Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 13
Bókavarðan
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
13
Gömul bíóprógrömm
á bókauppboði
BÓKAVARÐAN í Reykjavík efn-
ir til uppboðs á margvíslegn
prentmáli og skjölum og bréfum.
M.a. verður þar selt mikið safn
brcfa og skjala sem varða sögu
Flateyrar við Önundarfjörð, einnig
uppdrættir og aðrar frumheimildir
um sama stað. Einnig allur Helgar-
pósturinn frá upphafi, mikið af
bókaskrám, tímaritið Veiðimaður-
inn, flest erfiðu heftin, bækur um
ræktun og heilsufar, Kvennafræð-
arinn, hundruð ljóðabóka og
lukkupakkar með skáldsögum,
eldgömul bíóprógrömm frá upphafi
kvikmynda á Íslandi, frumútgáfa
eftir Maxím Gorkí, gamlar
Hólabækur frá því fyrir 1700, úr
Jarðabók Arna Magnússonar,
atómkveðskapur ungskáldanna,
leikrit góðskáldanna, fjöldi af söng-
skrám og listaverkaskrám, guð-
spekirit og bækur prentaðar í
Vesturheimi, handrit að ræðum eft-
ir séra Jóhann Þorkelsson dóm-
kirkjuprest í Reykjavík, rit um skóla
og uppeldismál, gamlar handrita-
prentanir Ejnars Munksgaards, rit
um náttúru landsins, stjórnmál frá
fyrri tíð, mikill fjöldi tímarita og
blaða frá ýmsum tímum, auk
ýmissa fágætra bóka.
Bækurnar verða til sýnis í Iðnó
við Vonarstræti laugardag 18. júlí
kl. 11—17 og uppboðið hefst á sama
stað sunnudag 19. júlí kl. 14.00
stundvíslega.
(Fréttatilkynning)
Unuhús, eins og það lítur nú út, endurbyggt.
Morgunblaðið/Sverrir
Unuhús nær fullbúið á ný eftir bruna:
„Það var allt ónýtt“
- segir Gestur Olafsson eigandi hússins
Enginn vafi að þyrl-
an skipti sköpum
- segirlngi-
mundur Guð-
mundsson í
Slysavarnasveit-
inni Kili á Kjalar-
nesi
„ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
skipti sköpum við þessa björgun"
sagði Ingimundur Guðmundsson
úr Slysavarnasveitinni Kili á
Kjalarnesi í samtali við Morgun-
blaðið. Hann fór ásamt þremur
félögum sínum á Esjuna á laug-
ardagskvöldið til þess að bjarga
manni sem hrapað hafði niður í
gljúfur i vesturhliðum Kistufells.
Ingimundur sagði að hringt hefði
verið í Slysavarnasveitina Kjöl frá
Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði um
klukkan átta á laugardagskvöldið
og tilkynnt um slysið. Þangað hafði
komið ungur piltur sem var í fjall-
göngu ásamt tveimur félögum
sinum í Esjunni. Hafði einn þeirra
hrapað niður í gljúfur neðan við
svokallað Gunnlaugsskarð í vestur-
hlíðum Kistufells. Tilkynning barst
einnig L.andhelgisgæslunni og var
beðið um aðstoð þyrlunnar TF-
Siíjar. Það hafði tekið piltinn um
klukkustund að komast niður af
fjallinu, en þriðji pilturinn varð eft-
ir skammt frá slysstaðnum og gat
hann leiðbeint björgunarmönnunum
þegar þeir komu á staðinn.
„Það náðist í fjóra menn úr
Slysavarnasveitinni Kili og við vor-
um lagðir af stað upp ijallið innan
við hálftíma eftir að kallið barst“
sagði Ingimundur. „Við fórum eins
langt og við komumst á bíl en geng-
um síðan. Þyrlan kom þegar við
vorum komnir að rótum fjallsins og
tók hún mig og einn félaga minna
upp í og flaug með okkur upp á
fjallstopp. Þaðan seig ég niður að
sprungunni. Hinir tveir klifruðu upp
gljúfrið, meðfram skafli sem í því
var“.
Pilturinn hafði fallið niður í gljúf-
rið efst í Kistufelli. Gljúfrið var
fullt af snjó sem byijaður var að
bráðna og hafði hann runnið eftir
skaflinum um það bil 25 metra. Þá
féll hann niður um sprungu og rann
tvo til þijá metra undir skaflinn.
hann fótbrotnaði illa og fékk fleiri
áverka, þar á meðal höfuðáverka.
Annar mannanna, sem klifruðu
upp meðfram skaflinum, náði taki
á piltinum og tókst að draga hann
upp. Hann hafði þá mjakað sér upp
að sprunguopinu þrátt fyrir að hann
var meðvitundarlítill og mjög kaldur
og þjakaður.
„Þyrlan sveimaði rétt fyrir ofan
við mjög erfiðar aðstæður. Það var
ævintýralegt hvernig áhöfninni
tókst að koma börunum niður til
björgunarmannsins. Hann kom
þeim slasaða fyrir á börunum sem
hífðar voru um borð. Það er enginn
vafi að þyrlan skipti sköpum þarna
því það hefði verið ógerningur að
bera manninn niður af fjallinu. Mér
finnst það vera meiriháttar afrek
hjá þyrlumönnunum að komast að
gljúfrinu. Þar er bæði þröngt og
misvindasamt, logn og vindsveipir
til skiptis“.
