Morgunblaðið - 04.07.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, 'LAÚGARDAGUR' U JÚLÍl&^
Morgunblaðið/Bjami
Biðröðin við Bifreiðaeftirlit ríkisins hefur aldrei verið lengri en í gær, en frá kl. 8.00 um morgunin til
kl. 15.00 munu hafa hátt i 900 manns komið með bíla sina til skoðunar.
Skoðunarmenn Bifreiðaeftirlitsins í sumarfrí til 10. ágúst:
Hátt á annað hundrað
bifreiðar biðu skoðun-
armanna í gærmorgun
Morgunblaðið/Sverrir
Bílaröðin við Bifreiðaeftirlitið virtist endalaus.
Fjórfalt fleiri bifreiðar skoðaðar- 900 manns komu í Bifreiðaeftirlitið
„Óhætt er að segja að það er
búið að vera brjálað að gera hjá
okkur,“ sagði Rúnar Guðmanns-
son, umdæmisstjóri hjá Bifreiða-
eftirliti ríkisins, í samtali við
Morgunblaðið í gær, en þá var
lokadagur skoðunar fyrir sum-
arfrí starfsmanna Bifreiðaeftir-
litsins sem stendur til 10. ágúst
nk.
Opið hús
eldri borgara
Veitingahúsið Sigtún er frá 1.
júlí opið ejdri borgurum á laug-
ardögum. í fréttatilkynningu frá
Sigtúni kemur fram að opið hús
eldri borgara er frá klukkan 14
til 22.30.
Rúnar sagði að byrjað hefði ver-
ið að skoða bifreiðar með skrásetn-
ingamúmerunum 1 og upp í 50.000
í febrúar sl., en fólk hefði tekið
afar seint við sér og í gær hefðu
fjórfalt fleiri bílar verið skoðaðir en
venjulega. „Það biðu hátt 'annað
hundrað bílar þegar við mættum í
vinnuna kl. 8.00 og alltaf bættist
við jafnt og þétt þangað til við lok-
uðum kl. 15.00. Það var orðið hreint
öngþveiti hér.“
Afram verður opið í Bifreiðaeftir-
litinu fyrir umskráningar og
nýskráningar. „Ég held samt að
fólk þurfi ekki að óttast um að
númerin verði klippt af bílum, sem
ekki hafa verið skoðaðir, vegna
þess ástands sem nú ríkir hjá Bif-
reiðaeftirlitinu enda var það alls
ekki meining okkar að fólk yrði
látið líða fyrir það,“ sagði Rúnar.
Yfír sumarleyfistímann hefur yfír-
leitt mjög verið dregið úr þjónustu
í Bifreiðaeftirlitinu, en aldrei alveg
verið lokað fyrr en nú, sökum sparn-
aðarráðstafanna. í fyrra voru í
fyrsta sinni sendar út aðvaranir til
þeirra bifreiðaeigenda, sem ekki
höfðu mætt með bíla sína til skoð-
unar. Í ár var hinsvegar fallið frá
þeirri hugmynd til að spara enn
frekar, en þess í stað auglýst í dag-
blöðum.
Rúnar sagði að þeir bifreiðaeig-
endur, sem ættu eftir að láta skoða,
gætu haldið áfram að aka á bílum
sínum án þess að vera truflaðir, að
minnsta kosti af hálfu Bifreiðaeftir-
litsins. Hinsvegar myndi hann ekki
sverja fyrir lögregluna ef bílar væru
ekki í góðu ásigkomulagi.
Fundur var haldinn í dómsmála-
ráðuneytinu í gær þar sem mættir
Látúnsbarkinn val-
inn á sunnudagskvöld
LÁTÚNSBARKI ársins 1987
verður valinn sunnudagskvöldið
5. júlí. Athöfnin fer fram í Tívolí-
garðinum í Hveragerði og verður
kenni sjónvarpað beint.
Keppendur verða átta talsins og
hefur hver þeirra verið valinn Lát-
únsbarki síns kjördæmis. Sigurveg-
ari hvers kjördæmis var valinn af
fimm manna dómnefnd á hveijum
stað á tónleikum Stuðmanna í maí
og júní.
