Morgunblaðið - 04.07.1987, Síða 55

Morgunblaðið - 04.07.1987, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987 íslandsmótið 1. deild SL-mótið IBK í dag kl. 2 á Kaplakrikavelli. Víðismenn betri en tókst ekki að skora Símamynd/Kristján G. Arngrímsson • Kristján Kristjánsson skorar sigurmark Þórs f gærkvöidi — sendir knöttinn yfir Hauk markvörð áður en Arnar Freyr nær að komast fyrir skotið. Þór fyrri vann Akureyrarslaginn Akureyri, frá Skapta Hallgrímssynl, blaðamanni Morgunblaðsins. hægra megin ÞÓR sigraði í fyrri Akureyrar- slagnun í 1. deild í ár. Liðið lagði KA 2:1 á „útivelli" í gærkvöldi. Leikurinn var dæmigerður fyrir viðureignir þessara liða, ekkert gefið eftir; barátta upp á líf og dauða. Þórsarar voru betri í fyrri hálf- leik og það var gegn gangi leiksins er KA náði forystunni. Áður hafði Þorvaldur Örlygsson reyndar sko- tið framhjá úr dauðafæri. Markið kom úr skyndisókn — Tryggvi óð upp vinstra megin, glæsileg send- ing hans rataði á Jón Sveinsson KA — Þór 1 : 2 Akureyrarvöllur 1. deild, fostudaginn 3. júli 1987. Mark KA: Jón Sveinsson (34.) Mörk Þórs: Jðnas Hóbertsson (vfti á 42.), Kristján Kristjánsson (70.) Guít spjald: Einar Arason, Þór (57.), Guðmundur Valur Sigurðsson, Þór (78.), Siguróli Kristjánsson, Þór (87.) Rautt spjald: Erlingur Kristjánsson, KA (89). Áhorfendur: 1.560. Dómari: Gísli Guðmundsson, 4. Lið KA: Haukur Bragason 2, Gauti Laxdal 2, Amar Freyr Jónsson 2, Erl- ingur Kristjánsson 4, Þorvaldur Örlygs- son 2, Bjami Jónsson 2, Hinrik Þórhallsson 1, Tryggvi Gunnarsson 3, Steingrfmur Birgisson 3, Friðfinnur Hermannsson 2, Jón Sveinsson 2 (Ámi Freysteinsson vm. á 77. mfn. lék of stutt). Samtals: 25. Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson 2, Guðmundur Valur Sigurðsson 4, Sigu- róli Kristjánsson 3, Nói Bjömsson 2, Kristján Kristjánsson 2, Einar Arason 2, Halldór Áskelsson 4, Júlfus Tryggva- son 2, Sveinn Pálsson 2, Jónas Róberts- son 3, Valdimar Pálsson 2. Samtals: 28. sem skoraði af stuttu færi. Vel að markinu staðið hjá KA-mönnum en Þórsvörnin var sofandi. Það var Guðmundur Valur Sig- urðsson, sem lék mjög vel, sem fiskaði vítaspyrnuna sem Jónas jafnaði úr. Hann renndi sér glæsi- lega í gegnum KA-vörnina, vippaði boltanum í hönd eins varnarmann- anna og Gísli gat ekki annað en dæmt víti. Jónas sendi Hauk í rangt horn og jafnaöi. Mátt hefði telja að markið kæmi á slæmum tíma fyrir KA-menn, rétt fyrir hlé, en það voru þó þeir sem voru mun betri fyrsta stundar- fjórðung seinni hálfleiks. Eftir það jafnaðist leikurinn. Það var svo úr skyndisókn sem Kristján gerði út um leikinn. Jónas Róbertsson gaf laglega fram völlinn, Kristján var á auðum sjó en er Arnar Freyr sótti að honum inni í teig skoraði Kristj- án yfir Hauk sem kom út úr markinu. Þetta var skemmtilegur leikur á að horfa lengst af. Bæði lið lögðu allt upp úr því að sigra. KA fékk opnari færi, Þorvaldur, Tryggvi og Árni Freysteinsson fengu allir dauðafæri sem ekki nýttust, en Þórsarar spiluðu betur úti á velli og sigur þeirra verður að teljast sanngjarn. „Þetta var týpiskur KA og Þórs leikur — knattspyrnan er ekki endi- lega í hávegum höfð heldur leikið meira af kappi en forsjá. En KA er með mjög gott lið. Hörður Helgason er búinn að móta verð- ugan andstæðing og ég er ekki hissa á að liðið skuli vera búið að fá svo mörg stig í sumar," sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Þórs á eftir. Hörður var ánægður með leikinn en ekki úrslitin: „Bæöi lið reyndu að spila góðan fótbolta. Þórsarar spiluðu þó óþarflega fast — en bara eins og dómarinn leyfði þeim. Við fengum tækifæri sem ekki nýttust og því töpuðum viö,“ sagði hann. Gísli dómari stoppaði leikinn allt of mikið þannig að brotlega liðið hagnaðist á dómunum. Erling varð hann að reka út af í lokin — hann stöðvaði sendingu inn fyrir á Kristj- án með höndunum. ÞAÐ voru örþreyttir og vonsvikn- ir Víðismenn sem yfirgáfu leik- völlinn í Garðinum í gærkvöldi en Skagamenn máttu hrósa happi yfir að fara með stig af Suður- nesjum. Víðir var betra liðið sérstaklega í fyrri hálfleik en þá sleppti siakur dómari leiksins augljósri vítaspyrnu. Grétar Ein- arsson, sóknarmaður Víðis, komst einn inn fyrir vörn Skaga- manna en