Morgunblaðið - 17.07.1987, Qupperneq 28
Arlegur fundur skattsljóra:
Staðgreiðslukerfi
skatta til umræðu
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Sprautað á bensínið
Slökkviliðið var kallað á vettvang í Hafnarstræti arskyni en sprautuðu því siðan niður af götunni.
í gær þar sem bensín hafði lekið úr götóttum Dró þetta að sér forvitna vegfarendur þrátt fyr-
tanki. Sprautuðu þeir kvoðu yfír bensínið í varúð- ir alla bensínstybbuna sem fyllti öll vit.
Undirbúningur fyrir breytinguna
gengur samkvæmt áætlun
ÁRLEGUM fundi skattstjóra
lauk á Hótel KEA í gær. Stað-
greiðslukerfi skatta var eitt
helsta umfjöllunarefni fundarins
og sagði Garðar Valdimarsson,
ríkisskattstjóri, að ekki væru
nema 167 dagar til stefnu, það
væri að mörgu að huga áður en
nýja kerfínu yrði komið á og því
ástæða til að byrja strax að telja
niður dagana.
Á fundi skattstjóranna, sem stóð
á miðvikudag og fimmtudag, var
fjallað um almenn skipulagsmál í
skattakerfinu, þjónustu og upplýs-
ingahlutverk skattyfirvalda, tölvu-
notkun og undirbúning að
staðgreiðslukerfi skatta og verk-
þáttum í sambandi við það.
„Það var eingöngu fjallað um
staðgreiðslukerfi skatta í fyrradag
og við höfðum fengið á fundinn hjá
okkur mann frá Alþjóða gjaldeyris-
sjóðnum til að flytja fyrirlestur um
reynslu annarra þjóða af þessu fyr-
irkomulagi," sagði Garðar.
„Undirbúningur fyrir stað-
greiðslukerfíð er vel á veg kominn
og hefur gengið alveg samkvæmt
áætlun. í ágúst hefst kynningar-
herferð á hinu nýja skattafyrir-
komulagi, bæði fyrir atvinnurek-
endur og gjaldendur, og síðast en
ekki síst fyrir starfsfólk á skattstof-
um, og þessi herferð á að standa
fram á næsta ár.
Við teljum að skattheimta verði
betri með hinu nýja fyrirkomulagi,
og einnig að það verði launþegum
í hag. Það hefur í för með sér að
tekjusveiflur hjá launþegum eiga
ekki að koma við þá skattalega,
hvort heldur þeir veikjast eða skipta
um vinnu, því markmið kerfisins
er að fólk geti staðið skuldlaust við
skattakerfið á hveijum tíma,“ sagði
Garðar.
„Fáar þjóðir verða
með jafii ein-
falt skattakerfi“
„Það er ekkert leyndarmál að ég
tel staðgreiðslukerfi skatta til mik-
illa bóta, sérstaklega fyrir laun-
þega,“ sagði Olafur Helgi
Kjartansson, skattstjóri í Vest-
fjarðaumdæmi. „Skattkerfið er
mjög einfaldað gagnvart skatt-
greiðandanum; einungis er um að
ræða það sem kallað er flöt skatt-
prósenta, sem hæst getur orðið
36%; 28,5% til ríkisins og 7,5% til
.jSveitarfélaga. Þá er undanþágum
frá skatti verulega fækkað, sem
hefur í för með sér einfaldaðan og
auðskiljanlegan skattútreikning,
svo fremi staðgreiðslukerfinu verði
ekki breytt. En ég er sem sagt
mjög ánægður með hugmyndina
sem staðgreiðslukerfíð byggir á og
hef ekki orðið var við að skattstjór-
ar væru mótfallnir því. Það verður
mjög einfalt, og sennilega verða
fáar þjóðir með jafn einfalt skatta-
kerfi og við eftir breytinguna,“
sagði Ólafur Helgi.
Ólafur benti hins vegar á að
þreytingin yfir í staðgreiðslukerfið
yki mjög vinnu í skattakerfinu,
sérstaklega næstu tvö ár. „Á næsta
ári verður lagt á samkvæmt gamla
kerfinu, því allir þurfa að telja fram
fynr þetta ár þó það komi ekki til
innheimtu, og samtímis er verið að
fylgja eftir staðgreiðslukerfinu.
Það er kannski rétt að vekja at-
hygli á að staðgreiðslukerfið er
Gunnar Raín Einarsson, skatt-
stjóri Norðurlands eystra.
Ólafur Helgi Kjartansson, skatt-
stjóri í Vestfjarðaumdæmi.
fyrst og fremst breyting á inn-
heimtuaðferð. Endanleg álagning
mun ætíð fara fram í lok hvers árs
og þá er gert upp v.a þá sem ýmist
hafa greitt of eða van. Það er því
rík ástæða til að brýna fyrir fólki
að passa vel upp á alla launaseðla
og kvittanir sem það fær í hendur,
en það hefur viljað brenna við að
íslendingar séu einstaklega hirðu-
lausir um alla pappíra. Venjulegur
launþegi á því að hafa lokið öllum
skattgreiðslum í lok skattaársins,
og mismunandi tekjur milli ára
koma því ekki eins illa við hann.
