sínu með prýði, jafnvel
Harðar sjálfvirk, dönsk og skilar þótt hún sé hálfri miljón ódýrari.
Morgunblaðið: Emilía B. Bjömsdóttir.
Þeir sem hafa staðið að undibúningi kynningarinnar fyrir hönd íslands talið f.v.: Sigurður Pálsson rit-
höfundur, Þorkell Sigurbjörnsson tónskáld, Pétur Thorsteinsson sendiherra, Kristinn Hallsson deildars-
érfræðingur í menntamálaráðuneytinu, Stefán L. Stefánsson blaðafulltrúi utanríkisráðuneytisins og
Stefán Snæbjörnsson arkitekt. Á myndina vantar Gunnar Kvaran og Guðbrand Gíslason.
Norræn menning í
Vigdís Finnbogadóttir opnar fyrstu sýninguna
Samið um sölu á
síld til Svíþjóðar
Obreytt magn og verð
KYNNING á norrænni menningu
hefst i Japan í haust. Ráðgert
er að fyrsta sýningin verði opnuð
um miðjan september og mun
forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, opna sýninguna.
Þessi kynning í Japan er framhald
af kynningarátaki sem hófst með
sýningunni “Skandinavia today“ í
Bandaríkjunum árið 1982. Að sögn
Kristins Hallssonar, deildarsérfræð-
ings í menntamálaráðuneytinu,
tókst sú sýning mjög vel og ákváðu
ríkistjómir Norðurlanda af efnt yrði
til svipaðrar kynningar í Japan.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun opna fyrstu sýn-
inguna í september og halda
blaðamannafund þar sem allt verk-
efnið verður kynnt. Auk Vigdísar
munu Karl XVI Gústaf Svíakonung-
ur, Friðrik krónprins Dana, Harald-
ur krónprins Noregs og Sonja
krónprinsessa verða viðstödd opnun
sýninga ásamt ráðherrum utanrík-
is- og menntamála og sendiherrum.
Sýningar verða ellefu talsins og
munu íslenskir listamenn taka þátt
í sýningum á nytjalist, listhönnun-
arsýningum, myndlistarsýningum,
tónleikum, bókmenntakynningum,
kvikmyndahátíð og kynningu á
bama- og unglingabókmenntum.
Af hálfu íslands verða verk eftir
eftirtalda listamenn og hönnuði: Á
nytjalistarsýningum: Sigrún Ein-
afsdóttir, Sören S. Larsen, Kolbrún
Björgúlfsdóttir, Sigurlaug Jóhann-
esdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir,
Aldís Jóhannsdóttir, Hulda Jóseps-
dóttir, Aðalheiður Skarphéðinsdótt-
ir, Þórdís Zöega, Pétur B.
Lúthersson, Valdimar Harðarson,
Gunnar Magnússon, Sveinn Kjarv-
al, Markús B. Þorvaldsson, Pétur
Th. Pétursson og Pétur Tryggvi
Hjálmarsson. Auk þess verða verk
fráfyrirtækjunum Álafoss og Glit.
Á listhönnunarsýningum eiga
verk Ásgerður Búadóttir, Guðný
Magnúsdóttir, Jens Guðjónsson,
Jónína Guðnadóttir, Leifur Breið-
fjörð, Ragna Róbertsdóttir 'og
Steinunn Þórarinsdóttir.
Á myndlistarsýningum verða
verk eftir Jóhannes S. Kjarval,
Helga Þorgils Friðjónsson og Gunn-
ar Om Snorrason og á kynningu á
norrænni nútímatónlist verða flutt
verk eftir Þorkel Sigurbjömsson,
Atla Heimi Sveinsson, Karólínu
Eiríksdóttur, Áskel Másson og Þor-
stein Hauksson. Einar Jóhannes-
son, klarinettuleikari, verður
þátttakandií þessari kynningar-
starfsemi fyrir hönd íslands.
AÐ undanförnu hafa staðið yfir
samningaumleitanir við samtök
sænskra síldarinnflytjenda um
fyrirframsölu á saltaðri Suður-
landssíld frá komandi vertíð.
Samkomulag hefur nú tekist um
svipað heildarmagn og selt var
til Svíþjóðar á sl. ári. Sænska
Japan
Svava Jakobsdóttir verður full-
trúi Islands á bókmenntakynningu
en jafnframt verður gefið út norr-
ænt smásagnasafn þar sem birtast
sögur eftir Halldór Laxness, Guð-
berg Bergsson og Svövu Jakobs-
dóttur.
Kvikmyndin “Útlaginn" eftir
Ágúst Guðmundsson verður sýnd á
kvikmyndahátíð og tónverkið
“Choralis" eftir Jón Nordal verður
flutt á hátíðartónleikum.
Utanríkisráðuneytið og mennta-
málaráðuneytið hafa í samráði við
fulltrúa íslenskra listamanna staðið
að efnisvali og skipulagningu ásamt
japönskum samstarfsaðilum. Krist-
inn Hallsson tjáði Morgunblaðinu
að Pétur Thorsteinsson, sendiherra
íslands í Japan, hefði sýnt verkefn-
inu mikinn áhuga og orðið að miklu
liði við skipulagninu þessa kynning-
arátaks.
krónan hefur hækkað gagnvart
Bandaríkjadollar um 14% frá
sama tíma og í fyrra. Frá þessu
er greint í fréttabréfi Sildarút-
vegsnefndar til síldarsaltenda.
í fyrra voru seldar til Svíþjóðar
um 22 þúsund tunnur af mismun-
andi tegundum af hausskorinni og
slógdreginni síld og 8 þúsund tunn-
ur af mismunandi tegundum af
ferskskornum flökum. Hluti af
hausskornu síldinni var flakaður
fyrir Svía á tilraunastöð SÚN eftir
að síldin var fullverkuð og lauk lest-
un á þeirri síld í apríl síðastliðnum.
Heildarsalan til Svíþjóðar frá
síðustu vertíð samsvaraði um 35
þúsund tunnum af hausskorinni og
slógdreginni sfld eða sem svarar til
rúmlega 45 þúsund tonnum af heil-
saltaðri sfld og var um 40% sölu-
aukning frá árinu á undan.
Árekstur við
Ananaust
HARÐUR árekstur varð á mótum
Ánanausta og Mýrargötu í gær-
morgun og var einn maður
fluttur á slysadeild.
Fólksbifreið var ekið norður Ána-
naust um kl. 10.40 í gærmorgun.
Við Mýrargötu var sendibifreið ekið
í veg fyrir hana og varð af harður
árekstur. Ökumaður fólksbifreiðar-
innar var fluttur á slysadeild,
meiddur á höndum.