Morgunblaðið - 08.08.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987
31
*
Héðinn Sveinn As-
grímsson- minning
Fæddur 24. mars 1930
Dáinn 28. júlí 1987
Þegar ég flutti til Sauðárkróks
fyrir hartnær 30 árum leið ekki á
löngu þar til leið mín lá inn í athygl-
isverðan og merkilegan félagsskap;
kirkjukór Sauðárkróks. Þaðan á ég
margar minningar sern seint fym-
ast, t.d. frá söngæfingum heima
hjá Eyþóri og Sissu svo og ýmsum
eftirminnilegum atvikum og stund-
um í kirkju og utan. Innan kirkju-
kórsins myndaðist sérstætt og náið
samband þess fólks sem þama kom
við sögu. Ljúfsárar og áleitnar
minningar sækja nú á, því að á
örfáum mánuðum hafa þijú af þeim
sem þennan hóp fylltu á þessum
tíma, horfið til landsins handan
móðunnar miklu. Þær Guðrún Ey-
þórs og Siddý létust nú í vor og svo
féll Héðinn frá við vinnu sfna,
skyndilega og óvænt, þ. 28. júlí.
Héðinn var fæddur þ. 24. mars
1930 að Mallandi á Skaga. Bama-
skólanám mun hann hafa stundað
að þeirra tíma hætti en 1950 út-
skrifaðist hapn frá Iðnskóla.
Sauðárkróks. Árin þar á eftir var
hann við ýmis störf, þ. á m. um tíma
mjólkurbflstjóri í Hegranesinu.
1957 hóf hann verklegt nám í hús-
asmíði hjá frænda sínum Sveini
Ásmundssyni frá Ásbúðum á
Skaga. Hafði Sveinn þá á hendi
byggingu Sjúkrahússins á Sauðár-
króki. Um jólin 1959 kvæntist
Héðinn Hjörtínu Steinþórsdóttur
frá Þverá í Blönduhlíð. Þau eignuð-
ust þijá syni: Steinþór f. 1. ágúst
1959, kvæntur Rögnu Sigurðard-
óttur frá Stóm-Ökmm í Blönduhlíð.
Eiga þau tvö böm; Baldur f. 5. fe-
brúar 1963. Unnusta hans er
Ingibjörg Briem, en þau em búsett
í Reykjavík; Stefán er í foreldrahús-
um, f. 20. ágúst 1968. Héðinn og
Hjörtína byggðu sér fallegt ein-
býlishús á Hólavegi 35. Einkenndist
það og umhverfí þess af góðri um-
hirðu og natni. Þangað fluttu þau
í janúar 1963.
Héðinn var hár vexti, myndarleg-
ur, með yfirvegað og hæglátt fas,
en flutti þannig persónu að eftir
var tekið. Hann var í mörgu eftir-
minnilegur maður. Ekki fyrir að
vera áberandi eða afgerandi í opin-
bem lífí — heldur kannske þvert á
móti. Hann var hlédrægur, einstak-
lega háttvís og afskiptalaus um
annarra hagi. Vakti traust og tiltrú
við fyrstu kynni, en var seintekinn
og flíkaði ekki skoðunum sínum.
En við nánari kynni komu í ljós
fastar og mótaðar skoðanir á mönn-
um og málefnum. Hann var einn
af eigendum og starfsmönnum
Byggingarfélagsins Hlyns og á
vettvangi þess fyrirtækis má segja
að hans lífsstarf hafi legið. í vinnu
hans komu glöggt fram þau ein-
kenni sem stýrðu skapgerð hans;
fágæt eljusemi og dugnaður. Vott
um þessa eiginleika hans bera fjöl-
margar byggingar hér á Sauðár-
króki og víðar. Má þar sem dæmi
nefna sjúkrahúsið og aðrar bygg-
ingar því tengdar. Við þær allar
vann hann meira og minna á öllum
byggingarstigum og einnig mikið
viðhaldsvinnu. Þar er afburða góður
frágangur á öllu handverki til vitn-
is, þó að sjálfsögðu hafi þar komið
fleiri við sögu. Hann var þekktur á
sínum vinnustað fyrir að láta ekk-
ert svo frá sér fara að hægt væri
að því að fínna. Annað féll ekki að
lífsstíl hans og skapgerð.