Ingimundur vildi taka það fram
að gönguleiðir væru fjölmargar á
Esjunni og til væru kort sem sýndu
þessar leiðir. Hins vegar væri víða
ha'ttulegt að fara út af merktum
leiðum, sérstaklega vegna þess að
móbergið væri mjög laust.í sér og
því erfitt að fóta sig.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk á Borgarspítala
er pilturinn enn á gjörgæsludeild.
hlið hússins verst útleikinn. Gestur
byggði sjálfur garðhúsið og sagðist
hann ekki hafa fengið þann hluta
bættan úr Húsatryggingum
Reykjavíkurborgar. „Tryggingarn-
ar bættu mér aðeins gamla húsið.
Ég er sjálfur arkitekt og lagði fyrir-
hugaðar breytingar mínar bæði
fyrir skipulagsnefnd og bygginga-
nefnd til að fá samþykki fyrir
garðhúsinu. Menn komu frá Fas-
teignamati ríkisins til að mæla upp
húsið, og síðan eftirbrunann komst
ég að því að sambandið virðist lítið
á milli Húsatrygginga Reykjavíkur-
borgar og Fasteignamats ríkisins.
Að minnsta kosti virðast Húsa-
tryggingar ekki fylgjast nokkuð
með því hvað byggt er í borginni.
Ég borga mína skatta, eins og lög-
hlýðinn maður, en gerði mér ekki
grein fyrir því að þó að fasteigna-
skattarnir hækkuðu, þá hækkaði
ekki hústryggingin. Þetta er
skyldutrygging allra húseigenda í
Reykjavík og verða því húseigendur
að tryggja hjá þessu einokunarfyr-
irtæki."
Gestur sagðist hafa þurft að
leggja ómælt fjármagn í endurnýj-
unina og í þrengingum sínum hefði
hann reynt að selja borginni sinn
helming af Skáldsstíg, sem liggur
yfir lóð Unuhúss. Borgin á hinn
helming stígsins, sem liggur frá
Gijótagötu og upp í Garðastræti.
„Mér finnst það dálítið skrýtið að
þurfa að greiða fasteignagjöld af
þessum stíg þar sem borgarbúar
notfæra sér hann daglega. Eg fékk
hins vegar þau svör frá borginni
að ég skyldi bara loka stígnum ef
ég vildi ekki umgang sem allir sjá
í hendi sér að er ekki svo auðvelt,“
sagði Gestur að lokum.
Mikið verk var
fyrir höndum
eftir brunann í
Unuhúsi þann
17. janúar sl.,
enda blöstu að-
eins brunarúst-
ir við eiganda
hússins.
UNUHÚS, sem stendur við
Garðastræti 15 i Reykjavík, er
nú sem næst fullbúið eftir gagn-
gera endurbyggingu. Húsið
brann sem kunnugt er þann 17.
janúar sl., og hefiir verið unnið
við það dag hvern síðan.
Gestur Olafsson arkitekt og
skipulagsfræðingur er eigandi
hússins og lék enginn vafi á því í
hans huga hvað gera skyldi eftir
eldsvoðann. „Ég þurfti bókstaflega
að byggja nýtt hús frá grunni. Fyrst
var húsið þvegið hátt og lágt með
háþrýstitækjum eftir að ég hafði
hent út málverkasafninu, bókasafn-
inu og gömlu ástarbréfunum. Því
næst var klæðning, einangrun og
lagnir rifið innan úr húsinu auk
allra glugga og hurða. Þá tók það
all langann tíma að grunna húsið
og styrkja þurfti grind þess vel.
Hliðin, sem snýr að Garðastræti,
var hvað heillegust.“
Eldurinn kom upp í eldhúsinu,
sem var í garðhúsinu og var sú
Morgunblaðið/Sigurður Þorsteinsson
Nokkrir Danmerkurfarar sem unnu í Vinnuskóla Kópavogs í sumar.
Kópavogur:
Hópur unglinga í sum-
arbúðir í Danmörku
HÓPUR fatlaðra og ófatlaðra
unglinga leggur af stað í sumar-
búðir í Danmörku föstudaginn
31. júlí nk. Þessi ferð er farin
að tilstuðlan starfshóps sem
vinnur að unglingamálum í
Kópavogi.
Farið verður með Norrænu frá
Seyðisfirði og dvalið í almennum
sumarbúðum í Pindstrup Centret
nálægt Arósum. Þessar sumarbúðir
eru ekki ætlaðar fötluðum og mun
hinn blandaði hópur frá íslandi
dvelja þarna sem almennir gestir.
Þessi ferð er mjög dýr og þarf
fjölmennt hjálparlið að fara með
hópnum. Þess vegna hefur verið
leitað til ýmissa aðila um fjárstuðn-
ing og þar á meðal allra fyrirtækja
í Kópavogi. Vonar starfshópurinn
að þessari fjárbeiðni verði vel tekið
og minnir á að margt smátt gerir
eitt stórt.
(Fréttatilkynning)