Þau sem keppa til úrslita eru
Málfríður Hjaltadóttir fyrir Vest-
firði, Guðjón Jónsson fyrir Vestur-
land, Gígja Sigurðardóttir fyrir
Austfírði, Margrét Stefánsdóttir
fyrir Norðurland vestra, Ólöf
Sigríður Valsdóttir fyrir Norðurland
eystra, Bjarni Arason fyrir Suður-
nes og Bergþóra Guðmundsdóttir
fyrir Reykjavík.
Dómnefndir verða í hvetju kjör-
tlæmi en auk þeirra verður aðal-
dómnefnd í Tívolígarðinum og hafa
atkvæði hennar tvöfalt vægi á við
atkvæði hinna dómnefndanna. í
aðaldómnefndinni sitja Garðar
Cortes, Jónas R. Jónsson, Sonja B.
Jónsdóttir, Ástrós Gunnarsdóttir og
Kristján Gunnarsson.
Tívolí er öllum opið á sunnudags-
kvöldið og hefst skemmtunin kl.
20.30. Sjónvarpsútsendingin hefst
um kl. 21 og verður dagskránni
útvarpað samtímis.
Ung kona ásamt djöfulóðum kærasta.
Lit* <A LmUmAÍMMUh 1 1
| 1 |2 1 3 1 < 1 5 16 I 7 8 í 9 10
stig stig 3tig stig stig stig stig stig stig stig
1. Málfrióur Hjaltadóttir Vestfiróir
2. Guðjón Jónsson Vesturland
3. Gígja Siguróardóttir Austfiróir
4. Margrét Stefánsdóttir Norðurland Vestra
5. Ölöf Sigriður Valsdóttir Noróurland Eystra
6 . Bjarni Arason Reykjanes
7. Herraann ölason Suðurland
8. Bergþóxa Guömundsdóttir Reykjavik
Hér gefst sjónvarpsáhorfendum, og öðrum áhugasömum, tækifæri til þess að gefa keppendum stig og
velja sinn eiginn Látúnsbarka.
voru auk Hjalta Zóphaníassonar
skrifstofustjóri, forsvarsmenn Bif-
reiðaeftirlitstins og umferðardeildar
lögreglunnar. Arnþór Ingólfsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, sagði í
samtali við Morgunblaðið að ákveð-
ið hefði verið á fundinum að
lögreglan myndi áfram sinna þess-
um málum eins og hingað til með
öryggisgæslu í huga.
Djöfulóður
kærasti í
Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ sýnir um þessar
mundir bandarísku gamanmynd-
ina Djöfulóður kærasti (My
Demon Lover).
í fréttatilkynningu frá Laugarás-
bíói segir að myndin fjalli um unga
konu sem verður ástfangin af
óvenjulegum manni. Hann er
óvenjulegur að því leyti að ef hann
hrífst af konu breytist hann í óarga-
dýr.
Inn í ástarsögu parsins blandast
saga af morðingja sem gengur laus
°g ógnar lífi kvenna í borginni.
Leikstjóri myndarinnar er Char-
les Loventhal og með aðalhlutverk
fara Scott Valentine og Michelle
Little.
GENGIS- SKRÁNING
Nr. 121 - 2. júlí 1987
Kr. Kr. Toll-
Eio.Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 39,020 39,140 38,990
St.pund 62,998 63,192 64,398
Kan.dollari 29,392 29,483 29,108
Dönsk kr. 5,6073 5,6246 5,6839
Norsk kr. 5,8061 5,8240 5,7699
Sænsk kr. 6,0897 6,1085 6,1377
Fi.mark 8,7469 8,7738 8,8153
Fr. franki 6,3745 6,3941 6,4221
Belg. franki 1,0244 1,0276 1,0327
Sv. franki 25,5283 25,6068 26,7615
Holl.gyllini 18,8594 18,9174 18,9931
V-Þ. mark 21,2388 21,3042 21,3996
ít. líra 0,02934 0,02943 0,02962
Austurr.sch. 3,0213 3,0306 3,0412
Port. escudo 0,2719 0,2728 0,2741
Sp. peseti 0,3072 0,3081 0,3064
Jap.yen 0,26317 0,26398 0,27058
Irskt pund 56,899 57,074 57,282
SDR (Sérst.) 49,8356 49,9891 50,0617
Ecu,Evrópum. 44,0809 44,2105 44,3901
Belg. fr. Fin 1,0209 1,0241