Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 5

Morgunblaðið - 08.09.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 5 Mannlíf—metsölutímaritið komið út Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokks- ins hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarna mánuði. í samtali við Mannlíf, sem vafalaust mun vekja mikla athygli, segir Þorsteinn með hreinskilnum hætti frá erfiðri pólitískri og persónulegri reynslu og gerir upp stöðu sína og flokksins, deilurnar um Albert Guðmundsson og fleira. Ármúla 18, sími 82300. Þegar börn eru send fram í sviðsljós fjölmiðla og skemmtanalífs þarf sterk bein til að þola athyglina og umtalið. Það hafði þekktasta barnastjarna okkar um árabil, Ruth Reginalds ekki. í opinskáu viðtali lýsir Ruth, sem nú er rúmlega tvítug, glímu sinni við eiturlyf, eymd og illt umtal, og jafnframt er fjallað um íslensk- ar barnastjörnur fyrr og síðar. Ásamt fjölmörgu öðru efni: — Anna Herdís Eiríksdóttir: Ung fyrirsæta á uppleið er- lendis — grein og myndir — Júlíus Brjánsson með allt í gamni í fullri alvöru — Dr. Stefán Karlsson: ís- lenskur brautryðjandi í bandarískum erfðarannsóknum — Haust- og vetrartískan í kvenfatnaði — Ást við fyrsta tón: Manu- ela Wiesler og Einar Grétar Sveinbjörnsson — Fólkið sem auglýsti smokkaherferðina: Notar það smokkinn? — Þorsteinn J. Vilhjálmsson: Útvarpsmaður sem ekki er í fréttum — Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir: Þingmaður fer í fræði- mennsku — Sjónvarpið tekur sér tak: Ingimar Ingimarsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri CI7 Frjálstframtak Einhver mesti smánar- blettur á íslenska velferð- arþjóðfélaginu er meðferð þess á mönnum sem fundnir hafa verið sekir um glæpi en ekki eru taldir sjálfráðir gerða sinna af geðrænum ástæðum. Um það fjallar grein Mannlifs: „Mennirnir í múrnum". Á litlu sveitahóteli gerast dularfullir atburðir. Líkin hrannast upp. Mannlíf var á staönum og lagði sitt af mörkum við lausn morð- gátunnar. Sovéski kvikmyndaleikstjórinn Tengiz Abuladze frá Grúsíu, sem í skjóli „glasnostsins" hefur sleg- ið í gegn með mynd um harðstjóra sem ekki getur dáið, segir í tæpitungulausu einkaviðtali við Mannlíf frá frelsisbaráttu listamanna við kúgun skriffinnskukerfisins. lSe\t Stefán Jón Hafstein, fréttaritari ríkisútvarpsins deilir hart á pólitíska yfir- stjórn útvarpsins. Barnastjörnur- ‘finkaviöfaí Mannlífs: ■vikmynda-giasnost frá tkír afbrotamenn ;i eða forsjá hjá RÚV' >röinQ/ gengur laus

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.