Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 08.09.1987, Blaðsíða 68
■Hróðleikur og X skemmtun fyrirháa semlága! v ^ ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. DREGIÐ IDILKA Þær stöllur Fjóla, 8 ára, Kristín, 9 ára, og Laufey, 7 ára, hjálpa til við að draga í dilka í Hrútatungurétt á sunnudag- inn. Réttað verður á fleiri stöðum um næstu helgar, en göngum og réttum hefur nú verið flýtt nokkuð, meðal ann- ars til þess að lömbin komi ekki of feit af fjalli. Sjá nánari frásögn af fyrstu réttum haustsins á blaðsíðu 16. Þorsteinn Pálsson sendi Reagan bréf um hvalveiðimál: Viðræður hefjast á ný Gert samkvæmt tillögu í svarbréfi Bandaríkjaforseta Umferðarslys: Sautján ára piltur lést SAUTJÁN ára piltur úr Reykjavík lést í umferðarslysi á Kleppsvegi á sunnudags- morgun. Pilturinn ók bifreið sinni, af gerðinni Fiat Uno, austur eftir Sætúni um kl. 7.35 á sunnudags- morgun. Þegar bifreiðin var komin inn á Kleppsveg missti pilturinn stjóm á henni, með þeim afleiðing- um að hún fór upp á umferðareyju og hafnaði á ljósastaur. Pilturinn var fluttur á slysadeild en var lát- inn þegar þangað kom. Bifreið hans er gjörónýt. Ekki er unnt að birta nafn hins látna að svo stöddu. Útvegsbankinn: Trygging- arféð end- urgreitt JÓN Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, hefur afhent Sambandi íslenskra samvinnufélaga og forsvarsmönnum 33 aðila í sjávarútvegi það fé, sem þeir lögðu fram til staðfestingar tilboðum í hlutafé ríkisins í Útvegsbankanum. „Það er rétt, ég gekk frá því fyrir helgina að skila báðum þeim aðilum, sem tilboð gerðu, því stað- greiðslufé sem þeir lögðu fram þegar tilboðin voru gerð,“ sagði Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra. „Avísanir frá þessum aðilum voru teknar til vörslu að ósk þeirra, en nú er ljóst að nokkur tími getur liðið þar til Útvegsbankamálið leysist og því var ekki talið rétt að binda þetta fé hjá ríkisféhirði og koma þannig í veg fyrir að þeir gætu ávaxtað það. Ég lít ekki svo á að þeir hafi fallið frá tilboð- um sínum með því að taka við þessu fé aftur. Þeir hafa sýnt fram á staðgreiðsluvilja sinn og getu.“ SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík hafði í nógu að snúast aðfara- nótt mánudagsins og fram á morgun. Tvivegis kom upp eldur í íbúðarhúsum og um morguninn var tilkynnt um eld í gistihúsi i Brautarholti. í tveimur tilvik- anna er talið að um íkveikju hafi verið að ræða, en rannsóknarlög- regla rikisins fer með málin. Skömmu eftir miðnætti aðfara- nótt mánudags var slökkviliðið kallað að Kirkjuteigi 13, sem er steinhús, tvær hasðir og ris. Þar reyndist logá í forstofuherbergi og var eldurinn fljótslökktur. Einn maður var í íbúðinni og var hann GERT er ráð fyrir að næstu daga hefjist á ný viðræður milli islenskra og bandarískra stjóm- valda um hvalveiðar íslendinga. Þorsteinn Pálsson, forsætisráð- herra, sendi Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, bréf fyrir skömmu þar sem sjónarmiðum íslendinga var iýst. í gærmorgun nokkuð brenndur á höndum. Hann var fluttur á slysadeild. íbúðin skemmdist lítið, utan forstofuher- bergið. Hálfum fjórða tíma síðar, kl. 3.30, var tilkynnt um eld í íbúð í Garðastræti 13a, sem er þriggja hæða steinhús. Þegar slökkviliðið kom á vettvang reyndist eldur loga á annarri hæð hússins. Lögreglu- þjónn og vegfarandi höfðu þá brotist inn í húsið og náð út manni sem var einn í íbúðinni. Hann var fluttur á slysadeild og síðan á Landspítalann. Reykkafarar réðu niðurlögum eldsins, en grunur leik- ur