Morgunblaðið - 17.07.1987, Side 39

Morgunblaðið - 17.07.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 39 Jónas Bjarnason, 92 ára gamall, var sá elsti sem fór snúning með veltubilnum. Morgunblaðið/Sverrir Fjórtán þúsund fóru í veltubílinn Sá elsti var 92 ára Veltubílnum sem Almennar tryggingar fluttu hingað til lands til að gefa fólki kost á að reyna ágæti bílbeltanotkunar hefur nú verið skilað aftur til Danmerk- ur. Um 14 þúsund Islendingar veltu í bílnum. Jonas Bjarnason, 92 ára gamall, var einn af þeim sem fói'u veltu í bílnum síðasta daginn sem hann var til sýnis og reynslu við hús Almennra trygginga. Jónas var inn- heimtumaður hjá Almennum tryggingum í mörg ár og ók þá um á mótorhjóli. „Mér varð ekkert meint af snúningnum“, sagði hann. „Eg ferðast annars ekki mikið með bílum, en þegar ég þarf þess spenni ég að sjálfsögðu beltin". Jónas ók um á mótorhjóli í yfir 20 ár, frá því um 1960 til 1982 þegar hann varð 88 ára og sagðist hann aldrei hafa orðið fyrir óhappi svo heitið geti. Veltubíllinn kom hingað til lands 19. júní s.l og hefur verið til sýnis á Akranesi, Keflavík, Selfossi, í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík. 4 HÓTEL W ÖDK HVERAGERÐI Laugardagskvöld 18. júlí DAN SLEIKUR Gömlu og nýju dansarnir Hljómsveit JÓNS SIGURÐSSONAR leikurfyrir dansi. Verð aðgöngumiða kr. 400,- Verið velkomin HótelÖrk sími 99-4700. I kvöld leikur MICKE Y DEAN léttan blús frá kl. 20-22 Velkomin á Brasserie Borg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.