Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
Bandarísk þing-
mannanefhd íheimsókn
Bandarísk þingmannanefhd, stofiiun Bandaríkjanna og var
undir forsæti Neil Smith, sem þessi mynd tekin við það tæki-
situr í Qárveitinganefnd færi. Jón Baldvinsson er lengst
Bandaríkjaþings, var hér ný- til vinstri, Neil Smith fyrir
lega á ferðinni. Þingmennirnir miðju og Hugh Ivory, forstjóri
og fylgdarlið þeirra sáu meðal menningarstofhunarinnar,
annars málverkasýningu Jóns lengst til hægri.
Baldvinssonar í Menningar-
Fljótandi vörusýning:
Bátamir lagðir af
stað til Færeyja
Morgunblaðið/BAR
Annar trefjaplastbátanna heldur úr höfh í Reykjavík. Framundan
er mikil sigling fyrir 8 metra langa báta.
Nýtt Póst- og símahús á Blönduósi:
Samið við Fjarð-
arsmiðjuna
TVÖ tilboð bárust í smíði nýs
póst- og símahúss á Blönduósi
sem nýlega var boðin út. Lægra
tilboðið var frá Fjarðarsmiðjunni
hf. í Garðabæ, að Qárhæð kr.
16,8 milljónir, sem er 97,5% af
kostnaðaráætlun. Hitt tilboðið
var frá Trésmiðjunni Stíganda á
Blönduósi, að fjárhæð 17,9 millj-
ónir, sem er 104,3% af kostnaðar-
áætlun. Samið hefur verið við
Fjarðarsmiðjuna hf. um smíði
hússins, en ráðgert er að það
verði fullbúið á miðju næsta ári.
Póst- og símahúsið verður 355
fermetrar á einni hæð og mun
standa við Hnjúkabyggð. Aætlað
er að byggja síðar við húsið í því
skyni að koma þar fyrir fjarskipta-
búnaði, en hann verður enn um sinn
í tækjahúsi við Húnabraut.
Innan skamms hefst iagning ljós-
leiðarastrengs milii Blönduóss og
Sauðárkróks, og fæst þá varaleið
yfir Skagafjarðarsvæðið.
ÚR HÖFN í Reykjavík héldu í
g^ær tveir íslenskir trefjaplast-
bátar áleiðis til Færeyja í allný-
stárlega kynningarferð. Hópur
fulltrúa frá íslenskum fram-
leiðslufyrirtækjum og Útflutn-
ingsráði Islands flýgur utan á
fostudag. Tilgangur ferðarinnar
er að kynna frændum okkar
Færeyingum íslenskar vörur fyr-
ir sjávariitveg og fiskvinnslu.
Siglt verður á milli bæja í Fær-
eyjum og boðið upp á fljótandi
vörukynningu, þ.e. um borð í
bátunum. A endastaðnum, Þórs-
höfn, verður kynningin þó færð
að hluta upp á bryggju og efht.
til veislu þar sem boðið verður
upp á íslenskt góðgæti i mat og
drykk.
Vörukynningin hefst formlega í
Vestmanna í Færeyjum næstkom-
andi mánudag. Alls verður komið
við í 15 færeyskum bæjum og vænt-
anlegum kaupendum boðið að skoða
og reyna vörurnar, sem settar verða
upp um borð í bátunum, en þeir eru
hluti af kynningunni. Henni lýkur
svo í Þórshöfn laugardaginn 25.júlí.
Jens Ingólfsson markaðsstjóri
tæknivara hjá Útflutningsráði er
fararstjóri í ferðinni. Hann sagði á
fréttamannafundi í gær að mikill
áhugi væri þegar í Færeyjum á
íslenskum varriingi til smábátaút-
gerðar. Kynning á honum hefði
verið hafinn fyrir daga Útflutn-
ingsráðs og nú ætti að fylgja fast
eftir og vinna markvisst kynningar-
starf í framtíðinni. Þessi nýstárlega
vörukynning væri því ekki stakur
atburður heldur upphafið að þessu
markaðsstarfi.