Það mætti jafnvel hugsa sér að í
framtíðinni verði skattgreiðendur
lausir allra mála um áramót,“ sagði
Ólafur Helgi Kjartansson að lokum.
Mikilvægl að fólk
átti sig- á stað-
greiðslukerfinu
„Staðgreiðslukerfinu munu
fylgja ný vinnubrögð og álag á
skattstofur mun aukast og einnig
held ég að mörgum muni finnast
flókið að telja fram fyrir „skatt-
lausa árið“,“ sagði Gunnar Rafn
Einarsson, skattstjóri Norðurlands
eystra. „Það standa eftir eignatekj-
ur og tekjur af atvinnurekstri, og
nýjar reglur um vaxtaafslátt og
húsnæðisafslátt, og þetta á allt eft-
ir að flækja framtal ákveðins hóps
manna. Til dæmis þeirra sem eru
i skuldum vegna húsakaupa.
Það að koma staðgreiðslukerfinu
á mun kosta tímabundna fjölgun
starfsfólks á skattstofunum því það
mun verða mikið álag meðan þessi
breyting gengur yfir. Starfsemi
skattstofanna mun eitthvað breyt-
ast í kjölfar staðgreiðslukerfisins,
þó ég viti ekki ennþá hvemig fram-
kvæmdin verður; reglumar em ekki
nógu ljósar ennþá. Það hefur þó
margt skýrst á þessum fundi okkar
skattstjóranna hér á Akureyri. Mér
sýnist að eitt það mikilvægasta sem
framundan er sé að koma fólki í
skilning um hvernig þetta nýja kerfi
gengur fyrir sig,“ sagði Gunnar
Rafn Einarsson að lokum.
Frá hinni nýju hárgreiðslustofu á Dalvík. Morgunbiaðið/Trausti
Dalvík:
Ný hárgreiðslustofa
Dalvik.
Ný hárgreiðslustofa hefur tek-
ið til starfa á Dalvík.
Það er hárgreiðslustofa Fríðu
og er hún í hinu nýja húsi Víkur-
bakarís við Hafnarbraut.
Eigandi hárgreiðslustofunnar er
Hallfríður Þorsteinsdóttir og starfar
hún ásamt nema á stofunni. Boðið
er upp á hverskonar hársnyrtingu,
karla og kvenna, auk þess sem á
boðstólum er fjölbreytt úrval af
hársnyrtivörum.
Aðspurð kvað Hallfríður mikið
að gera en á Dalvík em tvær aðrar
hársnyrtistofur og svo virðist sem
hin nýja stofa hafi verið þörf viðbót.
— Fréttaritari
Útitónleikar Skriðjökla
getraunir þar sem platan er í verð-
laun. ____«-*_*___
Orgeltónleik-
ar í Akureyr-
arkirkju
SUMARTÓNLEIKAR verða um
þessa helgi og sem fyrr verða
þeir í Akureyrarkirkju, Húsavík-
urkirkju og Reykjahlíðarkirkju.
Á sunnudag kl. 17.00 verða org-
eltónleikar í Akureyrarkirkju og
leikur þar nýútskrifaður organisti
frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar, Frið-
rik Stefánsson. Hann mun leika
verk eftir Bach, Franck og Jón
Þórarinsson.
Á þriðjudag verður síðan flutt
önnur dagskrá í Reykjahlíðarkirkju,
sem hefst klukkan 20.30. Þar koma
fram Margrét Böðvarsdóttir, sópr-
an, Þuríður Baldvinsdóttir, alt,
Símon Kuran, fíðla, Guðrún Sigurð-
ardóttir, celló, og Björn Steinar
Sólbergsson, sem leikur á orgel.
Maður féll 5 metra
við Kristneshæli
VINNUSLYS varð við heilsu-
hælið Kristnes í gærmorgun er
maður féll um 5 metra niður úr
krana og úti í Hrísey lenti maður
með hönd í vinnuvél og skarst,
en ekki var vitað hversu alvarlog
meiðsli hans voru.
Verið var að steypa við Kristnes
og var maðurinn uppi á bómu sem
iicldui um barka sem steypan renn-
ur um og var að lagfæra þar
eitthvað þegar hann féll niður úr
henni. Hann var með meðvitund
eftir fallið og kvartaði um í baki
og fótum, og var hann samstundis
fluttur í sjúkrahús. Sem betur fer
slasaðist hann ekki alvarlega og var
kominn heim til sín síðdegis.
Morgunblaðið/Kristinn Jens Sigurþórsson
Garðar Valdimarsson, ríkisskatt-
stjóri.
HLJÓMSVEITIN Skriðjöklar frá
Akureyri mun um hálftólfleytið
í dag halda tónleika fyrir utan
nýja útvarphúsið við Efstaleiti i
RÍeykjavík.
Þessir tónleikar eru haldnir í
tengslum við útgáfu nýrrar hljóm-
plötu sveitarinnar sem ber nafnið
„Er Indriði mikið erlendis“. Hljóm-
leikunum verður útvarpað beint á
Rás 2 og í tengslum við þá verða