Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 45

Morgunblaðið - 17.07.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . Eru hvalveiðar Islendinga hern- aðarmál? Grímur Karlsson hringdi: „2500 Islendingar missa sinn gjaldeyrishlut við stöðvun hval- veiða. Hin 99% þjóðarinnar fá gjaldeyrishlut sinn af vafasömum rányrkjuveiðum annarra stofna. Erum við tilbúin að láta þann hlut líka af hendi ef óskað er eftir? Ástæður fyrir kröfum erlendis frá um alls hetjar veiðibann gætu verið ofveiði, rányrkja, alröng nýting á nytjastofnum og stór- auknir hvalastofnar sem þurfa fæðu. Afstaða Bandaríkjamanna í þessu máli er óskiljanleg í okkar garð. Bandaríkjamenn gera til- raunir með hvali, það eru líka stórhveli úr stáli innan um raun- veruleg dýr í djúpunum. Ég veit ekki hvað halda skal, eru hvalveið- ar okkar kannski orðnar hernað- armál? Hins vegar er alveg skýrt að það hefur enginn íslendingur hver sem hann er eða hvaða starfi sem hann gegnir rétt til þess að skerða með samningum afkomu- möguleika komandi kynslóða í þessu landi." Góður matur á Laugum S.I.hringdi: „Ég var ein þeirra sem var á ættarmótinu á Laugum í Dala- sýslu þar sem upp kom matareitr- un. Ég vil gjaman senda fólkinu þar bestu kveðjur, móttökumar vom mjög góðar og maturinn frá- bær þótt þetta hafi komið upp á. Ég er reyndar ekkert viss um að veikindin hafí stafað af matnum. Mér fínnst ekki vanþörf á að koma þessu á framfæri því að fréttirnar af þessu ættarmóti hafa verið svo neikvæðar." Aðgát skal höfð Hilmar Jenssonhringdi: „Mér datt í hug vísa í tilefni af því að mér fínnast margir fjöl- Frá Siglufirði miðlar, þó ekki Morgunblaðið, vera farnir að gerast of fjölþreifn- ir í mörgum málum áður en niðurstaða er fengin. Of náin um§öllun áður en mál em til lykta leidd getur komið sér illa fyrir margan manninn og jafnvel leitt til falls fyrirtækja. Vísuna nefni ég Aðgát skal höfð. Fjölmiðla í fréttarann flytja vil ég skeyti. Æm sneytt hefur margan mann margföld Gróa á Leiti. Hárþurrku í Sundlaug Vest- urbæjar Sundlaugargestur hringdi: „Mig langar að koma þeim til- mælum á framfæri til forsvars- manna Sundlaugar Vesturbæjar að sett verði upp hárþurrka hið snarasta í kvennaklefanum. Hár- þurrku er að finna í flestum ef ekki öllum öðmm sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu og það getur verið mjög bagalegt að vera án hennar, sérstaklega á' vetuma þegar kaldara er í veðri.“ Reiðhj ólahjálm- ur týndist Stefán Örn vill gjaman biðja þann sem hefur fundið BMX— reiðhjólahjálminn hans að skila honum. Hjálmurinn er svartur með munstri og hann týndi honum þegar hann var að leika sér í móanum við kirkjuna í Hraun- berginu fyrir hálfum mánuði. Hann vill líka biðja foreldra að athuga hvort svona hjálmur hefur nokkuð slæðst heim með bömun- um þeirra. Síminn hjá Stefáni er 71396. Seinagangur og sofandaháttur á Siglufirði K.R. hringdi: „fcg get ekki lengur orða bund- ist eins og svo oft áður að hafa vömbílastöð hér við húsvegginn hjá mér og inni í miðju íbúða- hverfi. Eins og allir sjá sem vilja gengur það ekki. Aðstaðan sem þessir vömbílstjórar hafa þama er svo lítil að þeir leggja bílunum upp á gangstétt og á gatnamótum sem þama em. Þeir skapa því mikla slysahættu þama fyrir utan mengun og ónæði fyrir íbúana. Það hefur oft verið talað um þetta við lögregluna, það er að fá þá til að leggja ekki