á að um íkveikju hafí verið að barst forsætisráðherra svarbréf frá Bandaríkjaforseta. Ekki hef- ur verið upplýst um efni þess að öðra leyti en þvi, að Bandaríkja- forseti leggur til að frekari viðræður fari fram milli ríkjanna. Fjórir ráðherrar íslensku ríkisstjórnarinnar ræddu þessa tillögu í gær og nið- ræða. íbúðin skemmdist mikið. Þriðja útkall slökkviliðsins var svo kl. 7.40 á mánudagsmorgun. Þá var tilkynnt um eld í Gistihúsinu í Brautarholti 22. Eldurinn reyndist vera í rúmi og sængurfatnaði í einu herbergjanna, en ekki var búið í herberginu. Líklegt þykir að kveikt hafi verið í. Fyrir utan þessa viðburðaríku nótt var helgin tíðindalftil hjá slökkviliðinu. Síðdegis á sunnudag var að vísu tilkynnt um eld í Brauði hf., Skeifunni 11. Þegar slökkviliðið kom á staðinn hafði eldurinn þegar verið slökktur, en hann hafði kvikn- að út frá bakarofni. urstaðan varð sú að Þorsteinn Pálsson mun á ríkisstjóraarfundi í dag leggja til að þessar viðræð- ur fari fram og Steingrímur Hermannsson, utanríkisráð- herra, annist þær af hálfu íslendinga. Þorsteinn Pálsson sagði í samtali við Morgunblaðið að ástæða þess að bréfíð var sent til Bandaríkjafor- seta sjálfs hafi verið sú, að í stjóm- kerfi Bandaríkjanna hafi málið haft þann gang að það var komið á hans borð. Eftir að íslendingar ákváðu að halda áfram hvalveiðum á þessu ári og veiða 20 sandreyðar eftir hlé sem gert var í sumar vegna viðræðna ríkjanna tveggja hafi ver- ið ákveðið að árétta sjónarmið íslendinga við forseta. Bréfið sem barst í gærmorgun var síðan svar við bréfi Þorsteins. Ekki er ákveðið hvar eða hvenær viðræðumar fara fram en Þorsteinn sagði að áhersla yrði lögð á að það yrði sem fyrst. Hann sagði að eng- ar hvalveiðar yrðu á meðan á þessum viðræðum stæði. Þegar hann var spurður hvort þetta þýddi ekki í raun að engar frekari hval- veiðar yrðu í ár, sagði Þorsteinn, að efnislega væri of fljótt að segja nokkuð um það fyrr en þessar við- ræður hefðu farið fram. „Það veldur okkur vissulega vonbrigðum að Bandaríkjamenn hafa ekki sýnt neitt efnislega í málinu sem við getum talið jákvætt," sagði Þor- steinn. „Það er þó vissulega skref í rétta átt að þeir skuli vilja áfram- haldandi viðræður, en við höfum ekki fengið jákvæð viðbrögð við yfírlýsingu ríkisstjómarinnar á dög- unum.“ Morgunblaðið sneri sér í gær- kvöldi til Eyjólfs Konráðs Jónsson- ar, formanns utanríkismálanefndar Alþingis, og bar undir hann bréfa- skipti forsætisráðherra og forseta Bandaríkjanna. Eyjólfur Konráð sagði: „Eg hef ekkert um málið að segja annað en það, að við mig eða utanríkismálanefnd var ekkert samráð haft." Hjörleifur Guttormsson alþingis- maður hefur óskað eftir sérstökum fundi í utanríkismálanefnd Alþingis vegna þessa máls. í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagði hann að undarlegt væri að stjóm- völd hefðu svarað þessari beiðni Bandaríkjaforseta um viðræður án þess að samráð væri haft við nefnd- ina eða það kynnt þar. Hjörleifur sagði einnig að mjög mótsagna- kenndar fregnir hefðu verið um þetta mál í fjölmiðlum undanfarið þar sem hefðu stangast á yfirlýsing- ar frá sjávarútvegsráðherra og ummæli starfsmanna utanríkis- þjónustunnar. Hjörleifur sagði það einnig tíðindi út af fyrir sig að forseti Banda- ríkjanna væri farinn að skipta sér af veiðum á 20 sandreyðum og það væri nokkuð langt seilst gagnvart öðru ríki þegar svo væri komið. Brunar á mánudagsnótt: Líklegt að tvisvar hafi veríð um íkveikju að ræða t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.