Þrátt fyrir alla hlédrægni og
hógværð var Héðinn hinn skemmti-
legasti viðræðu, greindur, víðlesinn
og fróður. Og gat verið manna orð-
heppnastur og fyndnastur ef því var
að skipta.
Tæpast er á því vafí að fyrir
utan fjölskylduna, starfíð og hið
daglega líf átti tónlistin og söngur-
inn hvað ríkastan þátt í fari Héðins.
Auk þátttöku sinnar í kirkjukóm-
um, sem fyrr er nefnd tók hann
þátt í öðru kóra- og söngstarfi;
hafði unun af því að hlusta á tón-
list, ekki sízt kóra og annan söng.
Ég hygg að ekki hafi margir
dagamir liðið svo að hann settist
ekki við orgelið sitt og spilaði. Ein-
hvem tíma lét hann þess getið við
mig að sálmasöngbókin væri sú bók
sem hann handfjatlaði hvað oftast.
Hún mun hafa verið honum kær
bókin sú. Hann var framúrskarandi
músíkalskur og tónviss. Og það
munu ekki hafa verið margar mess-
umar eða aðrar athafnir í Sauðár-
krókskirkju sl. 30 ár að Héðinn
væri ekki á sínum stað á söngloft-
inu.
Sem fyrr segir lágu leiðir okkar
fyrst saman í kirkjukómum. Fljótt
þar á eftir hófum við byggingu íbúð-
Meðal þeirra sem verk eiga á sýningunni á Kjarvalsstöðum er finnski
innanhúsarkitektinn Yijö Kukkapuro, einingastóll 1969, framleið-
andi Averte oy, Helsinki.
Kjarvalsstaðir:
Norrænu hönnunar-
sýningunni að ljúka
NORRÆNU hönnunarsýning-
unni, sem kennd er við Frederik
Lunning og staðið hefur yfir á
Kjarvalsstöðum lýkur nú um
helgina.
A sýningunni em verk fjörutíu
Norrænna hönnuða, en þeir hafa
allir staðið í fremstu röð, hver í sínu
heimalandi, undanfama áratugi.
Sýningin er einskonar sögulegt yfír-
lit yfír tímabilið frá 1950, en einnig
em í henni sýnishom af nýrri verk-
um þessara hönnuða. Það var árið
1951 sem Frederik Lunning eigandi
Georg Jensen í New York setti á
stofn sjóð í því skyni að veita efni-
legum Norrænum hönnuðum
viðurkenningu. Viðurkenningin var
veitt til ársins 1970, en þá var fyrir-
tæki Lunnings selt að honum
látnum. Eins og áður segir lýkur
þessari sýningu nú um helgina.
Ellen í
Heita
pottinum
ELLEN Kristjánsdóttir söng-
kona heldur tónleika í Heita
pottinum í Duus-húsi sunnudags-
kvöldið 9. ágúst.
Með Ellen leika Mezzoforte-
mennimir Eyþór Gunnarsson,
Friðrik Karlsson, Gunnlaugur
Briem og Jóhann Ásmundsson auk
saxófónleikarans Stefáns Stefáns-
sonar.
Á efnisskrá tónleikanna verður
jass- og blues-tónlist úr ýmsum
áttum, fmmsamin jafnt sem gömul.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30.
Fyrirlestur um
enska lands-
lagsmálara
BRESKI listfræðingurinn Julian
Freeman heldur fyrirlestur í
Norræna húsinu mánudags-
kvöldið 10. ágúst kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnir hann „A
sense of place in English
landscape 1910-1980“.
í fyrirlestrinum fjallar hann um
ensku listmálarana Nash, Nichol-
son, Piper, Sutherland og fleiri.
Julian Freeman veitir forstöðu
myndlistarsýningum „Brighton
Polytechnic Gallery" í Brighton, en
hann er staddur hér á landi ásamt
Michael Tucker, sem er aðalfyrirles-
arinn um norræna mjmdlist við
„Department of Art and Design
History" í Brighton.
