Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
MiniSfer
h£'o
..........
' yours.
Mmister
SWrnarrtdidHerman«on
£lR7k’^
UM 80 þúsund mótmælakort hafa borist forsætisráðherraem-
bættinu frá því í febrúar sl. og eru þau enn að berast. Hér er
um að ræða mótmæli frá bandarískum hvalfriðunarsinnum,
sem vilja mótmæla hvalveiðum okkar íslendinga og segir í
texta kortanna að hvalveiðar í vísindaskyni séu ekkert annað
en hreint yfirskin. Magnús Torfi Ólafsson, blaðafúlltrúi ríkis-
stjórnarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að kortin
væru enn að berast.
Magnús Torfi sagði að talsvert
hefði borist af slíkum mótmæla-
kortum frá Bandaríkjunum í
forsætisráðherratíð dr. Gunnars
heitins Thoroddsen, en það hefði
ekkert verið í líkingu við það
magn sem nú hefði borist. Aætl-
aði Magnús Torfi að um fimmt-
ungur þess magns sem nú hefði
borist hefði borist þá.
„Þessi 80 þúsund kort svara til
þess, að 80 Islendingar tækju sig
til og skrifuðu Reagan Banda-
ríkjaforseta út af einhveiju sem
þeir væru óánægðir með í hans
fari eða hans stefnu," sagði Magn-
ús Torfi. Hann sagði það óráðið
hvað gert yrði við þessi kort, en
það væri ríkisstjómarinnar að
ákveða það. Kortin yrðu enn um
sinn geymd í pappakössum í
stjómarráðinu.
Kortin eru öll með sama texta,
en ýmist undirrituð af sendanda
Hvalveiðar íslendinga:
Attatíu þúsund mót-
mælakort haía borist
VEÐURHORFUR I DAG, 17.07.87
YFIRLIT á hádegi f gær: Skammt suðaustur af landir.u er 998
millibara djúp lægð sem þokast norðvestur. Við norðanverðan
Noreg er 1026 millibara hæð.
SPÁ: Útlit er fyrir hægviðri eða suðaustan golu á landinu. Dálítil
súld verður við austurströndina, annars þurrt en víðast skýjaö. Hiti
á bilinu 10 til 16 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Hæg breytileg átt. Hætt við
skúrum sunnanlands en annars bjart veður. Hiti á bilinu 10 til 16 stig.
TAKN:
((^)’ Heiðskírt
Lettskyjað
Halfskyjað
Skyjað
Alskyjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•j 0 Hftastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V H
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 12 15 veAur skýjaö alskýjað
Bergen 21 skýjaö
Helsinki 14 skýjað
Jan Mayen 7 þokumóða
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 11 skýjað
Nuuk 9 skýjað
Osló 22 skýjað
Stokkhólmur 21 hálfskýjað
Þórshöfn 11 súld
Algarve 24 skýjað
Amsterdam 25 mistur
Aþena 34 heiðskfrt
Barcelona 27 þokumóða
Berltn 27 léttskýjað
Chicago 14 helðskfrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 28 skýjað
Glaskow 16 skýjað
Hamborg 27 léttskýjað
Las Palmas 26 iéttskýjað
London 17 rigning
Los Angeles 17 þokumóða
Lúxemborg 24 skúr
Madrfd 26 alskýjað
Malaga 33 léttskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Miami vantar
Montreal 16 skýjað
NewVork 20 skýjað
Parfs 16 rlgning
Róm vantar
Vín 28 skýjað
Washington 20 skýjað
Winnipeg 18 léttskýjað
Þórshöfii:
Margeir í 2. sæti
MARGEIR Pétursson vann í gær Schneider frá Svíþjóð og Jón L.
