Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 27 verið að fjármálaráðherrar hafi haft ákveðið svigrúm til að annast slíka fyrirgreiðslu og hafí hún tíðkast um langt árabil í mismunandi miklum mæli. Albert Guðmundsson var stjómar- formaður Hafskips hf. árið 1979-1983. Svo sem fyrr segir áttu ofangreind- ar lántökur sér stað siðast á árinu 1984 og í byijun árs 1985. Mál þetta kom hins vegar til opinberrar rann- sóknar í maí 1986 svo sem áður er rakið. Ekki verður á það fallist að lántök- ur þessar tengist máli þessu eða aðilum þess á þann veg að valdið geti vanhæfí Hallvarðs Einvarðssonar til að fjalla um það, sem ríkissaksóknari. Frávísun málsins á þeim grundvelli kemur því ekki til álita. 3. í I. kafla ákærunnar eru ákærðu, ýmist allir eða sumir þeirra, saksóttir fyrir að hafa staðið að gerð villandi og rangra gagna á árunum 1984 og 1985 varðandi rekstur og efnahag Hafskips hf., m.a. í því skyni að skapa félaginu áframhaldandi fyrirgreiðslu og lánstraust hjá Útvegsbanka fs- lands. Er þetta atferli þeirra talið varða við 158. gr. almennra hegning- arlaga, 86., 151. og 152. gr. laga um hlutafélög og 7. og 10. gr. laga um löggilta endurskoðendur. Þá eru ákærðu Björgólfur, Ragnar og Páll Bragi í II. kafla ákærunnar ákærðir fyrir fjársvik, skv. 248. gr. almennra hegningarlaga, ýmis allir eða ákærðu Björgólfur og Ragnar tveir saman, með því að hafa staðið að því að afla Hafskipi hf. fjármuna, m.a. aukinna lána eða ábyrgða hjá Útvegsbanka íslands með því að vekja hjá bankastjóminni rangar eða villandi hugmyndir um raunverulegan efnahag félagsins og framtíðarhorfur. Hafí þeir með þessum hætti náð að auka skuldir félagsins við bankann um kr. 403.196.000,- á tímabilinu 31. ágúst 1984 til 30. nóvember 1985. Fyrir liggur, að Jóhann S. Ein- varðsson, bróðir Hallvarðs Einvarðs- sonar, ríkissaksóknara, tók sæti í bankaráði Útvegsbanka íslands 1. jan- úar 1985 og sat í því uns bankanum var með lögum breytt í hlutafélags- banka á sl. vori, sbr. lög nr. 7,198'?. Skv. 12. gr. laga nr. 12, 1961 um Útvegsbanka íslands hafði bankaráð yfímmsjón með starfsemi bankans og ljóst er af ákvæðum sömu laga um starfsskyldur bankastómar og erindis- bréfí bankastjóra, að eftirlitsskylda bankaráðsins með starfsemi bankans er rík. Svo sem fyrr er rakið em ákærðu í máli þessu saksóttir fyrir að hafa misgert stórlega við Útvegsbanka ís- lands með því að leggja fyrir hann röng eða villandi gögn og að hafa með sviksamlegum hætti náð að auka skuldir Hafskips hf. við bankann um samtals rúmlega 400 milljónir króna á ámnum 1984 og 1985. Fer ekki hjá því, að mál þetta hlýtur að varða mjög bankaráð Útvegsbankans enda liggur fyrir að málefni Hafskips hf. vom oft til umræðu og umfjöllunar á fundum ráðsins á árinu 1985. Með hliðsjón af ofanrituðu verður að líta svo á, að Hallvarður Einvarðs- son, ríkissaksóknari, sé þannig skyldur einum bankaráðsmanni Útvegsbank- ans, að skv. gmndvallarreglum 3. og 7. tl. 36. gr. laga nr. 85, 1936 mætti hann eigi gegna dómarastörfum í máli þessu og því hafí ekki verið rétt skv. 22. gr. laga um meðferð opin- berra mála nr. 74, 1974, að hann fjallaði um ofangreindar sakir. Enda þótt ákæran snúist og um önnur at- riði, sem ekki tengjast hagsmunum Útvegsbanka Íslands, er eðlilegast að um þessi efni öll sé flallað í einu máli og því þykir rétt að vísa ákæmnni í heild sinni frá dóminum af þessum sökum. Dæma ber ríkissjóð til að greiða áfallinn kostnað af máli þessu, þar með talda þóknun til skipaðra veijenda ákærðu, Guðmundar Ingva Sigurðs- sonar hrl., Jóns Magnússonar hdl., Jónasar Aðalsteinssonar hrl. og Ólafs Gústafssonar hrl., sem þykir hæfílega ákveðin kr. 20.000,- til hvers þeirra um sig. Dómsorð: Ákæm í máli þessu er vísað frá dómi. Kostnaður málsins greiðist úr ríkis- sjóði, þar með talin þóknun skipaðra veijenda ákærðu, Guðmundar Ingva Sigurðssonar hrl., Jóns Magnússonar hdl., Jónasar Aðalsteinssonar hrl. og Ólafs Gústafssonar hrl., kr. 20.000,- til hvers þeirra. Hallvarður erlendis HALLVARÐUR Einvarðsson ríkis- saksóknari er staddur erlendis um þessar mundir og reyndist Morgun- blaðinu ekki unnt að ná sambandi við hann í gær. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 1 16. júlí FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hœsta Lœgsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð(kr.) Þorskur 38,20 26,20 35,50 36,6 1.297.659 Ýsa 48,60 44,60 46,32 11,7 540.598 Karfi 20,20 15,80 18,86 1,6 29.856 Grálúða 25,40 15,00 23,36 5,2 121.273 Koli 28,80 28,80 28,80 1,6 46.691 Ufsi 25,00 25,00 25,00 5,9 146.970 Annað 18,20 18,20 18,20 3,0 55.990 Samtals 34,14 65,6 2,239,037 I Aflinn í gær var að mestu úr mótorbátnum Eini. I dag verður upp- 1 boð kl. 16 og verða þar seld 25 tonn af þorski, 12 tonn af ýsu, 1 I 12 tonn af ufsa og 5 tonn af kola að mestu úr Stokksey. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Hsesta Lœgsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 46,00 44,00 44,75 7,550 337,881 Ýsa 52,50 50,50 51,71 7,021 363.065 Karfi 21,50 20,00 20,59 7,966 163.990 Koli 36,00 33,00 34,19 18.343 627.239 Ufsi 26,00 23,50 24,89 8.270 205.854 Steinbítur 33,00 33,00 33,00 0,1 3.300 Samtals 34,54 49,251 1.701.332 Aflinn í gær var aðallega úr þremur dragnótabátum. Til sölu verður í dag 50 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu og 30 tonn af kola. óþarflega stort. P hverjum 0g einum. * ^ a5 la^nSsslínur ^ða'fáanleg sem heldur * Samtenging á innanhússlin- • «XgangandiÞráttíynr Bjóðum mikið úrval vandaðra símakerfa og símstöðva i öllum staerðum og qerðum um og einni bæjarlínu (símafundur) 80 númera minni meö milli innanhússlina. Sopho K1 te&sœæ&SS!?. boöiö hingað til. t t_ <D> HeirniiistaeKi ht ■ 1 W,B sÆTÚNI 8-SÍMI691500 Jltaqpiuiiljifrito Góðan daginn!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.