Morgunblaðið - 17.07.1987, Blaðsíða 48
....— ..■■■■—
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
ffttllttWflfetft
MBRunnBái
AfÖRyGGISAST/FDUM
Nýjungar
í 70 ár
FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Flak TF-TÚN við Markarfljót í gær. Vélin var að flytja áburð á afréttir en hlekktist á í flugtaki. Eins og sjá má á myndinni hafa
áburðargeymslur vélarinnar splundrast er vélin rann eftir sandinum og áburðurinn flætt út.
Fljótshlíð:
Flugmaður slasast í
brotlendingu TF-TÚN
Enn ekki vitað hvað olli slysinu
PIPER-VÉL Landgræðslu
rikisins, TF-TÚN, sem var að
vinna að áburðardreifingu á
afréttum, hlekktist á í flugtaki
við Markarfljót um hálftvöleyt-
ið I gær og brotlenti á árbakk-
anum. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sótti flugmanninn á
slysstað og flutti hann á Borg-
arspítalann. Hann er töluvert
meiddur, aðallega á baki, en
ekki f lífshættu. Flugvélin er
að öllum líkindum ónýt.
Flugvélin var í flugtaki en náði
ekki að komast yfír vamargarð
við Markarfljót, sem er við enda
flugbrautarinnar, rakst í garðinn
og brotlenti á árbakkanum hinum
megin við fljótið.
Starfsmenn Loftferðaeftirlits-
ins könnuðu í gær bæði flugvél
og vettvang en ekkert liggur fyr-
ir ennþá um hvað hafí valdið
slysinu. Flakið var flutt til
Reykjavíkur í nótt og mun Loft-
ferðaeftirlitið kanna mótor flug-
vélarinnar í dag.
Sjá biaðsíðu 18.
Puerto Rico:
Héðinn enn
á sigur-
brautinni
HÉÐINN Steingrímsson vann
enn eina skák á skákmótinu í
Puerto Rico í gær. Hann er efst-
ur á mótinu með sex og hálfan
vinning eftir sjö umferðir.
Þeir sem næst Héðni koma að
stigum eru skákmenn frá ísrael og
Guatemala. ísraelsmaðurinn er nú
með fímm og hálfan vinning en sá
frá Guatemala, sem Héðinn tefidi
við í gær, með fjóra og hálfan vinn-
ing.
Hassolíusmyglið:
Tveir Islend-
ingar eru
ákærðir fyr-
ir hlutdeild
RÍKISSAKSÓKNARI hefur sent
mál mannanna tveggja, sem
handteknir voru með talsvert
magn af hassolíu í fórum sínum,
til sakadóms í ávana- og fíkni-
efnamálum.
Mennimir tveir eru ákærðir fyrir
hlutdeild í broti Englendingsins,
sem nýlega var dæmdur í 16 mán-
aða fangelsi fyrir flutning á efninu
til landsins.
Ákæran barst sakadómi í gær
og verður mál mannanna tveggja
tekið fyrir við fyrsta tækifæri að
sögn Ásgeirs Friðjónssonar saka-
dómara. Ekki er unnt að greina
nánar frá einstökum ákæruatriðum
að sinni, þar sem ákæran hefur enn
ekki verið birt mönnunum.
Hverfur Kolbeins-
ey á næstu öld?
KOLBEINSEY hverfúr um miðja
næstu öld ef ekkert verður að
gert til að hefta niðurbrot henn-
ar. Einkum eru það tvö sjónarmið
sem ráða því að mikilvægt er að
Kolbeinsey haldist ofan sjávar.
Þau eru öryggissjónarmið físki-
skipa og fískveiði- og efnahags-
lögsaga íslendinga.
í kjölfar athugana sérfræðinga á
eynni sótti Vita- og hafnarmála-
stofnun um fé til frekari rannsókna
á fjárlögum 1986, en var synjað
um fjárveitingu. Stofnunin hefur
sótt um tveggja og hálfrar milljóna
króna fjárveitingu á næsta ári, og
fyrir það fjármagn er fyrirhugað
að setja upp sjómerki og radarsvara
á eynni auk þess sem gera þarf
frekari dýptarrannsóknir við eyna
svo hægt sé að gera tillögur um
hvemig hefta beri niðurbrot hennar.
Sjá nánar á miðopnu.
Sakadómur Reykjavíkur:
Hallvarður vanhæfur til
að fjalla um Hafskipsmálið
- Ástæðan seta bróður hans í bankaráði Útvegsbankans
- Kærum til Hæstaréttar, segir vararíkissaksóknari
HALLVARÐUR Einvarðsson
ríkissaksóknari var í gær í saka-
dómi úrskurðaður vanhæfúr til
þess að fara með mál ákæru-
valdsins gegn firamkvæmdasfjór-
um Hafekips, vegna skyldleikans
við Jóhann S. Einvarðsson, fyrr-
um varaformann bankaráðs
Útvegsbanka íslands. Haraldur
Henrysson sakadómari vísaði
málinu frá dómi að kröfú veij-
enda.
Ástæða þess að Haraldur vísar
málinu frá dómi varðar ákæruna
gegn fjórmenningunum. Þar eru
þeir saksóttir fyrir að hafa staðið
að gerð villandi og rangra gagna
varðandi rekstur Hafskips í því
skyni að skapa félaginu áfram-
haldandi lánstraust hjá bankanum.
Þrír hinna ákærðu eru saksóttir
fyrir fjársvik, með því að hafa stað-
ið að því afla félaginu aukinna lána
eða ábyrgða hjá bankanum og með
því að vekja hjá bankanum rangar
eða villandi hugmyndir um raun-
verulegan hag félagsins og framtíð-
arhorfur. Þessi ákæruatriði telur
dómarinn varða bankaráð miklu;
eftirlitsskylda ráðsins sé það rík,
auk þess sem málefni Hafskips
hafí verið mjög til umræðu og um-
fjöllunar á fundum ráðsins. Með
hliðsjón af þessu lítur dómarinn svo
á að skyldleiki Hallvarðar við vara-
formann bankaráðs geri hann
vaiihæfan til að fjalla um ofan-
greindar sakir.
Sakadómarinn lætur sér ekki
nægja að taka afstöðu til þessa
atriðis, heldur tekur hann einnig
afstöðu til annarra málsástæðna.
Lán Alberts til Hallvarðar telur
hann ekki valda vanhæfí, né fyrri
störf Hallvarðar sem rannsóknar-
lögreglustjóri.
Bragi Steinarsson vararíkissak-
sóknari lýsti því yfír við uppsögu
úrskurðarins, að hann yrði kærður
til Hæstaréttar.
Þorsteinn Geirsson ráðuneytis-
stjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ráðuneytið myndi bíða
úrskurðar Hæstaréttar áður en af-
staða til skipan sérstaks saksóknara
yrði tekin.
Ragnar Kjartansson, fyrrum
stjómarformaður Hafskips, sagðist
vænta opinberrar rannsóknar innan
skamms á rannsóknaraðgerðum í
Hafskipsmálinu. Ekki náðist í Hall-
varð Einvarðsson í gær.
Sjá bls. 26-27.