upp á gangstétt en lögreglan virðist ekki sjá neitt athugavert við þetta. Þeir keyra þama framhjá oft á dag en gera ekkert. Einnig hefur verið talað við forráðamenn bæjarins en allt kemur fyrir ekki, vörubílstjóramir em þama enn. Þrátt fyrir sam- þykktir heilbrigðisnefndar 27. apríl um að starfsemi og staðsetn- ing vömbílastöðvarinnar séu afar óhentug í miðju íbúðahverfí vegna slysahættu og mengunar. Bíða menn eftir því að þama komi eitthvað fyrir eða eftir hveiju er beðið? Kalkhoff—hjóli stolið Martha Bjömsson hringdi. Hún sagði að vínrauðu karl- mannsreiðhjóli af Kalkhoff—gerð með tíu gímm hefði verið stolið frá Stjörnugróf 18 einhvern tímann um síðustu helgi, væntan- lega laugardaginn 11. júlí. Vill hún gjaman að þeir sem vita eitt- hvað um afdrif hjólsins hringi í síma 84288. HEILRÆÐI Munið — björgunarvesti fyrir alla bátsveija. Klæðist hlýjum fatnaði og góðum hlífðarfötum í áberandi lit. Ofhlaðið ekki bátinn og jaf- nið þunganum rétt. Hreyfíð ykkur sem minnst og sýnið sér- staka varúð, er skipta þarf um sæti. Hvenær verða þess ar myndir sýndar? Kvikmyndaunnandi skrifar: Mig langar að forvitnast um það hvort myndimar Down By Law sem söngvarinn Tom Waites leikur aðal- hlutverkið í og Pee—Vee’s Big Adventure séu væntanlegar í íslensk kvikmyndahús. Ef svo er þá hvenær og ef svo er ekki vil ég koma þeim tilmælum á framfæri til kvikmyndahúsaeigenda að þeir skipti um skoðun hið snarasta. Þetta em afbragðsmyndir, hvor á sinn hátt, þótt þær séu ólíkar, önn- ur alveg drepfyndin og hin alveg sérlega vönduð. Hjálpum gamla manninum í frétt Morgunblaðsins miðviku- daginn 8. júlí var sagt frá því að bankabók hefði verið stolið frá gömlum manni og öll innistæðan, 317 þúsund krónur, tekin út af bókinni áður en hann hafði áttað sig á þjófnaðinum. Það þarf varla að taka fram að tjónið kemur sér illa, enda um að ræða sparifé mannsins. Lesendur Morgunblaðsins bmgð- ust skjótt við þegar sagt var frá þessu í blaðinu. Morgunblaðinu barst bréf um hæl þar sem fólk var hvatt til að leggja manninum lið og með bréfinu fylgdi númer á gíró- reikningi sem búið var að stofna á nafni hans og l<‘ggja 3000 krónur inn á. í bréfínu segir meðal annars: „Ef menn tækju nú saman höndum, kíktu í budduna sína og athuguðu hvort þar væri eithvað aflögu þenn- an mánuðinn, emm við sannfærð um að hjálpa má manninum vem- lega. Landinn hefur löngum lyft Grettistaki þegar með hefur þurft. Það gæti einnig gerst núna. í huga okkar er þessi litla gjöf til mannsins einnig sumargjöf til okkar sjálfra." Þessir einstaklingar sem svona bmgðust við óska nafnleyndar gagnvart gamla manninum og les- endum Morgunblaðsins, en aðrir sem eitthvað vilja leggja af mörkum geta snúið sér til hvaða banka sem er eða pósthúss og greitt með C- gíróseðli inn á gíróreikning númer 80180-1 í Póstgíróstofunni Ármúla. Stafína KG má setja í reitinn sem ætlaður er fyrir nafn viðtakanda. m co o ih 00 Góðan daginn! Tískuverslunin Hera, Eiðistorgi Sumarútsalan hefst r dag, föstudag. Opið til kl. 16.00 laugardag. Bladburóarfólk óskast! AUSTURBÆR KÓPAVOGUR Baldursgata Lindargata frá 40-63 Bragagata Snorrabraut Njálsgata frá 24-112 Hverfisgata frá 4-62 o.fl. Borgarholtsbraut Kópavogsbraut frá 84-113 o.fl. Bræðratunga Hrauntunga frá 1-48 o.fl. UTHVERFI Stigahlíð frá 35-97 fktor^nnliIiiMb

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.