Morgunblaðið - 04.07.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
23
Lúðrasveit Reykjavíkur:
Elsta lúðrasveit
Islands 65 ára
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur er
65 ára um þessar mundir, en hún
var stofnuð 7. júlí 1922. Lúðra-
sveitin varð til við samruna
tveggja félaga, Hörpu, stofnuð
1910, og Gígju, stofnuð 1915.
Amerískar sígarettur;
Hækkaum
3 krónur
REYNOLDS-sígarettur, Winst-
on, Salem og Camel, hækkuðu í
verði um 2,6% frá og með 1. júlí
sl. sem þýðir að sígarettupakkinn
hækkaði úr 115 krónum í 118
krónur.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
Afengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að ástæða hækkunarinnar
nú væri hækkun á innkaupsverði.
Höskuldur sagði að tóbak frá
Scandinavian Tobaceo, svo sem
London Docks, Bacatello og
Fauna-vindlar, hefði einnig átt að
hækka um 5 1/2%, en sökum geng-
issigs dönsku krónunnar hefði sú
hækkun ekki komið til fram-
kvæmda. Þá hefði innkaupsverð á
Harveys-sherrýi, sem flutt er inn
frá Bretlandi, lítillega hækkað, en
ákveðið hefði verið að bíða með
hækkun á því.
Áður hafði Lúðraþeytarafélag
Reykjavíkur (stofnað 1876) starf-
að um fjörutíu ára skeið.
Stofnendur Lúðrasveitar
Reykjavikur voru 31. Fyrsti stjórn-
andi hennar var þýski homleikarinn
Otto Bötcher.
Hljómskálann byggði Lúðrasveit
Reykjavíkur 1922—1923, en hann
hefur síðan verið æfingastaður
sveitarinnar. Hljómskálinn, hús,
sem allir sem Reykjavík gista veita
athygli, var fyrsta húsið og ennþá
eina húsið sem reist hefur verið á
íslandi fyrir tónlistarstarfsemi ein-
göngu. Þar var Tónlistarskólinn í
Reykjavík til húsa fyrstu 15 árin,
en hann var stofnaður að frum-
kvæði lúðrasveitarmanna sem þá
lutu stjóm dr. Páls ísólfssonar.
Þeir sem lengst hafa stjórnað
Lúðrasveit Reykjavíkur em auk dr.
Páls, Karl 0. Runólfsson, Albert
Klahn og Páll Pampichler Pálsson,
en fjölmargir aðrir hafa komið þar
við sögu í lengri og skemmri tíma
í senn. Núverandi stjórnandi er
Róbert Darling, fæddur á Eng-
landi, en giftur íslenskri konu og
hefur verið búsettur á Islandi um
árabil.
Markmið Lúðrasveitar Reykja-
víkur hefur verið frá upphafi að
vinna að eflingu tónlistarlífs og
stuðla að kennslu á blásturshljóð-
færi. Starfsemin hefur að sjálf-
sögðu að mestu verið bundin við
Reykjavík, en LR hefur jafnframt
leikið á ýmsum stöðum um land
allt, m.a. í öllum kaupstöðum og
sýslum landsins g mörgum kaup-
túnum. Þrisvar hefur LR farið í
tónleikaferðir til útlanda. Til Fær-
eyja 1964, til Kanada og Banda-
ríkjanna 1972 og til Kanada 1975.
í sumar verður enn haldið til
Kanada og Bandaríkjanna. Sveit-
inni hefur boðist að taka þátt í
Islendingadeginum á Gimli 2. og
3. ágúst, sem í ár er um leið 100
ára afmælishátíð Gimlisveitar. Auk
þess að leika á Gimli mun lúðra-
sveitin ferðast og leika í byggðum
Vestur-íslendinga í Manitoba, Ont-
ario og Norður-Dakota. Þetta
verður þriggja vikna ferð og þátt-
takendur um 50, þar af 30 hljóð-
færaleikarar. Milli félaga í
Lúðrasveit Reykjavíkur og Vestur-
íslendinga á Gimli og víðar hefur
myndast góð vinátta og er ekki að
efa að móttökur vestra verða höfð-
inglegar að vanda.
(Fréttatilkynning)
Lúðrasveit Reykjavíkur á tröppum Höfða.
Ný soðkjarnatæki
hjá SR á Raufarhöfn
Raufarhöfn.
VERIÐ er að ganga frá nýjum
soðkjarnatækjum hjá SSldarverk-
smiðju ríkisins á Raufarhöfn.
Soðtækin voru framleidd hjá
Hetland Progess í Bryne í Nor-
egi.
Til þess að þau kæmust fyrir í
soðhúsinu sem gömlu tækin voru
fyrir í þurfti að hækka húsið ,um
sjö metra þannig að það er nú tíu
metra hátt.
Þessi tæki eiga að vera mjög
fullkomin og eiga að vera komin í
gagnið fyrir komandi loðnuvertíð,
einnig er bætt við tveim skilvindum
í lýsishús verksmiðjunnar. Ýmsar
endurbætur og breytingar fara
fram á löndunarbúnaði og vinnslu-
línu verksmiðjunnar. Verkefnis-
stjóri er Stefán Örn Stefánsson
verkfræðingur.
Við þessi verk vinna nú ellefu
aðkomnir fagmenn íslenskir og
norskir ásamt heimamönnum.
Helgi
Farðu í frí með fyrirhyggu!
MARGRA VIKNA MIDI
AFSLOPPUNIN
ER ALGJÖRU
HÁMARKI.
Milljónavinningurinn síðasta laugardag,
tæplega 2 milljónir króna,
hafnaði óskiptur hjá
heppinni konu á Sauðárkróki.
IfynníngafÖjónustan/SjA