Morgunblaðið - 08.08.1987, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987
Svipmyndir úr borginni/óiafur Ormsson
I vikunni fyrir versl-
unarmannahelgina
Magnús Kjartansson, hljómlist-
armaður og hljómsveitarstjóri,
lagði bíl sínum í upphafí vinnuviku
í bílastæði neðarlega við Smið-
justíginn á móts við Vinnufata-
búðina og gaf tóninn með léttu
flauti. Hann var á litlum, ljósum
bfl með G-númeri og brosti út
undir eyru. Umferð nokkur, enn
þrír dagar í mestu umferðarhelgi
sumarsins og hljómsveitarstjórinn
afslappaður og greinilega í góðu
skapi. Kominn af táningaaldrinum
með ómetanlega rejmslu og yfír-
sýn yfir sviðið og ekkert lengur
sem kemur á óvart. Það var verið
að slá upp sölutjöldum í Austur-
stræti og við Lækjartorg, nokkrir
erlendir ferðamenn á gangi um
miðborgina og skoðuðu í búðar-
glugga.
Steinar Sigurjónsson, rithöf-
undur í síðdegiskaffi á Hótel Lind
við Rauðarárstíginn, þegar leið á
þriðjudaginn. Bað um fullt mjólk-
urglas og drakk út í einum sopa.
Kveikti síðan í pípu, hallaði sér
makindalega í stólnum, spennti
greipar og horfði dreymandi
augnaráði út í salinn. Ólafur, veit-
ingamaður, kom með kaffíkönnu
og enn kveikti Steinar í pípu sinni.
í dökkbrúnum jakka, í dökkum
buxum og þunnri peysu, með
snoturt yfirvararskegg og greini-
lega ekki að fara í útilegu um
verslunarmannahelgina. Drakk
hvem kaffíbollann af öðrum og
bleytti í molasykri.
— Hvað segja menn í fréttum?
spurði Steinar þegar hann gekk
í salinn og kom auga á mig við
borð.
— Ég get ekki svarað fyrir
fólk svona almennt. Ætli sé ekki
allt sæmilegt að frétta svona yfir-
leitt þrátt fyrir styijaldir og
glæpaverk víða um heimsbyggð-
ina, svaraði ég og bað Óla veit-
ingamann um örlítið meira kaffí.
Á Hótel Lind er þjónusta ágæt
og salarkynni vistleg.
Á Rauðarárstígnum er töluverð
umferð gangandi fólks og bif-
reiða.
Ólafur H. Ólafsson, skákmaður
og þjálfari ungra afreksmanna í
skákinni, á gangi, broshýr, enda
árangurinn af starfí hans fyrir
íslenska skákhreyfíngu að bera
ríkulegan ávöxt. Matthías Viðar
Sæmundsson, lektor í íslenskum
bókmenntum við Háskóla íslands,
að versla í mjólkurbúð á homj
Rauðarárstígs og Háteigsvegar. í
ljósum, þunnum sumarframa utan
yfír jakkafötin og enginn hávaði
í kringum lektorinn. Líkast því
að hánn biðjist afsökunar á því
að þurfa að ónáða afgreiðslustúlk-
umar. Kurteis maður og traust-
vekjandi. Á Hlemmi beið hópur
fólks eftir strætisvögnum. Þar
sátu á bekk tvær unglingsstúlkur,
á að giska fímmtán, sextán ára,
og ræddu ferðalög um verslunar-
mannahelgina. Sú, sem iíklega er
árinu eldri, sagðist ætla í Húsa-
fell með kærasta sínum, sautján
ára pilti.
— Veistu? Hann hefur aldrei
séð prímus. Svo veit hann ekki
hvar Húasfell er. Hann heldur að
Húsafell sé austur á fjörðum.
Hann hefur aldrei sofíð í tjaldi.
— 0g samt ætlarðu með hon-
um í útilegu. Er hann ekki ferlega
hallærislegur? spurði sú yngri
undrandi á svip.
— Já, ég ætla með honum í
útilegu og hann er sko ekkert
hallærislegur. Hann er svo sætur
og svo æfír hann í bflskúrsbandi,
spilar á gítar.