í fréttatilkynningu segir að í
þeim 15 bæjum sem sóttir verða
heim búi um 70% af íbúum Fær-
eyja. Til að tryggja öryggi í siglingu
á staðina hafi verið haft samráð
við lóðsinn Eyvind Rein, sem hafi
mikla reynslu af ferðum um eyjarn-
ar. Þá verði staðkunnur maður
ráðinn til að fylgja hópnum.
Það eru fimm íslensk fyrirtækl
sem taka beinan þátt í þessari fljót-
andi vörusýningu. Bátasmiðja
Guðmundar kynnir trefjaplastbát-
ana, sem kallaðir eru Sómabátar.
Þeir eru átta metra langir fiskibát-
ar og afar hraðskreiðir, enda er
áætlað að ferð þeirra frá Höfn í
Hornafirði til Færeyja taki ekki
nema um tíu tíma. í fréttatilkynn-
ingunni segir að þeir hafi náð um
42% markaðshlutdeild hér á sfðasta
ári. Fyrirtækið DNG á Akureyri
mun sýna tölvustýrðar handfæra-
vindur. NORM-EX í Hafnarfirði
kynnir plastker í allar stærðir fiski-
skipa. Fyrirtækið Sjóvélar mun
kynna línuspil og fleira og íseind
hf í Reykjavík býður upp á olíu-
eyðslumæla og rafeindamælitæki
ýmiskonar. Auk þessara fimm mun
fjöldi annarra íslenskra fyrirtækja
fá vörur sínar kynntar í ferðinni
með því að leggja til hennar íslensk-
an öryggis- og siglingabúnað, mat,
drykk, fatnað og fleira.
Útflutningsráð Islands átti frum-
kvæðið að þessari nýstárlegu
kynningarferð samkvæmt fréttatil-
kynningu, en Iðnlánasjóður mun
standa undir henni að verulegu leyti
fjárhagslega.
Pelly-ákvæðin:
Forseta heimilt að mæla
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu fyrsta eintaksins af
kortinu. Til vinstri eru ritari og formaður ferðamálanefndar Hafnar-
Qarðar, þeir Þórarinn Jón Magnússon og Páll Pálsson. Til hægri
eru JC-félagarnir Guðni Gunnarsson fráfarandi formaður JCH,
Svava H. Svavarsdóttir og Ægir Björgvinsson.
Ferðaþjónusta í Hafiiarfírði:
Opnað gistihús
og Ijaldstæði
BANDARÍSK stjórnvöld geta
beitt önnur ríki viðskiptaþving-
unum teiji þau áð brotið sé gegn
alþjóðlegum samþykktum um
fískveiðar og verndun dýra-
stofna í útrýmingarhættu, með
tilvísun til svonefndra Pelly-
ákvæða. A vertíðinni í fyrra voru
hvalveiðar stöðvaðar eftir að við-
ræðunefnd bandariska viðskipta-
ráðuneytisins hafði gert
islenskum sendifúlltrúum í Was-
hington grein fyrir því að
viðskiptaráðherra myndi ekki
eiga annarra kosta völ, á grund-
velli þessara laga, en að láta
Bandarikjaforseta fá staðfest-
ingu (ens.: certifícatiorí) þess að
íslendingar færu ekki eftir sam-
þykktum Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins. í Pelly-ákvæðunum eru
forseta lagðar ákveðnar skyldur
á herdar berist honum slík stað-
festing. Akvæðin eru birt hér í
íslenskri þýðingu til glöggvunar,
eins og þau hljóða eftir endur-
skoðun í september árið 1978:
22. gr. 1978. Erlend samskipti
Takmörkun innflutnings fisk-
afurða eða villibráðar frá löndum,
sem bijóta í bág við áætlanir um
alþjóðlegar fiskveiðar eða dýrateg-
undir, sem eru í útrýmingarhættu.
Staðfesting til forseta
(a) (1) Þegar viðskiptaráðherrann
ályktar, að erlendir ríkisborgar-
ar fáist beinlínis eða óbeinlínis
við fiskveiðar á þann hátt eða
við þær aðstæður, sem draga
úr gildi áætlunar um alþjóðlega
vernd fiskveiða, ber viðskipta-
ráðherra að staðfesta það við
forsetann.