Freeman og Tucker munu kynna
sér íslenska myndlist meðan á dvöl
þeirra stendur með það fyrir augum
m.a. að efnt verði til reglubundinna
sýninga á íslenskum myndlistar-
verkum í Brighton og fleiri breskum
borgum.
arhúsa ' okkar, skammt hvor frá
öðrum á svipuðum tíma. Nábýlið
skapaði samskipti sem ekki gleym-
ast. Bömin léku sér saman og voru
heimagangar hvert hjá öðru, bæði
eldri og yngri. Eiginkonur okkar
höfðu að kalla dagleg samskipti og
tengdust vináttuböndum. Fyrir allt
þetta höfum við þakkir fram að
færa — en þær verða ekki goldnar
til fulls með orðum á blaði. Það er
sjónarsviptir á Hólaveginum og ég
hygg a.m.k. þeir sem settust þar
að fyrir t.d. 20—30 árum, byggðu
sín hús og bjuggu sér heimili séu
mér sammála um að skarð sé fyrir
skildi — og að það sé eins og einn
af hinum föstu punktum í tilverunni
hafí horfíð. Hér ráðum við engu um.
En það sem við höfum þó sameigin-
legt með fjölskyldunni á Hólavegi
35 — sem þar bjó sitt blómaskeið
og hefur nú stækkað og dreifst eins
og gengur — að við eigum öll minn-
ingar sem hlýja og eru okkur öllum
mikils virði. Þó að nágrannar séu
oft afskiptalitlir hveijir um annars
hagi myndast þar oft sterk bönd —
og á þau reynir á stundum sem
þessum. Við Lilla ítrekum þakkir
okkar til fjölskyldunnar á Hólavegi
35. Og þau Björg, Friðrik og Kalli^
þakka ekki síður allar stundimar —
alla leikina og samskiptin fyrr á
árum.
Við snöggt og óvænt fráfall reyn-
ir mikið á þrek og æðru þeirra sem
næstir standa. Ekki síst afabam-
anna ungu sem nú standa með
spum í augum og skilja ekki al-
mennilega hvað hefir gerst. Við
trúum því að Héðinn hafí átt heim-
von góða. En hugur okkar og bænir
beinast nú að Hjörtínu, sonunum
þremur og öðrum þeim sem næstir
standa. Megi Guð vemda ykkur öll
og styrkja.
Jón Karlsson
t
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
GUÐMUNDUR P. GUÐMUNDSSON
frá Melum,
andaðist á Hrafnistu fimmtudaginn 6. ágúst.
Ragnheiður Jónsdóttir,
dóttir og tengdasonur.
t
AÐALSTEINN STEFÁNSSON
frá Dvergasteinl,
Fáskrúðsfirði,
andaðist í Landspítaianum aöfaranótt fimmtudags 6. ágúst.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HELGA STEINUNN HANSEN GUÐMUNDSDÓTTIR,
írabakka 14,
verður jarðsungin mánudaginn 10. ágúst kl. 13.30 frá Árbaejar-
kirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Jón Pótursson
GunnarHansen,
Alísa Hansen,
LogiS. Jónsson,
Ruth S. Jónsdóttir,
Ægir S. Jónsson,
Guðmundur S. Jónsson,
Unnur Vilbergsdóttir,
Þorstelnn Sigmundsson,
Halla Gunnarsdóttir,
Sigurður Hákonarson,
Helga Ágústsdóttlr
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu foreldra
okkar og tengdaforeldra,
MÖRTU GUÐMUNDSDÓTTUR
og
ÞÓRHALLS GUÐMUNDSSONAR
frá Laufási,
Sórstakar þakkir til starfsfólksins í Furugerði 1 og á Droplaugar-
stöðum fyrir veitta aðstoð og alla alúð í þeirra garð.
Margrót Þórhallsdóttir,
Guðrún Þórhallsdóttir,
Hólmfríður Þórhallsdóttir,
Sigurður Þórhallsson,
Ragnar Þórhallsson,
Kristbjörg Þórhallsdóttir,
Guðmunda Þórhallsdóttlr,
Þorsteinn Þorsteinsson,
Frfmann Jóhannsson,
Margrét Steingrimsdóttir,
Óskar Marfusson,
Snær Karlsson.
t
Alúöarþakkir færum við þeim sem auðsýndu samúð og vinsemd
við fráfall móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BJARNHEIÐAR JÓRUNNAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Sjafnargötu 6.
Dagbjört Hafllðadóttlr,
SJöfn Hafliðadóttir,
Þórður Hafliðason,
tengdabörn og barnabörn.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.