Árnason vann Wedberg frá Svíþjóð í fímmtu umferð Skákþings
Norðurlanda, sem haldið er í Þórshöfn í Færeyjum. Svíarnir eru
báðir alþjóðlegir meistarar. Helgi Ólafsson tapaði fyrir Hansen, stór-
meistara frá Danmörku. Að fímm umferðum loknum er Morteinsen
frá Danmörku efstur í landsliðsflokki með 4 vinninga. t öðru sæti
eru þeir Margeir og Schneider með 3 ‘/2 vinning.
Tisdal frá Noregi er í þriðja sæti
í landsliðsflokki með 3 vinninga og
í flórða sæti ásamt fleirum er Helgi
Ólafsson með 2 V2 vinning og Jón
L. Ámason er í fimmta sæti ásamt
fleirum með 2 vinninga.
í meistaraflokki eru Arnar Þor-
steinsson og Tómas Bjömsson í
efsta sæti ásamt fleirum með 2 V*
vinning af 3 mögulegum. Róbert
Harðarson, Jón Ámi Halldórsson
og Bogi Pálsson em með 2 vinn-
inga. Sigurður Daði Sigfússon er
með 1 vinning, Páll L. Jónsson er
með V2 vinning 0g Magnús Ömólfs-
son er með engan vinning.
í almennum flokki A er Sæberg
Sigurðsson einn efstur með 3 vinn-
inga eftir 3 umferðir. Ægir Páll
Friðbertsson er með 2 V2 vinning,
Páll A. Jónsson og Magnús Sigur-
jónsson emm með 2 vinninga.
Sigurður Ingason er með 1 vinning.
I almennum flokki B og ungl-
ingaflokki er Gunnar Svavarsson
með 2 V2 vinning, Guðni Harðarson
með 1 V2 vinning og Kristjón Kris-
tjónsson með 1 vinning.
í efsta sæti í meistaraflokki með
2 V2 vinning er Erik Lundin frá
Svíþjóð en hann er 83 ára. Með
þátttöku sinni er Erik að halda upp
á að 50 ár em liðin síðan hann
varð Norðurlandameistari, árið
1937 eftir einvígi við Erik Andersen
frá Danmörku.
ÞorkellL.
Ingvars-
son látinn
ÞORKELL L. Ingvarsson, fyrr-
um stórkaupmaður, lést í
Reykjavík í gær, 81 árs að aldri.
Þorkell var borinn og bamfæddur
Reykvíkingur og starfaði í
Reykjavík alla sína tíð, lengst af
forstöðumaður heildverslunarinnar
A. J. Bertelsen & Co hf.
Eiginkona Þorkels var Sigríður
Svava Ámadóttir. Hún lést 1963.
Einkabam þeirra er Ámi, fulltrtúi
hjá Tollstjóraembættinu.
Knattspyma var helsta áhuga-
Þorkell L. Ingvarsson
mál Þorkels og sat hann m.a. í
stjóm Knattspymufélagsins Vals
og var um skejð stjómarformaður.
I DAGkl. 12.00:
Morgunblaðið/Einar Falur
Myndin á mótmælakortinu sýnir
Hval 8 að hvalveiðum og fyrir-
sögnin er: Hættið slátruninni.
ríkis-
Magnús Torfí
Ólafsson, blaðafúlltrúi
stjórnarinnar, setur vænan
bunka kortanna á bréfavog, en
með vigtun kortanna gat hann
slegið á það hversu mörg kort
hefðu borist.
með hans eigin rithönd, eða á þau
em límdir miðar með nafni og
heimilisfangi sendanda. Texti
kortanna er þessi: „Kæri forsætis-
ráðherra. Ég lýsi yfir áhyggjum
mínum vegna þess að ísland held-
ur hvaladrápi sínu áfram. Hvala-
drápið og það yfirskin að
veiðamar fari fram í vísinda-
skyni, er vanvirðing við anda
veiðibannsins og gróf misnotkun
á hugtakinu vísindi. Hvalveiðar
íslendinga em stórskaðlegar al-
þjóðlegu átaki til vemdar þessum
spendýmm hafsins og landi þínu
til skammar."
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)