Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
Islandsmót í hestaíþróttum á Dalvík:
Börnin fá stærstu bikarana
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Signrbjörn Bárðarson mætir með Kalsa frá Laugarvatni sem hann
tekur hér til kostanna og Brján frá Hólum sem hann fer með á
heimsmeistaramótið í Austurriki.
Nú um helgina halda hestamenn
íslandsmót sitt í hestaíþróttum.
' Verður mótið haldið á Dalvík og
er það íþróttadeild Hrings sem
hefur yfírumsjón með mótshald-
inu. Að sögn Þorsteins Hólm
Stefánssonar formanns Hrings
er þátttakan í mótinu góð og mun
betri en þeir áttu von á .
Sagði hann það sérstaklega hafa
komið á óvart hversu góð þátttakan
hafi verið að sunnan en tæplega
helmingur keppenda kæmi þaðan.
Um 120 hross eru skráð til leiks
og eru það 70 knapar sem koma
til með að sitja þessa hesta því
sumir þeirra eru með fleiri en einn
hest í keppninni. Meðal keppenda
eru þrír af sjö landsmönnum Islands
sem keppir á heimsmeistaramótinu
í ágúst. Sigurbjöm Bárðarson mæt-
ir með Biján frá Hólum og Kalsa
frá Laugarvatni , Hafliði Halldórs-
son mætir með ísak frá Runnum
og Sævar Haraldsson mætir með
Kjarna frá Egilsstöðum sem er
reyndar ekki sá hestur sem hann
fer með utan en bróðir hans Hörður
Armann keppir á Háfi frá Lága-
felli, hestinum sem Sævar fer með
utan. Af öðrum kunnum keppend-
um má nefna að Ingimar Ingimars-
son mætir með Þokka frá
Höskuldsstöðum þeim er sigraði
A-fiokk gæðinga hjá Fáki í vor. Þá
verður þarna á mótinu Jörfi sem
varð þriðji í B-flokki gæðinga á
nýafstöðnu fjórðungsmóti Norð-
lendinga en knapi á honum nú
verður Jóhann G Jóhannesson.
Mótið stendur yfir í tvo daga og
er dagskráin á þessa leið: Klukkan
átta á laugardag verður hlýðni-
keppni fullorðinna og á sama tíma
hefst tölt barna og unglinga, hlýðni-
keppni barna og unglinga hefst
klukkan 9.30 og á sama tíma tölt
fullorðinna. Fjórgangur barna og
unglinga hefst svo klukkan 12.30
og á sama tíma hindrunarstökk.
Fjórgangur fullorðinna hefst klukk-
an 14.45 og að honum loknum hefst
fímmgangur. Um kvöldið verður
síðan grillveisla. Á sunnudag byijar
dagskráin klukkan níu með úrslit-
um í fjórgangi fullorðinna barna
og unglinga. Að því loknu verða
úrslit í hindrunarstökki. Klukkan
13.00 verður gæðingskeið og að því
loknu úrslit í tölti bama, fullorðinna
og unglinga og að síðustu úrslit í
fimmgangi og verðlaun afhent að
því loknu.
Verðlaun mótsins verða vegleg
og má þar nefna að veittur verður
eignabikar í öllum greinum og fá
bömin stærstu bikarana en full-
orðnir þá minnstu. Það er KEA á
Dalvík sem gefur öll verðlaun til
mótsins.
smáauglýsingar —- smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
útivistarferÐir
Símar: 14606 og 23732
Laugardagur 18. júlí kl. 8.00
Eyjafjöll — Skógafoss. Kvern-
árgil (Kvernárfoss). Byggðasafn-
ið á Skógum skoðað, Paradísar-
hellir, Seljalandsfoss, sund i
Seljavallalaug. Verð kr. 1.100.-,
fritt f. börn i fylgd m. fullorðnum.
Sunnudagur 19. júlf kl. 8.00
Þórsmörk, dagsferð. Þarf ekki
að panta. Brottför frá BSÍ,
bensínsölu.
Sumar f Þórsmörk. Velkomin i
sumardvöl í sælureitnum Básum
í Þórsmörk. Tilvalið að dvelja i
heila eða hálfa viku. Ódýrt sum-
arleyfi fyrir alla.
Miðvikudagsferð 22. júlf kl.
8.00. Einnig dagsferð á 1.000,-
kr. Verð frá sunnudegi-miðvikud.
er kr. 2.800,- f. fél. en 3.200.-
kr. f. aöra.
Sumarleyfisferðir
1. Eldgjá — Strútslaug — Þórs-
mörk. 27. júli-2. ág. Bakpoka-
ferð. Fararstjóri: Rannveig
Ólafsd.
2. Hornstrandir — Hornvfk. 31.
júlí-4. ág. Rúta eða flug til isa-
fjarðar, með skipi til Hornvikur
og tjaldbækistöð þar. Farar-
stjóri: Lovísa Christiansen.
3. Lónsöræfi. 5.-12. ágúst.
4. Hálendishringur. 9.-16.
ágúst. 8 dagar. Stytt ferð.
Gæsavatnaleiö — Askja —
Kverkfjöll — Mývatn.
Uppl. og farm. á skrifstofu Gróf-
inni 1.
Útivist.
UT.IVISTARFERÐIR
Símar: 14606 og 23732
Helgarferðir 17.-19. júlí.
1. Þórsmörk — Goðaland. Gist
í skálum Útivistar í Básum, ein-
um friðsælasta stað Þórsmerk-
ur. Gistiaöstaöa eins og best
gerist i óbyggðum. Skipulagðar
gönguferðir.
2. Landmannalaugar — Eldgjá,
nýtt. Skemmtileg og fjölbreytt
hringferö um Fjallabaksleið
nyrðri. Gengið um Eldgjá,
(Ofærufoss), og Landmanna-
laugasvæðið. Fararstjóri: Ingi-.
björg S. Ásgeirsdóttir. Brottför
föstud. kl. 20.00.
3. Skógar — Fimmvörðuháls —
Básar. Brottför laugard. kl. 8.00.
Uppl. og farm. á skrifst., Gróf-
inni 1, símar: 14606 og 23732.
Sjáumst.
Útivist.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins
Laugardagur 18. júlí —
kl. 8.00 - Hekla.
Gönguferð fram og til baka á
Heklutind (1491 m) tekur um 10
klst. Ógleymanleg gönguferð.
Verð kr. 1.200. Fararstjóri: Jón
Viðar Sigurösson.
Sunnudagur 19. júli:
1. Kl. 8.00 — Þórsmörk —
dagsferð. Verð 1000.-
Ath.: Nauðsynlegt er að skrá
þátttakendur f dagsferð til
Þórsmerkur.
2. Kl. 10.00. — Dyravegur —
Grafningur.
Gengið frá Kolviðarhóli um Dyra-
veg (gömul þjóöleið) i Grafning.
Verð kr. 800,-
3. Kl. 13.00 - lllagil - Vegg-
hamrar í Grafningi.
Ekið í Hestvík og gengið þaöan
inn lllagil að Vegghömrum. Verð
kr. 800,-
Miðvikudagur 22. júlí
Kl. 8.00 — Þórsmörk — dags-
ferð. Verð kr. 1.000.
Muniö að panta far í dagsferöina
á skristofu F.f. kl. 20.00 — Ket-
ilstigur — kvöldferð.
Brottför i ferðirnar er frá Um-
ferðarmiðstööinni, austanmeg-
in. Farmiðar við bil.
Ferðafélag íslands.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ÍSI.ANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferð 17.-19. júlí:
1) Kjölur — gönguferð f Kerling-
arfjöllum
Ekið til Hveravalla og gist þar i
sæluhúsi Ferðafélagsins. Á
laugardegi er farið í Kerlingar-
fjöll og gengið þar.
2) Landmannalaugar — Eldgjá
Ekið til Landmannalauga og gist
þar í sæluhúsi Ferðafélagsins.
Farið í Eldgjá ef fært verður,
annars farnar gönguferðir á
Laugasvæðinu.
3) Þórsmörk — gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal
Gönguferöir um Mörkina. Missió
ekki af sumrinu í Þórsmörk.
Notfærið ykkur frábæra aöstööu
Ferðafélagsins i Langadal og
dveljið lengri tima.
Brottför í allar ferðirnar er frá
Umferðamiðstöðinni, austan-
megin, kl. 20.00 föstudag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins, Öldu-
götu 3.
Ferðafélag islands.
Sumarferð Húsmæðra-
félags Reykjavíkur
Farið verður í sumarferöalagið
laugardaginn 18. júli.
Allar nánari upplýsingar gefa:
Þuriður í sima 681742 og Sigrið-
ur i sima 14617.
1927 60 ára 1987
FERÐAFÉLAG
ISLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélagsins
17-24. júlí (8 dagar); Lónsöræf i.
Flug eða rúta til Hafnar í Horna-
firði. Jeppar flytja farþega inn á
lllakamb. Gist i tjöldum. Farar-
stjóri: Egill Benediktsson.
