Morgunblaðið - 04.07.1987, Qupperneq 56
Framtíð
ER VIÐ SKEIFUNA
aaaa
$ SUZUKI
-*JL-
Feröaslysa
" trygging
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Morgunblaðið/Þorkell
Hlaðinn steinveggnr verður á lóðamörkum Þjóðarbókhlöðunnar og er vinna hafin við verkið af
fullum krafti.
Síki umhverfis Þjóðarbókhlöðu
tumar á austur- og vesturhlið
málaðir í þessum áfanga, en
reiknað er með að þessum verk-
þáttum verði lokið í október.
Gróðursetning dregst þó fram á
vorið 1988. Aætlað er að húsið
verði tilbúið til notkunar árið 1990
þegar frágangi innan húss er lok-
ið. Þorsteinn Sveinsson er aðal-
verktaki þessa áfanga, Mannfreð
Vilhjálmsson arkitekt teiknaði
húsið og Reynir Vilhjálmsson
landslagsarkitekt hannaði lóðina.
UM 45 milljónum króna verður
veitt tU framkvæmda við Þjóð-
arbókhlöðuna við Melatorg í
Reykjavík í ár og verður meðal
annars gengið frá inngangi
hússins, síki steypt umhverfis
húsið og gengið frá lóð.
Framkvæmdir eru þegar hafn-
ar við uppsteypu á inngangi
hússins. Anddyrið verður að sunn-
anverðu og þaðan gengið upp
bogadregnar tröppur upp á aðra
hæð. Glerþak verður yfir tröppun-
um og brúnni og yfir 7 metra
breitt síki umhverfis húsið. 1 and-
dyri og undir brúnni verða
gosbrunnar.
A lóðarmörkum verður hlaðinn
gijótveggur með hallandi grasfleti
að göngustíg utan við síkið. Við
austurhlið hússins er gert ráð fyr-
ir gróðurreitum með bekkjum,
runnum og tijám.
Að sögn Finnboga Guðmunds-
sonar landsbókavarðar verða
Fiskþjófnaður á
markaðnum í Hull
Ekki vitað í hve miklum mæli hann
hefur bitnað á íslenzkum útflytjendum
UPPVÍST hefur orðið um fisk-
þjófnað á fiskmarkaðnum í
Hull, en fiskur frá íslandi er
verulegur hluti þess fisks, sem
þar er boðinn upp. „Viking
Radio“ í Hull skýrði frá þessu
í fréttum á fimmtudag síðastlið-
inn og sagði, að 32 menn hefðu
verið handteknir vegna þess og
einn þeirra væri enn í fangelsi,
hinum hefði verið sleppt. Út-
varpið sagði að verðmæti
fisksins, sem reynt hefði verið
að stela, væri þúsundir sterl-
ingspunda.
íslenzku umboðsfyrirtækin í
Hull og Grimsby hafa þann hátt-
inn á til að hamla gegn fiskþjófn-
aði, að menn frá þeim fylgjast
ætíð með löndun. Af og til er svo
gripið til þess ráðs að fá aðstoð
lögreglu við eftirlitið. Síðastliðinn
mánudag var svo gert og fann
lögreglan talsvert af fiski í bílum
þeirra, sem við löndunina unnu.
Mál þetta er í frekari rannsókn
og samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins verða viðkomandi
menn allir kærðir fyrir þjófnað.
Ekki er ljóst hvort þama var um
einangrað dæmi að ræða, eða
hvort þjófnaður með einhveijum
hætti hefur átt sér stað í langan
tíma. Ekki er heldur ljóst hvort
þarna var um að ræða íslenzkan
fisk, en á þessum tíma var bæði
landað íslenzkum fiski og físki af
heimabátum.
Af og til hefur íslenzkum fisk-
seljendum þótt að fiskur vigti verr
úr skipum þeirra við löndun er-
lendis en heima, þrátt fyrir að ráð
sé gert fyrir rýrnun vegna vökva-
taps úr fískinum á leið á markað.
Fyrir nokkmm misserum varð
uppvís talsverður fískþjófnaður af
fískmarkaðnum í Bremerhaven og
var að minnsta kosti einn maður
dæmdur vegna þess.
110 milljónir í kaupleiguíbúðir á 3 árum:
Ráðgert að um 200 kaup-
leiguíbúðir verði byggðar
RÍKISSTJÓRNIN mun á næstu
þremur árum lána allt að 110
milljónir, með 3,5% vöxtum til
20 ára, til sveitarfélaga og ann-
arra aðila, sem áhuga hafa á að
byggja eða kaupa kaupleigu-
íbúðir. Þessi lánveiting skal not-
uð sem 15% framlag sveitarfé-
laganna, en 85% íbúðarverðs eiga
að lánast úr Byggingarsjóði
verkamanna á sömu kjörum og
þar gilda.
