Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 32

Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 Skýrsla Hafrannsóknarstofnunar: 1986 árgangurinn af þorski talinn mjög lítill Gott árferði í sjónum síðan árið 1983 Ástand umhverfisþátta í sjónum við ísland er einkum metið af gögn- um sem safnað er allt umhverfis landið að voriagi ár hvert. í heild sýndu niðurstöður vorleiðangurs 1987 framhald á því góða árferði sem verið hefur í sjónum við landið siðan í árslok 1983. Mikill gróð- ur mældist í hlýsjónum vestanlands og út af Vestfjörðum. Fyrir Norðurlandi gætti áhrifa hlýsjávar austur að Langanesi, nema djúpt út af Húnaflóa, en þar gætti áhrifa pólsjávar samfara rekís. Fyrir Norðurlandi var átumagnið sambærilegt við það sem mældist 1985 og meira en bæði 1984 og 1986. Lítil áhrif ferskvatnflæðis við Suð- ur- og Vesturland og áhrif rekíss og pólsjávar við vestanvert Norðurland kunna hinsvegar að hefta árangur klaks við Suðvestur- land og rek seiða inn á norðurmið seinna í sumar. FVrstu fimm mánuði ársins 1987 voru gæftir betri en sömu mánuði 1986. Hins vegar var þorskafli bæði árin mjög svipaður. Búist er við að afli árið 1987 verði um 360 þús. tonn. I veiðinni mun árgangur- inn frá árinu 1983 vera allt að 'helmingur aflans í fjölda. Meðal- þyngd þorsks á þessu ári og kynþroskahlutfall eftir aldri er mjög svipað og árið 1986. Nýliðun í þorskstofninn er á þann veg að árgangar 1983 og 1984 eru allsterkir, árgangur 1985 er talinn vera í meðallagi en árgangur 1986 er hins vegar talinn mjög lítili. Ekki varð vart við neinar göngu þorsks frá Grænlandsmiðum og ekki er gert ráð fyrir neinum göngum þaðan í allra nánustu . framtíð, enda þorskstofnar þar í mikilli lægð. Samkvæmt nýrri úttekt er ástand þorstofnsins svipað og kom fram í síðustu skýrslu Hafrannsóknastofn- unarinnar frá september 1986. Veiðistofn í ársbyijun 1988 er áætl- aður 1.160 ús. tonn og hrygningar- stofn 360 þús. tonn. Ef veidd verða 400 þús. tonn á árinu 1988 og 1989 minnkar þorsk- stofninn um 200 þús. tonn fram til ársins 1990, en hrygningarstofn stendur í stað. Við 350 þús. tonna afla mun veiðistofn haldast óbreytt- ur 1988 og 1989 en minnka um 10% árið 1990. Hrygningarstofn mun þó vaxa lítillega. Við 300 þús. ■tonna veiði vex stofninn lítið eitt á næstu árum. Hrygningarstofn mun hins vegar vaxa örar og verða um 500 þús. tonn árið 1990, þá munu veiðidánarstuðlar lækka verulega á næstu árum. Til þess að ná þessu marki þarf sóknin í þorskstofninn að minnka um 20% á ári næstu tvö árin. Ef stefnt skal að því að stofn- inn stækki telur Hafrannsókna- stofnunin æskilegt að afli verði takmarkaður við 300 þús. tonn árið 1988 og 1989. Arið 1986 var ýsuaflinn tæp 50 þús. tonn og er gert ráð fyrir að aflinn árið 1987 verði svipaður. Veiðistofninn þ.e. fjögurra ára og eldri ýsa er nú áætlaður 175 þús. tonn og hrygningarstofninn rúm 105 þús. tonn. Þetta eru svipaðar niðurstöður og fengust við síðustu úttekt á ástandi ýsustofnsins árið 1986. Mat á árgangastærð fjögurra ára ýsu og eldri hefur þannig breyst lítið, en öðru máli gegnir um ár- ganginn frá 1985. Sá árgangur hefur nú verið endurmetinn og er talinn mjög sterkur. Ennfremur er árgangurinn frá 1984 allsterkur en árgangur frá 1985 er sá lang- stærsti, sem fram hefur komið í tæp 30 ár. Framreikningar á stærð ýsu- stofnsins fyrir árin 1988 til 1990 sýna að ýsustofninn mun vaxa mjög ört á næstu árum, sérstaklega eftir árið 1988. Hafrannsóknastofnuin leggur því til að aflahámark árið 1988 verði 60 þús. tonn og 70 þús. tonn árið 1989. Ufsaaflinn árið 1986 var rúmlega 66 þús. tonn, en gert er ráð fyrir að árið 1987 verði afiinn 70 þús. tonn. Athyglisvert er að talsvert veiddist af þriggja ára ufsa í botn- vörpu og gæti það bent til þess að hér væri um stóran árgang að ræða. I nýju stofnmati er gert ráð fyrir áþekkri stofnstærð í ársbyrjun 1987 og fram kom við síðustu úttekt haustið 1986. Ennfremur er gert ráð fyrir að árgangur 1983 sé stór. Miðað við þessar forsendur mun bæði veiðistofn og hrygningarstofn ufsa fara vaxandi á næstu árum. Hafrannsóknastofnunin leggur til Plöntu- handbókin Á SÍÐASTA ári gaf bókaútgáfan Orn og Orlygur út Plöntuhand- bókina — Blómaplötur og byrkningar — eftir dr. Hörð Kristinsson grasaf ræðing. í henni voru Ijósmyndir í lit af meginþorra íslensku flórunnar í sínu rétta umhverfi. Plöntuhandbókin hefur frá itpp- hafí notið vinsæida og er þegar búið að tvíprenta íslensku útgáfuna. Fljótlega kom í ljós eftirspum eftir bókinni á eriendum tungumálum og því var ráðist í að þýða hana á ensku. Annaðist höfundurinn þýð- inguna og naut þar aðstoðar dr. Jóns Skaptasonar deildarstjóra Orðabókadeildar Amar og Örlygs. Hin enska útgáfa Plöntuhand- bókarinnar ber heitið: A Guide to Fbwering Plants and ferns »f leefamf Urn óg örlvgur Pnbbshing Houve the Flowering Plants and Fems of Icéland. Hún er prentuð í Kassa- gerð Reykjavíkur en bundin hjá Amarfelli hf. Hönnun bókarinnar annaðist Sigurþór Jakobsson. Hafrannsóknarstofnun telur æskilegt að þorskaflinn verði ekki meiri en 300.000 tonn árin 1988 og 1989 ef stofninn eigi að stækka. að sókn í ufsastofninn verði ekki aukin frekar og að aflahámark árið 1988 verði 75 þús. tonn og 80 þús. tonn árið 1989. Karfi sem veiðist á Austur-Græn- landsmiðum, við Island og Færeyj- ar, er talinn vera úr sama stofninum. Karfastofninum hefur hnignað á undanförnum árum en nú virðist sem þessi þróun hafí stöðvast í bili. Nokkur samdráttur varð í karfaafla íslendinga árið 1986 sem stafar af minni sókn í karfa. Á árinu 1987 er gert ráð fyrir að karfaafli verði svipaður og árið 1986 (85 þús. tonn), nema til komi meiri háttar breytingar á sókn. Niðurstöður úr nýju stofnmati á karfa em mjög áþekkar og í síðustu úttekt (1986) en ekki tókst að gera úttekt á djúpkarfa frekar en áður. í framreikningum á þróun karfa- stofnsins næstu árin mun veiðistofn minnka lítillega við 80 þús. tonna ársafla árið 1988. Sé miðaið við 60 þús. tonna afla mundi bæði veiði- og hrygningarstofn stækka 'lítil- lega. Mælt er með að afli á djúpkarfa verði ekki aukinn umfram það sem veitt hefur verið nokkur undanfarin ár. Þar sem hlutur djúpkarfa Islend- inga hefur minnkað, leggur Ha- frannsóknastofnunin til að áfram verði dregið úr sókn og að hámarks- afli á Islandsmiðum árið 1988 verði 75 þús. tonn af báðum karfategund- um. Gert er ráð fyrir að grálúðuafli árið 1987 verði 35 þús. tonn. Við nýja úttekt á ástandi grálúðustofns- ins kemur í ljós að nýliðun er hærri og stofninn stærri, sem byggist á endurskoðuðu sóknarmynstri eftir aldri í stofninum. Við 20 þús. tonna afla mun stofninn vaxa nokkuð og við 30 þús. tonna afla mun stofninn vaxa lítillega en við 30 þús. tonna afla 1988 minnkar grálúðustofninn. Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyfílegur hámarksafli Islend- inga verði 30 þús. tonn árið 1988 og 1989. Ástand steinbítsstofnsins er talið gott og því eru ekki gerðar tillögur um ákveðinn hámarksafla á árinu 1988. Steinbítsaflinn árið 1986 var rúm 12 þús. tonn og áætlaður afli árið 1987 er svipaður. Engar tillögur eru um hámarks- afla blálöngu, löngu, keilu og hrognkelsa. Síldaraflinn árið 1986 var rúm 65 þús. tonn. Sumargotssíldarstofn- inn var mældur í janúar árið 1987. Miklu minna mældist af yngri ár- göngum veiðistofnsins heldur en búist var við miðað við fyrri mæl- ingar á stærð stofnsins. Ástæðum- ar fyrir vanmati á stærð yngri árganganna felast fyrst og fremst í óvenjulegri útbreiðslu sildarstofns- ins árið 1987. Síldin var nú miklu meira uppi í fjörum en áður og kom þess vegna