Morgunblaðið - 04.07.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
51
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
UJrW'V If
tur i/wwi gwn
Karl 16. Gústaf Svíakonungnr og fjölskylda hans. Opinber heimsókn
konungsins til íslands vakti bréfritara til umhugsunar.
Island verði kommgsríki
Banna
sjónvarp
á fimmtu-
dögum
Kona í Kópavogi skrifar:
Nú virðist vera í tísku meðal
útvarps- og sjónvarpsmanna að
dásama hvern annan og sjálfan sig
sem mest þeir mega og líkar mér
það ekki alls kostar. Hitt þykir
mér öllu verra að þessi plága virð-
ist hafa sett sér það takmark að
verða eins rækilega samantvinnuð
við líf landsmanna og hægt er.
Utvarpsgoðin koma nú varla fram
nema undir gælunöfnum líkt og
hafí þeir þekkt sérhvem lands-
mann frá því að þeir hentu frá sér
snuðinu og fóru að ganga upprétt-
ir.
Hvert sem farið er hljómar
skarkalinn og þvaðrið í þessum
þjóðhetjum níunda áratugarins, í
verslunum, strætisvögnum, sund-
laugum. Hvergi er friður.
Og enn getur vont versnað. Nú
telur hæstvirt útvarpsráð að ekk-
ert sé nauðsynlegra þjóðinni en að
fá þá félagana Mike Hammer og
Ingva Hrafn og vini þeirra beint í
æð á fímmtudögum líka. Verður
þess varla langt að bíða að út-
varpsráð álykti að þjóðin geti ekki
án sjónvarps verið allan sólarhring-
inn. Verður þá án efa einhver
velviljaður menntamálaráðherra til
að leyfa þjóðinni að borga brú-
sann. Lengi lifi frjáls samkeppni á
öldum ljósvakans. Ef menn vilja
ekki greiða sinn Mike Hammer er
alltaf hægt að nota lögtaksréttinn
með aðstoð fógeta.
Ég skora á alla þá sem enn eiga
í fórum sínum svo sem eina
óbrenglaða heilafrumu að spyma
við fótum. Fyrsta skrefíð verður
að fá það sett í lög að banna að
sjónvarpa á fimmtudögum. Legg
ég til að hið snarasta verði sett á
laggimar samtök gegn fjölmiðla-
fári sem hafi þetta sem sitt fyrsta
baráttumál.
Geir skrifar:
Koma Karls Gústafs Svíakon-
ungs hingað til lands vakti mig til
umhugsunar. Það er óneitanlega
mun glæsilegra að hafa konung
sem fulltrúa lands heldur en for-
seta. Ég vil þó taka skýrt fram _að
ég hef ekkert á móti forseta ís-
lands, henni Vigdísi, og fínnst hún
hafa staðið sig mjög vel. En það
er einhvem veginn alltaf meiri
glæsibragur yfír því þegar kónga-
fólk kemur í opinberar heimsóknir
heldur en aðrir þjóðhöfðingjar.
Ég er viss um að það myndi
auka mjög virðingu útlendinga fyr-
ir íslandi ef við kæmum okkur upp
konungi eða að minnsta kosti
drottningu. Það myndi líka auka
ferðamannastrauminn og hægt
væri að merkja íslenskar útflutn-
ingsvörur með alls konar stimplum
og merkjum sem gæfu til kynna
að þær væru konungum samboðnar
líkt og hægt er að sjá á mörgum
erlendum afurðum hér á landi. Þar
stendur gjaman að hinn eða þessi
konungur kaupi þessa vöru. Þetta
myndi án efa auka gjaldeyristekjur
okkar til muna.
Við Islendingar höfðum konung
allt til ársins 1944 svo að þetta
ættu ekki að verða svo mikil við-
brigði. Auk þess fengjum við
islenskan konung sem væri auðvit-
að mun betra en að hafa útlendan
konung.
Auðvitað gæti orðið erfítt að
finna réttan mann í þetta virðulega
embætti og vitaskuld yrði að leyfa
núverandi forseta að ljúka kjörtíma-
bili sínu. Síðan væri hægt að hafa
þjóðaratkvæðagreiðslu um fyrsta
konunginn. Sjálfur sting ég upp á
Albert Guðmundssyni í þetta emb-
ætti. Hann kemur vel fyrir og hefur
aflað sér vinsælda erlendis, sérstak-
lega í Frakklandi sem myndi koma
sér vel í starfí. Aðrir kæmu þó vita-
skuld einnig til greina.
Þessir hringdu . .
Grá og hvít læða
Á.R.- hringdi:
„Grá og hvít læða tapaðist frá
Efstasundi 4 fyrir mánuði. Hún
er merkt í eyrað með númerinu
R6515. Einnig er hún með rauða
hálsól með nafnspjaldi sem á
stendur heimilisfang og sími
37396. Vinsamlega hringið í
þennan síma ef þið verðið hennar
vör. Læðan gegnir nafninu Kittý
og stendur það á nafnspjaldinu.
Fundarlaun."