(2) Þegar viðskipta- eða inn-
anríkisráðherra kemst að raun
um að erlendir ríkisborgarar
fáist beinlínis við versiun eða
veiðár, sem dragi úr gildi al-
þjóðlegra áætlana um dýrateg-
undir, sem eru í útrýmingar-
hættu, ber honum að staðfesta
það við forseta.
(3) Eftir móttöku hverskyns
staðfestingar samkvæmt tölulið
(1) eða (2) getur forseti gefið
fjármálaráðherra fyrirmæli um
að banna innflutning til Banda-
ríkjanna á fiskafurðum (ef
staðfestingin er samkvæmt
tölulið (1)) eða villibráðarafurð-
um (ef staðfestingin er sam-
kvæmt tölulið (2)) frá hinu
brotlega landi jafn lengi og for-
seti telur viðeigandi og að því
leyti er slíkt bann er viðurkennt
í GATT-samkomulaginu.
Tilkynning til Bandaríkjaþings
(b) Innan sextíu daga frá stað-
festingu af hálfu viðskipta- og
innanríkisráðherra ber forseta að
tilkynna Bandaríkjaþingi hverskyns
aðgerð af hans hálfu samkvæmt
staðfestingunni. Fari svo, að forseti
láti undir höfuð leggjast að gefa
fjármálaráðherra fyrirmæli um að
banna innflutning fiskafurða eða
villibráðarafurða brotlegs lands,
eða ef bannið nær ekki til allra
fiskafurða eða villibráðarafurða
brotlegs lands, ber forseta að til-
kynna Bandaríkjaþingi ástæðurnar
fyrir því.
Innflutningur fiskafurða frá
brotlegu landi bannaður
(c) Olöglegt er að nokkrir þeirra,
sem lúta bandarískri lögsögu, komi
vitandi vits með eða flytji inn eða
láti flytja inn til Bandaríkjanna
neinar fiskafurðir eða villibráðaraf-
urðir, sem fjármálaráðherra hefur
bannað samkvæmt þessum kafla.
HAFNFIRÐINGAR eru þeirrar
skoðunar, að bærinn þeirra eigi
framtíð fyrir sér sem ferða-
mannabær. Til að stuðla að því
að svo megi verða komu bæjar-
yfirvöld á Iaggirnar fímm manna
ferðamálanefnd á síðasta ári og
vinnur hún nú að æætlanagerð,
segir í firéttatilkynningu frá
nefhdinni.
Fyrir fáeinum dögum var tjald-
stæði tekið í notkun á Víðistaða-
svæðinu þar sem unnið er að miklu
útivistarsvæði samkvæmt nýsam-
þykktu skipulagi. Við opnun tjald-
stæðisins notaði JC-Hafnarfjörður
tækifærið og afhenti fulltrúum
ferðamálanefndar fyrsta kortið af
Hafnarfirði sem prentað er fyrir
ferðamenn. Er það á ensku, en
næsta sumar verður einnig prentuð
íslensk útgáfa af kortinu.
Þá má geta þess, að blómabúðin
Burkni við Linnetstíg hefur tekið
að sér að starfrækja upplýsingamið-
stöð fyrir ferðamenn og er það í
fyrsta skipti, sem slík þjónusta er
í Hafnarfirði. Einnig er vert að
geta þess, að nýtt gistihús er að
opna í Hafnarfirði, en gistihús hef-
ur ekki verið í bænum í áratugi.
Þá liggur einnig fyrir bæjaryfirvöld-
um ósk um leyfi til að reisa mótel
við Reykjanesbraut í tengslum við
veitingahús, sem á að fara að reisa
þar innan skamms.
Arnarnes
Einbýlishús, 340 fm á tveimur hæðum. Innbyggður tvö-
faldur bílsk. á neðri hæð. 6 svefnherb. Fallegt útsýni.
Eignaskipti koma til greina.
Kóngsbakki
Rúmgóð 5 herb. íb., með góðum suðursvölum. Skipti
á minni íb. æskileg.
26600
allir þurfa þak yfirhöfuáió
/nfc0 Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17, ». 26600
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali