Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Ágæti stjömuspekingur.
Ég hef mikinn áhuga á að
vita hvað stjömumar segja
um mig og manninn minn
og okkar samskipti. Ég er
fædd 1. 2. 54 kl. 15.30 í
Reykjavík og hann er fædd-
ur 22. 1. 55 kl. 15.27 í
Reykjavík. Með fyrirfram
þakklæti."
Svar:
Ég verð að segja eins og er
að mér fannst kort ykkar
saman blátt áfram hlægileg.
Ekki á neikvæðri merkingu,
heldur vegna þess hversu
margt er líkt í þeim. Þið
hafði bæði Sól í Vatnsbera,
Tungl á sömu gráðu í Stein-
geit, Merkúr í Vatnsbera og
í ofanálag Ljón Rísandi og
Fisk á Miðhimni. Það em
einungis Venus og Mars af
persónulegu þáttunum, sem
ekki eru í sömu merkjum.
Þú hefur Venus í Vatnsbera
og Mars í Sporðdreka og
hann hefur Venus í Bog-
manni og Mars í Hrút.
Eigið vel saman
Þetta táknar að þið eigið vel
saman. Þið eigið að geta
skilið hvort annað, bæði
hugmyndalega og tilfínn-
ingalega og jafnframt eiga
þarflr ykkar t.d. hvað varðar
heimili og daglegt lífsmynst-
ur að vera líkar.
Þrjósk
Það sem gæti háð ykkur er
það að þið eruð kannski of
lík, eruð t.d. bæði ráðrík og
stjómsöm og eigið til að
vera stíf á ykkar meiningu.
Þið þurfið því stundum að
gera málamiðlanir. Þú ættir
t.d. að varast að segja að
maðurinn þinn sé frekur,
bara af því að hann vill ekki
hlýða ráðríkinni í þér, og
öfugt. Þetta ætti þó ekki að
koma oft upp þar sem þið
eruð vel samstíga.
Hið ólíka
Mars í Sporðdreka í þínu
korti táknar að þú ert dulari
og varkárari t.d. hvað varðar
framkvæmdir. Hrúturinn er
meira drífandi og fljótfær-
ari. Venus í Bogmanni er
einnig félagslega eirðar-
lausari og opnari en Venus
í Vatnsbera. Fleira er ólíkt
en plássið leyfirekki ítarlega
umfjöllun.
Föst fyrir
Merki þín, Vatnsberi, Stein-
geit, Ljón, Sporðdreki, eru
öll föst fyrir, sterk og stjórn-
söm. Þú ert því að upplagi
ákveðin og föst fyrir. Þér
gæti hætt til að vera of
þrjósk og stöð, þ.e. breyta
ekki nógu mikið til að taka
þá áhættu sem þig langar
til að taka.
Félags/ynd
Sterkur Vatnsberi í 7. húsi
táknar að þú ert félagslynd
og þarft á öðm fólki að
halda. Þú finnur t.d. sjálfa
þig í nánu samstarfi við
aðra. Þetta táknar að þið
hjónin þurfið á hvort öðru
að halda, en táknar einnig
að þú hefur hæfileika til að
vinna með fólki í félagslegu
starfi.
Fullkomnunar-
þörf
Sterkur Satúmus, m.a. í
spennuafstöðu við Sól og
Rísandi, táknar að þú hefur
skipulagshajfileika og
sterka fullkomnunarþörf,
Það síðasttalda getur leitt
til of mikillar kröfuhörku og
þess að þú bælir sjálfa þig
niður. Þú þarft að trúa meira
á sjálfa þig og gera það sem
þig langar til að gera.
GARPUR
rvWD A 1 CMO
UYKAuLbNo
LJÓSKA
FERDINAND
Fröken?
MARCIE 5AV5 VOU g
éAVE MER AN "A" |
ON MER PAPER... I
Magga segir að þú hafir
gefið henni A fyrir rit-
gerðina hennar ...
YOU COULP VE 60T
TUE 5AME PAPER FROM
ME FOR A "P-MINU5"
Þú hefðir getað fengið
sömu ritgerð hjá mér fyrir
falleinkunn
SMÁFÓLK
Af hverju að borga meira
en maður þarf?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sex hjörtu er sterkur samn-
ingur á spilin að neðan, en þó
er hætta á að gefa tvo slagi á
láglitina. Eða hvað?
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ G
¥ÁD92
♦ ÁG965
♦ K102
Suður
♦ -
¥ KG865
♦ D2
♦ ÁG9763
Vestur Noirður Austur Suður
— 1 tíguli 2 spaðar 3 hjörtu
3 spadar 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 5 tíglar Pass 5 spaðar
Pass 6 lauf Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með smáan
spaða upp á ás austurs. Hver
er besta spilamennskan? Tromp-
in liggja 2-2.
Þrennt kemur til greina eftir
að hafa tekið tvisvar tromp: I
fyrsta lagi einfaldlega að svína
fyrir tígulkónginn og reyna svo
að komast að skiptingunni. Gall-
inn við þessa áætlun er sá að
seint verður hægt að vita með
vissu hvort spaðinn skiptist 7-5
eða 6-6.
I öðra lagi kemur til greina
að toppa laufið. Þá vinnst spilið
þótt austur eigi drottninguna
þriðju, því þá verður hann að
spila sér í óhag. En í þessari
legu verður helst að finna þriðju
og bestu leiðina:
Norður
♦ G
♦ ÁD92
♦ ÁG965
♦ K102
Vestur
♦ K109543
¥ 103
♦ 43
♦ D54
Austur
♦ ÁD8762
¥74
♦ K1087
♦ 8
Suður
♦ -
¥ KG865
♦ D2
♦ ÁG9763
Hún felst í því að taka laufás
og spila laufi á tíuna. Þá má
austur að skaðlausu fá slag á
drottninguna.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti í Kecskemet í
Ungveijálandi í júní kom þessi
staða upp í skák Svíans Johnny
Hector, sem hafði hvítt og átti
leik og heimamannsins Tibor
Karolyi, sem er alþjóðlegur
meistari.
I Sé
kW iii
i
4
ó k
Á %. t? & . 'í' X1.
Það er viðurkennd staðreynd
að þrír léttir menn era yfirleitt
öflugri en drottning ef þeir ná
á annað borð að vinna saman.
Þessi staða er engin undantekn-
ing, því það varð mjög brátt um
svart:
20. Bh6! og svartur gafst upp.
Eftir 20. - gxh6, 21. Rf6+ -
Kh8, 22. Hxh6 er hann óvetj-
andi mát og að öðram kosti
fellur peðið á g7 með óstöðvandi
sókn hvíts í kjölfarið.