Morgunblaðið - 08.08.1987, Side 22

Morgunblaðið - 08.08.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 Finnland: lUraunir með bóluefni gegn alnæmi Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. SIÐAR á þessu ári munu finnskir vísindamenn hefja tilraun- ir með bóluefni gegn alnæmi. Eftir því sem næst verður komist hafa sambærilegar tilraunir eingöngu verið gerðar í Frakklandi. Vísindamenn í Helsinki og Tammerfors hyggj- ast bólusetja sjálfboðaliða, sem eru ekki smitaðir af Eyjahaf: Þríreimar skríða um sundin á ný Poros, Grikklandi; Reuter. Undan eynni Poros í Eyjahafi skríður þessa dagana eftirlíking Þýzkaland: Enn eru sum- ir sannfærðir Koblenz, Reuter. VESTUR-þýzkur bamaskólakenn- ari, sem sakaður var um að segja nemendum sínum að sögur um útrýmingarbúðir nazista vœru uppspuni, fékk á föstudag nfu mánaða skilorðsbundinn dóm fyr- ir að kynda undir kynþáttahatri. Vitnaleiðslur frammi fyrir dóm- stólum í Koblenz leiddu í ljós, að kennarinn, Rudolf Koch, hafði sagt nemendum sínum að einungis 40.000 gyðingar hefðu týnt lífí í síðari heimsstyijöld og útrýmingarbúðimar í Auschwitz væru tilbúningur Banda- ríkjamanna. Hann sagði einnig að meðlimir í hinum vinstrisinnaða flokki græn- ingja væru lygarar og glæpamenn, sem hann myndi skjóta á færi með mestu ánægju. Dómarinn sagði að Koch hefði reynt að draga úr ábyrgð Þjóðveija á Hitlers-tímabilinu og rægt þjóð gyðinga. Dómurinn yfír Koch er skil- orðsbundinn í ár, en hann fær að snúa aftur til starfa með því skilyrði að hann hagi sér eins og maður. Koch sagði að sér hefði ekki geng- ið nema gott eitt til og ákærumar væm samsæri fjandsamlegra nem- enda og kennara. af 2.000 ára gamalli griskri þríreim — svipaðri þeim sem Grikkir sigldu á sínum tíma gegn innrásarflota Persa og sigruðu þrátt fyrir að við ofur- efli væri að etja. Galeiðan er 37 m löng og er fyrst og fremst knúin með hand- afli, en fyrir því sjá 170 ræðarar. Fram úr skipinu stendur rambúkki úr bronsi og var hann notaður til að bijóta gat á síður óvinaskipa. Skipið ryður frá sér 40 rúmlestum af sjó, en því er haldið saman með 2.000 tréfleygum og um 25.000 handsmíðuðum látúnsnöglum. Það vom breskir áhugamenn, sem fengu hugmynina að smíðinni, en gríski flotinn fjármagnaði hana. „Við réðumst í smíðina til þess að kynna okkur sjóhemað fom- manna, sögu og smíðaaðferðir," sagði Apostolis Vasiliades, skip- herra í Grikkjaflota, sem stjómaði verkinu. Smíðina önnuðust hins vegar breskir sjálfboðaliðar úr Oxford- og Cambridgeháskóla. Það em einnig ræðarar frá þessum menntasetmm, sem annast róður- ínn. Ræðaramir sitja í þrefaldri röð við 12 kg þungar áramar. Fomfræðingar telja að í orr- ustunni við Salamis, undan strönd Pelópsskaga árið 480 fyrir Krists burð, hafí 310 þríreimar Grikkja borið sigurorð af 1.207 skipa flota Xerxesar. alnæmisveirunni. Hópur fínnskra vísindamanna með þá Kai Krohn prófessor og Annmari Ranki dósent í broddi fylkingar fékk fyrir nokkmm dög- um 50.000 dollara styrk frá Hollywood í Bandaríkjunum. Finnsku vísindamennimir fengu einir styrk úr sjóði einum sem lýt- ur stjóm leikkonunnar þekktuu Elisabeth Taylor. Krohn og Ranki hafa m.a. starf- að í nokkur ár með hinum virta alnæmissérfræðingi Dr.Robert Gallo. Styrkurinn gefur þeim fé- lögum tækifæri til að vinna áfram að þróun bóluefnis. Hingað til hafa tilraunir þeirra verið ein- skorðaðar við apadýr og hefur komið í ljós að bóluefnið er skað- laust. Tíðni alnæmis er litil í Finnlandi og því er ógerlegt að gera þar tölfræðilega marktækar tilraunir. Finnsku vísindamennimir hyggj- ast því sækja eftir leyfí yfírvalda til að flytja bóluefnið til þeirra staða í Afríku þar sem alnæmi- sveiran er hvað algengust. Yfír- völd margra Afríkuríkja hafa verið treg til að leyfa erlendum vísinda- mönnum til að vinna að rannsókn- um í ríkjum þeirra. Finnsku vísindamennimir ráðgera að eiga samstarf við starfsbræður sína í þeim ríkjum þar sem þörfin er mest. Hafa afrískir sérfræðingar lagt áherslu á að tilraunir þessar verði gerðar á jafnréttisgrundvelli þannig að íbúamir verði ekki not- aðir sem eins konar tilraunahópur. Mörg ríkja Afríku hafa góða reynslu af þróunarsamvinnu við Norðurlönd og em fínnsku vísindamennimir vongóðir um að unnt verði að hrinda þessari áætl- un í framkvæmd. Gangi allt samkvæmt áætlun vonast vísindamennir til að virkt bóluefni gegn alnæmi verði tilbúið eftir ár. Allt að átta ár kunna hins vegar að líða þar til efnið