17.-22. júli (6 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
Gengiö milli gönguhúsa frá
Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Fararstjóri: Arnar
Jónsson.
22. -26. júlí (5 dagar): Land-
mannalaugar — Þórsmörk.
23. -26. júli’ (4 dagar): Strandir,
isafjarðardjúp.
Gist tvær nætur á Laugarhóli i
Bjarnarfiröi og eina nótt á
Reykjanesi. Ekið norður iTrékyll-
isvík, farið yfir í Djúp um
Steingrimsfjarðarheiði og suður
til Reykjavikur um Þorskafjarðar-
heiði. Fararstjóri: Sigurður
Kristinsson.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Feröafélag islands.
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
Gistiheimilið
Mjóuhlið 2. S. 24030.
Sumarnámskeið í vélritun
Vélritunarskólinn, s. 28040.
Kallkerfi 2ja, 3ja, 4ra stöðva.
RAFBORG SF.
Rauðarárstig 1, simi 11141
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
húsnæöi / boöi
uppboö
nauöungaruppboö
50 fm skrifstofuhúsnæði
í miðborginni er til sölu eða leigu. Húsnæðið
er allt nýinnréttað.
Upplýsingar í síma 687068 eftir kl. 19.00.
íbúðtil leigu
Ca 70 fm 2ja herb. íbúð með sérinngangi til
leigu í Garðabæ fyrir barnlaust reglufólk.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„íbúð - 2421“.
tilkynningar
Lokað vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa starfsfólks verða skrifstof-
ur okkar og vörulager lokaður frá 20. júlí til
7. ágúst 1987.
hfrbtjáro^on hF
UMBOÐS* OG HEILDVERSLUN
i-hj.'J'.sfæi 12 Posfii.l11 •'4 121 Rtíykjavik
S»n. 6I2R00 S "'retn- GEKA
Uppboð
verður haldið í veitingasal IÐNÓ við Vonarstræti sunnudaginn 19.
júlí nk. og hefst kl. 14.00.
Seldar veröa hundruð bóka og tímarita, m.a. stórmerkilegt safn
handrita, bréfa, teikninga og sögulegra heimilda úr sögu Flateyrar,
allt frumheimildir. Einnig hundruð bréfa og viðskiptaskjala fré Kaup-
félagi verkamanna, Vestmannaeyjum. Einnig: Helgarpósturinn allur,
i mikiö af bókaskrém, hundruö Ijóðabóka, gömu! timarit, m.a. Reykja-
i víkurpósturinn 1846-1849, timar. Veiðimaðurinn, öll erliðustu blöðin,
rit um garðyrkju og trjérækt, Kvennafræðarinn, rit Néttúrufræðifé-
' lagsins, mikið úr Jarðabók Árna Magnússonar, málfræðirit, lukku-
pakkar með tugum skáldsagna og fleiru, eldgömul bíóprógrömm,
rit um „hreina kynstofninn" eftir tengdason Richards Wagners, def-
ektur úr gömlum Hólabókum frá þvi fyrir 1700, frumútg. af bók eftir
Gorki auk nokkurra af handritaprentunum Ejnars Munksgaards.
i Bækurnar verða til sýnis i veitingasal IÐNÓ við Vonarstræti laugar-
daginn 18. júlí kl. 11.00-17.00.
Bókavarðan.
fundir — mannfagnaöir
Landanesætt
i
Afkomendur Sigurlaugar Sæmundsdóttur og
j Kristjáns Jónssonar frá Landanesi halda
ættarmót á Ketilási helgina 14.-16. ágúst.
Mótið hefst með varðeldi í Valgarðslundi á
föstudagskvöld kl. 22.00.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst í símum 95-5576,
Bára, 91-37114, Elva og 91-23765, Kristín.
Nauðungaruppboð
þriöja og síöasta á eigninni Austurmörk 2, Hverageröi, (hl.e.h.),
þingl. eign Junior Chamber, Hverageröi, fer fram á eigninni sjálfri
mánudaginn 27. júlí 1987, kl. 10.00.
Uppboðsbeiöendur eru Einar S. Ingólfsson hdl. og Jón Magnússon hdl.
Bæjarfógetinn i Hveragerði.
Almennur félagsfundur
| Týs
verður haldinn þann 19. júlí kl. 20.30 í Hamraborg 1, 3. hæö.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fulltrúa Týs á SUS-þing.
2. Almenn félagsfundarstörf.
Allir fólagar hvattir til aö mæta.
Stjórnin.