illa til skila á dýptar- mælum rannsóknaskipsins. Vegna augljóss misræmis milli síðustu bergmálsmælinga og fyrri mælinga á stærð síldarstofnsins var ákveðiði að notast ekki við síðustu mælingar að þessu sinni. Stofnstærð í árs- byijun 1987 var fundni með þvi að framreikna hana frá ársbyijun 1986 opg taka tillit til síldaraflans á vertíðinni 1986. Samkvæmt þess- um framreikningum á stofnstærð leggur Hafrannsóknastofnunin til að síldaraflinn á haustvertíð 1987 fari ekki yfir 70 þús. tonn. Heildaraflinn á loðnuvertíð 1986—1987 var 1.332 þús. tonn, en í janúar 1987 kom í ljós, þegar kynþroska hluti stofnsins var mæld- ur aftur við betri skilyrði en um haustið að óhætt myndi að auka loðnukvótann frá því sem verið hafði fyrir. Bergmálsmæling á ókynþroska loðnu af árgöngum 1984 og 1985 fór fram í janúar/ febrúar 1987. Allmikið var um rekís á ytri hluta útbreiðslusvæðisins og þess vegna er árgangurinn frá 1985 talinn verulega vanmetinn. Þar sem veiðamar á vertíð 1987/1988 munu að mestu byggjast á þessum ár- gangi var leitað annarra leiða til þess að meta stærð hans. Til þess að framreikna stærð 1985 árgangs- ins í byijun sumarvertíðar 1987 var gerður samanburður á stærð loðnu- árganga eins og þeir hafa mælst sem eins árs fískur í ágúst og októ- ber og síðar þegar sömu árgangar voru tveggja, þriggja og fjögurra ára gamlir. I samræmi við þessar niðurstöður er lagt til að leyfilegur hámarksafli á tímabilinu júlí— nóv- ember 1987 verði 500 þús. tonn. Stærð veiðistofns loðnu verður mæld aftur í október 1987 eins og venja hefur verið á undanfömum árum. Að þeim loknum verða settar fram tillögur um hámarksafla fyrir seinni hluta 1987—1988 vertíðar- innar. Ekki em gerðar tillögur um hámarksafla á sumarvertíð 1988. Humarveiðamar gengu mjög vel 1986 og varð afli á sóknareiningur sá mesti síðan 1966. Alls veiddust 2.540 tonn. Gert er ráð fyrir að aflinn árið 1987 verði 2.750 tonn en allt bendir til þess að meðalafli 1987 verði svipaður og 1985, þ.e. nokkru minni en 1986. Hafrann- sóknastofnunin leggur til að sókn í humar verði áfram miðuð við kjör- sókn og leyfilegur hámarksafli árið 1988 miðist við 2.600 tonn. Heildarafli hörpudisks árið 1986 var 16.500 tonn en hann var rúm 17 þús. tonn árið 1985. Enn sem komið er hefur lítið verið veitt af hörpudiski árið 1987 og á sumum svæuðm ekkert þar sem að megin- sókn í þennan stofn er síðari hluta árs. Tillögur um hörpudisksveiðar á ýmsum svæðum 1988 munu því verða lagðar fram síðar, þegar árangur veiðanna og niðurstöður úr rannsóknaleiðöngrum í septem- ber liggja fyrir. Rækjuafli hefur farið ört vaxandi undanfarin ár sérstaklega eftir að veiðar á djúpslóð hófust fyrir al- vöru. Heildaraflinn árið 1986 var tæplega 36 þús. tonn en var 25 þús. tonn árið 1985. Samdráttur var í rækjuafla á grunnslóð árið 1986 um 25% eða sem nemur 2.200 tonnum. Aukning rækjuafla á djúp- slóð árið 1986 stafaði af stækkun veiðisvæða en auk þess fundust ný mið út af NA-landi og má rekja aflaaukninguna að 2/3 hluta til þessa. Auk þess hefur sóknin farið vaxandi. Árið 1987 er fyrirsjáanleg mikil sókn í úthafsrækju. Gert er ráð fyrir að hámarksafli á rækju á grunnslóð verði svipaður og var á árinu 1986. Nýjustu niðurstöður um ástand úthafsrækjustofna árið 1987 liggja ekki fyrir. Stofnmælingar verða gerðar í fyrsta sinn sumarið 1987. Að þeim loknum verður gerð úttekt á stöðu úthafsrækjustofna og settar fram tillögur um hámarksafla fyrir árið 1988. Eins og er bendir flest til þess að afli á sóknareiningu muni ekki vaxa frá því sem nú er og raunar minnka enn fremur en hitt á nýjum svæðum út af NA- landi. Frekari aukning á úthafs- rækjuveiðum verður því aðeins að finnast ný svæði sem ekki hefur verið veitt á áður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.