Morgunblaðið - 08.08.1987, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 08.08.1987, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 35 Stiörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Nautið Nautin eru fædd að vorlagi (20. apríl—20. maí) þegar sólargangur er langur og náttúran að vakna til lífsins. Vorið er frjósamur og gjöfull árstími. Vinna og nautnir Nautin eru athafnamenn en þau vilja einnig njóta lífsins, sólarinnar og ávaxta jarðar- innar. Þau vilja taka til höndunum og ná áþreifanleg- um árangri líkt og bóndinn sem vinnur hörðum höndum að vori og síðan vilja þau liggja uppi í sófa og lepja ijó- mann af afrakstri vinnu sinnar. Fast fyrir í Nautinu býr ákveðin festa og stöðugleiki. Það vinnur jafnt og þétt og grunntónninn er þungur og hægur. Það er stöðugleikinn sem er að baki hinnar frægu þijósku og þol- inmæði Nautsins. Nautsfólk vill einfaldlega ekki breyta til og skipta um skoðun þegar það á annað borð er búið að taka ákvörðun. Breytingar krefjast a.m.k. vandlegrar umhugsunar enda eru allar stærri ákvarðanir Nautsins teknar á löngum tíma. Það er því svo að þegar fólk ætlar að pressa Nautið til að taka ákvörðun í flýti rekst það á steinvegg. Því meiri sem pressan verður því þéttari verður veggurinn. Hlédrœgt Nautið er frekar feimið og varkárt merki. Það tekur t.a.m. tíma að kynnast Nauti. Sama atriði gerir að þú sérð ekki Naut sem treður sér fram á gólfið með hávaða og látum. Aðferð þess er sú að láta lítið á sér bera, kynna sér aðstæður í rólegheiturn og horfa á sviðið úr fjarlægð. Ef því list á það sem er i boði gengur það örugglega til verks, hægt og hljótt eins og Nautið Halla Margrét söng hér á dögunum. JarÖbundiÖ Nautið er raunsæismerki. Það trúir á það sem það getur séð og snert á, annað á síður upp á pallborðið. Hinn áþreifan- legi heimur er því sterkur, stundum um of. Áhersla á líkamlega velliðan, á mat, peninga, steinsteypu og margs konar nautnir getur því orðið sterk. StaÖnar Hið neikvæða í fari Nautsins er það að stundum verður festan og þörfín fyrir öryggi að stöðnun. Úthaldinu er einnig hægt að beina inn á neikvæðar brautir, sbr. þegar Nautið þijóskast við að láta hið ómögulega verða mögu- legt. Það er því svo að stundum grefur Nautið sig ofan í skurð og þijóskast við, fer dýpra og dýpra. Stundum birtist raunsæið og ástin á því áþreifanlega í tortryggni á allt annað en hið „hagnýta" og leiðir til þröngsýni. I sann- leika sagt geta mörg Naut átt til að vera óttalegir „tudd- ar“. FriÖur Nautin eru friðelskandi fólk sem tekur samvinnu fram yfir keppni. „Ef þú lætur mig í íriði þá læt ég þig í friði." Þess vegna eru Nautin yfir- leitt vel liðin. Mörg Naut eru einnig listræn og unna menn- ingu og fallegum munum. Margir góðir söngvarar eru t.d. fæddir í Nautsmerkinu. Öryggi Til að Nauti líði vel þarf það fjárhagslegt og heimilislegt öryggi. Blankt Naut er þreyttur maður. GARPUR GRETTIR DYRAGLENS UOSKA FERDINAND Vcstur Norður Austur Suður — — — 1 lauf 1 hjarta 3 lauf 4 hjörtu Pass Pass 5 lauf Pass Pass Pass ::::::::::::: ::::::::::::::::: SMÁFÓLK ANú MARCIE SAVS F00T6ALL ISN'T FEMININE, CHUCK.. ISN'T 5HE SOMETHIN6? IF I LIKE-TO PLAV FOOTBALL, POES THAT MEAN l‘M NOT c FEMININE, CHUCK? * WHAT 00 VOU THINK, CHUCK ? HUH ? U)H AT 00 VOUTHINK? WERE S0RRV..THE NUMBER VOU HAVE REACHEP IS N0 L0N6ER j IN 5ERVICE.. Og Magga segir að fótbolti sé ekki nogu kvenlegur, Kalli . . . finnst þér hún ekki skrýtin? Ef ég vil ekki spila fót- bolta, er ég þá ekki kvenleg, Kalli? Hvað finnst þér, Hvað finnst þér? Kalli? Afsakið . . . þetta númer sem þú ert að tala við er ekki lengur í sam- bandi . . . BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þegar stunga er yfirvofandi< er stundum hægt að halda hættulegum andstæðingi úti í kuldanum með því að beita „skærabragðinu" eða „klippun-" um“. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 8753 ♦ 5 ♦ K4 ♦ KDG973 Vestur Austur ♦9 ... 4 10642 VAG943 4KD62 f ♦ D1072 ♦ 9863 ♦ Á86 ♦2 Suður ♦ ÁKDG ¥ 1087 ♦ ÁG5 ♦ 1054 NS máttu teljast heppnir að týna 4—4-samlegunni í spaða, því fjórum spöðum má hekkja á tveimur laufstungum. En fimm lauf eru líka vandmeðfarinn < samningur með spaðaníunni út. Það er megn einspilsfnykur af útspilinu og sagnhafi á að gera sér grein fyrir stunguhætt- unni. Sagnir benda til að vestur eigi laufásinn, en austur á ör- ugglega innkomu á hjarta til að spila spaðanum. Við þessu er aðeins eitt að gera, taka upp skærin og klippa á samganginn yfir á hönd aust- urs. Spila þrisvar tígli og henda hjartafímmunni úr blindum. 99% spilara í sporum vesturs freistast til að leggja tíguldrottninguna á gosann, en auðvitað er það mun sterkari vöm að láta tíuna! Það gæti dugað til að draga kjarkinn úr sagnhafa. SKAK Umsjón Margeir Pótursson Á opna mótinu t Kaupmanna- höfn um daginn kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meistar- anna Höi Danmörku, sem hafði hvítt og átti leik, og Lanc, Tékkóslóvakíu. 21. Rxg6+! — hxg6, 22. Dxg6 - Kg8, 23. Dh7+ - Kf7, 24. Bf5 - Ke8, 25. Dg6+ - Hf7, 26. Be6 og svartur gafst upp. Sigurvegari á mótinu varð danski alþjóðlegi meistarinn Bjöm Brinck-Claussen, sem hlaut 7>/2 vinning af 10 mögu- legum. Næstir komu sænski stórmeistarinn Lars Karlsson, Finninn Yijola og Pavlovic, Jugóslavíu, með 7 v. Eini íslend- ingurinn á mótinu, Jóhannes Ágústsson, stóð sig mjög vel. Hann hlaut 6 v. og deildi tíunda sætinu með ýmsum kunnum skákmönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.