Ofangreint er í grófum dráttum
samkomulag það, sem tókst með
formönnum Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks í
fyrrakvöld í kaupleiguíbúðamálinu,
sem styrr hafði staðið um um all-
nokkra hrið á milli Alþýðuflokks
annars vegar og Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks hins vegar.
í samkomulaginu er fy'öldi íbúð-
anna ekki takmarkaður, en hann
mun takmarkast af því fjátmagni,
-sem veitt verður í haust inn í félags-
lega kerfíð og ræðst þá af því
hversu miklu ^ármagni verður var-
ið í verkamannabústaði og hversu
miklu í kaupleiguíbúðir. Þeim, sem
staðið hafa í útreikningum vegna
þessa máls, telst til að þessi fjárveit-
ing muni nægja til þess að um 200
íbúðir verði byggðar sem kaupleigu-
íbúðir á næstu þremur árum, en
þingsályktunartillaga Jóhönnu Sig-
urðardóttur, Alþýðuflokki, frá því
sl. vetur gerði upphaflega ráð fyrir
að 600 slíkar íbúðir yrðu byggðar.
Fundahöld hjá þingmönnum
flokkanna þriggja og málefna-
nefndinni stóðu í allan gærdag og
í gærkvöldi voru þingflokksfundir
haldnir á nýjan leik. I dag er búist
við áframhaldandi vinnu málefna-
nefndarinnar, sem vinnur að texta-
frágangi á málefnasamningi,
þannig að hægt verði að leggja
samninginn fyrir fyrirhugaða fundi
flokksráðs Sjálfstæðisflokksins,
flokksstjórnar Alþýðuflokksins og
miðstjómar Framsóknarflokksins,
sem heflast kl. 16 á morgun.
Náhvítir
sólarlanda-
farar
„MÉR hefur heyrst á sólar-
landaf arþegunum, sem
hafa verið að koma til lands-
ins síðustu daga, að veðrið
við Miðjarðarhafið hafi far-
ið batnandi og hitinn sé þar
nú mjög mikill, allt upp i
35 stig. Hinsvegar létu þeir
farþegar illa af veðrinu,
sem fóru til sólarlanda
framan af sumri enda komu
sumir þeirra náhvítir
heim,“ sagði tollvörður á
KeflavíkurflugveUi í sam-
taU við Morgunblaðið í gær.
Margrét Einarsdóttir, að-
stoðarvaktstjóri hjá Flugleið-
um, sagði að henni sýndust
bömin sem hefðu verið í
Reykjavík í sumar, mun brúnni
í mörgum tilvikum en þau böm,
sem væru að koma frá Norður-
löndum til dæmis enda hefði
veður þar ekki verið sérlega
gott undanfarnar vikur og ekki
heldur í Hollandi og Þýska-
landi. Þó virtust farþegar nú
mun ánægðari en þeir vom
framan af sumri.
Gufusprenging
við borholu Salt-
verskmiðjunnar hf.
Rör sprakk og slasaði starfsmann
Grindavlk.
MIKILL yfirþrýstingur myn-
daðist í röri þegar verið var
að hleypa gufu á hljóðdeyfi
eldri holunnar hjá Saltverk-
smiðjunni hf. á Reykjanesi í
gær með þeim afleiðingum að
rörið sprakk og slóst í starfs-
mann sem slasaðist.
Tveir starfsmenn saltverk-
smiðjunnar voru að hleypa gufu
á hljóðdeyfínn á holu númer 8,
eldri holu fyrirtækisins, til að
halda henni heitri þar sem búið
var að loka henni. Að sögn Magn-
úsar Magnússonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, virðist
útblástursleiðin, sem er 40 senti-
metra breið með 2ja tommu
endum, hafa stíflast skyndilega
enda kemur oft möl og gijót úr
borholunni.
„Meiri þrýstingur hefur orðið í
kerfínu með þeim afleiðingum að
rörið opnaðist og losnaði af undir-
stöðum og slóst í annan starfs-
manninn sem slasaðist illa á
vinstra fæti. Mesta mildi var að
Morgunblaðið/Krístinn Benedikt«son
Rörið sprakk vegna yfirþrýstings og slóst í starfsmann. Myndin
var tekin skömmu eftir slysið.
ekki fór verr þar sem hér er um
ógnarkraft að ræða,“ sagði Magn-
ús og bætti við að þetta hefði
verið algert slys, því allur út-
búnaður er mjög traustur og
starfsmennirnir sýndu fyllstu að-
gæslu.
„Við vorum nýbúnir að halda
skyndihjálpamámskeið fyrir
starfsfólkið og sá slasaði fékk
bestu aðhlynningu sem völ var á
áður en lögregla og sjúkrabíll
komu á vettvang,“ sagði Magnús
að lokum.