markvörður þeirra, sem kom út á móti, braut á Grét- ari innan vítateigsins en dómar- inn færði aukaspyrnuna út fyrir. „Við vissum að Víðismenn væru harðir og fljótir. Þeir gáfu okkur aldrei frið og okkur tókst ekki að spila eins og við eigum að okkur," sagði Guðjón Þórðarson þjáfari Skagamanna eftir leikinn. Víðismenn sóttu mikið í þessum leik en þeir voru ekki duglegir við að skapa sér færi. Þeir voru hins vegar lagnir við að leggja rang- stæðugildru fyrir sóknarmenn Skagans og sem dæmi má nefna að einu sinni voru sex Skagamenn rangstæðir. Þrátt fyrir að Víðsimenn sæktu mun meira og væru meira með boltann gekk þeim bölvanlega að skapa sér marktækifæri. Sama sagan endurtók sig í síðari hálfleik. Heimamenn sóttu en sjaldan skapaðist veruleg hætta við Skagamarkið. Um miðj- an síðari hálfleik var eins og kraftur Víðismanna fjaraði út og Skaga- menn komu meira inn í leikinn. Þeir fengu nokkur færi undir lokin en ekkert varð úr því að þeir skor- uðu. -B.B. Víðir-IA 0 : 0 Garðsvöllur 1. deild, föstudaginn 3. júlí 1987. Gult spjald: Sigurður Halldórsson, ÍA (61.), Bjöm Vilhelmsson, Víði (79.), Guðjón Guðmundsson, Víði (86.) Áhorfendur: 550. Dómari: Magnús Theódórsson 5. Lið Viðis: Gísli Heiðarsson 2, Klemenz Sæmundsson 2, (Björgvin Björgvinsson vm. á 86. mín. lék of stutt), Bjöm Vil- helmsson 3, Vilhjálmur Einarsson 3, Svanur Þorsteinsson 2, Daníel Einars- son 3, Guðjón Guðmundsson 2, Vilberg Þorvaldsson 2, Grétar Einarsson 3, Gísli Eyjólfsson 2, Sævar Leifsson 2. Samtals: 26 Uð ÍA: Birkir Kristinsson 3, Jóhannes Guðlaugsson 2, Sigurður B. Jónsson 2, Sigurður Lárusson 3, Sigurður Halldórs- son 3, Sveinbjöm Hákonarson 2, Ólafur Þórðarson 2, Haraldur Ingólfsson 1, (Valgeir Barðason vm. á 76. mín. lék of stutt), Guðbjöm Tryggvason 2, Þrándur Sigurðsson 1, Aðalsteinn Víglundsson 2. Samtals: 23 Lendl og Cash í úrslitum IVAN LENDL frá Tékkóslóvakfu og Ástralíumaðurinn Pat Cash leika til úrslita f einliðaleik karla á Wimbiedon tennismótinu á morgun. Viðureign þeirra verður síðasti leikur mótsins. Lendl vann Stefan Edberg frá Svíðþjóð í undanúrslitum í gær, 3:6, 6:4, 7:6 og 6:4, í góðum og spennandi leik og komst þar með í annað sinn í úrslitaleikinn á Wimbledon. Hann tapaði í fyrra fyrir Boris Becker. Lendl er í efsta sæti á heimslistanum yfir tennis- leikara og á morgun mætir hann Ástralanum Pat Cash, sem er númer ellefu á sama lista. Cash vann Jimmy Connors frá Bandaríkjunum í gær en hann er númer sjö á listanum. Fyrstu tvö settin vann hann 6:4 og það þriðja 6:1. Menn höfðu beðið með eftir- væntingu eftir þessum leik æsku og „elli“ því Cash er aðeins 22 ára en Connors er hins vegar að kom- ast á efri ár, sem tennisleikari, er 34 ára gamall. Æskan sigraði auð- veldlega og var leikurinn lítið spennandi. Þess má til gamans geta að Cash er annar Ástralíumaðurinn sem kemst í úrslit á Wimbledon. Rosewall lék til úrslita árið 1974 og tapaði — fyrir Connors! Metgod til Tottenham Frá Bob Hennessy á Englendl. Á mánudaginn mun hollenski landsliðsmaðurinn Johnny Metgod undirrita samning við Tottenham. Metgod hafnaði sfðbúnu tilboði frá Brian Clough framkvæmdastjóra Nottingham Forest sem vildi ekki missa hann frá félaginu. Hann hafnaði einnig tilboði frá Feyenoord f Hollandi. Tottenham mun greiða 350.000 pund fyrir kappann. Huddersfield keypti í gær mið- herjann Mark Barham frá Norwich fyrir 100.000 pund en Barham er 25 ára og hefur leikið einn lands- leik fyrir England. Billy McNeill, sem nýverið var ráðinn stjóri hjá Celtic í Skotlandi keypti sinn fyrsta leikmann í gær. Hann greiddi Motherwell 325.000 pund fyrir hinn 21 árs gamla Andy Walker. McNeill hyggst kaupa fleiri leikmenn og hann vonast til að geta gengið frá samningi við Chris Morris hjá Sheffield Wednesday á mánudaginn. Markvörðurinn Jim Stannard var í gær seldur fyrir 50.000 pund frá South End til Fulham. Lélegt á Skaganum ÍA og KA léku á Akranesi f 1. deild kvenna f gærkvöldi og lauk leiknum með 1:0 sigri ÍA. Leikurinn var slakur. KA- dömur voru þó grimmari en tókst ekki að skapa sér mark- tækifæri. Heimamenn fengu nokkur og úr einu slíku skoraði Vanda Sigugeirsdóttir eina mark leiksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.