Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 48
....— ..■■■■— Fróðleikur og skemmtun fyrirháa semlága! ffttllttWflfetft MBRunnBái AfÖRyGGISAST/FDUM Nýjungar í 70 ár FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 VERÐ I LAUSASOLU 50 KR. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Flak TF-TÚN við Markarfljót í gær. Vélin var að flytja áburð á afréttir en hlekktist á í flugtaki. Eins og sjá má á myndinni hafa áburðargeymslur vélarinnar splundrast er vélin rann eftir sandinum og áburðurinn flætt út. Fljótshlíð: Flugmaður slasast í brotlendingu TF-TÚN Enn ekki vitað hvað olli slysinu PIPER-VÉL Landgræðslu rikisins, TF-TÚN, sem var að vinna að áburðardreifingu á afréttum, hlekktist á í flugtaki við Markarfljót um hálftvöleyt- ið I gær og brotlenti á árbakk- anum. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar sótti flugmanninn á slysstað og flutti hann á Borg- arspítalann. Hann er töluvert meiddur, aðallega á baki, en ekki f lífshættu. Flugvélin er að öllum líkindum ónýt. Flugvélin var í flugtaki en náði ekki að komast yfír vamargarð við Markarfljót, sem er við enda flugbrautarinnar, rakst í garðinn og brotlenti á árbakkanum hinum megin við fljótið. Starfsmenn Loftferðaeftirlits- ins könnuðu í gær bæði flugvél og vettvang en ekkert liggur fyr- ir ennþá um hvað hafí valdið slysinu. Flakið var flutt til Reykjavíkur í nótt og mun Loft- ferðaeftirlitið kanna mótor flug- vélarinnar í dag. Sjá biaðsíðu 18. Puerto Rico: Héðinn enn á sigur- brautinni HÉÐINN Steingrímsson vann enn eina skák á skákmótinu í Puerto Rico í gær. Hann er efst- ur á mótinu með sex og hálfan vinning eftir sjö umferðir. Þeir sem næst Héðni koma að stigum eru skákmenn frá ísrael og Guatemala. ísraelsmaðurinn er nú með fímm og hálfan vinning en sá frá Guatemala, sem Héðinn tefidi við í gær, með fjóra og hálfan vinn- ing. Hassolíusmyglið: Tveir Islend- ingar eru ákærðir fyr- ir hlutdeild RÍKISSAKSÓKNARI hefur sent mál mannanna tveggja, sem handteknir voru með talsvert magn af hassolíu í fórum sínum, til sakadóms í ávana- og fíkni- efnamálum. Mennimir tveir eru ákærðir fyrir hlutdeild í broti Englendingsins, sem nýlega var dæmdur í 16 mán- aða fangelsi fyrir flutning á efninu til landsins. Ákæran barst sakadómi í gær og verður mál mannanna tveggja tekið fyrir við fyrsta tækifæri að sögn Ásgeirs Friðjónssonar saka- dómara. Ekki er unnt að greina nánar frá einstökum ákæruatriðum að sinni, þar sem ákæran hefur enn ekki verið birt mönnunum. Hverfur Kolbeins- ey á næstu öld? KOLBEINSEY hverfúr um miðja næstu öld ef ekkert verður að gert til að hefta niðurbrot henn- ar. Einkum eru það tvö sjónarmið sem ráða því að mikilvægt er að Kolbeinsey haldist ofan sjávar. Þau eru öryggissjónarmið físki- skipa og fískveiði- og efnahags- lögsaga íslendinga. í kjölfar athugana sérfræðinga á eynni sótti Vita- og hafnarmála- stofnun um fé til frekari rannsókna á fjárlögum 1986, en var synjað um fjárveitingu. Stofnunin hefur sótt um tveggja og hálfrar milljóna króna fjárveitingu á næsta ári, og fyrir það fjármagn er fyrirhugað að setja upp sjómerki og radarsvara á eynni auk þess sem gera þarf frekari dýptarrannsóknir við eyna svo hægt sé að gera tillögur um hvemig hefta beri niðurbrot hennar. Sjá nánar á miðopnu. Sakadómur Reykjavíkur: Hallvarður vanhæfur til að fjalla um Hafskipsmálið - Ástæðan seta bróður hans í bankaráði Útvegsbankans - Kærum til Hæstaréttar, segir vararíkissaksóknari HALLVARÐUR Einvarðsson ríkissaksóknari var í gær í saka- dómi úrskurðaður vanhæfúr til þess að fara með mál ákæru- valdsins gegn firamkvæmdasfjór- um Hafekips, vegna skyldleikans við Jóhann S. Einvarðsson, fyrr- um varaformann bankaráðs Útvegsbanka íslands. Haraldur Henrysson sakadómari vísaði málinu frá dómi að kröfú veij- enda. Ástæða þess að Haraldur vísar málinu frá dómi varðar ákæruna gegn fjórmenningunum. Þar eru þeir saksóttir fyrir að hafa staðið að gerð villandi og rangra gagna varðandi rekstur Hafskips í því skyni að skapa félaginu áfram- haldandi lánstraust hjá bankanum. Þrír hinna ákærðu eru saksóttir fyrir fjársvik, með því að hafa stað- ið að því afla félaginu aukinna lána eða ábyrgða hjá bankanum og með því að vekja hjá bankanum rangar eða villandi hugmyndir um raun- verulegan hag félagsins og framtíð- arhorfur. Þessi ákæruatriði telur dómarinn varða bankaráð miklu; eftirlitsskylda ráðsins sé það rík, auk þess sem málefni Hafskips hafí verið mjög til umræðu og um- fjöllunar á fundum ráðsins. Með hliðsjón af þessu lítur dómarinn svo á að skyldleiki Hallvarðar við vara- formann bankaráðs geri hann vaiihæfan til að fjalla um ofan- greindar sakir. Sakadómarinn lætur sér ekki nægja að taka afstöðu til þessa atriðis, heldur tekur hann einnig afstöðu til annarra málsástæðna. Lán Alberts til Hallvarðar telur hann ekki valda vanhæfí, né fyrri störf Hallvarðar sem rannsóknar- lögreglustjóri. Bragi Steinarsson vararíkissak- sóknari lýsti því yfír við uppsögu úrskurðarins, að hann yrði kærður til Hæstaréttar. Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri sagði í samtali við Morgun- blaðið að ráðuneytið myndi bíða úrskurðar Hæstaréttar áður en af- staða til skipan sérstaks saksóknara yrði tekin. Ragnar Kjartansson, fyrrum stjómarformaður Hafskips, sagðist vænta opinberrar rannsóknar innan skamms á rannsóknaraðgerðum í Hafskipsmálinu. Ekki náðist í Hall- varð Einvarðsson í gær. Sjá bls. 26-27.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.