Og í því kom Grandi-Vogar og
stúlkumar hlupu upp í vagninn.
Bárður Tryggvason, sölumaður
á fasteignasölu, var rólegur og
yfírvegaður þegar ég leit inn um
miðjan dag, á miðvikudegi fyrir
verslunarmannahe'.gina. Fas-
teignasalan númer eitt, tvö og
þrjú, hin veraldlegu gæði í fyrirr-
úmi. Engin áform um ferðalög,
stutt í brosið og bjartsýnina.
— Aldrei meiri sala, sagði hann
þegar ég spurði hvemig gengi.
Svo hringdi síminn og Bárður að
ganga frá sölu á nýju einbýlishúsi.
Það er orðið áliðið sumars.
Haustið framundan með sinn
sjarma, eins og aðrar árstíðir.
Samkvæmislífíð senn að hefjast
af fullum krafti og þá vænkast
hagur ýmsra starfsstétta, t.d.
klæðskera. Karl J. Lillendahl, ný-
útskrifaður klæðskerameistari,
bauð upp á kaffí og meðlæti í
húsakynnum sem hann leigir í
Garðastræti 2. Hann er að hefja
sjálfstæðan atvinnurekstur og
mikið í húfí að vel sé að verki
staðið. Við gengum um vinnustof-
ur og skoðuðum vélar og verkfæri.
Karl kom með fjölmörg sýnishom
af margskonar fataefni í öllum
regnbogans litum sem hann vinn-
ur úr. Staka jakka, stakar buxur
og svo auðvitað alfatnað með
vesti. Meistarinn var stoltur af
sínu efni og má vera það. Inn á
stofuna til okkar kom maður á
þrítugsaldri sem á marga alfatn-
aði og verslar yfírleitt erlendis hjá
klæðskerum á alþjóðamæli-
kvarða. Hann gat ekki fundið
neitt að efninu hjá Karl J. Lillen-
dahi. Gaf því hin bestu meðmæli
og er þó spar á lofíð þegar svo
ber undir. Hann fékk að fara í
einn jakka úr viðurkenndu ensku
ullarefni og þegar hann leit í speg-
il sagði hann:
— Ég er ef til vill ekkert kven-
nagull. En fötin skapa manninn,
segja þeir sem vit hafa á. Nú er
ég að fara á veiðar. í þessum
jakka og ég tala ekki um buxum
við jakkann, sem ég veit að hann
Karl á nóg af, get ég sigrað kven-
fólkið ekki síður en Casanova.
Hann bað Karl að ganga frá jakk-
anum og svo valdi hann buxur
úr góðu efni. Hann borgaði út í
hönd í beinhörðum peningum og
svo var spáð í samkvæmislífið
þegar fer að skyggja. Og aftur
litið í spegil. Og orkureikningur-
inn, rafmagnsreikningurinn, að
koma í hús inn um bréfalúguna.
Það kostar sitt að hefja sjálfstæð-
an atvinnurekstur og þá þarf
ýmislegt að athuga ...
Yöfflur við
allra hæfi
Heimllishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Það er áreiðanlega óhætt að
segja, að öllum þykja góðar volg-
ar nýbakaðar vöfflur, en ef til
vill bestar með sultu og þeyttum
ijóma. En það er hægt að hafa
með þeim annað meðlæti svo sem
sykur, smjör/síróp, ost ofl., allt
eftir því hvemig á stendur. Það
er ekki flókið mál að útbúa vöfflu-
deig, margir slá það saman eins
og pönnukökudeig. í sumum upp-
skriftum er þó gert ráð fyrir
þeyttum eggjahvítum og líkast til
er það deig enn betra og léttara.
í enn öðram er þeyttur ijómi eins
og t.d. í veislu-vöfflunum.
Veislu-vöfflur
2 egg,
2 dl vatn,
3 dl hveiti,
V4 tsk. salt,
sykur eftir smekk,
3 dl ijómi, stífþeyttur.
Egg og vatn er þeytt saman,
hveitinu blandað saman við og að
síðustu er þeyttum ijómanum
hrært saman við. Deigið bakað á
venjulegan hátt og úr verða ca.
10 vöfflur.