verður sett á markað. Heilbrigðisyfirvöld heimila ekki sölu á lyfjum fyrr en eftir margra ára tilraunir. Fyrirhugað er að hefja fram- leiðslu bóluefnisins samtímis í Finnlandi og Bandaríkjunum ef allt fer að óskum. Bandarískir aðilar hafa sýnt áhuga á að fjár- magna tilraunastarfsemina svo framarlega sem efnið verður einn- ig framleitt þar í landi. VESTUR-ÞYSKU FISKMARKAÐIRNIR ERLENT Samviskuf angar í Póllandi: Vildi ekki sverja Sov- étmönnum hollustueið Varsjá, Reuter. PÓLSKUR herréttur hefur dæmt ungan Pólveija í tveggja ára fangelsi fyrir að neita að fara með eið hersins, en þar er meðaJ annars kveðið á um holl- ustu Póllands við Sovétríkin. Talsmenn pólsku andspyrnu- hreyfingarinnar skýrðu frá þessu á föstudag. Maðurinn, sem heitir Oskar Kasperek og er 27 ára að aldri, var kvaddur í herinn í Wroclaw (Breslau) í febrúar. Hann neitaði þá þegar að sveija eiðinn, og tveimur mánuðum síðar var hann handtekinn er hann fór í hungur- verkfall til þess að mótmæla meðferðinni á sér i hemum. Herrétturinn í Wroclaw dæmdi hann fyrir að neita að gegna her- þjónustu, en andspymumenn segja að það hafí hann raunar aldrei gert. í síðustu viku var annar nýliði í hemum, sem samvisku sinnar vegna mótmælti heraganum, dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Fámennur hópur friðar- sinna, sem kallar sig Frelsi og frið og berst fyrir frelsi mannanna tveggja, sagði að fleiri biðu réttar- haida í pólskum fangelsum fyrir sömu sakir, þar á meðal nokkrir vottar Jehóva. * Utvegsmenn og fisksalar funda í Bremerhaven: Bjartsýni ríkir þrátt fyrir orma- hræðslu neytenda FULLTRÚAJR allra greina í sjávarútvegi í Vestur-Þýskalandi sitja nú á rökstólum í Bremerhaven og ræða hvemig aftur skuli efla sölu á fiski þar í landi. Jochen Janssen, framkvæmdastjóri fiskmarkaðar- ins í Bremerhaven, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að menn í fiskiðnaði væra nú bjartsýnir á að innan fárra vikna tækist að auka aftur fisksölu, sem minnkaði mikið eftir að sjónvarpsþáttur um hringorm i Norðursjávarfiski var sýndur í sfðustu viku. „Við höfum fundað um það til hvaða ráðstafana eigi að grípa til ' að auka físksölu á ný. Augljóst er að ríkisstjómin í Bonn verður að setja reglur, sem skilyrðislaust verður að fylgja, um verkun og framleiðslu fisks til manneldis," sagði Janssen og bætti við að slíkar reglur myndu einnig eiga við um þann fisk, sem landað yrði í Þýska- landi. Janssen sagði að landað yrði úr tveimur íslenskum togurum í Bre- merhaven á mánudag og hefði þeim verið tryggt lágmarksverð Evrópu- bandalagsins fyrir afla sinn þann dag. Hrunið á vestur-þýskum físk- mörkuðum hófst með sjónvarps- þættinum Monitor, sem sjónvarps- stöðin ARD sendi út á þriðjudag í síðustu viku. Þar gat að líta vísinda- menn, sem drógu allt að tveggja sentimetra langa orma út úr fersk- um flski úr Norðursjó. Markaðs- stofnun um sjávarútveg í Bremerhaven komst að þeirri niður- stöðu að sala á físki hefði dregist saman um allt að sextíu prósent: „Ormafréttin kemur mjög illa niður á físksölum," var haft eftir tals- manni stofnunarinnar. „Sjónvarpsþátturinn var sendur út eftir að beinni útsendingu frá tennisleik lauk og áður en Dallas hófst og því horfðu margir á,“ sagði Janssen og hélt því fram að hefði þátturinn verið sendur út á öðrum tíma hefði hann ekki vakið jafn mikla athygli. „Okkur létti mikið þegar í ljós kom að blöð og tímarit gerðu ekki mikið úr þessu máli. Við höfðum búist við að götublöð myndu láta eins og opnuð hefði verið orma- gryfja,“ sagði Janssen. „í upphafí fylltumst við örvæntingu, en nú ríkir bjartsýni. Við erum þess full- vissir að okkur takist á nokkrum vikum að snúa dæminu við.“ Janssen heldur því fram að þýskir neytendur telji fisk ekki óholian: „Menn fylltust viðbjóði og ógleði. Fyrirsögn greinar um málið í tíma- ritinu Der Spiegel hljóðaði „Ógleði, æla“ og lýsir það viðbrögðum al- mennings. En þessu áliti almenn- ings má breyta með upplýsingaher- ferð.“ Janssen kvaðst ekki geta sagt fyrir víst hvaða kröfur yrðu gerðar til afla, sem landað verður í Vestur- Þýskalandi. Þó væri víst að fram- vegis yrði bannað að verka sfld með innyflum eins og tíðkast hefði til þessa þar í landi. Hringormamir eru í innyflum físka en fínna sér leið inn f fiskinn eftir að hann hef- ur verið veiddur. „Ormar hafa fylgt fyski alla tíð og við hljótum að geta leyst þetta vandamál," sagði Janssen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.