Illa gengið
um Seljahverfi
íbúi í Seyahverfi hringdi:
„Ég vil koma á framfæri kvört-
un vegna sóðaskapar sem mér
fínnst vera orðinn allt of mikill í
Seljahverfi. Hér eru nú búið að
setja upp tvær sjoppur, hamborg-
arastað og bakarí og þessu hafa
fylgt mikil óþrif. Einhvem tímann
var nú haft uppi slagorðið „Hrein
torg, fögur borg“ en það er greini-
lega liðin tíð. Einstaka sjoppueig-
andi hefur reyndar eitthvað verið
að myndast við að hreinsa til en
það hefur haft lítið að segja.
Verst er ástandið á vetuma
þegar krakkamir em í skólanum.
Það er engin tilviljun hvar þessar
sjoppur em staðsettar, rétt hjá
skólunum. Enda koma bömin iðu-
lega við í þeim á leiðinni til og
frá skólanum eða leikfímihúsinu.
Annað sem mér liggur á hjarta
er varðandi tjöm sem er við elli-
heimilið Seljahlíð. Þegar ég
byggði hérna í hverfinu var okkur
lofað að þama yrði falleg tjöm
sem vel yrði gengið frá. Það hefur
hins vegar staðið á efndunum og
aldrei verið sýnd nein viðleitni í
þá átt að gera tjömina að augna-
yndi. Ég hef heyrt í samtölum
mínum við vistmennina í Seljahlíð,
að þeir séu mér sammála. Ég er
jafnvel hræddur um að einhveijir
geti farið sér að voða í tjöminni
enda botninn á henni bara drullus-
vað.
Ég vinn vaktavinnu og hef því
stundum komið að tjörninni um
nætur og séð þar andahjón sem
virðast una sér vel í kyrrðinni þá
en láta aldrei sjá sig á daginn.
Ég er viss um að þama gæti þrif-
ist blémlegt fuglalíf ef gengið
yrði almennilega frá tjöminni.
Ef borgarjrfirvöld treysta sér
ekki til þess ættu þau að fylla upp
í tjömina og slétta svæðið og
reyna að ganga betur frá því án
tjamarinnar áður en einhver fer
sér að voða í tjöminni."
Kettlingar fást
gefins
Bergljót hringdi:
Hún situr uppi með fjóra kettl-
inga sem em sjö vikna gamlir og
hún segir vera mjög fallega,
svarta og hvíta. Hún vill gjaman
gefa einhveijum þessa kettlinga
og em þeir sem hafa áhuga beðn-
ir að hringja í síma 73547.
Ljót tjöld í Aust-
urstræti
Vegfarandi hringdi:
„Mig langar til að kvarta undan
þessum ljótu, bláu tjöldum sem
búið er að setja upp í Austur-
stræti. Mér finnst þau setja ljótan
svip á bæinn, sérstaklega á kvöld-
in þegar grindin ein stendur eftir
eins og beinagrind af einhverri
útdauðri risaeðlu. Það var miklu
skemmtilegra eins og það var
áður þegar hver sölumaður kom
með sitt borð. Það vár miklu per-
sónulegra og hlýlegra.
Ég er viss um að erlendir ferða-
menn sem hingað koma höfðu
miklu meira gaman af þeim en
þessu. Ég bara spyr: Ætla borgar-
yfírvöld að láta þennan ófögnuð
standa uppi í vetur?"
NÁMSGAGNASTOFNUN
Pósthólf 5192 • 125 Reykjavík • Sími 28088
SAMKEPPNIUM RITUN BARNABÓKA
Fyrsta hluta í samkeppni Námsgagnastofnunar um gerð
lesbóka fyrir byrjendur er nú lokið. Þrjú handrit hlutu
verðlaun og verða gefin út. Samkeppnin heldur nú áfram
og næsti skiladagur er 15. september 1987.
Enn leitar stofnunin eftir efni fyrir yngstu lesendurna, 6
- 7ára börn. Alltaðþrenn verðlaun verða veitt fyrir texta
og / eða myndeftíi, að upphæð kr. 30.000 hver. Aukþess
getur dómnefnd veitt viðurkenningu fyrir verksem þykja
álitleg. Ráðgert er að dómnefnd skili áliti mánuði eftir
skiladag hverju sinni.
Handritum skal skila tneð tillögum að myndeftú en einn-
ig kemur til greina að myndlistarmenn og höfundar texta
vinni sattian að samningu.
Handrit skulu merkt með dulnefni en nafn höfundar
fylgi í lokuðu umslagi.
Námsgagnastofnun áskilursér rétt til aðgefa útþau verk
sem verðlaun og viðurkenningu hljóta.
Nánari upplýsingar í fjölriti, m.a. um lengd, þyngd,
hlut myndefnis og efnissvið, er að finna hjá Ingibjörgu
Ásgeirsdóttur, Námsgagnastofnun, Laugavegi 166,
Reykjavík og Guðmundi B. Kristmundssyni, Æfinga-
og tilraunaskóla K.H.Í.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^íóum Moggans!
n ii
Blaðburðarfólk óskast!
AUSTURBÆR
Háteigsvegur
Bólstaðarhlíð
frá 40-56 og 58-68
Hverfisgata frá 4-62
o.fl.
Flókagata
Úthlíð
FOSSVOGUR
Goðaland
Grundarland
UTHVERFI
Stóragerði
Heiðargerði
Háaleitisbraut
frá 117-156
Tunguvegur
KÓPAVOGUR
Borgarholtsbraut
Kópavogsbraut
frá 84-113 o.fl.
Sunnubraut
Birkihvammur