Amerískar vöfflur
1 V2 bolli hveiti,
2 matsk. sykur,
V*-l matsk. lyftiduft,
V< tsk. salt,
2 egg, aðskilin,
1 V2 bolli mjólk,
V2 bolli jurtaolía eða bráðið
smörlíki.
Hveiti, sykur, lyftiduft og salt
sett í skál, sigtað, eggjahvítumar
stífþeyttar. Eggjarauðumar
hrærðar, mjólk og olíu hrært sam-
an við og blandað vel. Gerð er
hola í hveitiblönduna, mjólkinni
hellt þar í og blandað vel, síðan
era eggjahvítumar látnar varlega
saman við. Deigið bakað á venju-
legan hátt. Þetta verða ca. 6
vöfflur. En saman við þessa
grannuppskrift er hægt að setja
margt, breyta til og fá allt annað
deig.
Eplavöfflur: Saman við deigið
er sett V2-I bolli rifín epli.
Ostavöfflur: Saman við deigið
er sett V2-V4 bolli rifínn ostur,
helst bragðsterkur.
Kryddvöfflur: Saman við deigið
er sett 1 tsk. kanil! og V2 tsk.
múskat. Það er bá sett saman við
þurrefnin.
Einfaldar vöfflur
3 dl hveiti,
3 dl ískalt vatn,
3 dl kaffíijómi,
3 matsk. olía eða bráðið smjörlíki.
Hveiti og vatni hrært saman,
deigið láti standa í ca. 20 mín.
áður en olíu og ijóma er bætt í,
þeytt vel á meðan. Deigið bakað
á venjulegan hátt. Þetta verða ca.
10 vöfflur.
Súkkulaðivöfflur
150 g hveiti,
50 g maizenamjöl,
2 tsk. lyftiduft,
V2 tsk. salt,
200 g sykur,
25 g smjör eða smjörlíki,
40 g kakó,
2 kúfaðar tsk. skyndikaffí,
2 egg,
8A dl olía,
1 tsk. vanillusykur,
1 V2 dl mjólk.
Hveiti, ljrftiduft og salt er sigtað
saman, sykrinum blandað saman
við. Smjör, kakó og kaffiduft sett
í pott og hitað, hrært vel í á með-
an. Eggin þejrtt með olíu, vanillu-
sykri og mjólk, síðan sett saman
við þurrefnin ásamt kakóblön-
dunni. Bakað á venjulegan hátt,
vöfflumar era mjúkar til að byija
með en verða stökkar ef þær era
aðeins látnar standa.
150 ára afmæli
búnaðarsamtaka
á íslandi:
Málþing og
sjóður til
minningar
um dr. Hall-
dór Pálsson
ALÞJÓÐLEGT málþing til minn-
ingar um dr. Halldór Pálsson
fyrrum búnaðarmálastjóra verð-
ur haldið dagana 18. og 19. ágúst
næstkomandi í tengslum við 150
ára afmæli búnaðarsamtaka á
íslandi. Jafnframt verður stofn-
aður Minningarsjóður dr. Halld-
órs Pálssonar.
Þrír fyrirlesarar frá Bretlandi og
írlandi munu sækja málþingið og
fjalla þeir um ýmsa þætti sauð-
fjárræktar svo sem frjósemi, fóðran
og kjötgæði. Fimm íslendingar
fljrtja erindi og munu öll þessi er-
indi gefa yfírlit yfír þá þætti
íslenskra sauðfjárrannsókna sem
Halldór starfaði við.
Fýrirhugað er að gefa út bók á
næsta ári sem hefur að geyma öll
erindin sem flutt verða á málþing-
inu auk ritgerðar um ævi og störf
Halldórs og skrár um fræðiritgerðir
hans.
Nefndin sem séð hefur um undir-
búning málþingsins er skipuð Hjalta
Gestssyni, Leifi Kr. Jóhannessjmi,
dr. Ólafí R. Dýrmundssjmi og dr,
Sigurgeir Þorgeirssyni.
I tengslum við 150 ára afmælí
búnaðarsamtaka á íslandi verður
einnig haldið 70. Búnaðarþingið og
hátíðarfundur þann 15. ágúst næst-
komandi.
I